Morgunblaðið - 25.11.1998, Side 25

Morgunblaðið - 25.11.1998, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1998 25 LISTIR Aflahrota í Tjarnarborg LEIKLIST Leikfélag Óiafsf jarðar SÍLDIN KEMUR, SÍLDIN FER eftir Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Leikstjóri: Guðmuudur Ólafsson. Ljósameistari: Ingvar Björnsson. Búningar: Guðrún Víglundsdóttir, Anna Gottliebsdóttir. Hljóðfæraleik- ur: Sturlaugur Kristjánsson. Aðal- leikendur: Björn Ólafsson, Sturla Sig- mundsson, Gunnlaug Guðbjörnsdótt- ir, Rögnvaldur Guðmundsson, Hafdís Kristjánsdóttir, Guðbjörn Arngríms- son, Kolbeinn Arnbjörnsson, Halla Jóhannesdóttir, Linda Rögnvalds- dóttir, Sigurjón Magnússon. Félags- heimilinu Tjarnarborg laugardaginn 21. nóv. ÞETTA leikrit Iðunnar og Kristínar Steinsdætra er að verða sígrænt. Áhugaleikhús setja það á svið svo til ár hvert. Ekki er vand- séð af hverju. Efni sýningarinnar er þjóðlegt og stendur mörgum nærri; í huga annarra er síldar- tíminn baðaður í rómantísku ljósi, og þetta verk bregður einmitt slíkum geisla að þessu tímabili og Fagrafirði, en þar er saltað, salt- að, og náttúrlega svolítið meira. Ef þetta leikrit væri á lérefti, kæmi manni naívismi í hug: lítil dýpt, miklar skýringar, en atvika- fjöldi og mannlýsingar eftir týp- um. Það hentar einmitt áhugaleik- hópum, og svo er ekki verra að margir fá að spreyta sig á sviði, við söng og gleði. Ólafsfirðingar taka þetta efni, sem þeir þekkja svo vel og kreista úi' því hvern dropa. Þeir fengu til liðs við sig sem leikstjóra sigldan heimamann, Guðmund Ólafsson, sem er reyndur í leikhúsi og eng- inn amlóði í því sem hann tekur sér fyi-ir hendur. Leikurinn er jafn og víða fjörug- ur, stundum kankvís, og söngur yflrleitt ágætur. Þær útlifuðu far- andsöltunarstúlkur, Valgerður, Þuríður og Fjóla, gengu vasklega og umbúðalaust til verks og slógu léttan og fjörugan grunntón. Linda Rögnvaldsdóttir og Kol- beinn Arnbjörnsson voru ung og feimin en samt stundum frökk og Hafdís Kristjánsdóttir var ánægjulega illkvittin og merkileg með sig í senn. Þá voru þeir Björn Ólafsson sem síldarkóngurinn og Guðbjörn Arngrímsson eins og sniðnir í sín hlutverk, Halla Jó- hannesdóttir spólaði vel í verk- stjórahlutverkinu og Sturla Sig- mundsson var einnig sannfærandi sem Lilli ölkæri. I heild er þetta sýning sem ber þess merki að félagsmenn í Leikfé- laginu hafa lagt í hana mikla vinnu og alúð, og mátti glöggt fínna í salnum að sú vinna var ekki unnin fyrir gýg, því ungir jafnt sem aldn- ir skemmtu sér mæta vel, að ég tali nú ekki um þau uppi á sviðinu. Og þá er tilganginum náð. I hléinu heyrði ég á tal nokk- urra roskinna heiðursmanna. Þeir voru sko aldeilis ánægðir með Sfldin kemur - sfldin fer, og það mátti sjá framan í þeim gleðina yf- ir því að endurlifa ævintýri liðinna daga. Guðbrandur Gislason STÓRSVEIT Reykjavíkur. Ole Kock Hansen stjórn- ar Stórsveit JASSVAKNING, í samvinnu við Stórsveit Reykjavíkur og danska sendiráðið í Reykjavík, stendur fyrir tónleikum í Ráðhúsi Reykjavíkur í kvöld kl. 21. Þar mun Ole Kock Hansen sljórna Stórsveitinni sem flytur útsetn- ingar hans á þjóðlögum, eigin verkum og annarra. Meðal ann- Reykjavíkur ars útsetningar hans á danska þjóðlaginu Ebbe Skammelson og Daydream eftir Billy Strayhorn, en þessi verk hljóðritaði Thad Jones með Radioens Big Band. Ole Kock hefur lengi verið í hópi virtustu djassleikara Dana. Hefur m.a. stjórnað dönsku út- varpsstórsveitinni. BALENO BALENO Komdu og sestu inn Sjáðu rýmið og alúðina við smáatriði. i Skoðaðu verð og I gerðu samanburð. i ALLIR SUZUKI BÍLAR ERU MEÐ: • aflstýri • 2 loftpúðar • aflmiklar vélar • samlæsingar • rafmagn í rúðum og speglum • • styrtarbitai hurðum • • samlitaða stuðara • SUZUKI BILAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. Heimasíða: www.suzukibilar.is SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, slmi 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, sfmi 462 63 00. Egilsstaðir: Bíla- oq búvélasalan hf., Miðási 19, sími 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50. Isafjörður: Bllagarður ehf., Grænagarði, slmi 456 30 95. Keflavík: BG bflakringlan, Grófinni 8, simi 421 12 00. Selfoss: Bílasala Suðurlands, Hrismýri 5, simi 482 37 00. Hvammstanga: Bíla- og búvélasalan, Melavegi 17, simi 451 26 17. SWIFT BALENO WAGON R+ JIMNY VTTARA GRAND VITARA TEGIJND: VERÐ: TEGUND: VERÐ: TEGUND: VERÐ: TEGUND: VERÐ: TEGUND: VERÐ: TEGUND: VERÐ: GLS3d 980.000 KR. 1,3GL 3d 1.140.000 KR. GL 1.079.000 KR. Beinskiptur 1.379.000 KR. JLX SE 3d 1.580.000 KR. GR, VITARA 2,0 L 2.179.000 KR. GLX5d 1.020.000 KR. l,3GL4d 1.265.000 KR. l,6GLX4d 1.340.000 KR. 1,6 GLX 4x4 4d 1.495.000 KR. l,6GLXWAGON 1.445.000 KR. WAGON 4x4 1.595.000 KR. GL4x4 1.259.000 KR. Sjálfskiptur 1.499.000 KR. JLX SE 5d DIESEL 5d 1.830.000 KR. 2.180.000 KR. GR.VITARA2,5 LV6 2.589.000 KR. mr i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.