Morgunblaðið - 29.11.1998, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1998 B 5
Morgunblaðiö/Golli
lendis. Hvað mig sjálfan varðar þá
verður ekki annað sagt en ég sé bú-
inn að stimpla mig inn með Hellis-
búanum. Ég er kominn á kortið.“
En hvernig datt þér í hug að gera
þetta? Þetta er býsna stór biti að
sporðrenna í fyrstu atrennu fyi'ir
ungan óreyndan leikara.
„Ég frétti af leikritinu og féll al-
veg flatur fyrir því. Það var svo
ótrúlega fyndið. Upphaflega hafði
ég í huga að leikstýra því sjálfur.
Eg var að pæla í því að fá þekktan
gamanleikara eins og Sigurð Sigur-
jónsson til að leika. En mig langaði
meira til að leika sjálfur og spurði
hvort hann vildi leikstýra mér.
Samt sagði ég við hann að ef honum
fyndist það alveg fáránlegt þá gæt-
um við alveg skipt! Hann leikið og
ég leikstýrt. En það féll betur að
hans áformum að leikstýra enda er
hann í eins konar leikbindindi
núna.“
Gott fyrir egóið
Og hverju hafa svo vinsældir
Hellisbúans skilað Bjarna Hauki
Þórssyni persónulega. Er hann orð-
inn ríkur og frægur?
„Sýningin skilar hagnaði sem er
ágætt því ég er skuldugur upp fyrir
haus, þó ég hafi samt ekki farið á
hausinn. Hvað frægðina varðar þá
finn ég ekki svo mikið fýrir henni.
Auðvitað er gott að svona vel geng-
ur og í því er fólgin viðurkenning en
hún er ekki að skila sér í neinu
öðru. Leikhússtjórar eru ekki
hringjandi í mig á hverjum morgni
að falast eftir kröftum mínum!
Bandarískt leiklistarnám tekur mið
af þeim aðstæðum sem bíða manns
þegar út á atvinnumarkaðinn kem-
ur. Manni er kennt að byggja upp
hluti í kringum sjálfan sig, skapa
sér tækifæri og vekja athygli á sér.
Þetta getur oft verið ansi erfitt en á
móti ætlast maður ekki til að fá alla
hluti rétta upp í hendurnar.“
Bjarni segist hafa farið sömu leið-
ina á milli leikhúsanna og aðrir ung-
ir leikarar og leikstjórar, „Maður
verður auðvitað að láta vita af sér.
Ég neita samt að trúa því að þó
maður fái ekki fastráðningu í leik-
húsi þá sé það endirinn á ferli
manns^ sem leikstjóra eða leikara.
Flosi Ólafsson hitti naglann á höf-
uðið þegar hann heilsaði upp á mig
eftir sýningu um daginn og sagði:
„Þetta er bara svo gott fyrir egóið.“
Það er ekki ónýtt að fá svona hrós
og styrkir mann í trúnni á að maður
sé á réttri leið.“
Nýtt á vefnum:
sameining.is
Keru viðskiptavinir
Ég hefhafið störfd
hdrsnyrtistofunni I hdr saman,
Grettisgötu, 9, sími 5512274.
Ingibjörg Helgadóttir
hdrsnyrtir
Verið velkomin
íhAr
HÁ RSNYRriSTOrA
mbl.is J LLTAF eiTTH\SAÐ N
>5Su?f“”stoke“Ú,0,U
nóttakanda.
leyfilegt verömœti er misjafnt ef n
stöðum:
Til Árósa - 360 danskar krónur fyrir
hverja sendingu.
-Til Kaupmannahofnar - 360 dansk
krónur fyrir hverja sendingu.
Afhendingarstaður
Útflutningur - Sundahöfn, hlið nr. 2.
Tekið verður á móti pökkum 3., 4. og 7. desember
frá kl. 10.00 til 14.00. Brottför frá Reykjavík 10. desember 1998.
Komudagar:
Árósar -16. des.
Kaupmannahöfn - 17. des.
Helsingborg - 17. des.
Gautaborg - 18. des.
Fredrikstad - 18. des.
rú fvrir hvern fjölskyiaumcuu^,
Sa skal fjölda fjölskyldumeðluna
tan á kassann.
'il Fredrikstad - 200 norskar krónur
ýrir hverja sendingu.
ril íslands - allt að 3-000 kr.
(eða 33 SDR)-
Áríðandi er að pökkum sé skilað til vöruafgreiðslu í
viðkomandi höfn a.m.k. 2 dögum fýrir brottför skips.
Nánari upplýsingar veita Viðskiptaþjónusta
Eimskips í Sundakletti, sími 525 7700,
fax 525 7709 og skrifstofur Eimskips erlendis.
Látið móttakendur vita um komudag skips
því sækja þarf pakka þann dag í samráði við skrifstofu eða
umboðsmann Eimskips í viðkomandi landi.
Frá Norðurlöndum til íslands
Brottför skips frá:
Árósum - 9. des. • DFDS, sími 89 347474
Kaupmannahöfn - 10. des. • DFDS, sími 43 203040
Helsingborg - lO.des. • Anderson Shipping, sími 42 175500
Gautaborg - ll.des. • Eimskip Svíþjóð,sími 31 7224545
Fredrikstad -11. des. • Anderson & Morck, sími 69 338500
Komudagur til Reykjavíkur -16. des.
EIMSKIP