Morgunblaðið - 25.11.1998, Síða 22

Morgunblaðið - 25.11.1998, Síða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Palestínumenn opna alþjóðaflugvöll á Gaza-svæðinu Líta á flugvöllinn sem tákn Palestínuríkis Rafah. Reuters. MIKILL fögnuður var meðal Pal- estínumanna í gær þegar þeir opn- uðu alþjóðaflugvöll á Gaza-svæðinu, sem þeir lýstu sem tákni Palestínu- ríkis og merki um að friðarumleit- anir þeirra og Israela þokuðust í rétta átt. íbúar sjálfstjórnarsvæða Palest- ínumanna fjölmenntu á athöfnina og margir þeirra höfðu aldrei áður séð flugvél á jörðu niðri. Fólkið söng og dansaði þegar níu flugvél- ar lentu á flugvellinum með gesti frá arabaríkjum og Evrópu. Rauð- ur dregill var á flugbrautinni og Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu- manna, tók á móti gestunum. Með- al gestanna voru opinberar sendi- nefndir, ýmsir þekktir arabar og Miguel Moratinos, sendimaður Evrópusambandsins í Miðaustur- löndum. „Það er ekkert ríki án flugvallar og ríki okkar er Palestína," sagði 26 ára palestínsk flugfreyja sem fylgd- ist með opnunarathöfninni. „Flugvélar munu fljúga frá þess- um flugvelli með pílagríma til Jer- úsalem," sagði Araí'at, sem til þessa hefur þurft að nota egypskan flug- völl í utanlandsferðum sínum frá þvi hann fluttist á Gaza-svæðið árið 1994 eftir að Palestínumenn fengu takmai-kaða sjálfstjórn. Þota hans var síðasta flugvélin sem lenti á flugvellinum í gær og hann fer það- an í opinbera heimsókn til Frakk- lands í dag. Flugvöllurinn er nálægt bænum Rafah, við landamærin að Egypta- landi í suðurhluta Gaza-svæðisins. Hann kostaði 250 milljónir dala, 17,5 milljarða króna, og Palestínu- menn fengu hagstæð lán til að reisa hann. Fayez Zaidan, yfír- maður palestínsku flugmálastjórn- arinnar, kvaðst vonast til þess að áætlunarflug gæti hafist í næstu viku með ferðum til Kaíró, Amman og Jeddah. Hann sagði að flugvöll- urinn myndi blása lífí í efnahag Palestínumanna, sem hefur ekki verið burðugur, og greiða fyrir auknum viðskiptum og ferðaþjón- ustu. Zaidan sagði að tekið hefði 30 mánuði að ná samkomulagi um flugvöllinn, þar af hefðu átta mán- uðir farið í deilu um hvar flug- brautin ætti að vera og þrír mán- uðir í þref um nafn flugvallarins. Að miklu leyti undir stjórn Israela Saeb Erekat, aðalsamningamað- ur Palestínumanna, sagði að opnun flugvallarins yki mjög líkurnar á því að friðarviðræðurnar við Isra- ela bæra tilætlaðan árangur. „Ég tel fullvíst að palestínska þjóðin öðlist sjálfstæði og frelsi mjög, mjög bráðlega," sagði hann. Israelsstjórn er andvíg því að Palestínumenn stofni sjálfstætt ríki og stefnt er að því að leiða þá deilu til lykta í lokaviðræðunum, sem á að ljúka í maí á næsta ári. „Þetta er til marks um sjálfstjórn þeirra og þýðir ekki að þeir hafí fengið eigið ríki,“ sagði talsmaður ísraelska hersins á Gaza-svæðinu og V esturbakkanum. Israelskir öryggisverðir voru á flugvellinum við opnunarathöfnina og samkvæmt samkomulagi Israela og Palestínumanna, sem var undir- ritað í BandaiTkjunum í síðasta mánuði, eiga Israelar að hafa eftir- lit með vegabréfsskoðun palest- ínskra öryggisvarða og rannsaka vörur sem fluttar era um flugvöll- inn til að koma í veg fyrir vopna- smygl. Israelar eiga einnig að ráða því hvaða flugfélög megi nota flug- völlinn og frá hvaða ríkjum fljúga megi þangað. Israelsstjórn hefur sagt að flug frá ríkjum, sem eru óvinveitt ísrael, verði ekki heimil- að. Yilmaz vill kosningar eins fljótt og auðið er Ankara, Moskva, Bmssel, London. Reuters. MESUT Yilmaz, forsætisráðherra Tyi-klands, hvatti í gær til þess að þingkosningar yrðu haldnar eins fljótt og mögulegt væri, en fastlega er búist við að minnihlutastjórn hans falli er þingið greiðir atkvæði um vantrauststillögu á hana í dag. Yilmaz sagðist í gær ekki hafa áhuga á að reyna að mynda nýtt bandalag fyrir atkvæðagreiðsluna. Hann lagði áherslu á að þingkosn- ingar færu fram fyrir áætlaðan kjördag, 18. apríl á næsta ári, og léði máls á að bráðabirgðastjórn færi með völdin fram að kosning- um. Heimildamenn á þinginu sögðu að Yilmaz hefði átt viðræður við Tanzu Ciller, höfuðandstæðing sinn, um myndun stjómar, sem myndi reyna að fresta kosningun- um, sem hafði áður verið flýtt fram í apríl, og sitja út kjörtímabil þingsins, sem lýkur með réttu í desember á næsta ári. Þannig væru stjórnmálasamtök múslíma útilokuð frá valdasetu. Vegna fjandskapar Yilmaz og Ciller myndi Bulent Ecevit aðstoðarfor- sætisráðheira væntanlega verða forsætisráðherra. Tilkynnt var í gær að tyrkneska ríkið myndi hætta að kaupa ítalsk- ar vörar til nota í opinberum bygg- ingum, til að mótmæla því að Italir neita að framselja Kúrdaleiðtog- ann Abdullah Öcalan til Tyrklands. Evrópusambandið sagði að snið- gengju Tyrkir opinberlega ítalskar vörur, bryti það í bága við samn- inga Tyrklands og Evrópusam- bandsins, og gæti leitt til refsiað- gerða. Reuters HÓPUR Palestínumanna krefst þess, á mótmælafundi við nýju flug- stöðina á Gaza-svæðinu þegar hún var opnuð í gær, að Israelar leysi pólitíska fanga úr haldi. Hópur palestínskra fanga í ísraelskum fang- elsum hefur verið í mótmælasvelti í þrjá daga. Asía elti Dow Jones en lítil breyting í Evrópu New York, Singapore. Reuters. NIKKEI-verðbréfavísitalan í Japan fór yfir 15.000 stig í gær í fyrsta sinn í þrjá mánuði og það rakið til mikillar hækkunar á Dow Jones-verðbréfavísitölunni í Bandaríkjunum á mánudag. í Evrópu urðu hins vegar litlar breytingar á gengi hlutabréfa. Hagvöxtur í Bandaríkjunum var verulega meiri á þriðja ársfjórð- ungi en spáð hafði verið. Dow Jones hækkaði um 214,72 stig eða 2,34% á mánudag og er það áttunda mesta hækkun í sög- unni hvað stigin varðar. Stóð hún þá í 9.374,27 stigum og hefur hækkað um meira en 1.800 stig frá 31. ágúst þegar hún var í 7.500 stigum. Hefur hækkunin nú kynt undir spám um, að vísitalan fari yfír 10.000 stig fyrr áramót. Sameining í alnetsgeira Helsta ástæðan fyrir hækkun- inni á Dow Jones nú er væntan- leg sameining nokkm'ra stórfyr- irtækja, einkum í alnetsgeiran- um, en þar fyrir utan hafa vaxta- lækkanii' bandaríska seðlabank- ans ýtt undir hækkanir að undan- förnu. í þriðja lagi kemur svo til, að þeir, sem seldu í ágúst af ótta við mai'kaðshrun, eru nú að koma inn aftur. Hagvöxtur í Bandaríkjunum á þriðja ársfjórðungi var 3,9% en ekki 3,3% eins og spáð hafði ver- ið og þar með rúmlega helmingi meiri en á öðrum ársfjórðungi þegar hann var 1,8%. I tilkynn- ingu frá bandaríska viðskipta- ráðuneytinu segir, að vöxturinn endurspegli meiri útflutning en gert hafði verið ráð fyrir; minni innflutning og mikla neyslu. Verðbólga var aðeins 0,8% en það þýðir að dómi sumra hag- fræðinga, að seðlabankinn geti enn lækkað vexti án þess að auka um leið verðbólgu. Þeh' telja þó litla ástæðu til þess þar sem meira jafnvægis gæti nú á lána- markaði. Þrátt fyrir hagvöxtinn á þriðja ársfjórðungi minnkaði hagnaður fyiái'tækja um 1,8% vegna auk- innar samkeppni við ódýran inn- flutning frá þeim Asíulöndum þar sem efnahagserfiðleikarnir era mestir. Minni óvissa í Japan Hækkunin á Dow Jones olli ekki aðeins hækkun í Japan, heldur einnig í Hong Kong, Fil- ippseyjum, Singapore, Malasíu og Tævan. Björgunaráætlun jap- anskra stjórnvalda er líka farin að segja til sín en þótt hún sé umdeild, þá hefur hún þó eytt að hluta þeirri óvissu, sem áður ríkti. I evrópsku kauphöllun- um hækkaði vísitalan nokkuð eftir hækkunina vestra en féll síðan aftur. Þar sjá menn enga skynsamlega ástæðu fyrir hækk- un og sumir telja raunar, að markaðsgengið sé of hátt og bú- ast við 4-5% leiðréttingu á næst- unni. Námskeið fyrir þá sem vinna við þurrkun fiskafurða, svo og þá sem áhuga hafa á að hefja slíka vinnslu. Farið verður m.a. yfir grundvallaratriði varðandi þurrkun á harðfiski, skreið, þorskhausum og saltfiski. Fjallað verður um eðliseiginleika lofts, uppbyggingu þurrkbúnaðar, orku- og massajafnvægi, gæða- og örverubreytingar við þurrkun, val á hráefni o.fl. Námskeiðið verður haldið 1. desember 1998 frá kl. 9.00-16.00 í Sjávarútvegshúsinu, Skúlagötu 4. Þátttökugjald er kr. 14.500. Innifalin eru góð námsgögn og veitingar. Nánari upplýsingar og skráning í síma 562 0240, í bréfsíma 562 0740, eða með tölvupósti, netfang: info@rfisk.is Réttarhöld yfír „hættulegasta fjöldamorðing;ja sögumiar“ * Almenningur í Ukraínu heimtar dauðadóm Zhytomyr í Úkraínu. Reuters, The Daily Telegraph. RÉTTARHÖLD eru hafín yfir Úkra- ínumanninum Anatolí Onúpríenko, sem nefndur hefur verið hættulegasti fjöldamorðingi sögunnar. Onúpríen- ko, sem er 39 ára, er sakaður um að vera valdur að dauða að minnsta kosti 52 manna og kvenna á sjö ára tíma- bili, en lögregluna granar að fórnar- lömbin séu jaftivel fleiri. Sat Onúpríenko, sem játað hefur á sig morðin, þögull í sérsmíðuðu búri sínu í gær og horfði stöðugt á sama blettinn í gólfi réttarsalarins. Hafði hann verið öllu málglaðari á mánu- dag, á fyrsta degi réttarhaldanna, en haft var eftir honum í sjónvarpi seint á mánudag að hann hefði ávallt vitað hvað hann var að gera. „Ég byrjaði ekki bara að myrða fólk vegna þess að ég var svangur,“ sagði Onúprí- enko. „Ég get ekki sagt að ég hafí haft einhver háleit markmið, fyrir mér var þetta leikur." Aðspurður við upphaf réttarhaldanna kvaðst Onúpríenko ekkert hafa að segja. Er honum var tjáð að það væri lagalegur réttur hans að mótmæla störfum dómsins drundi í Onúpríenko: „Þetta eru ykkar lög, ég lít á sjálfan mig sem gísl ykkar.“ Ekkert hefur borið á eftirsjá hjá Onúpríenko og vakti framkoma hans í réttarsal mikla andúð þeirra fjölmörgu sem komið höfðu sér fyrir á áhorfendabekkj- um. Létu margir í Ijósi reiði sína og sögðu hann eiga skil- ið „hægan og kvalafullan dauðdaga". Mikill þrýstingur er á dómstóla frá almenningi í Úkraínu að dæma Onúprí- enko til dauða fyrir glæpi sína, þrátt fyrir að Úkraína hafi með inngöngu í Evr- ópuráðið árið 1995 gengist undii' bann við aftökum. Gæti dómarinn að öðrum kosti einungis dæmt Onúprí- enko til fímmtán ára fangelsisvistar, skv. úkraínskum lögum. Reuters ANATOLÍ Onúpríenko

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.