Morgunblaðið - 25.11.1998, Side 51

Morgunblaðið - 25.11.1998, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1998 51 ? BRÉF TIL BLAÐSINS „Aumingja mennirnir...“ Frá Hirti J. Guðmundssyni: ÞAÐ hefur víst ekki farið framhjá neinum fræðsluátakið þeirra útvegs- manna í helstu fjölmiðlum iandsins að undanförnu. Þegar ég sá þetta hugsaði ég með mér að nú væru þessir endemis útvegsmenn enn og aftur að reyna að halda fram sínum vonlausa málstað, að þessu sinni með skipulegri áróð- ursherferð. Svona var maður nú þröngsýnn og fullur fordæm- ingar. En annað kom á daginn. fræðsluátakið svipti svo um munaði hulunni af sannleik- anum í málinu. Ég fór nefnilega að skoða þetta nánar og hvað kom á daginn? Jú, blessaðir útvegsmenn- irnir höfðu þá eftir allt verið hafðir fyrir algerlega röngum sökum. Sam- kvæmt þeim upplýsingum sem í átakinu voru virtist manni varla annað mögulegt en að mikill meiri- hluti útvegsmanna væri langt undir fátækramörkum og ætti sér varla til hnífs og skeiðar. Gat maður bara ekki annað en fundið til örlítillar samúðar með blessuðum köllunum. Allan þennan tíma höfum við, al- Hjörtur J. Guðmundsson menningur, dæmt þá rangt. Að vísu geta þeir sjálfum sér um kennt að vissu leyti þar sem við gátum ekki vitað að allir þessir fjallabílar og lúxuskerrur væru teknar út á lán svo ekki sé minnst á einbýlishúsin og aðrar eignir. En hvaða borgari þessa lands færi að auglýsa fjár- hagsleg vandamál sín fyrir alþjóð? En nú er okkur ljóst hvernig í þessu öllu liggur. Útvegsmenn eru greini- lega allt að því gjaldþrota menn sem rétt lifa af dag frá degi. Þeir ei'u sem sagt engir sægreifar eftir allt heldur miklu heldur sæleifar, enda eru þeir sjálfsagt við það að fara í hundana. Annars var það almenn- ingi líkt að ráðast að þeim sem höll- umstum fæti standa í þjóðfélaginu og klína á þá sökum sem þeir engan veginn eiga skildar. En hvað gera útvegsmenn þá ekki til að bjarga málunum. Jú, þeir safna saman sín- um örfáu krónum í púkk og koma af stað fræðsluátaki svo almenningi verði ljós villa sín. Og viti menn, hreinn hagnaður af þessum blessaða sjávanltvegi er þá bara nánast ekki neinn. Blessaðir mennirnir eiga sem sagt alls enga peninga og þar af leið- andi geta þeir engan veginn borgað neitt veiðileyfagjald. Varla viljum við setja þessa aumingja menn út í kuldann svona um hávetur. Þessir menn hafa ekki haft annað að leiðar- ljósi í þessari illa launuðu atvinnu- grein en að þjóna landi og þjóð og tryggja það að einhverjir stunduðu þessa undirstöðuatvinnugrein lands- ins, landsmönnum öllum til hags- bóta. Græðgi og eigin hagsmunir munu því aldrei hafa verið í huga þessara manna og væri því réttast að þeim væri hverjum og einum veitt fálkaorðan fyrir hina fórnfúsu og ósérhlífnu þjónustu sína við væg- ast sagt skelfileg skilyrði. Es. Það skal tekið fram að í mín- um huga er hugmyndin um veiði- leyfagjald í einhverri mynd einungis annars flokks úrræði á vandanum hvað snýr að ríkjandi fiskveiði- stjórnunarkerfi. Fyrsta flokks úr- ræði að mínu mati væri að hanna nýtt kerfi í stað kvótakerfisins sem væri réttlátt, sanngjarnt og sam- kvæmt lögum! Þar sem hagsmunir þjóðarinnar í heild eru hafðir að leiðarljósi en ekki einstakra útval- inna manna. Þessar greinar mínar eru eingöngu til þess gerðar að svala ádeilu útvegsmanna á rétt- mæti veiðileyfagjalds við ríkjandi fiskveiðistj órnunarkerfi. Einhvers konar veiðileyfagjald á fullkomlega rétt á sér við núverandi aðstæður en er hins vegar langt því frá fullkomin lausn. HJÖRTUR J. GUÐMUNDSSON laganemi "slim-line" dömubuxur frá gardeur Oðunro tískuverslun v/Nesveg, Seltj., s. 5611680 Ertu búinn að skipta um olíusíu? Komdu í skoðun Nýbýlavegi 4-8 S. 563 4400 TOYOTA ESTEE LAUDER Mikilfengieg litasamsetning - fallegasta jólagjöfin? Förðunaraskja Hinir glæsilegustu litir fyrir uugu, varir, kinnar og neglur í fallegri öskju, þar ó meðal 2 Re-Nutriv-varalitir, 2 Double-color-varalitir, 1 varablýantur, 1 augnblýantur, 1 More than Mascara, 3 naglalökk, 8 augnskuggar, 2 kinnalitir og 4 förðunarburstar. Verð kr. 5.760 Verðgildi öskjunnar með innihaldi er kr. 26.700. Ath. Takmarkað magn. Sendum í póstkröfu. UttTTTU H Y G E A (SNVRTIVÖRUVERSLUNIN GLÆSÍÆ Sími 568 5170 'fiiyrtivoruvcrjlun Lougavegi 23, sími 511 4533. Kringlunni 8-12, sími 533 4533. Austurstræti 16, simi 511 4511. fyrirjólabaksturinn!! KitchenAid KSM90 ásamt öflugri hakkavél að verðmæti kr. 5.480 KitchenAid' Kóróna eldhússins! 128.340,- með hakkavélinni! (stgr.-hvítvél) * 60 blaðsíðna leiðbeininga- og uppskriftabók á íslensku fylgir. * Fjöldi aukahluta fáanlegir, svo sem: Pastagerðartæki, grænmetiskvamir, hveitibrautir, dósaopnarar, kommyllur, ávaxtapressur og fl. * Aðrargerðir KitchenAid hrærivéla kosta frá kr. 25-935 stgr. MÍSSTU|EKKI,AF.Þ.ESSU,FRÁBÆRAiTÍLBOðTÍ BORGARTÚN 28 - S: 562 2900 & 562 2901 KitchenAid einkaumboð á íslandi Einar Farestveit &Co.hf. Sufiurlandsbraut 26 s: 568 1950

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.