Morgunblaðið - 25.11.1998, Page 52
MORGUNBLAÐIÐ
V 52 MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1998
Bergsteinn Ein-
arsson un^linga-
meistari Islands
I DAG
VELVAKAJVDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
SD-kremið
ÞAR sem ég er með þenn-
an hvimleiða húðsjúkdóm,
psoriasis, vil ég enn og aft-
ur minna bræður mína og
systur sem er eins ástatt
fyrir og mér að nú er vet-
urinn kominn og þá er
mikilvægt fyrir okkur að
huga vel að húðinni.
Reynsla mín af SD-krem-
inu er sú að það sé besta
vörnin sem ég hef fundið.
Eg hef notað þetta krem á
annað ár og er nú alveg
laus við öll flúður. Kremið
er alveg ótrúlega lækn-
andi, ekki bara gegn psori-
asis, heldur flestöllum út-
brotum svo sem ofnæmi
fyrir hinu og þessu. Ekki
spillir það fyrir að kremið
er alíslensk vara, búið til
úr íslenskum jurtum, vatni
og lýsi. Það hefur nú verið
endurbætt og er orðið,
sem sagt, lykarlaust. Þetta
krem þarf ekki að nota
stöðugt. Mér hefur reynst
vel að taka mánaðartörn
og bera þá á sjúka bletti
3-4 sinnum á dag og eftir
vikuna eru greinileg bata-
merki. En það er nauðsyn-
legt að eiga SD-kremið
alltaf og ef það koma blett-
ir; bera þá strax á þá og þá
myndast aldrei sár. Munið
að það á að geyma kremið í
kæli. SD-kremið er ekki
dýrt og endist lengi og er
selt í öllum betri apótekum
og einnig í Hagkaupi og
mörgum matvöruverslun-
um. Gangi ykkur vel í vet-
ur. Þökk sé þeim sem
lögðu krafta sína í að búa
SD-kremið til. Það hefui-
reynst mér vel.
Ragnheiður
Guðmundsdóttir.
Kveðja frá Ameríku
ELÍSABET Axelsdóttir,
Los Angeles, hafði sam-
band við Velvakanda og
biður hún íyrir kveðju til
allra þeirra sem sýndu
henni hlýhug og tóku vel á
móti henni í Islandsferð
hennar sl. sumar.
Ekki góð þjónusta
ÉG VIL kvarta yfír þjón-
ustu Flugfélags íslands.
Núna í dag, mánudag, er
ófært og flug liggur niðri
vegna ísingar og veðurs á
Suðurlandi. Búið var að
lesa inn upplýsingar á sím-
svara kl. 6.40 en fólk var
ekki látið vita fyrr en það
var komið á Egilsstaða-
flugvöll og þarf fólk því að
hanga á flugvellinum í all-
an dag. Þegar fólk pantar
farið er það beðið um
símanúmer, en samt er
það ekki látið vita. Ég er
búin að lenda í því þrisvar
sinnum á sl. 5 mánuðum að
flug hafí verið fellt niður
og aldrei er boðið upp á
neinn afslátt vegna óþæg-
indanna, en það eru mikil
óþægindi að þurfa að eyða
heilu dögunum á flugvöll-
unum, það er ekki það
skemmtilegasta sem mað-
ur gerir.
Ester.
Tapað/fundið
Alfex-kvenúr
týndist
NÝTT, fínlegt Alfex-
kvenúr með gull og silfur-
keðju, týndist sl. sunnu-
dag, sennilega fyrir utan
Lyfju í Lágmúla. Skilvís
finnandi hafi samband í
síma 553 2224.
Game Boy-tölva
týndist
Game
týndist
Boy-leikjatölva
á gangbraut frá
Miklubraut að BóLstaðar-
hhð sl. fímmtudag. Skilvís
finnandi hafí samband í
síma 567 2253.
Svört húfa
í óskilum
SVÖRT prjónahúfa með
áletrun fannst á milli
Hverfisgötu og Vitastígs í
síðustu viku. Upplýsingar í
síma 551 4706.
Dýrahald
Litli svartur
er týndur
UNGUR fressköttur, kol-
svartur, frekar langur og
ógeltur, týndist frá Njáls-
götu. Hann hefur ekki
komið heim lengi en hann
hefur sést á flakki í ná-
gi-enninu og á Skólavörðu-
holti. Þeir sem hafa orðið
hans vaiár hafi samband í
síma 551 9364.
Sól er týnd
RAUÐGULBRÖNDÓTT
læða sem heitir Sól. Hún
er með hvíta bringu og
hvítt í kringum munninn.
Hún er með bleikrauða ól
og grátt segulstál á ólinni
undir hálsinum. Hún týnd-
ist frá Nökkvavogi 14 sl.
sunnudag. Þeir sem hafa
orðið hennar varir hafi
samband í síma 553 4041.
Morgunblaðið/Ásdís
Víkverji skrífar...
SKAK
Félagsheimili llellis,
20. — 22. nðvember:
UNGLINGAMEISTARAMÓT
ÍSLANDS
Bergsteinn Einarsson, 17 ára félagi í
TR, varð íslandsmeistari f flokki ung-
*- linga 20 ára og yngri um helgina.
UNGLINGAMEISTARAMÓT
Islands, 20 ára og yngri, fór fram
um helgina. Þessi mót hafa ávallt
verið geysisterk og spennandi. Að
þessu sinni þótti Is-
landsmeistarinn frá ár-
inu 1997, alþjóðlegi
meistarinn Jón Viktor
Gunnarsson, mjög sig-
urstranglegur. Svo fór
þó að unglingameistari
Islands 1998 varð
Bergsteinn Ólafur
Einarsson, 17 ára fé-
lagi í Taflfélagi
+ Reykjavíkur. Hann
hlaut 614 vinning í 7
skákum og þar skipti
mestu sigur hans í
skákinni við Jón Vikt-
or í þriðju umferð. Þar
með stöðvaði Berg-
steinn Einarsson
tveggja ára sigurgöngu Jóns Vikt-
ors Gunnarssonar í flokki 20 ára og
yngri. Þótt Jón Viktor sé langstiga-
hæsti skákmaður okkar í þessum
aldursflokki hefur hann greinilega
eignast verðuga keppinauta.
í verðlaun fær Bergsteinn ferð á
skákmót erlendis. Röð efstu manna
á mótinu varð eftirfarandi:
1. Bergsteinn Ólafur Einarsson 6!4 v.
2. Jón Viktor Gunnarsson 6 v.
3. —4. Hjalti Rúnar Ómarsson 5 v.
3.—4. Ólafur ísberg Hannesson 5 v.
5.—6. Ólafur Kjartansson 4‘A v.
5.—6. Guðjón Heiðar Valgarðsson 4‘A v.
o.s.frv.
Þröstur efstur
í Wrexham
Þröstur Þórhallsson, stórmeist-
ari, teílir um þessar mundir á al-
þjóðlega Owens Corning-skákmót-
inu í Wrexham í Wales. Mótið er
lokað 10 manna mót. Þröstur náði
forystunni í sjöttu umferð með því
'' að sigra Danann Steffen Pedersen.
Chris Ward hafði leitt mótið fram
að því, en tapaði í sjöttu umferð
fyrir Vlastimil Jansa eftir að hafa
hafnað jafnteflisboði. Staðan á mót-
inu er þannig að loknum fyrstu sex
umferðunum:
1. Þröstur Þórhallsson 2.495 5 v.
2. Stellan Brynell 2.485 i'A v.
3. Vlastimil Jansa 2.490 i'Æ v.
4. Chris Ward 2.505 4 v.
5. Steffen Pedersen 2.415 3 v.
6. Andrew Webster 2.420 2'Æ v.
7. Andrew Kinsman 2.385 2 v.
8. Richard Dineley 2.275 l'Æ v.
9. Tim Wall 2.370 l'Æ v.
10. Eugene Martinovsky 2.365 VÆ v.
Mótið dregur nafn sitt af aðal
stuðningsaðila þess, Owens Com-
t ing Fibreglass.
Björn Freyr sigrar
á Atkvöldi Hellis
Björn Freyr Björnsson sigraði á
atkvöldi Hellis sem haldið var á
mánudaginn. Tefldar voru sjö um-
ferðir, fyrst þrjár hraðskákir og
síðan þrjár atskákir. Björn Freyr
sigraði alla andstæðinga sína og
hlaut 6 vinninga. Röð efstu manna:
1. Bjöm Freyr Bjömsson 6 v.
2. Halldór Pálsson 5 v.
3. Vigfús Ó. Vigfússon 4 v.
4. —5. Finnur Kr. Finnsson ‘Í'Æ v.
• 4.—5. Benedikt Egilsson ‘i’Æ v.
6.—8. Birgir Eiríksson, Sindri Guðjóns-
son og Sigurður Freyr Jónatansson 3 v.
o.s.frv.
Skákstjóri var Vigfús Oðinn Vig-
fússon
Jörg Hickl
þýskur meistari
Ts Meistaramót Þýskalands var
haldið í sjötugasta sinn í Bremen
dagana 6.—14. nóvember. Þátttak-
endur voru 48 og tefldar voru 9 um-
ferðir samkvæmt svissnesku kerfi.
Stigahæstu þátttakendur á mótinu
voru:
1. Artur Jussupow GM 2.640
2. Rustem Dautov GM 2.625
3. Matthias Wahls GM 2.605
4. Christopher Lutz GM 2.600
5. Robert Húbner GM 2.575
6. Roman Slobodjan GM 2.575
7. Thomas Luther GM 2.560
8. Christian Gabriel GM 2.555
9. Rainer Knaak GM 2.555
10. Gerald Hertneck GM 2.555
11. Karsten Mueller GM 2.550
12. Klaus Bischoff GM 2.550
13. Stefan Kindermann
GM 2.540
14. Joerg Hickl GM 2.540
15. Eric Lobron GM 2.540
o.s.frv.
Eins og sést á þess-
ari upptalningu var
mótið afar sterkt. Sig-
ur Joerg Hickl kom því
nokkuð á óvart. Röð
efstu manna á mótin
varð þessi:
1.—3. Jörg Hickl 6!4 v.
1.—3. Christopher Lutz
6‘Æ v.
1.—3. Christian Gabriel
6'Æ v.
4.—8. Uwe Bönsch 6 v.
4.-8. Matthias Wahls 6 v.
4.—8. Eric Lobron 6 v.
4.—8. Roland Schmaltz 6 v.
4.—8. Robert, Húbner 6 v.
Svo skemmtilega vill til að Jörg
Hickl tefldi hér á landi á síðasta ári
þegar hann tók þátt í alþjóðlegu
skákmóti sem Taflfélagið Hellir
stóð fyrir. Þar hafnaði hann í 1.—3.
sæti ásamt landa sínum Ludger
Keitlinghaus, sem var úrskurðaður
sigurvegari mótsins, og sænska
stórmeistaranum Jonny Hector.
Hickl vann sjö skákir á mótinu og
tapaði einungis tveimur, en það var
gegn íslenskum skákmönnum.
Bæði Bragi Halldórsson og Jón
Viktor Gunnarsson náðu að sigra
hann.
Nick DeFirmian skákmeistari
Bandaríkjanna
Meistaramót Bandaríkjanna var
haldið í Denver, Colorado, dagana
31. október til 18. nóvember. Fyrst
var teflt í tveimur lokuðum átta
manna riðlum, en efstu menn úr
þeim tefldu síðan um titilinn með
útsláttarfyrirkomulagi.
I undanúrslitum sigraði Nick
DeFirmian Tal Shaked og Joel
Benjamin sigraði Dmitry Gurevich.
Þeir Niek DeFiimian og Joel
Benjamin, sem hafði titilinn að
verja, tefldu því til úrslita. Tefldar
voru fjórar skákir. DeFirmian vann
þá íyrstu, en hinar þrjár enduðu
allar með jafntefli. DeFirmian sigr-
aði því með 214 vinningi gegn 114 og
er þar með skákmeistari Banda-
ríkjanna 1998.
Nick deFirmian hefur verið
fastagestur á mótum hér á landi
undanfarin 15 ár og íslenskum
skákáhugamönnum að góðu kunn-
ur.
I kvennaflokki var teflt í lokuð-
um 10 manna riðli. Irina Krush frá
New York, sem er einungis 14 ára,
sigraði á mótinu og fékk 814 vinning
af 9.
Skákklúbbakeppni TR 1998
Skákklúbbakeppni Taflfélags
Reykjavíkur verður haldin fostu-
dagskvöldið 27. nóvember nk. og
hefst kl. 20 í félagsheimili TR,
Faxafeni 12. Keppt verður í fjög-
urra manna sveitum og er öllum
rótgrónum skákklúbbum sem og
tilbúnum sveitum heimil þátttaka.
Tefldar verða 2x7 umferðir eftir
Monrad-kerfi með 5 mín. umhugs-
unartíma. Veitt verða verðlaun fyr-
ir þrjú efstu sætin en auk þess er
keppt um veglegan farandbikar.
Þátttökugjald fyrir hverja sveit er
1.000 kr.
Daði Örn Jónsson
Margeir Pétursson
MND-félagið, sem er félags-
skapur þeirra sem haldnir
eru sjúkdómnum Motor Neurone
Disease (hreyfitaugahrörnun) hef-
ur nýverið gefið út tvo bæklinga
sem innihalda upplýsingar og leið-
beiningar um MND-sjúkdóminn.
Annar bæklingurinn er ætlaður
foreldrum, til þess að auðvelda
þeim að útskýra fyrir börnum
hvers eðlis þessi sjúkdómur er,
sem einvörðungu leggst á fullorðið
fólk, og hinn bæklingurinn er ætl-
aður börnum og unglingum, en
þar er skýrt á aðgengilegan og
einfaldan máta hverslags sjúk-
dómur MND er og hvernig hann
lýsir sér og þróast. Víkverji telur
að hér sé um afar virðingarvert
framtak að ræða hjá MND-félag-
inu og að það geti auðveldað mjög
að skýra fyrir börnum og ungling-
um hvers eðlis sjúkdómurinn er,
með því að fara í gegnum bækling-
inn með þeim.
XXX
SEM dæmi um hvernig bækling-
urinn ætlaður börnum er
byggður upp, vill Víkverji nefna
tvær spurningar sem settar eru
fram og svörin við þeim: „Hvað
veldur þessu?“ „Við vitum það
ekki, en miklar rannsóknir standa
yfir til þess að reyna að finna það
út. Við vitum að þetta er ekki smit-
andi. Enginn getur komið MND af
stað hjá fólki eða látið því versna.
Öll eigum við særandi hugsanir eða
segjum stundum hræðilega hluti
við aðra en það veldur ekki MND.“
Önnur spuming er svohljóðandi:
„Fá böm MND?“ og svarið er ein-
falt: „Nei, aðeins fullorðnir fá
MND. Það er algengast hjá fólki á
milli 55 og 70 ára.“
MEÐ fyi-ra svarinu er verið að
tryggja að sektarkennd út af
öðrum og óskyldum hlutum, grafi
ekki um sig í huga barnanna, svo
þau fari ekki að kenna sjálfum sér
um það að einhver þeim nákominn,
pabbi, afi, mamma eða amma, hafi
fengið sjúkdóminn og seinna svar-
ið hlýtur að draga úr ótta barn-
anna hvað varðar þau sjálf og
möguleikann á því að þau geti
veikst af sjúkdómnum. Það þarf
ekkert að fjölyrða um, að það get-
ur aldrei orðið auðveldur hlutur að
skýra fyrir öðrum, hvort sem er
börnum eða fullorðnum, að náinn
ástvinur þjáist af hrörnunarsjúk-
dómi, sem að lokum muni leiða til
dauða. En með því að vinna undir-
búningsstarf sem það sem MND-
félagið hefur gert, verður hið sárs-
aukafulla verk þó líklega eitthvað
léttbærara en ella.
Bergsteinn
Einarsson