Morgunblaðið - 25.11.1998, Side 38

Morgunblaðið - 25.11.1998, Side 38
. 38 MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Sitthvað um byggðaþróun UNDANFARIN ár hafa menn setið löng- um á rökstólum og rætt um allmikla búferla- flutninga af landsbyggð til höfiiðborgarsvæðis, ef til vill hafa (stjóm- mála)menn fælt fólk og fengið það til að flytja með málæði sínu um •> fólksflutning, þar sem oft er tæpt á því hve margir hafi flutt og hvaða líkur eru á því að svo og svo margir flytji á höfuðborgarsvæðið. Það er ekki að mínu mati til þess fallið að halda í fólk á lands- byggðinni ef sífellt er verið að ræða um þá sem flytja, frekar ætti að hrósa þeim sem halda sig heima en Þingmenn þurfa að drífa sig segir Arnljót- ur Bjarki Bergsson, að samþykkja byggða- áætlunina svo hægt sé að fara að vinna eftir henni formæla þeim sem fara á flandur. Munnræpa slík getur orðið yfir- gengileg og mönnum fallist hendur því vandinn hefur vaxið í augunum >á þeim en fátt eitt verið aðhafst. Hvemig væri nú að draga úr orða- flaumnum og vinda sér í fram- kvæmdir? Það var ekki síst málæði, málþófi, að kenna að byggðaáætlun var ekki samþykkt á síðasta þingi. Henni var kastað fyrir róða svo þingmenn gætu komist sem fyrst í sumarfrí. Það var ákveðið að byggðaáætlun yrði í staðinn tekin fyrir á haustþingi 1998. En lítið hef- ur verið gert í þessum málum á þeim tíma sem byggðaáætlun var ósamþykkt plagg í hirslum Alþing- is. Samt er því ekki svo farið að allt hafi farið til andskotans á þeim tíma, þó að talsverður fjöldi fólks hafi flutt á höfuðborgarsvæðið af -iandsbyggðinni, því nokkuð hefur verið um að stefnumótandi sam- þykktir hafi verið gerðar sem byggðar hafa verið á byggðaáætl- uninni, eða þáttum úr henni. En ekkert hefur verið að gert á borði. Ef til vill er það oftrú mín á mátt hins opinbera, en ég get þess þó að það er hreint ekki útilokað, að hefði Byggðaáætlun verið samþykkt í vor hefði verið hægt að vinna að framkvæmd hennar strax í sumar. Það er blóðugt til þess að hugsa að þorsti sumra í sólskin hafi orðið til þess að minna hefur orðið úr við- spymu gegn óeðlilegum fólksflutn- ingi af landsbyggðinni. Kannski eru það bara fordómar mínir á þing- ihannastéttina sem fá mig til að líta á það sem svo, að þingmenn eigi að afgreiða fyrirliggjandi mál, með samþykki eða synjun, áður en þeim er hleypt út í sumarið og sólskinið. En mikill er efinn. Fólki er vissulega frjálst að velja sér sveitarfesti, en hvert er hið frjálsa val þegar fólk flytur og skil- ur eftir auðar og óseídar eigur í fyrrum heimabyggð sinni, sökum Arnljótur Bjarki Bergsson tm Stórhöfða 17, við Gullinbrú, súni 567 4844 fábreytni í atvinnulífí, hás húshitunarkostn- aðar og stopulla sam- gangna, sem að vísu er sífellt verið að vinna bót á, auk ann- arra viðráðanlegra þátta? Hitt er svo annað, en það er réttlætis- kennd réttsýnna íbúa utan landsbyggðar- innar. Fyrir suma er það ekkert tiltökumál að draga úr útgjöldum hins opinbera, ef átt er við að skerða opin- bera þjónustu á lands- byggðinni, en ef sam- svarandi skerðing er fyrirhuguð á höfuðborgarsvæðinu verður fjand- inn laus. Einstaka frjálshyggju- menn hreyfa við því mótmælum er nýju fyrirtæki á vegum hins opin- bera er hleypt af stokkunum á höf- uðborgarsvæðinu. En ef smáörðu af hinu opinbera á að færa út fyrir hreppamörk höfuðborgarinnar heyrast háværar raddir um nauð- ungarflutning starfsmanna stofn- unarinnar og þarf í sumum tilfell- um sérstaka samninga til þess að halda þeim góðum. Þéttbýlið á Sel- tjamamesinu og hjásveitir gína gjörsamlega yfir landinu öllu. Ef eitthvað er einhverju skárra á landsbyggðinni er lagt af stað í herferð og hvergi áð fyrr en mis- munurinn hefur verið jafnaður út, slík fyrirmyndar samkeppni sveit- arfélaganna dregur tæpast úr sam- keppni einstaklinganna og einka- neyslunni. Sveitarfélögin við sund- in verða að fá jafnmikið og hin, til samans, þó svo að það sé fjarri því svo farið að alls þess sem þar er eytt sé þar aflað. Fjármagninu er eytt á höfuðborgarsvæðinu þótt þess sé ekki aflað þar. Hægt er að segja að þessi sveitarfélög þrífi allt til sín, hvort sem það getur talist réttlátt eður ei. Höfuðborgarsvæð- ið liggur á landsbyggðinni eins og mara og sýgur úr henni allan lífs- þrótt. Slík samkeppni sveitarfélaga um íbúa er ekki eðlileg ef það er þá samkeppni. Endalaust hjal gefur ekkert af sér. Þingmenn þurfa að drífa sig að samþykkja byggðaá- ætlunina svo hægt sé að fara að vinna eftir henni. Höfumlur er formaður Varilar, fé- lags ungra sjálfstæðismanna á Akureyri. Stóriðja og þjóðarhagur AÐ undanförnu hef- ur átt sér stað lífleg þjóðmálaumræða um frekari uppbyggingu orkufreks iðnaðar og áhrif hans á umhverf- ið. Frjó umræða af þessu tagi er nauðsyn- leg til að leiða erfið deilumál til lykta. Ég hef lagt áherslu á að sátt náist um eðlilega nýtingu landsins og auðlinda þess, hvort sem það er til orku- vinnslu, ferðamennsku eða annarra nota um leið og tekið er tillit til verndunarsjónarmiða. Ég tel að eftir stóryrtar og tilfinn- ingaþrungnar yfirlýsingar í byrjun umræðunnar hafi hún nú færst í málefnalegri búning og er þess fullviss að ásættanleg lausn finn- ist. Skrif Tryggva Felixsonar Enn ber þó nokkuð á óvandaðri umfjöllun um orkufrekan iðnað. Ein slík grein birtist í Morgunblað- inu í gær þegar Tryggvi Felixson, embættismaður í þjónustu ríkis- stjórnarinnar, reynir að gera tölur mínar um þjóðhagsleg áhrif frekari stóriðjuframkvæmda tortryggileg- ar með villandi samanburði við nið- urstöðu Páls Harðarsonar hag- fræðings. Embættismaðurinn fer villur vegar í sínum samanburði. Hann segir að mismunurinn felist aðallega í þeim aðferðum sem beitt er. Það er ekki rétt. Hann felst fyrst og fremst í því að ekki er ver- ið að bera saman sambærileg dæmi, enda er í mínu dæmi, sem reiknað er af Þjóðhagsstofnun, mið- að við að komi til byggingar 360 þúsund tonna álvers í Reyðarfirði. Embættismaðurinn las það einnig út úr orðum mínum að stóriðjuá- formin leiddu til 4,5% árlegrar aukningar landsframleiðslunnar. Það er ekki rétt. Landsframleiðslan eykst varanlega um 4,5% sem þýðir að framleiðslugeta hagkerfisins eykst sem þessu nemur. Þó Páll Harðarson hafi ekki tekið nákvæm- lega sambærilegt dæmi í sínum ágæta fyrirlestri á ráðstefnu Verk- fræðingafélags Islands má af sam- anburði við svipuð dæmi sjá að ekki er mikill munur á niðurstöðu hans og Þjóðhagsstofnunar. Áhrif framkvæmda að mati Þjóðhags- stofnunar í haust fól iðnaðar- ráðuneytið Þjóðhags- stofnun að meta þjóð- hagsleg áhrif af bygg- ingu nokkurra stór- iðjuvera. Niðurstaða Þjóðhagsstofnunar er sú að ef gert er ráð fyrir að álver Norður- áls stækki um 30 þús- und tonn og nýtt álver rísi á Reyðarfirði í Finnur tveimur áföngum frá Ingólfsson 2003-2006 megi, að öðru óbreyttu, reikna með að landsframleiðsla aukist var- anlega um 4-5%, þjóðarframleiðsla og einkaneysla um ríflega 3%, út- flutningur um 10-15%, fjárfesting um 180 milljarða á byggingartíma Ótvírætt er hægt að fullyrða, segir Finnur Ingólfsson, að upp- bygging orkufreks iðn- aðar á undanförnum árum hefur reynst þjóðarbúinu farsæl. og bein ný framtíðarstörf við iðju- verin yrðu 530. Hins vegar mætti gera ráð fyrir að viðskiptajöfnuður á byggingartíma yrði um 3,5% lak- ari sem hlutfall af landsframleiðslu en ella. Góðærið og stóriðjan Ekki er nokkrum blöðum um það að fletta að efnahagsuppveiflan á Islandi á ekki hvað síst rót sína að rekja til stóraukinnar fjárfestingar atvinnuveganna undanfarin ár. Þar ber hæst framkvæmdir í tengslum við stóriðju og tengd orkumann- virki. Alls má gera ráð fyrir að þessar framkvæmdir nemi rúmum 56 milljörðum króna og þar af sé erlend fjárfesting um 27 milljarðar króna. Erlend fjárfesting í atvinnu- rekstri hefur stóraukist með upp- byggingu orkufreks iðnaðar á síð- ustu árum. Erlend fjárfesting var nær engin á fyrri hluta þessa ára- tugar. Bein fjármunaeign erlendra aðila í atvinnurekstri á íslandi nam rúmum 8 milljörðum króna í árslok 1995. Um síðustu áramót var bein fjármunaeign erlendra aðila tæpir 24 milljarðar og hefur vaxið umtals- vert á þessu ári. I fyrra var erlend íjárfesting um 2% af landsfram- leiðslu en algengt er meðal OECD- ríkja að erlend fjárfesting nemi á bilinu 2-3% af landsframleiðsu. Á þessu sviði hafa því orðið straum- hvörf. Stóriðjuframkvæmdirnar hafa átt vei-ulegan þátt í að auka tiltrú Islendinga á efnahagslífinu og væntanlega einnig stuðlað að aukn- um fjárfestingum á öðrum sviðum. Þær hafa hins vegar ekki leitt til slíkrar þenslu í hagkerfinu sem títt var um stórar framkvæmdir á ár- um áður. Þannig spáir Seðlabank- inn að verðbólga á þessu ári verði aðeins um 0,6%. Reikna má með að framkvæmd- irnar auki landsframleiðslu varan- lega um 2% og bæti þannig við framleiðslugetu þjóðarbúsins. Ut- flutningur mun aukast um 16 millj- arða þegar framleiðslugeta iðjuver- anna verður að fullu nýtt. Það er um 8% aukning útflutnings ef mið- að er við heildarútfluning vöru og þjónustu í ár. Framkvæmdirnar hafa á hinn bóginn haft tímabundið neikvæð áhrif á halla á viðskiptum við útlönd. Uppbygging orkufreks iðnaðar að undanförnu hefur dregið úr vægi sjávarútvegs í útflutningi og aukið fjölbreytni í efnahagslífinu. Banda- rísku matsfyrirtækin Standard & Poor’s og Moodys hafa einmitt nefnt minnkandi einhæfni útflutn- ingsatvinnuvega sem eina af megin- röksemdum sínum fyi-ir að hækka lánshæfismat Islands. Ótvírætt er hægt að fullyrða að uppbygging orkufreks iðnaðar á undanförnum árum hefur reynst þjóðarbúinu farsæl. Hún hefur auk- ið vægi annarra greina en sjávarút- vegs í þjóðarbúskapnum, rennt fleiri styi-kum stoðum undir út- flutningsatvinnuvegina, aukið framleiðslugetu þjóðfélagsins, skapað fjölbreyttai-a atvinnulíf og flutt inn erlent fjái-magn, tækni- þekkingu og hundruð nýrra há- launastarfa. Síðast en ekki síst leið- ir meiri fjölbreytni til sveiflujöfnun- ar og bættra lánskjara. Höfundur er iðnaðarráðherni og varaformaður Framsóknarflokks- Skipulagðar hvalveiðar AD mati vísindamanna keppa hvalastofnar í Atlantshafi í auknum mæli við fiskveiðiflota okkar íslend- inga. Af þessu má draga þá ályktun að flestar tegundir sjávarspendýra hafi náð sér á strik og hvölum fari fjölgandi á ný. Ef við viljum halda okkar hlut í hefðbundnum fiskveið- um, þurfum við að herða sóknina í samræmi við stækkandi hvalastofna og svara samkeppninni með öflugri fiskiskipum, afkastameiri veiðar- færum og aukinni útrás á fjarlæg mið með risatogurum sem frysta um borð. Afleiðingamar eru fyrirsjáanleg- ar. Arðsemi fiskveiða minnkar, eyðilegging á hafsbotninum verður meiri, fiskverkun í landi dregst áfram saman, vistkerfi sjávar raskast enn meir og með tímanum versnar afkoma sjávarútvegsins með skelfilegum afleiðingum fyrir smærri útgerðir og sjávarpláss sem byggja allt sitt á hefðbundnum fisk- veiðum. Annar möguleiki er sá að skera heildarkvótann niður um 20 til 30.000 tonn á ári með tilheyrandi samdrætti í þjóðarbúskapnum. Byggðaröskun er þegar orðin mikil og samdráttur í afla ýtir undir þá Það sem við þurfum er ný og skipulögð hval- veiðistefna, segir Ragnar A. Þórsson, byggð á vísindalegum rökum og þjóðhagsleg- um forsendum. óheillaþróun. Sá sem telur það ójafnvægi sem nú er að skapast í vistkerfinu við strendur landsins eiga eitthvað skylt við náttúruvernd er illa að sér í umhverfismálum. En hvað er til ráða? Mín skoðun er sú að í staðinn fyrir að hörfa og draga lappirnar sé best að horfast í augu við vandann og taka á honum núna. Það sem við þurfum er ný og skipulögð hvalveiði- stefna, byggð á vísinda- legum rökum og þjóð- hagslegum forsendum, eins konar skipulagðar hvalveiðar. Slíka ákvörðun þarf að kynna rækilega á al- þjóðavettvangi og standa við hana. Við verðum að hefja undirbúning fyrir slíkar veiðar og einsetja okkur að veiða tiitekinn fjölda af hrefnum og jafnvel öðrum tegundum með útflutning í huga, jafnvel þótt einhverjum samtökum og ríkisstjórnum mislíki það. Bann við flutningi hvalaafurða á milli landa brýtur í bága við alþjóðalög og stríðir gegn frjálsri milliríkja- verslun. Við verðum að ákveða með hvaða skipum og hvernig skotfærum við veiðum, hvar, hvenær og hve mörg dýr við drepum. Þekking íslendinga á hvalveiðum og ástandi hvalastofna Ragnar A, Þórsson ætti að duga til þess að veiðarnar fari ekki úr böndunum. Það er eng- um akkur í að útrýma hvölum, hvorki fiski- fræðingum né þeim sem ætla að lifa af hvalveiðum. Með því að hefja tak- markaðar og skipu- lagðar hvalveiðar á ný sönnum við fyrir um- heiminum að við erum í stakk búin til að við- halda hvalastofnum. Með því að gera ekkert viðurkennum við að við erum ófær um að um- gangast vistkerfi hafs- ins og látum öðrum eftir að stjórna nýtingu sjávarspendýra og jafnvel fiskistofna síðar meir. Þeim sem óttast efnahagsþving- anir af hálfu Bandaríkjanna vil ég segja þetta: Þær eru þegar hafnar vegna þeirrar skerðingar sem við verðum fyrir með stækkandi hvala- stofnum. Ef veiðar hefjast geta af- leiðingarnar varla orðið verri en það ástand sem nú blasir við. Lát- um reyna á faglega meðferð máls- ins. Höfundur starfar við ferðaþjónustu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.