Morgunblaðið - 25.11.1998, Síða 17

Morgunblaðið - 25.11.1998, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1998 17 VIÐSKIPTI Krossanes hf. #• Ur milliuppgjöri jan-sept. jan.-sept. jan.-sept. Rekstrarreikningur Miiijónir króna 1998 1997 Breyting Rekstrartekjur 620,4 686,3 ■9,6% RekstrarQjöld 452.8 511.5 -11.5% Hagnaður fyrir afskriftir 167,7 174,8 ■4,1% Afskriftir 53,8 64,9 -17,1% Fjármagnsgjöld 2,3 6,0 -61,9% Reiknaðir skattar -37,2 -23,2 - Hagnaður tímabilsins 71,6 85,1 -15,9% Efnahagsreikningur Miiijónir króna Breyting | Eit/nir: j Veltuf jármunir 331,6 299,7 +10,7% Fastafjármunir 528,7 474,0 +11,5% Eignir samtals 860,3 773,7 +11,2% 1 Sktihlir oq eioiO ié: 1 139,0 130,5 +6,5% Skammtímaskuldir Langtímaskuldir 139,5 180,2 -22,6% Eigið fé 561,6 462,9 +21.3% Skuldir og eigið fé sarntals 860,3 773,7 +11,2% Kennitölur Milljónir króna 1998 1997 Eiginfjárhlutfall 65,28% 59,83% Veltufjárhlutfall 2,39 2,3 IV semur við Tremwick Einkafl ugm enn fá lægri iðgjöld Krossanes hagnast um 71,6 milljónir REKSTUR Krossaness hf. skilaði 71,6 milljóna króna hagnaði fyrstu níu mánuði ársins og hef- ur eiginfjárhlutfall félagsins hækkað úr 59,83% í 65,28% á 12 niánaða tímabili. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fé- laginu. Rekstrartekjur fyrirtækisins fyrstu níu mánuðina námu 620,4 milljónum króna en rekstrar- gjöld 452,8 milljónum króna. Hagnaður fyrir afskriftir og íjár- magnsgjöld nam því 167,7 millj- ónum króna. Eiginfjárstaða Krossaness hf. hefur styrkst jafnt og þétt á und- anförnum árum og sú þróun held- ur enn áfram, segir í fréttatil- kynningunni. „Til marks um það má nefna að í lok september 1996 var eigið fé félagsins 364,4 millj- ónir króna, á sama tíma í fyrra hafði það aukist í 462,9 milljónir króna og eftir fyrstu níu mánuði þessa árs nemur það 561,6 millj- ónum króna. Eiginfjárhlutfallið hefur því hækkað úr 59,83% í 65,28% á einungis 12 mánaða tímabili," segir í tilkynningunni. Sáttur við niðurstöðuna í tilkynningunni er vitnað í Jóhann Pétur Andersen, fram- kvæmdastjóra Krossaness hf. og segist hann þar sáttur við niður- stöðuna, enda sé hún í samræmi við áætlanir félagsins. „Það stefnir allt í að yfirstandandi ár verði prýðilegt rekstrarár þótt afkoman verði væntanlega ekki eins góð og næstu tvö ár á undan sem eru með albestu rekstrarár- um í sögu félagsins til þessa,“ er haft eftir Jóhanni í tilkynning- unni. Vinnu vegna skráningar Krossaness hf. á Vaxtarlista Verðbréfaþings Islands er nú að mestu lokið og búast forráða- menn félagsins við því að það verði skráð á Vaxtarlistann í næsta mánuði. ÍSLENSKA vátryggingamiðlunin hefur náð hagstæðum samningum við breska tryggingafélagið Tremwick um ábyrgðar- og kaskó- tryggingar fyrir einkaflugmenn, en iðgjöld af tryggingum hækkuðu umtalsvert fyrír þessa aðila í haust í kjölfar nýrra loftferðalaga sem sett voru í sumar. Um er að ræða umtalsvert lægri iðgjöld af tryggingum en flug- mennirnir hafa átt kost á að fá hjá íslenskum tryggingafélögum, að sögn Valdemars Johnsens hjá IV. Nú þegar em um 50 flugmenn á biðlista hjá fyrirtækinu eftir tilboði í tryggingar. Tryggingariðgjöld orðin baggi á flugmönnum Að sögn Valdemars er þess kraf- ist með nýjum loftferðalögum að slysatryggingarapphæðir farþega og flugmanns hækki veralega. I kjölfarið hækkuðu iðgjöldin því veralega hér á markaðnum að hans sögn þannig að vátryggingarið- gjöld vora orðin veralegur baggi á flugmönnum. „Við höfðum í sumar gert samninga við Tremwick um kaskótryggingar fyrir einkaflug- menn þannig að við leituðum til þeirra aftur til að taka lögboðna ábyrgðartryggingu sömuleiðis. Ið- gjöldin af tryggingunum era mjög samkeppnishæf miðað við það sem hér fæst, og sérstaklega munar um ef einhver kaskóti’yggir og ábyrgð- artryggir um leið. Þá erum við með veralega lægri iðgjöld en sam- keppnisaðilar hér á landi,“ sagði Valdemar. Kaskótryggingar eru allt að 40% lægi'i í gegnum IV en gengur og gerist hér á landi en í þeim tilfell- um er aðallega um tryggingar fyrir flugmenn með mikla reynslu að ræða. Islensk tryggingafélög áhugalaus Valdemar segir að IV sjái um að koma tryggingasamningum á með samningum við erlend tryggingafé- lög en íslensk ti-yggingafélög hafa ekki sýnt áhuga á samstarfi við fyrirtækið hingað til, að sögn Valdemars. Islenska vátryggingamiðlunin er einkum með lífeyris-, persónu- og atvinnutryggingar á sinni könnu. Aðspurður sagði Valdemar að er- lendis, sérstaklega í Bretlandi þar sem starfsemi vátryggingamiðlara er orðin mjög þróuð, tíðkaðist það að leitað væri beint til miðlara sem síðan sæju um að finna hagstæð- ustu tryggingamar fyrir viðskipta- vini sína og yrðu þannig banda- menn þeirra tryggðu. Tryggingafé- lögin sjálf skrifa þá einungis niður áhættuna sem þau þurfa að taka. SUÐURALMA Kringlan hefur verib sameinuð undir einu þaki og þú getur komist ó milli suöur- og norðurólmu ón þess aó fara út. Um 140 fyrirtæki í verslun, þjónustu og afþreyingu eru í Kringlunni og starfsfólk þeirra bíóur eftir aó veita þér notalega þjónustu undir sama þaki, alltaf í góðu veðri. Afgreiðslutími: Mán. - fim. frá 10.00 til 18.30 Fös. frá 10.00 till 9.00 Lau. frá 10.00 til 18.00 KRINGMN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.