Morgunblaðið - 14.01.1999, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
Nýjar bækur
• MANNKYNBÆTUR er eftir
Unni B. Karlsdóttur. Þetta er 14.
bindi í ritröðinni Studia Historica og
er ritstjóri Gunn-
ar Karlsson.
I kynningu seg-
ir: „Þróunarkenn-
ingin í líffræði og
vísindaleg erfða-
fræði gerðu kleift
að hugsa á nýjan,
árangursríkan
hátt um kynbæt-
ur búfjár. Um leið
fluttist kynbóta-
hugmyndin yfir á mannkynið. Var
ekki hætta á að sú hjálp, sem samfé-
lagið veitti ósjálfbjarga fólki, kæmi í
veg fyrir eðlilegt náttúruval? Var
ekki mögulegt að kynbæta eigin
stofn, stuðla að fjölgun meðal hinna
gáfuðu og hindra hana meðal hinna?
Hugmyndir í þessa veru gengu víðs
vegar um Evrópu og Ameríku, eink-
um á fyrstu áratugum 20. aldar og
bárust að sjálfsögðu til Islands.
Hér á landi gerðust nokki’h'
þekktustu menningarfrömuðir þjóð-
arinnar ákafir boðberar mannkyn-
bóta. Stefnan setti líka svip á lög um
afkynjanir og vananir sem voru sam-
þykkt samhljóða á Alþingi árið
1937.“
Unnur Birna Karlsdóttir er Ey-
firðingur, fædd á Akureyri árið 1964
og alin upp á Þelamörk í Hörgárdal.
Hún lauk BA-prófi í sagnfræði frá
Háskóla íslands árið 1992 og MA-
prófi í sömu grein 1996. Hún hefur
m.a. skrifað þætti um Vilhelm Þor-
steinsson og Ingimar Eydal í bókina
Þeir vörðuðu veginn (1996) og rit-
stýrt bókinni Gullkista þvotta-
kvenna, heimildasafni og endur-
minningu Huldu H. Pétursdóttm- um
þvottakonm-nar í Laugardal (1997).
Útgefandi er Háskólaútgáfan og
Sagnfræðistofnun. Bókin er 174 bls.,
innbundin. Verð: 2.900 kr.
• UMHVERFING. Um siðfræði
umhverfis og náttúr er eftir Pál
Skúlason.
í kynningu segir: „Er maðurinn í
þann mund að
skapa sér um-
hverfi sem smám
saman mun spilla
öllum lífsskilyrð-
um á jörðinni eða
mun hann læra að
laga umhverfi sitt
eftir þeim lögmál-
um sem náttúran
sjálf setur öllu
lífi? Hver er mun-
urinn á umhverfi og náttúru, um-
hverfisvernd og náttúruvernd?
Hverjir eru andstæðingar umhverf-
is- og náttúruverndarmanna?"
Ennfremur segir að þessar spurn-
ingar séu m.a. viðfangsefni Páls
Skúlasonar í þessari bók. Hún er
fyrsta tilraunin sem gerð hefur verið
hérlendis til að greina helstu viðhorf
og rök í umræðum um verndun um-
hverfis og náttúru."
Aðrar bækur eftir Pál Skúlason
eru: Du cercle et du sujet, doktors-
ritgerð, (1973), Hugsun og veruleiki:
Brot úr hugmyndasögu (1975), Pæl-
ingar: Safn erinda og greina (1987),
Samræður um heimspeki (ásamt
Biynjólfi Bjarnasyni og Halldóri
Guðjónssyni; 1987), Pælingar II:
Safn erinda og greinastúfa, (1989),
Siðfræði: Um erfiðleika í siðferði og
forsendur ákvarðana (1990), Sjö sið-
fræðilestrar (1991), Menning og
sjálfstæði: Sex útvarpserindi haustið
1994 (1994), og I skjóli heimspekinn-
ar: Erindi og greinar (1995).
Útgefandi er Háskólaútgáfan.
Bókin er 115 bls. og kostar í kilju kr.
999 og 1.590 innbundin.
-------^44-------
Þrykktækni í
Kringlunni
SÝNING á grafík og grafíkvinnu-
brögðum verður opnuð í sýningar-
rými Gallerí Foldar og Rringlunnar
á annarri hæð, gegnt Hagkaupi,
fimmtudaginn 14. janúar. Sýndur
verður vinnuferili gi'afíkverka lista-
mannanna Daða Guðbjörnssonar og
Drafnar Friðfinnsdóttur, allt frá því
þrykkplatan er unnin til fullgerðra
grafíkverka.
Páll
Skúlason
LISTIR
Sýning 15 lista-
manna í Galleríi Fold
SAMSÝNING fimmtán listamanna
verður opnuð í baksal Gallerís
Foldar, Rauðarárstíg 14, fimmtu-
dagskvöldið 14. janúar kl. 20.30 og
nefnist sýningin Frost og funi. Þeir
listamenn sem taka þátt í henni eru
Brynhildur Ósk Gísladóttir, Daði
Guðbjörnsson, Dröfn Friðfínns-
dóttir, Elín G. Jóhannsdóttir, Eria
Þórarinsdóttir, Gunnar Þorbjörn
Jónsson, Gunnella, Jón Thor Gísla-
son, Jón Reykdal, Katrín H.
Ágústsdóttir, Ölöf Kjaran, Sara
Vilbergsdóttir, Soffía Sæmunds-
dóttir, Unnur Jórunn Birgisdóttir
og Þorbjörg Pálsdóttir.
Gallerí Fold er opið daglega frá
kl. 10-18, laugardaga til kl. 17 og
sunnudaga frá kl. 14-17. Sýning-
unni lýkur 31. janúar.
-------++-*------
Nýjar bækur
• LJÓÐ 1914-18 er eftir Árna B.
Helgason. Bókin er í tveimur hlut-
um og heitir síðari hlutinn Ljóð-
hverfingar 1994-98. Árni B. er 46
ára Reykvíkingur.
Útgefandi er Ritsmíð.
FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1999 33
Útsala
Allar vörur á útsölu
Allt að 60% afsláttur
SILFURBÚÐIN
Kringlunni, sími 568 9066.
Fréttir á Netinu
y-gUtibl.ÍS
3
RVMHUGAR
Á
Á
i.
Verslunin hættir sölu á fatnaði á Fosshálsi og
því seljum við allan lagerinn með allt að
Við bætum við nýjum vörum daglega!
y m ■-unL-f
«n m €mm seijasi
Opid í dag
Vetrarfatnaður
Leikfimifatnaður
Fleecefatnaður
Regnfatnaður
Hettupeysur
Stuttbuxur
Hlýrabolir
Sundföt
Buxur
O.m.fl
IRUSSELL
ATHLEt.c föstudag-laugardag 11-18
[GiLDAmarx]
HREYSTI
..•sportvömhuB
Fosshálsi 1 - Sími 577-5858
.