Morgunblaðið - 25.11.1998, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 25.11.1998, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ í + FÓLK í FRÉTTUM Konungleg eftirherma opnar verslunina Sterling á sunnudag Enginn venju- legur prins PETER Hugo er óneitanlega alllíkur Karli Breta- prinsi. „Já,“ svarar Peter. „Ég hef verið svo lánsamur að hann á upp á pall- borðið um allan heim og mér hafa staðið til boða ótal vel launaðar upp- ákomur. Þó koma tímabil þar sem ég hef ekkert að gera.“ Er eftirspurnin samstiga skoðana- könnunum í Bretlandi? „Upp að vissu marki. Hún veltur bæði á þjóðarandanum og vinsæld- um Karls. Ég fékk t.d. engin verk- efni fyrstu fjóra mánuðina eftir að Díana lést í bílslysi og tapaði 15 þús- und pundum [2 milljónum króna] vegna afbókana. Ég hélt raunar að verkefnaskort- urinn myndi standa lengur. Almenn- Morgunblaðið/Þorkell „MUNU Karl og Camilla einhvern tíma deila þessu rúmi?“ spyr Pet- er glettnislega. PETER Hugo var nýlega beðinn að koma fram í fimmtugsafmæli Karls Bretaprins; ekki sem venjulegur skemmtikraftur heldur sem Karl Bretaprins sjálfur. Það var ekki fyrir misskilning því hann hefur haft lifi- brauð af því síðan árið 1981 að herma eftir krónprinsinum og hefur leikið hann á fjölmörgum uppákom- um að ógleymdum auglýsingum og kvikmyndum. „Ætli European Vaeation með Chevy Chase sé ekki frægust," segir hann. „Ef þú blikkar augunum miss- irðu reyndar af mér í myndinni. Ég er í upphafmu með konungsfjöl- skyldunni í Buckingham-höll.“ Peter segir að það hafi verið skemmtilegra að vinna að mjmdinni Yankee Zulu í Suður-Afríku en þá var hann þrjár vikur á tökustað. Myndi missa vitið Viðtalið fer fram í gjafavöruversl- uninni Sterling í Hafnarstræti 11 sem verður opnuð á sunnudag af eft- irhermunni konunglegu. Peter er einn af eigendum verslunarinnar ásamt hjónunum Margréti Rósu Pét- ursdóttur og Hilmaiá Friðriki Foss. En er hann alltaf svona skelfing líkur Karli Bretaprins? „Nei,“ svarar Peter og hlær. „Ég reyni að leggja mig fram um að líkj- ast honum. En ég gæti ekki alltaf verið svona. Þá myndi ég missa vitið. Ég þekki dæmi þess. Vinkona mín hafði atvinnu af því að leika Marilyn Monroe. Hún missti stjórn á eigin lífi og framdi sjálfsmorð með áfengi og pillum alveg eins og fyrirmyndin." En þá er nú annað að eiga kon- unglega fyrirmynd. „Já, mig hefur langað til þess í sautján ár að verða eftirherma kon- ungsins," segir Peter glaðhlakka- lega. Eftir stutta þögn smjattar hann á orðunum: „Karl konungur.“ Þá bætir hann við: „Ég hlakka auð- vitað til að hafa almennilega vinnu.“ Leikið með 15 Díönum Hvernig datt þér í hug að gerast eftirherma Karls? „Ég varð þreyttur á því að allir væru að tala um hversu líkir við vær- um án þess að ég hefði nokkuð upp úr krafsinu. Ég hringdi því í um- boðsskrifstofu og kom sjálfum mér á framfæri. Mér var sagt að ég myndi í mesta lagi hafa vasapeninga upp úr þessu. Ég hef lifað á þeim síðan.“ Er hægt að hafa lihbrauð af því að leika Karl Bretaprins? ingur er hægt og sígandi að gleyma Díönu og vinsældir Karls eru að aukast. Fi-áfall Díönu kom verr nið- ur á þeim 15 Díönum sem ég hef leikið á móti í gegnum tíðina. Sú Dí- ana sem ég hafði oftast unnið með vinnur t.d. núna sem hjúkrunarkona á elliheimili. Karl Bretaprins framsýnn Hvað um Camillu? „Ég hef unnið með tveim Camill- um en það er ekki eins eftirsótt starf. Enda er varla hægt að hugsa sér verri móðgun en að ganga upp að konu og segja: „Guð minn almáttug- ur. Þú ert lifandi eftirmynd Ca- millu!“ Hyaða skoðun hefurðu á Karli? „Ég ber virðingu fýrir honum og skoðunum hans. Hann er ekki öf- undsverður af hlutskipti sínu en tím- inn á eftir að leiða í ljós að hann er skynsamur maður. Jafnvel þótt hann hafi verið gagnrýndur fyrir sérvisku mun síðar meir koma í Ijós að svo er ekki og að hann er framsýnn mað- ur.“ Hvað heldurðu að honum finnist um þig? „Eg veit ekki hvort hann hefur myndað sér nokkra skoðun á mér,“ svarar Peter og hlær. „Hann veit hins vegar af mér. Enda gæti ég mín á því í hvert skipti sem ég held ræðu að tala þannig að hann gæti hlegið án þess að fara hjá sér ef hann væri í salnum. Að hann myndi jafnvel koma eftir atriðið og segja: „Mér fannst þetta skemmtilegt. Þakka þér fyrir.“ Ég var beðinn að troða upp í fimm- tugsafmælinu hans á dögunum en hafði verið bókaður annars staðar þannig að ég komst ekki.“ Ertu giftur? „Nei.“ Þannig að þú átt þér enga Ca- millu. „Það er hárrétt hjá þér,“ segir Peter, brosir og bætir við: „Raunar held ég að ég myndi frekar vilja vera áfram einstæðingur." Bíóaðsókn í Bandaríkjunum Uppgjör barnamyndanna TEIKNIMYNDIN „The Rugrats Movie“ hrifsaði til sín efsta sæti yf- ir aðsóknarmestu kvikmyndir vest- anhafs. Hún skákaði spennumynd Disney „Enemy of the State“ sem státar af Will Smith og Gene Hack- man. „The Rugrats Movie“ er byggð á sjónvarpsþáttum Nickelo- deons og er þetta fjórða stærsta opnun teiknimyndar frá upphafi í Bandaríkjunum. Aðeins Disney er vinsælli með Konung dýranna, Pocahontas og „Toy Story“. Nú stefnir í að næsta helgi verði mjög spennandi þegar Rugrats keppir við tvær aðrar barnamyndir „A Bug’s Life“ frá Disney og Babe: Svín í stórborginni frá Universal. CHRISTINE Cavanaugh talar inn á fyrir Chuckie úr „The Rugrats Movie“. AÐSÓKN laríkjunum Titill Síðasta vika ftlls 1. (-.) The Rugrats Movie 1.967m.kr. 27,3 m.$ 27,3 m.$ 2. (-.) Enemy of the State 1.443 m.kr. 20,0 m.$ 20,0 m.$ 3. (1.) The Waterboy 1.131 m.kr. 15,7 m.$ 100,2 m.$ 4. (3.) Meet Joe Black 567m.kr. 7,9 m.$ 26,4 m.$ 5. (2.) I Still Know What You Did Last Summer 505m.kr. 7,0 m.$ 26,2 m.$ 6. (4.) The Siege 258m.kr. 3,6 m.$ 32,1 m.$ 7. (6.) I'H Be Home for Christmas 174m.kr. 2,4 m.$ 6,9 m.$ 8. (7.) Antz 168m.kr. 2,3 m.$ 84,2 m.$ 9. (5.) Pleasantville 162m.kr. 2,2 m.$ 34,7 m.$ 10. (-.) Celebrity 114 mkr. 1,6 m.$ 1,6 m.$ MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1998 57 ÞUoætir FariðJJJffl2Híj joroina 80 sinnum! í kvöld er dregið í Víkingalottóinu um tugi milljóna króna! Fáðu þér miða fyrir kl. 17 í dag. ( ATH! Áðeins^j^ Ur. röðin ) T| L MlKl LS að i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.