Morgunblaðið - 25.11.1998, Síða 16

Morgunblaðið - 25.11.1998, Síða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Ráðstefna gegn vímu á 80 ára afmæli Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson KRAKKARNIR í 8. bekk máttu lesa það sem þeir vildu og létu fara eins vel um sig og þeir gátu. Tveggja vikna lestrarátak Búðardal - Ungmennasamband Dalamanna og Norður-Breiðfírð- inga varð 80 ára 24. maí sl. í tilefni þessara tímamóta var haldin ráð- stefna í Dalabúð laugardaginn 7. nóvember sl. undir yfírskriftinni íþróttir og æskulýðsstarf gegn vímu. Frummælendur á ráðstefnunni voru Hermann Pálsson frá ISI, sr. Óskar Ingi Ingason frá UDN, Magnús Lárusson frá SAA og Ingi- björg Þórólfsdóttir og Hildur Sæ- mundsdóttir frá samtökum um fé- lagslegt uppeldi og vímuvarnir. Ráðstefnustjóri var Sæmundur Runólfsson, framkvæmdastjóri UMFÍ. Ráðstefnan var áhugaverð og kemur til með að nýtast þeim sem eru að ala upp börn og unglinga í baráttunni við helsta vágest nútím- ans, lögleg og ólögleg vímuefni. Sérstaka athygli vöktu baráttuað- ferðir og árangur Tilveru í Grund- arfirði í þessum efnum. Eftirfarandi tillögur voru sam- þykktar á ráðstefnunni: „Ráðstefna UDN, íþróttir og æskulýðsmál gegn vímu, haldin í Dalabúð 7. nóv- ember sl., minnir á forvamagildi íþrótta- og félagsstarfs. Skorað er á foreldra að vera góðar íyrirmyndir barna sinna og taka höndum saman Morgunblaðið/Kristjana Ágústsdóttir STEINUNN Hannesdóttir og Amgrímur Guðmundsson hlutu verðlaun fyrir bestu afrek í íþróttum kvenna og karla í 80 ár. gegn þeim vágesti sem öll fíkniefni eru börnum og unglingum." „Ráðstefnan hvetur stjórnvöld til að tryggja að allar beinar og óbein- ar tóbaksauglýsingar verði bannað- ar. Til þess verði beitt öllum tiltæk- um ráðum.“ Um kvöldið var haldið afmælis- hóf í Dalabúð. Flutt var ágrip af 80 ára sögu UDN. Gestir ávörpuðu hið aldna en síunga afmælisbarn. Fjölbreytt skemmtiatriði voru í umsjá skóla og aðildarfélaga. Þar voru byggðir, æska og elli tengd saman í tali og tónum. Verðlaun voru veitt fyrir knattspyrnu sum- arsins. Afhentur var félags- og framfarabikar UDN. Hann hlaut að þessu sinni Jóhann Hjörleifsson og Golfklúbbur Búðardals. Til- kynnt var um kjör íþróttamanns ársins. Jósef Magnússon, frjáls- íþróttamaður, hlaut þann titil. Veitt voru verðlaun fyrir bestu af- rek í íþróttum kvenna og karla í 80 ár. Steinunn Hannesdóttir hlaut þau verðlaun fyrir 100 m hlaup á tímanum 12,4 sek. en Arngrímur Guðmundsson fyrir 800 m hlaup á tímanum 1.56,55 mín. Guðmundi Gunnarssyni var veitt starfsmerki UMFÍ fyrir óeigingjarnt starf í þágu ungmennafélagshreyfingar- innar. Sambandinu bárust margar góðar gjafír og heillaóskir. Góðir gestir mættu í afmælishóf- ið. Þar má nefna þá Sæmund Run- ólfsson, framkvæmdastjóra UMFÍ, og Guðjón Guðmundsson, formann íþróttasjóðs. Á þriðja hundrað manns mætti í afmælishófið. Skagaströnd - Á degi íslenskrar tungu 16. nóvember var hafíð lestr- arátak í Höfðaskóla. Átakið stendur í tvær vikur og er markmið þess að fá nemendur skólans til að lesa meira sér til skemmtunar og fróðleiks auk þess að nota bókasafnið betur. Lestrarátakið fer þannig fram að ki-akkarnir fá að lesa frjálst ákveð- inn tíma á hverjum degi í skólanum. Þá eru fengnir upplesarar utan úr bæ til að lesa sjálfvalið efni fyrir krakkana einu sinni til tvisvar í viku. Auk þess byrjar hver skóladagur á því að einhver nemandi les upp fyrir alla nemendur skólans á sal. Markmið átaksins nú er eins og áður segir að reyna að opna heim bókarinnar betur fyrir nemendum. I febrúar er síðan áætlað að hafa ann- að tveggja vikna átak þar sem áhersla verður lögð á hraðlestur og að lesa mikið. I apríl verður síðan síðasta tveggja vikna lestrarátakið í vetur en þá verðu lögð höfuðáhersla á upplestur og framsögn. Krakkarnir kunna vel að meta lestrarátakið og fínnst gaman að fá tíma til að lesa eitthvað annað en skólabækurnar á skólatímanum. Einnig finnst þeim mjög skemmti- legt að láta einhvern sem ekki er daglegur gestur í skólanum lesa fyr- ir sig. Ljósmyndari/Gunnar Hjaltason SVEINN Árnson bankastjóri, Elísbet Benediktsdóttir afgreiðslustjóri, Reyðaríírði og Smári Geirsson bæjarstjóri Reyðarfjarðar, við opnun Sparisjóðs Norðfjarðar. Sparisjóður Norðfjarðar opnar útibú á Reyðarfirði SPARISJÓÐUR Norðfjarðar opn- aði útibú á Reyðarfírði 30. október sl. og er það staðsett á Austurvegi 20. Öll þjónusta er í boði ásamt hraðbanka sem er aðgengilegur allan sólarhringinn. Bankastjóri Sparisjóðs Norðfjarðar er Sveinn Árnason en afgreiðslustjóri á Reyðarfírði er Elísabet Benedikts- dóttir. I tilefni af opnun bankans var Félagsmiðstöðinni á Reyðarfirði gefín tölva með öllu tilheyrandi ásamt áskrift að Netinu í 3 mán- uði. Smári Geirsson forseti bæjar- stjórnar tók við gjöfinni fyrir hönd Félagsmiðstöðvarinnar. Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir GUÐJÓN Þ. Guðmundsson, Númi Snær Gunnarsson - Herra Suður- land, og Daði Hrafn Sveinbjarnarson taka þátt í keppninni um Herra Island annað kvöld. Númi Snær Herra Suðurland Hveragerði - Keppnin um titilinn Herra Suðurland fór fram á Hótel Örk, Hveragerði, 13. nóvember sl. Sjö strákar tóku þátt í keppninni sem var öll hin glæsilegasta. Það var Númi Snær Gunnarsson, 18 ára, frá Stokkseyri, sem hreppti hinn titilinn. I öðru sæti varð Guðjón Þ. Guð- mundsson, einnig 18 ára, frá Vfk, og í þriðja sæti varð Daði Hrafn Sveinbjarnarson, 21 árs, frá Sel- fossi. Besta ljósmyndafyrirsætan var valinn Ragnar Heiðar Karls- son, 22 ára, frá Flúðum, en hann var jafnframt kosinn vinsælasti strákurinn af hinum keppendun- um. HÚSEIGNIN á Suðurgötu 6. Lionsklúbbi Siglu- fjarðar gefin húseign Siglufirði - Húseignin á Suðurgötu 6 á Siglufirði var nýlega formlega gefin Lionsklúbbi Siglufjarðar en þá afhenti Guðný S. Fanndal for- manni klúbbsins, Jóni Dýrfjörð, af- sal fyrir húsinu. Lionsklúbbur Siglufjarðar fékk húsið afhent í júní sl. og hafa Lions- menn unnið ötullega síðan að end- urbótum hússins jafnt utandyra sem innan og hefur húsið smám saman verið að fá nýtt andlit og endurheimta fyrri reisn svo sómi er að. Húsið, sem var byggt 1930 og stendur í miðbæ Siglufjarðar, var í eigu Gests Fanndals og konu hans, Guðnýjar, og ráku þau um margra ára skeið verslun og þjónustuíyrir- tæki á neðstu hæð hússins en á 2. og 3. hæð var íbúðarhúsnæði ásamt lagerplássi. Nú hafa Lionsmenn út- búið fallegan fundarsal á 2. hæð hússins sem og aðstöðu fyrir íþróttafélög bæjarins. Neðsta hæð- in er síðan leigð út fyrir verslunar- og skrifstofupláss. Að sögn Harðar Hjálmarssonar, formanns húsnefndar klúbbsins, hefur tíma þeirra klúbbfélaga und- anfarið verið varið í endurbætur Morgunblaðið/Sign'ður Ingvarsdóttir FRÁ afliendingu hússins, f.v. Sigurður Fanndal, sonur Guðnýjar, Guð- ný Fanndal og Jón Dýrfjörð, formaður klúbbsins. hússins og áætlað er að um eða yfir 1.400 vinnustundir hafi þegar verið lagðar í það, að sjálfsögðu allt í sjálfboðavinnu. En margt er framundan hjá félögum Lions- klúbbsins því nú fer að koma að árs- tíðarbundnum störfum og má þar nefna lýsingu í kirkjugörðunum en um margra ára skeið hafa Lionsfé- lagar séð um að tengja ljósakrossa á leiði fyrir bæjarbúa. Einnig sjá þeir um jólatrjáa- og grenisölu og ganga í hús og selja jóladagatöl handa börnum. Ágóði af þessu starfi renn- ur allur til líknarmála.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.