Morgunblaðið - 14.01.1999, Page 42

Morgunblaðið - 14.01.1999, Page 42
42 FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1999 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ í / i Til vamar Alþingi / Asakanir um undirlægjukátt þingmanna gagnvart framkvæmdavaldinu byggjast á misskilningi. I alþjóðlegum samanburði sýnist Alþingi með öflugustu þjóðþingum. S ISEINNI tíð hefur borið allmikið á niðrandi taii um Alþingi og alþingismenn. Það er sagt að þingið sé ekkert nema „afgreiðslu- stofnun" fyrir það „ráðherraveldi" sem hér ríki, að löggjafarvaldið sé „ambátt“ ráðheiranna, að þing- menn vanræki stórlega eftirlits- hlutverk sitt og láti í einu og öllu segja sér fyrir verkum af „flokks- eigendum“ ríkisstjómarflokka. Þessu tali hafa gjarnan íylgt við- líka ummæh um dómsvaldið - sbr. þessi makalausu orð úr ritstjóm- argrein fréttabréfs Samtaka iðn- aðarins: „Ekki em mörg dæmi um að dómstólar hafi sett ofan í við Alþingi jafnvel þegar fram- kvæmdavaldið hefur að bestu manna yfirsýn VIÐHORF teymtþaðútí Eftir~Jaköb F. &n mannrétt- Ásgeirsson mda-og stjorn- arskrarbrota. Er það raunverulega skoðun forystusveitar iðm’ekenda á Is- landi að íslensku samfélagi undan- farinna ára sé best lýst sem „feni mannréttinda- og stjórnarskrár- brota"? Hér skal ekltí reynt að svara þeim rangfærslum sem koma fram í umræddri grein (og birt vai' í Staksteinum Morgun- blaðsins nýverið), en ástæða er til að staldra dálítið við þann djúp- stæða misskilning sem birtist í of- angreindum sleggjudómum um starfshætti Alþingis. A Islandi ríkir þingræði sem þýðir að framkvæmdavaldið sækir umboð sitt til löggjafarþingsins (sem kosið er af þjóðinni í frjáls- um kosningum). I tímans rás hef- ur vegur framkvæmdavaldsins vaxið í nútíma þjóðfélögum og að sumra dómi á kostnað löggjafar- valdsins. En hér er þó fyrst og fremst um að ræða eðlilega verka- skiptingu sem hlotist hefur af sí- fellt flóknai-i þjóðfélagsgerð. í kjölfarið hefur hlutverk þjóðþing- anna í lagasetningu að því leyti breyst að þingmenn hafa nú frem- ur tilsjón með gerð lagafrumvarpa sem undh’búin eru af sérfræðing- um á vegum framkvæmdavaldsins en að þeir vinni sjálfir slík frum- vörp frá grunni. Ekki hefur þó á neinn hátt dregið úr eftirlits- og aðhaldshlutverki þjóðþinganna með framkvæmdavaldinu. Stundum er skírskotað til Bandaríkjanna og sagt að aðhalds- hlutverk þingsins í Washington sé mun öflugra en Alþingis. En í Bandaríkjunum ríkir ekki þing- ræði heldur forsetaræði og gerir sá stjómkerfismunur samanburð mjög erfiðan. Ef starfshættir Al- þingis eru á hinn bóginn bomir saman við þjóðþing í öðrum þing- ræðisríkjum kemur í ljós að staða íslenska þingsins er sterk. Athuganir stjómmálafræðinga sýna að Alþingi hefur víðtækari afskipti af umsvifum fram- kvæmdavaldsins en almennt tíðkast í ríkjum Vestur-Evrópu - sem lýsir sér m.a. í því að laga- frumvörp breytast hér meira í meðfórum þings en víða annars staðar, að óbreyttir þingmenn fá fleirí iagafrumvörp samþykkt og að íslenskir þingmenn taka í rík- ara mæli þátt í gerð lagafrum- varpa á frumstigi en í öðmm lönd- um. Að sumu leyti stafar þetta af smæð þjóðarinnar. Af 63 þing- mönnum eru 10 ráðherrar sem gerir það að verkum að almennir þingmenn hafa miklu meh-i tæki- færi til að taka þátt í umræðum og virku nefndastarfi en þekkist í fjölmennari löndum. Ennfremur em persónutengsl þingmanna við ráðherra mun meiri hér en í öðr- um ríkjum. Einnig er algengara hér en annars staðar að þingmenn sitji í nefndum á vegum fram- kvæmdavaldsins. Jafnframt er sú sögulega skýring á sterkri stöðu Alþingis að þingið var endurreist löngu áður en landsmenn tóku í sínar hendur stjórn framkvæmda- valdsins. Allt fram í síðari heims- styijöld vora þingmenn t.d. fjöl- mennari en embættismenn stjórn- kerfisins! A seinni áram hefui' eftirlits- hlutverk Alþingis verið styrkt mjög með því að efla starfsemi fastanefnda og auka sérfræðiað- stoð þingmanna en ekki síst með stofnun Umboðsmanns Aiþingis og með því að færa Ríkisendur- skoðun undir forræði Alþingis. Hvort tveggja, Umboðsmaður og Ríkisendurskoðun, veita fram- kvæmdavaldinu öflugt aðhald. Jafnframt hefur réttm' almenn- ings gagnvart framkvæmdavald- inu verið styrktur mjög með ný- legum stjómsýslu- og upplýsinga- lögum og með því að gera mann- réttindasaáttmála Evrópu að ís- lenskum lögum. Aiþingi gegnir löggjafar- og að- haldshlutverki sínu með umræð- um og fyrirspurnum í þingsal, með umfjöllun þingnefnda um þingmál og með starfsemi um- boðsmanns og ríkisendurskoðun- ar. Hvemig til tekst er auðvitað álitaefni hverju sinni. Oft ríkir hai'ðvítugur ágreiningur um lög- gjafarstarf og þingmönnum getur stundum fundist framkvæmda- valdið um of tilætlunarsamt og á köflum yfirgangssamt, en slíka togstreitu leiðir af eðli lýðræðis- ins og hún er fullkomlega eðlileg. Hafa ber þó í huga að frumvarps- drög eru rædd af stjórnarþing- mönnum innan ríkisstjórnar og innan þingflokka ríkisstjórnai'- innai' áður en þau era lögð fram á Alþingi. Ennfremur má ekki gleyma því að ríkisstjómin stend- ur fyrir meh'ihluta Alþingis og meirihluti þingmanna hlýtur á endanum að ráða. Vissulega má gagnrýna alþing- ismenn fyrir margt. Það hefur t.d. þótt nokkuð bera á þvi að ekki væri vandað nægjanlega til ýmissa Iagafrumvarpa gegnum tíðina. Einnig hafa áhrif öflugra þrýstihópa á lagasetningu stund- um þótt keyra um þverbak. Það kemur raunar fram i hinni dæma- lausu ritstjórnargrein í frétta- bréfi Samtaka iðnaðarins að und- irrót sieggjudómanna er að laga- frumvörp skuli hafa verið samin „án samráðs við hagsmunaaðila"! Auðvitað er nauðsynlegt að tryggja sem víðtækasta sátt þeirra sem málin varða mest við setningu laga og reglna, en þing- menn hafa í gegnum tíðina stund- um sýnst alltof undanlátssamir við þrýstihópa margskonar - og látið öflug sérhagsmunasamtök hafa um of áhrif á sig, að sagt er, á kostnað „heildarhagsmuna" (þótt sannarlega sé ekki auðleikið að henda reiður á þeim). Stjómmálamönnum á skilyi'ðis- laust að veita ríkt aðhald, en hætt er við að það missi marks ef ekki er byggt á skilningi á þeim lýð- ræðislegu stjórnarháttum sem við búum við. Páll formaður hleypur á sig í GREIN Páls Hall- dórssonar, formanns kjararáðs Félags ís- lenskra náttúrufræð- inga, sem birtist í Morgunblaðinu 29. f.m., þar sem fjallað er um málefni Landmæl- inga Islands er hallað réttu máli. Undrar mig að formaðurinn skuli ekki kynna sér stað- reyndir málsins betur en skrif hans gefa til kynna. Eg ætla hvorki að elta ólar við for- manninn um álit hans á ákvörðun ráðherra um flutning á stofnuninni, né vangaveltur hans um dóm Hæstaréttar og störf Alþingis. Hins vegar verð ég að koma á framfæri athugasemdum vegna þess sem hann segir um starfsemi stjórnar Landmælinga Islands og annað er vaðar framvindu mála hjá stofnun- inni, ekki síst starfsmannamála og kostnað við flutninginn. Formaðurinn heldur því fram að enginn með faglega þekkingu á landmælingum sé í stjórn stofnun- arinnar sem skipuð var eftir setn- ingu nýrra laga um landmælingar og kortagerð árið 1997. Lögum samkvæmt er ekki um faglega stjórn að ræða heldur stjórn sem á að annast stefnumótun og sjá til þess að stofnunin sinni hlutverki sínu. Þannig annast stjómin ekki rekstur Landmælinga íslands og forstjóri er ekki settur undir stjórn- ina heldur heyrir beint undir ráð- herra en hjá forstjóra og öðru starfsfólki er hin faglega þekking. í stjórninni situr m.a. verkfræðingur með faglega þekkingu á mála- flokknum. Staðhæfíng formannsins er því röng. Formaðurinn heldur því fram að eina verkefni stjórnarinnar hafi ver- ið að fylgja eftir pólitískri ákvörðun ráðherrans um flutning stofnunar- innar. Hér skýst honum heldur bet- ur yfir. Stjórnin tók til starfa í byrj- un desember 1997. Henni var auk lögbundinna starfa falið að sjá um flutning stofnunarinnar til Akra- ness í samræmi við þegar tekna ákvörðun. Fyrsta verkefni stjórnai' var að vinna að stefnumótun fyrir Landmælingar Islands og var hún send ráðuneytinu í maí og birt í júní sl. Sætir furðu að formaðurinn skuii ekki hafa kynnt sér þessa stefnu- mótun. Samkvæmt stefnu stjórnar er ætlunin að stofnunin verði leiðandi á sviði landmælinga, fjarkönnunar, korta- gerðar og annarrar landupplýsingavinnslu. í þessu skyni hafa ver- ið ráðnir til starfa tveir landmælingaverkfræð- ingar og er það í fyrsta skipti sem ráðnfr era til stofnunarinnar land- mælingaverkfræðingar ef frá er talinn Bragi Guðmundsson, sem gegndi forstjórastarfi við stofnunina fyrir nokkrum árum. Hann var þó fyrst og fremst forstjóri. Umhverfísráðherra hafa verið send- Landmælingar Enginn skortur er á mannafla, segir Ingi- mar Sigurðsson, hvorki faglærðum né ófaglærðum. ar tillögur að frumvarpi til laga um fjarkönnun. Að tillögu stofnunar- innar hafa ríkisstjórn og Alþingi ákveðið að faríð verði í stafræna grunnkortagerð í mælikvarðanum 1:50.000 á næstu árum og verður varið til verkefnisins 15 milijónum króna á þessu ári. I nóvembermán- uði sl. átti stofnunin ásamt utanrík- isráðuneyti fund með fulltrúum frá Bandarísku herkortastofnuninni (NIMA) um að sú stofnun stæði við gerða samninga um kortagerð af Is- landi í mælikvarðanum 1:50.000 en hún hafði legið niðri um árabil. Náð- ust samningar um verkefnið og hef- ur stofnunin þegar sent Landmæl- ingum 29 kort af þeim 98 sem stofn- unin átti eftir að afhenda. Jafnframt mun stofnunin taka þátt í því að ganga frá þessum málum þannig að það markmið náist að ljúka við staf- ræna kortagerð í mælikvarðanum 1:50.000 á næstu fjórum til fimm ár- um. Með samningi sem undirritaður var 2. október sl. tóku Landmæling- ar íslands yfír starfsemi Orkustofn- unar á sviði landmælinga sem Orku- stofnun hefur sinnt um árabil og tók jafnframt við gagnasafni hennar. Ekki ber ofangreint vott um að Ingiinar Sigurðsson vegið hafi verið að faglegri starf- semi stofnunarinnar eins og for- maðurinn heldur fram. Frekar bendir þetta til þess að faglegi þátt- urinn í starfsemi stofnunarinnar hafi verið aukinn. Umfram annað lýsir þetta þó ókunnugleika for- mannsins á þeim málum sem hann gerir að umræðuefni í greininni. I erindi formannsins kemur fram að verið sé að sóa fé ríkissjóðs. Því er til að svara að flutningur stofn- unarinnar á Akranes umfram flutn- ing innan Reykjavíkur kostar lítið. Það er ljóst að stofnunin hefði þurft að flytja úr því húsnæði sem hún var í einfaldlega vegna þess að það var of stórt og að hluta til vannýtt. Þannig fór stofnunin úr húsnæði sem er samtals 1860 m2 í Reykjavík á þremui' stöðum í húsnæði á Akra- nesi sem eru 1400 m2 auk aðstöðu í Reykjavík, 100 m2, eða samtals 1500 m2. Munurinn er 360 m2 og er sparnaður í leigugreiðslum um 2 milljónir króna á ári, sem er miklu hærri upphæð heldur en sem nemur kostnaði við flutning stofnunarinnar frá Reykjavík til Akraness. Það er jafnljóst að Landmælingar hafa set- ið eftfr hvað varðar tæknilega þróun og var því ákveðið að búa stofnun- ina þannig úr garði að hún stæði undir nafni á nýjum stað. Sá kostn- aður sem til fellur vegna flutnings- ins er því að mestu bundinn við það að búa stofnunina undir starfsemi í samræmi við stefnumótun stjórnar s.s. með kaupum á tækjum og bún- aði og skiptir þar engu hvar stofn- unin er staðsett. Hefur tekist vel til hvað þetta varðar og er starfsfólk- inu boðin glæsileg starfsaðstaða og ný og spennandi verkefni sem for- manninum er hér með boðið að kynna sér. Af 30 manna starfsliði stofnunarinnar mun um helmingur búa á Akranesi og nærsveitum, þar af margir sérfræðingar. Enginn skortur er á mannafla, hvorki fag- lærðum né ófaglærðum. Þær kveðjur sem starfsmenn Landmælinga fá frá formanninum og starfsmenn í Félagi íslenskra náttúrufræðinga eru ekki aðeins ómaklegar heldur einkennilegar þegar haft er í huga hver setur þær fram. Það er engu líkara en að for- maðurinn haldi að með nýjum for- stjóra, faglærðum manni, og með nýjum og vel menntuðum sérfræð- ingum sé verið að brjóta stofnunina niður faglega. Orð hans verða ekki skilin öðruvísi. Eg hlýt að gera þá kröfu til Páls Halldórssonar, sem formanns kjararáðs Félags íslenskra náttúru- fræðinga, að hann kynni sér mál betur áður en hann ritar greinar eins og þá sem hér er til umfjöllun- ar. Höfundur er form. stjdrnar Landmælinga íslands. Agæt íþróttahöll - vonlaust tónlistarhús GLEÐI var ríkjandi meðal þeirra sem hafa gaman af verkum meistaranna frá Vínar- borg þegar Sinfóníu- hljómsveit íslands hélt fyrstu Vínartónleikana í Háskólabíói. Sigurð- ur Björnsson óperu- söngvari, sá frábæri listamaður, sem þá var framkvæmdastjóri hlj ómsveitarinnar, kunni svo sannarlega sitt fag. Fékk þá og á næstu árum til liðs við hljómsveitina góða stjómendur og söngv- ara. Oll umgjörð hljómleikanna var við hæfi og í stíi við inntakið. Vínarhljómleikar Sinfóníuhljóm- sveitar íslands urðu að atburði sem fólk hlakkaði til og vildi alls ekki missa af. í janúar 1998 fylltu Vínarhijómleikagestir Háskólabíó fjórum sinnum! Nú er þessu aftur farið. Vínarhljómleik- arnir nú í ár fluttir í hús sem er slíkri tón- list sannkallað svart- hol. Hús sem er óhæft íyrir hljómsveit og söngvara þar sem þessi stórgóða hljóm- sveit nýtur sín alls ekki. Hljómsveitarstjór- inn (Peter Guth) átti enda í baráttu við að ná upp stemmningu á fyrri hluta dagskrár- innar fóstudagskvöldið 8. janúar. Hijómleika- gestir sættu sig ekki við þetta umhverfi og fundu ekki þann hljóm sem fyllt hefir salinn á fyrri Vínartónleikum. Þeir nutu því ekki Vínarlaganna svo sem efni stóðu til. Því eru þessar línur settar á blað að farið er fram á við stjórnendur Sinfóníuhljómsveitar Islands að Hljómleikar Farið er fram á, segir Sveinn Sæmundsson, að Vínarhljómleikar verði framvegis í Háskólabíói. Vínarhljómleikar verði framvegis í Háskólabíói, allt þar til ný hljóm- leika- og ráðstefnuhöll verður tekin í gagnið. Eða - fyrst stjórn og framkvæmdastjóri Sinfóníuhljóm- sveitar íslands telur að Laugar- dalshöllin sé fullgóð íyrir Vínartón- list - hlýtur hún þá ekki að vera fullboðleg fyrir alla aðra hljóm- leika? Og í framhaldi af því er spurt: Er þá nokkur þörf á að byggja nýja hljómleikahöil fyrir fjóra milljarða? Höfundur er fyrrv. blaðafulltrúi. Sveinn Sæmundsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.