Morgunblaðið - 25.11.1998, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1998 29
Nýjar bækur
• PÉTUR og Krumnii er rituð af
Arna Arnasyni og myndskreytt af
Halldóri Baldurssyni.
I kynningu
segir að sagan
um Pétur og
Krumma byggist
á þekktu minni
úr íslenskum
þjóðsögum og
þjóðtrú viðvíkj-
andi hrafninum.
Þetta er saga
um visku hrafns-
ins sem fólkið á
bænum á eftir að verða þakklátt
fyrir en þetta er ekki síður saga
umhyggju og vináttu. Bókina prýða
fjölmargar stórar og litríkar mynd-
ir.
Útgefandi er Skjaldborg. Bókin
er31 bls. Umbrot og frágangur:
Skjaldborg. Bókin erprentuð í
Singapúi-. Verð: 1.680 kr.
• SNÆFINNUR snjókarl er eftir
Jón Ármann Steinsson, myndirnar
eftir Jón Hámund Marinósson.
Bókin er ætluð yngstu lesendun-
um og segir frá systkinunum Elvari
og Valdísi sem ákveða að búa til
flottasta snjókarlinn í bænum. Og
Snæfmnur snjókarl er ekki bara
flottur heldur er hann líka
skemmtilegur og tekur þátt í ævin-
týrum krakkanna, ásamt Snædísi
snjókerlingu. En svo kemur vorið
með góða veðrið og þá verða krakk-
arnir að taka til sinna ráða til þess
að Snæfinnur og Snædís bráðni
ekki og verði að engu.
Útgefandi er Fróði hf. Bókin er
26 bls. Litskrúðugar teikningar eru
á hverri síðu. Prentun: Prentsmiðj-
an Oddi hf. Verð 1.290 kr.
Árni
Árnason
LISTIR
Komin meiri fylling
DAUÐARÓSIR er önnur skáld-
saga Arnalds Indriðasonar, en
fyrsta bók hans, Synir duftsins,
vakti athygli í fyrra
og er m.a. í athugun
að gefa hana út er-
lendis. „Dauðarósir
segir af sömu lög-
reglumönnum og Syn-
ir duftsins," segir
Arnaldur, „en við-
fangsefnin em önnur.
Þeir eru koinnir með
nýtt mál til úrlausnar.
Við fáum tækifæri til
að fylgjast með sam-
skiptum félaganna
tveggja og hvernig
þau hafa þróast. Þetta
er hinn klassiski lög-
regludúett og nú er
komin í þá meiri fyll-
ing, þar sem ég er
farinn að þekkja þá betur. Það
skilar sér vonandi til lesandans."
Arnaldur segir að Dauðarósir
sé spennusaga úr íslenskum sam-
tíma. „Sagan hefst þegar lík ungr-
ar stúlku finnst í blómahafinu á
leiði Jóns Sigurðssonar í kirkju-
garðinum við Suðurgötu. Stúlkan
er nakin og ber þess merki að
hafa verið beitt ofbeldi. Lögreglan
stendur ráðþrota þar sem illa
gengur að bera kennsl á stúlkuna
og enginn virðist sakna hennar.
Og ekki gengur betur að útskýra
veru hennar á leiði sjálfrar sjálf-
stæðishetjunnar."
Lítið hefur verið skrifað af
spennusögum hér á landi miðað
við önnur lönd að mati Arnalds.
„Það er ekki mikil hefð fyrir góð-
um spennusögum úr íslenskum
veiuleika. Hér á íslandi fer mest
fyrir fagurbókmenntum, skáldsög-
um og ljóðum.
Kannski hefur ís-
lenskur veruleiki þótt
helst til fábrotinn í
glæpalegu tilliti og
fólk verið tortryggið
á að hægt væri að
skrifa góðar íslenskar
spennusögur. Hefðin
hefur litið nýjungar
hornauga. Sem betur
fer held ég að þetta
hafi verið að breytast
að undanfórnu, fleiri
eru farnir að Ieita á
slóðir reyfarans og Is-
land er að verða al-
þjóðlegra. Það er auð-
vitað afskaplega já-
kvætt fyrir menn eins
og mig.“
Nú hefur þú lengi gagnrýnt
kvikmyndir. Eru þær mikill
áhrifavaldur í skrifum þínum'!
„Tvímælalaust. Allar þær þús-
undir kvikmynda sem ég hef séð
um dagana hljóta að hafa á mann
áhrif, ekki síst góðar spennu-
myndir með hinni sígildu upp-
byggingu og frásagnarhefð. Lyk-
illinn er að byggja upp spennu,
halda henni svo í gegnum alla sög-
una og leysa síðan úr henni á
sannfærandi máta. Mér finnst of
lítið hafa verið gert af þessu hér á
landi og langar að vita hvort ekki
sé hægt að skapa spennusögur í
islensku umhverfi rétt eins og alls
staðar annars staðar.“
En ætlar Arnaldur að skrifa
Arnaldur
Indriðason
meira um þá félaga, Erlend og
Sigurð Óla, rannsóknarlögreglu-
menn?
„Já, það hugsa ég bara,“ er
svarið. „Eg hef svo gaman af
þessu og ég er ennþá að kynnast
þeim félögum. Þeir munu eflaust
snúa aftur með nýtt mál.“
í símtækinu.
Erlendui' Sveinsson rannsóknar-
lögi'eglumaður, fráskilinn einstæð-
ingur um fimmtugt, hafði sérstakan
ama af því að vera vakinn upp á nótt-
inni, einkanlega þegar honum hafði
gengið erfiðlega að sofna eins og
núna. Helvítis miðnætm-sólin hélt
fyrir honum vöku langt frameftir
öllu. Það var eins og ekkert dygði á
hana. Erlendur reyndi að útiloka
svefnherbergi sitt frá næturbirtunni
með þykkum gluggatjöldum en
henni tókst að smjúga framhjá þeim.
Síðast hafði hann útvegað sér leppa
fyrir augun með nokkuð pínlegri fyr-
irhöfn. Hann hafði séð slíka gersemi
á fínum kellingum í bíómyndum og
fengið hugmyndina þaðan en ekki
vitað hvemig átti að nálgast þvílíka
vöru. Hann kallaði á Elínborgu, sem
vann með honum, konu á miðjum
aldri.
- Augnleppa? hváði hún.
- Svona fyrir augun, sagði Erlend-
ur lágt.
- Meinarðu eins og kellingarnar
eru með í bíómyndum? spurði hún og
naut þess að sjá Erlend engjast fyi-ii-
framan sig.
- Það er helvítis miðnætursólin,
sagði hann.
Úr Dauðarósum.
LISTDANS
Tjarnarleikhús
Pontus (ii; Pía
Lýsing: Jóhann Bjarni Páhnason.
Förðun: Anna Friðrikka Guðjóns
dóttir.
SÍÐASTLIÐIÐ föstudagskvöld
fmmsýndi danshópurinn Pontus og
Pía þrjú dansverk í Tjarnarleik-
húsinu. Pontus og Pía samanstend-
ur af tveim danshöfundum og
dönsurum; þeim Helenu Jónsdótt-
ur og Olöfu Ingólfsdóttur. Asamt
þeim koma fram á sýningunni
nemendur úr Nemendadansflokki
Listdansskóla Islands. Helena
Jónsdóttir er lærður klassískur
ballettdansari og djassdansari en
Olöf Ingólfsdóttir hefur myndlist-
arnám og nútímadansnám að baki.
„Sóló 8“ og „Schizo stories“ nefn-
ast verk Helenu Jónsdóttur. Fyn-a
verkið er dansað af sjö nemendum
úr Nemendadansflokki Listdans-
skóla Islands en seinna verkið er
dansað af höfundi sjálfum. Verk
Olafar Ingólfsdóttur „Sannar sög-
ur og lognar" er einnig sólóverk
dansað af höfundi.
SÓLÓ 8
eftir Helenu Jónsdóttur. Dansar-
ar: Nemendadansflokkur List-
dansskóla íslands. Tónlist: „Up
bustle and out“.
í þessu dansverki ber höfundur
getu dansarans í mýkt og sveigjan-
leika saman við beint og óþjált
form spýtu. Nemendurnir mynda
ýmiss konar form og hreyfa sig í
Meira
stífu dansformi í anda spýtu. Þeir
framkalla takt með því að slá á
spýtuna og smella saman fingrum.
Taktinn og aðra tónlist nota þeir á
víxl í dansinum. Ekki verður fjallað
hér um frammistöðu hvers og eins
þar sem um nemendur er að ræða.
Verkið er ágætlega samið en hefði
betur átt heima á nemendasýningu
en í atvinnuleikhúsi.
„SCHIZO STORIES"
eftir Helenu Jónsdóttur. Tónlist:
Gunnlaugur Briem. Búningur:
Helena Jónsdóttir. Texti: Einar
Már Guðmundsson. Lestur: Mar-
grét Vilhjálmsdóttir. Myndband:
Bergsveinn Jónsson.
„Schizo stories" var annað verk
á dagskrá. Þar tvinnar höfundur
saman myndbandi og dansi. Verk-
ið er hugleiðing um fortíð, nútíð
og framtíð. Höfundur veltir fyrir
sér þeirri spurningu hvað sé
draumur og hvað veruleiki. Áhorf-
endur berja augum dropa sem
fellur á vatnsyfirborð á tjaldi upp-
sviðs. Kona í síðum kjól situr við
borð og hefst dansinn með róleg-
um hreyfingum kringum borðið,
stólinn og loks sviðið. Hápunktur
verksins er þegar svart hvítar
myndir birtast af dansaranum á
tjaldinu á meðan sami dansari
dansar þróttmikinn dans á sviðinu
andstætt því sem á sér stað á
tjaldinu. Dansverkið átti góða
spretti þar sem dans og hug-
takk!
myndavinna voru vel útfærð.
Framvinda verksins féll þó niður í
fyrri hluta verksins þar sem
hreyfingar voru hvorki af eða á.
Það er að segja dansarinn hreyfir
sig óhnitmiðað og skapar þannig
tómarúm. Notkun myndbands og
upplesinn texti féllu vel að verkinu
og gáfu því nýstárlegan og jafn-
framt hugljúfan blæ. Tónlist
Gunnlaugs Briem átti stóran þátt í
að gera verkið grípandi og spenn-
andi. Hún spannar vítt svið allt frá
ljóðrænum vatnshljóðum til ki-öft-
ugi-a trommutakta. Sem danshöf-
undur á nýrri braut sýnir Helena
að hún býr yfir dýpt og sköpunar-
gáfu. Sem dansari hefur hún yfir
að ráða útgeislun og sviðsöryggi
og fer létt með að framkvæma eig-
in dansgerð. Fáir stökkva fram á
sjónarsviðið sem fullmótaðir dans-
arar eða danshöfundar. „Schizo
stories" er lofandi dansverk. Gam-
an væri að vita hvort höfundur búi
yfir fleiri hugmyndum á þessu
sviði?
SANNARSÖGUR
OGLOGNAR
eftir Ólöfu Ingólfsdóttur. Dansari:
Ólöf Ingólfsdóttir. Tónlist: Hallur
Ingólfsson. Búningur: Sonný L.
Þorbjörnsdóttir.
Síðasta verkið á dagskrá,
„Sannar sögur og lognar" eftir
Olöfu Ingólfsdóttur, var dansað af
höfundi sjálfum. Það fjallar um
hvernig og hvers vegna fólk segir
sögur. A sviðinu fæðast sögur í
formi dans og hreyfinga. Sumar
sannar og aðrar eflaust lognar. í
verkinu fer dansinn fram í þögn.
Þess á milli slokkna ljósin og kó-
mísk tónlist hljómar í myrkrinu.
Dansarinn birtist annars staðar og
nýr kafli tekur við. Þannig endur-
tekur verkið sig allt til enda. Rétt
eins og töframaður kom dansarinn
áhorfendum stöðugt á óvart. Eng-
inn vissi hvað tók við þegar ljósin
kviknuðu en tónlist Halls Ingólfs-
sonar sem ómaði í myrkrinu lofaði
einhverju óvæntu. Dansarinn kitl-
aði hláturtaugarnar með óvæntum
uppátækjum og stríddi áhorfend-
um þegar hæst stóð með því að
hverfa inn í myrkrið og birtast
skömmu síðar í danskafla af öðr-
um toga. Þegar skugga dansarans
var varpað á tjaldið uppsviðs og
hann hreyfði sig hægt í þögninni
hafði verkið yfir sér annan og
dramatískari blæ. Dansaranum
brást ekki bogalistin varðandi ein-
lægni í túlkun og nákvæmni í
tímasetningu hreyfinga. Hreyfmg-
ar Ólafar koma frá henni sjálfri,
það er eru ekki háðar tískusveifl-
um nútímadansheimsins. Það ger-
ir verkið upprunalegra og athygl-
isverðara fyrir vikið. „Sannar sög-
ur og lognar" er vel uppbyggt
dansverk, hnitmiðað, fágað og
meinfyndið.
Það var ferskleiki yfir tveim
seinni verkunum. Þau hafa það
sem verk jaðarleikhúss gjarnan
hafa fram yfir atvinnuleikhús en
það er frumleiki og djörfung.
Næsta sýning Pontus og Píu er
fóstudagskvöldið 27. nóvember.
Lilja ívarsdóttir
Nýjar bækur
• UPPHÆKKUÐ jörð er fyrsta
skáldsaga Auðar Ólafsdóttur.
í kynningu segir: Sagan fjallar
um stúlkuna
Ágústínu sem
getin er í rabar-
baragarði í
ágústmánuði á
norðlægri eyju,
býr í turnher-
bergi með gúlp-
andi hafið fyrir
utan, tunglið
ískyggilega ná-
lægt og Fjallið
eina að baki. Hún skýtur fugla,
ræktar villigróður í beinum röðum
og notar sérstætt ímyndunarafl sitt
til að hefja sig upp yfir það smáa og
kyrrstæða. Móðir hennar er fugla-
sérfræðingur og stundar rannsókn-
ir í hitabeltinu nálægt miðju jarðar
og þangað ætlar stúlkan sér að
fara.
Auður Ólafsdóttir er listfræðing-
ur, menntuð frá Sorbonne háskóla í
París og kennir listasögu við Há-
skóla Islands og Leiklistarskóla Is-
lands.
Útgefandi er Mál og menning
Bókin er 139 bls., prentuð í Svíþjóð.
Kápumynd er eftir Sigurð Árna
Sigurðsson. Verð: 2.980 kr.
Nýjar bækur
• LEYNDARDÓMUR Norðureyr-
ar er eftir Kristján Jónsson og er
sjálfstætt framhald bókarinnar
Leynifélagið.
I kynningu
segir: „Skáta-
flokkur Kiddýjar
Mundu villist í
svartaþoku og
kemur að landi á
draugastaðnum
Norðureyri. Þar
flækjast krakk-
arnir í æsispenn-
andi atburðarás
sem teygir anga sína alla leið til
Reykjavíkur."
Kristján Jónsson hefur skrifað
margar barnabækur.
Útgefandi er Skjaldborg. Bókin
er 131 bls. Umbrot og frágangur:
Skjaldborg. Bókin er prentuð í
Singapúr. Verð: 1.780 kr.
• HEIMURINN stækkar - Miðald-
ir og heimsveldin miklu er mann-
kynssaga barna og unglinga II. eftir
Nils Hartmann og Charlotte Clante
í þýðingu Örnólfs Thorlacius.
I kynningu segir: I þessari bók er
í myndum og máli greint frá sögu
miðalda og heimsveldanna miklu, á
tímanum frá dögum Krists og til
ársins 1550. Lesmál bókarinnar er
einfalt og lifandi, með kortum og
fjölda mynda og sagan er sögð á ný-
stárlegan og spennandi hátt.
• HEIMURINN breytist Frá siða-
skiptum til tæknialdar er Mann-
kynssaga barna og unglinga III eft-
ir Nils Hartmann og Kirsten Raag-
ard í þýðingu Örnólfs Thorlacius.
Hér segir frá viðburðum í sögu
heimsins frá 1520 til 1875 eða frá
siðaskiptum og fram á tækniöld, í
máli og aðlaðandi og ævintýraleg-
um myndum. Á þessum tíma urðu
gífurlegar breytingar á flestum
sviðum og grunnur var lagður að
því samfélagi nútímans sem við
þekkjum.
Útgefandi er Skjaldborg. Bæk-
urnar eru 62 bls. í stóru broti.
Umbrot og frágangur: Skjaldborg.
Bækurnar eru prentaðar í
Singapúr. Verð hvorrar bókar er
1.690 kr.
Kristján
Jónsson
Loáskinn sjó áraá i r
jakkar
EGGERT
feldskeri
efst á Skólavörðustígnum,
sími 551 1121