Morgunblaðið - 25.11.1998, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Mósaikverk á Karólínu
SÝNING á mósaikverkum
Bryndísar og Oddn'mar Magn-
úsardætra stendur nú yfír á Ca-
fé Karólínu. Verkin eru af ýms-
um toga, speglar, veggkrossar,
myndarammar, vasar og
kertaglös. Oddrún og Bryndís
hafa stundað listnám í Flórens á
Ítalíu á áranum 1990 til 1997, í
skartgripasmíði og mósaik og er
þetta fyrsta sýning þeirra á
Akureyri. Sýningin verður opin
til og með föstudeginum 4. des-
ember næstkomandi, en á
myndinni era þær systur, Bryn-
dís og Oddrún við eitt verkið.
AKUREYRI
Mikið tjón í einbýlishúsi á Akureyri
Morgunblaðið/Kirstján
Á LEIÐ til hátíðarmessu í Möðruvallakirkju, sr. Sigurður Guð-
mundsson, sr. Hannes Örn Blandon, sr. Bolli Gústavsson og sr.
Birgir Snæbjörnsson.
Möðruvallakirkja 150 ára
EyjaQarðarsveit. Morgunblaðið.
NÝLEGA fór fram hátíðarmessa
í Möðruvallakirkju í Eyjafirði í til-
efni af því að kirkjan varð 150 ára.
Hún var reist að mestu 1847,
en smíði lokið og kirkjan vígð
1848. Aðalsmiðir voru Flóvent
Sigfússon í Kálfsskinni, Friðrik
Möller á Möðruvöllum og Ólafur
Briem á Grund. Möðruvallakirkja
er timburkirkja í hefðbundnum
stíl, turnlaus með krossi á fram-
stafni. Milligerð er milli kórs og
framkirkju, söngloft er í kirkj-
unni. I ofviðri rétt fyrii- jól árið
1972 skekktist kirkjan til á
grunninum og var hún ekki notuð
í allmörg ár eftir það. Á undan-
föi-num árum hafa farið fram
miklar endurbætur á kirkjunni
sem ekki er alveg lokið, en þegar
það verður er hugmyndin að
halda veglega hátíð í tilefni af-
mælisins. Líklegt er talið að Guð-
mundur ríki Eyjólfsson hafí látið
reisa fyrstu kirkjuna að Möðru-
völlum, en hann bjó þar stórbúi
er kristni var lögtekin í landinu.
N+úverandi sóknarprestur er sr.
Hanner Örn Blandon á Syðra-
Laugalandi.
Ný aðferð við minkaveiðar hér á landi kynnt
Morgunblaðið/Kirstján
LEIF Boe með minkagildruna sem hann smíðar og nýlega er farið að
selja á Islandi.
Minkurinn
tældur inn í
gildru
HÚNBOGI Valsson á Akureyri er
nýlega farinn að kynna og selja
minkagildrur, þær eru norskar
að uppruna, en það var Leif Boe
sem hannaði þær. Hver og ein
gildra er handsmíðuð, þannig að
töluverð vinna liggur að baki
gerð hverrar gildru.
Um er að ræða lítinn kassa,
nokkurs konar búr, sem gerður er
úr sterku plastefni. Agni er komið
fyrir í kassanum sem ætlað er til
að draga dýrið að, en áfast kass-
anum er hringlaga stútur sem
minkurinn byrjar á að skríða inn
um. Þegar hann stingur hausnum
inn í búrið fær dýrið þungt högg á
höfuðið og steindrepst.
Opið sem minkurinn byrjar á
að fara inn um er einungis 7
millimetrar að stærð, þannig að
ekki er hægt að stinga inn í það
hendi og þá er heldur ekki hætta
á að kettir eða hundar komist í
gegnum það.
Hafa reynst vel
Leif hefur fengist við að smíða
þessar gildrur í nær tíu ár og
hafa þær verið notaðar í heima-
landi hans, Noregi og einnig í
Kanada og norðanverðum
Bandarikjunum með góðum ár-
angri. Þar um slóðir nota menn
gjarnan ferskan fisk sem agn og
hefur það gefist vel, dæmi eru
um að minkur sé kominn í gildr-
una 25 mínútum eftir að hún var
sett upp. Fyrr í vikunni fóru þeir
Húnbogi og Leif með gildrur
fram í Eyjafjarðarsveit og not-
uðu þá rjúpu sem agn.
Húnbogi hefur frá því í apríl
verið að vinna að því að fá tilskil-
in leyfi fyrir innflutningi og notið
til þess stuðnings veiðistjóra. Um
98% af öllum mink sem veiddur
er í Noregi er veiddur í gildrur,
en hér á landi tiðkast ýmsar að-
ferðir.
Nefndi Húnbogi að hvergi
tíðkaðist í okkar nágrannalönd-
um að nota fótboga og þá væri
ekki leyfilegt að veiða dýrin með
því að drekkja þeim, en þessar
aðferðir væru m.a. notaðar við
minkaveiðar á Islandi.
Mannlaus
jeppi
höfnina
Morgunblaðið/Kristján
JEPPINN var hífður upp á bryggju með krana, en kafara þurfti til aðstoðar við það verk. Fjölmargir bæjar-
búar fylgdust með aðgerðum. Við bryggju liggur Eyborgin EA sem verið var að færa milli bryggjukanta fyr-
ir löndun er óhappið varð. Á minni myndinni skoðar Birgir Sigurjónsson útgerðarmaður inn í jeppa sinn
eftir að hann var kominn á þurrt.
NÝLEGUR jeppi af Musso-gerð
er mikið skemmdur ef ekki ónýt-
ur eftir að hafa lent í sjónum við
Togarabryggjuna á Akureyri
snemma í gærmorgun. Bðlinn var
mannlaus er óhappið varð.
Málsatvik eru þau að verið var
að færa frystitogarann Eyborgu
EA milli bryggjukanta og var
lyftari notaður til að draga aftur-
enda skipsins. Birgir Siguijóns-
son útgerðarmaður Eyborgar
ætlaði hins vegar að draga fram-
enda skipsins að bryggju á jeppa
sínum, er hann taldi að Iyftarinn
væri hættur að toga í skipið.
„Eg hélt að maðurinn á Iyftar-
anum væri að binda afturendann,
þegar ég batt framenda skipsins í
jeppann. Hann var þá bara að slá
endanum fyrir bryggjupolla og
hélt svo áfram að toga. Eg var því
varnarlaus þegar skipið fór aftur
af stað og hljóp út úr bðnum og
reyndi að stöðva lyftarann. Skipið
var þá komið aftur af stað og dró
jeppann í sjóinn,“ sagði Birgir í
samtali við Morgunblaðið.
Bðlinn í gangi og
hliðarrúða opin
Birgir var kominn 50-60 metra
frá jeppanum þegar hann fór í
sjóinn og var því sjálfur ekki í
neinni hættu. Birgir sagði að það
hafi fyrst og fremst verið vegna
sambandsleysis milli sín og lyft-
aramannsins sem óhappið varð.
Jeppinn var í gangi er hann
steyptist í sjóinn og hvarf niður á
botn, eina 5-6 metra, og þá var
hliðarrúðan opin.
Greiðlega gekk að hífa jepp-
ann á þurrt með krana, en kafari
var fenginn til að aðstoða við það
verk.
Ibúðin um-
flotin vatni
MIKIÐ tjón varð í einbýlishúsi við
Áshlíð á Ákureyri í fyirinótt er vatn
flæddi í gegnum öndun á þaki húss-
ins og niður í gegnum loftið í tveim-
ur svefnherbergjum í svefnálmu.
Vatn flæddi víða um íbúðina og
urðu miklar skemmdir á einangran,
loftplötum, veggjum og gólfefnum.
Ragnar Sverrisson eigandi húss-
ins sagði að sér og konu sinni hafí
verið mjög bragðið er þau vöknuðu
við ósköpin um kl. 1.30 að nóttu.
„Við hlupum með bala undir vatns-
flauminn í húsinu og notuðum dælu
til þess að dæla vatni af gólfinu,
auk þess fengum við lánaða dælu
hjá slökkvliðinu til að dæla vatni af
þakinu.“
Vegna bilunar í bræðslukerfi á
þaki hússins stífluðust niðurföll og
safnaðist þar mikið vatn auk þess
sem einnig hafði myndast mikill
klaki sem marga klukkutíma tók að
brjóta og hreinsa af þakinu. Taldi
Ragnar að klakinn á þaki hússins
hafi verið tugi tonna að þyngd. I
gær var unnið að hreinsun innan-
húss en Ijóst er að tjónið er mikið.
„Það er hins vegar erfitt að gera
sér nákvæma grein fyrir fjárhags-
legu tjóni á þessari stundu,“ sagði
Ragnar.
Hann sagði þetta atvik áminn-
ingu til þeirra sem era með óhefð-
bundin þök á húsum sínum, að
fylgjast vel með þeim, ekki síst í
umhleypingum eins og hafa verið á
Akureyri síðustu daga.