Morgunblaðið - 25.11.1998, Side 50

Morgunblaðið - 25.11.1998, Side 50
MORGUNBLAÐIÐ ■ 50 MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1998 Dýraglens Ljóska Smáfólk 50 IVE'LL 60 FROM H0U5ET0 HOUSE 1‘ TRICR OR TREATIN6/ AHP PEOPLE 10ILL 6IVE US THIN65.. Svo göngum við hús úr húsi og segjum „grikk eða gjöf“, og fólk gefur okkur hluti ... Eins og kannski reiðhjól? Nei, ekki reiðhjól... Ef til vill appelsínu eða smáköku. Reiðhjól væri gott... Þú verður að taka því sem býðst ... Hvernig flækist ég inn í annað eins og þetta? BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Mjói vegurinn Frá Guðbjörgu Þórisdóttur: VEGURINN sem liggur til lífsins er mjór. Það eru fáir sem rata hann. Þeir eru margir sem velja breiða veginn, sem liggur til glötunar. Ekki fara allir þeir sem eru skírðir og fermdir mjóa veginn. Aðeins þeir sem elska Guð af öllu hjarta, allri sálu, öllum huga og öllum mætti. Þeir sem elska Jesú Krist, játa hann sem Drottin og hlýða boðum Hans, þ.e. heilagri ritningu. Sam- kvæmt könnun sem gerð hefur ver- ið kemur í ljós að fæstir íslending- ar trúa á Guð Biblíunnar. Þeir trúa á alls konar framhaldslíf og endur- holdgun, en ekki á upprisulíf með Jesú Kristi, eins og Biblían boðar. Samt telja þeir sig flestir kristna. Og prestarnir halda áfram að skíra, ferma og jarða... og allir fara upp til Guðs samkvæmt þeirra orð- um. Læðist ekki að neinum að ein- hver blekking sé í gangi? Er ekki þessi mjói vegur, sem svo erfítt er að rata samkvæmt Biblíunni, orð- inn fullbreiður? Er kannski til tvenns konar kristni? Kristni sam- kvæmt orði Biblíunnar og kristni sem mennirnir búa sér til. Er nóg að skírast og fermast til að verða hólpinn? Getur hinn frjálsi maður nútímans hannað sinn eigin Guð? Af hverju segja prestarnir í jarðar- förunum að allir fari upp til Guðs? Líka þeir sem hafa afneitað Guði allt sitt líf. Er ekki betra að vera annaðhvort í alvöru kristinn, eða hreinlega ekki kristinn, heldur en einhvers konar gervikristinn? Hvenær hætti vegurinn að vera mjór? Stóra spurningin er: Ert þú frelsaður út úr ríki myrkursins inn í ríki ljóssins? Hefur þú kropið við krossinn og iðrast synda þinna í sannleika frammi fyrir augliti Guðs? Hefur þú fundið elsku Guðs fylla hjarta þitt af nýju lífi í Jesú Kristi? Hefur þú þá skynjað að orð Guðs er sannleikurinn og að þú vilt fylgja þeim Kristi sem er höfundur þessa orðs? Þá ert þú hólpinn og hefur höndlað hið eilífa líf. En þú sem elskar ekki Jesú Krist og hef- ur engan áhuga á að fylgja orði hans, ertu viss um að skírnarat- höfnin og fermingarathöfnin geri þig að kristnum manni og að það sé því ekkert að óttast að þú fyrir- gjörir sálu þinni og glatist að þessu lífi loknu? Annaðhvort hata menn Ijósið eða elska það. Valið er okkar. Annaðhvort elskum við Krist, hið eina sanna ljós og hlýð- um boðum hans, eða við höfnum honum. Það er ekkert þar á milli. Engin grá svæði, aðeins svart og hvítt, myrkur eða ljós. Veldu Ijós- ið! GUÐBJÖRG ÞÓRISDÓTTIR, Hörgsholti 17, Hafnarfírði. Guðbjörg Þórisdóttir Lífssýn Frá Birnu Smith: NU í morgunroða hinnar nýju dög- unar, þegar Ijósið kviknar óðum í brjóstum mannanna, sannleikurinn verður blekkingunni yfirsterkari og fólk leyfir sér að tjá hug sinn og hjartaþel óhikað, þorir að fara sín- ar eigin leiðir án ótta við skoðun og fordóma ann- arra, er dásam- legt að fylgjast með þeim sam- ferðamönnum sem sjá fegurð- ina allt í kring- um um sig og tjá þakklæti, gleði og von í stað bölmóðs og svartsýni. Gunnþór Guðmundsson er átt- ræður bóndi og spekingur, sem trú- ir á hið góða í manninum og trúir því að réttlætið muni sigra að lokum og að friður sé í augsýn á jörð vorri. Hann gefur nú út sína fjórðu bók, Lífssýn, en hún er af ætt opinber- unarbóka, og má segja að þær séu ritaðar af þeim sem sjá lengra en aðrir. Ég vil þakka Gunnþóri fyrir hans fallegu gjöf okkur til handa og gef honum nú orðið: Svo mikil eru undur og dásemdir þessa lífs, að við þurfum ekkert að vera hissa á því, að kærleikurinn sé grundvöllur alls þessa, eða hvert væri gildi þess án hans. Andleg vakning mun leysa af hólmi hina efnislegu ofdýrkun. Hún mun grundvallast á samhygð allra, sem vilja betri heim. Múrar, sem risið hafa milli trúar- bragða munu hrynja. Allir sem leita æðri forsjónar og andlegs vaxtar eiga samleið. Hin nýja vakning rís ekki gegn trúarbrögðum, hún legg- ur meira upp úr andanum en bók- stafnum. Páll postuli sagði: „Bók- stafurinn deyðir en andinn lífgar." Kristur sagði: „Guðsríkið er hið innra með yður.“ Hin nýja vakning mun leggja áherslu á kærleikann í verki, að hver einstaklingur leiti að því besta innra með sjálfum sér og glæði það. Aldagamlar kennisetn- ingar missa marks, nema þær séu í samhljóm við hina jákvæðu fram- þróun lífsins og lögmál kærleikans. Trúin lyftir manni á vængjum vonarinnar og sigrar, af því að hún efast ekki. Sá sem er þeim vanda vaxinn að mæta þrengingum, vex af þeim. BIRNA SMITH, Bergstaðastræti 52, Reykjavík Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunbiaðið áskilur sér rétt tii að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fyigir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.