Morgunblaðið - 07.05.1999, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Brautarholtsfeðgar kaupa næststærsta eggjabú landsins, Nesbú á Vatnsleysuströnd
Hefur ríflega 20% hlutdeild
á eggjamarkaðinum
JÓN Ólafsson í Svínabúinu Braut-
arholti og synir hans fjórir hafa fest
kaup á öllum hlutabréfum í Nesbúi
ehf. á Vatnsleysuströnd, næst-
stærsta eggjabúi landsins með 45
þúsund hænur. Kaupverð fæst ekki
uppgefið en að sögn Kristins Gylfa
Jónssonar höfðu seljendumir, Sig-
urður Sigurðsson og Ólafur Jóns-
son, áhuga á að breyta til í rekstri
sínum og nálguðust kaupendur í
kjölfarið. Fyrir nokkrum vikum
hófust síðan viðræður um kaupin.
Hafa leitað tækifæra
Jón kaupir búið ásamt sonum sín-
um, Kristni Gylfa, Ólafi, Jóni
Bjarna og Bimi, og verður sá síð-
astnefndi framkvæmdastjóri Nes-
bús ásamt því sem Jón Bjarni verð-
ur bústjóri.
„Við höfðum um talsvert langt
skeið leitað að tækifæmm á eggja-
markaði og náðum saman við fyrr-
verandi eigendur Nesbús. Þarna
hafði verið góður og blómlegur
rekstur hjá stofnendum fyrirtækis-
ins sem hafa rekið Nesbú hátt í
þrjátíu ár, en þeir höfðu áhuga á að
selja reksturinn og snúa sér að öðr-
um hugðarefnum," segir hann.
Kaupendumir hafa nú tekið yfir
reksturinn og kveðst Kristinn Gylfi
ekki gera ráð fyrir að miklar breyt-
ingar verði gerðar á honum, að
minnsta kosti ekki í bráð. Hann
segir veltu Nesbús á seinasta ári
vera trúnaðarmál en kaupunum
fylgi traust viðskiptasambönd, tæki
og annað, og að þeirra mati sé um
að ræða eitt best rekna eggjabú
landsins auk þess sem staðsetning
þess sé heppileg.
Kristinn Gylfi segir að Nesbú hafi
vel yfir fimmtung af eggjamarkað-
inum,_ sennilega á milli 23% og 24%.
Jón Ölafsson og fjölskylda hans á
og rekur Svínabúið í Brautarholti
sem er eftir nýlega stækkun orðið
stærsta svínabú landsins , auk þess
að eiga helmingshlut í kjúklingabú-
inu á Móum á Kjalarnesi sem er
næststærsti kjúklingaframleiðandi
landsins með um 25% markaðshlut-
deild. Þá era feðgarnir aðilar að
kjötvinnslunni Esju í Kópavogi og
Iíjúklingabúið á Móum er aðili að
kjötvinnslunni Ferskir kjúklingar í
Garðabæ.
„Með þessum kaupum erum við
að styrkja okkur á markaðinum og
að samþætta umfangsmikla fram-
leiðslu á kjöti og eggjum. Við höfum
mikla trú á framtíð eggjafram-
leiðslu og teljum mikla möguleika í
þessari grein. Við höfum lagt stund
á greinar sem tengjast kjúklingum
og svínum og hafa þær vaxið mjög
mikið á seinustu árum með hag-
kvæmari framleiðslu og öflugri
sölu- og markaðsstarfsemi, og við
höldum að svipað megi gera varð-
andi framleiðslu og sölu eggja og
úrvinnslu þeirra,“ segir Ki-istinn
Gylfi.
Viðbrögð við breytingum
í smásölu
Hann segir að samþjöppun smá-
söluverslunar á fáar hendur valdi
því að hagkvæmara sé fyrir fram-
leiðendur að hafa fleiri en eina vöra
á boðstólum og geta boðið sam-
þætta sölustarfsemi. „Það er að
verða heilmikil breyting á markað-
inum og að hluta til eru þessi kaup
okkar nú viðbrögð við þeim,“ segir
hann.
Herjólfur
frá í viku
HERJÓLFUR verður úr leik í
áætlunarsiglingum milli lands og
Eyja næstu daga vegna bilunar í
öðram veltiugga skipsins. Skipið
siglir frá Vestmannaeyjum áleiðis
til Rotterdam síðdegis í dag og
vonast Magnús Jónasson, fram-
kvæmdastjóri Herjólfs, eftir því til
baka í áætlunina á föstudag eða
laugardag í næstu viku.
Bilunin kom upp í veltiugganum
fyrir um þremur vikum og segir
Magnús ekki verða lengur undan
því vikist að gera við, enda lætur
skipið ekki eins vel í sjó þegar
hans nýtur ekki við. Ekki er unnt
að gera við hérlendis þar sem
Herjólfur er of breiður fyrir slipp
þegar veltiuggar eru úti. Magnús
segir viðgerðina kosta nokkrar
milljónir, vonandi fáar, en það
komi ekki í ljós fyrr en skipið er
komið á þurrt.
Öll sextán manna áhöfn Herjólfs
fer með skipinu og segir Magnús
tímann verða notaðan til að gera
skipið klárt fyrir sumarannirnar,
þrífa, bóna og mála.
Vítaverður akstur
Framboðsum-
ræður tákn-
málstúlkaðar
Stefnt að
20% verð-
mæta-
aukningu
FINNUR Ingólfsson, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, er að
setja á laggirnar nefnd sem er
ætlað að tryggja 20% verð-
mætaaukningu árlega í þekk-
ingariðnaði á fyrsta áratug
næstu aldar. Formaður nefnd-
arinnar verður Kári Stefáns-
son, forstjóri íslenskrar erfða-
greiningar. Þetta kom fram í
máli Finns á vinnustaðafundi
hjá Skýw hf. í hádeginu í gær.
Finnur sagði að markmiðið
væri raunhæft ef skapaðar
væru réttar aðstæður. Hann
sagði að skattamálin spiiuðu
þar stórt hlutverk. Hann
kvaðst vera tilbúinn að beita
sér fyrir því að þróunarkostn-
aður fyrirtækja yrði frádrátt-
arbær til skatts.
„Þetta gæti hjálpað fyrir-
tækjunum gríðarlega mikið.
Ég hef lagt þá tillögu fyrir rík-
isstjómina að ríkið eigi að
veita litlum og stórum hug-
búnaðarfyrirtækjum stuðning
með því að færa verkefni sem
verið er að vinna inni í ráðu-
neytunum til sumra þessara
fyrirtækja, jafnvel án útboðs,
til þess að leyfa þeim að vaxa.
Mín skoðun er sú að við eigum
að taka verkefnin út úr ráðu-
neytunum, færa þau út á
markaðinn og í því felst meðal
annars stuðningurinn við hug-
búnaðarfyrirtækin,“ sagði
Finnur.
LÖGREGLAN í Reykjavík hand-
tók tæplega tvítugan pilt í gær,
sem ekið hafði bifreið um Asgarð
í Reykjavík með vítaverðum
hætti. Hann var talinn undir
áhrifum áfengis eða vímuefna og
var færður á lögreglustöð.
Ökumaðurinn hafði ekið í
gegnum grindverk við íbúðarhús
í götunni og bakkað þaðan út á
götuna, rekist á aðra bifreið og
valdið skemmdum á henni og
endað ferð sína með því að rekast
á ljósastaur. Mildi mátti telja að
ekki urðu slys á gangandi vegfar-
endum, en börn höfðu verið að
leik við götuna stuttu áður en
glæfraakstur mannsins hófst.
STJÓRNMÁLAUMRÆÐUR í sjón-
varpssal í kvöld, daginn fyrir kjördag,
verða táknmálstúlkaðai- beint í út-
sendingu Sjónvarpsins í kjölfai- dóms
Hæstaréttar sem kveðinn var upp í
gær. Héraðsdómur hafði 17. mars sl.
sýknað Ríkisútvarpið af kröfu Félags
hcjTnarlausra þessa efnis.
Hafdís Gísladóttir, framkvæmda-
stjóri félagsins, segir að dómurinn sé
mikilvægur áfangi í baráttunni fyrir
því að táknmálið verði viðurkennt
sem fyrsta mál heyrnarlausra.
Framboðsfundminn daginn fyrir
kjördag er sendur út beint bæði á
RÚV og Stöð 2. Karl Garðarsson,
varafréttastjóri Stöðvar 2, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær að
ekki hefði verið tekin ákvörðun um
það hvort táknmálstúlkunin yrði látin
fylgja útsendingu þein-a, en að málið
myndi skýrast í dag.
í dómi Hæstaréttar er vísað til
stjómarskrárinnar, mannréttinda-
sáttmála Evrópu, útvarpslaga og til
laga um málefni fatlaðra frá árinu
1992 þar sem segir að fatlaðir skuli
eiga rétt á allri almennri þjónustu
ríkis og sveitarfélaga.
„Mál þetta varðai- mikilvæg rétt-
indi, þ.e. kröfu ákveðins hóps einstak-
linga um að þeir njóti á sama hátt og
aðrir þeirrar þjónustu stefnda
[RUV], sem ætluð er til að auðvelda
kjósendum val milli framboða í kosn-
ingum til löggjafarþings þjóðarinnar.
Ákvörðun stefnda um tilhögun út-
sendingar umrædds framboðsfundar
felur í sér að heymarlausir kjósendur
sitja þar ekki við sama borð og aðrir
landsmenn... Verður ekki talið að
stefndi hafi fært fi-am nægilega gild
og málefnaleg rök til að réttlæta þá
mismunun, sem í ákvörðun háns
felst,“ segir meðal annars í dóminum.
Fram kemur í iréttatilkynningu frá
Markúsi Erni Antonssyni útvarps-
stjóra að yfirmenn Ríkisútvarpsins
og útvarpsráð hafi ákveðið að þáttur-
inn yrði endursýndur fyrir dagskrái'-
lok sama kvöld og umræðumar færu
fram með táknmálstúlkun og textað-
ur að auki fyrir heymai-skerta. Þar
eð Hæstiréttur hafi ekki talið það
fullnægjandi miðað við aðstæður,
verði hann nú túlkaður á táknmáli í
beinni útsendingu.
Kosningasjónvarp túlkað
í Noregi frá 1981
Hafdís segist ekki vita til þess að
samskonar mál hafi áður verið rekið
fyrir dómstólum i Evrópu og dómur-
inn marki því tímamót. Hún bendir
þó á að á Norðurlöndum sé þjónusta
við heyrnarlausa mun betri en hér á
landi. „í Noregi hafa framboðsræður
til dæmis verið táknmálstúlkaðar í
beinni útsendingu frá árinu 1981.“
Hafdís segir að í framkvæmd verði
það svo að táknmálstúlkur verði í
einu homi sjónvarpsskjásins.
Hafdís segh’ að dómurinn feli í sér
staðfestingu á því að heymarlausir
eigi rétt á að fá upplýsingar, en segir
að stjórn félagsins eigi eftir að yfir-
fara dóminn með aðstoð lögfræðings
síns til að komast að niðurstöðu um
þýðingu hans fyrir önnur baráttumál
heymarlausra.
3
Ósýnilegu
skólaári
slitið
Höggmyndir í
takt við
tímann
Með
Morgun-
blaðinu f
dag er
dreift
blaði frá
Æskunni,
„Unglinga
blaðinu
Smell“
Kristján Arason hafnaði
tilboði frá Gummersbach B/1
Tyrkneskur miðvallarspilari
til reynslu hjá ÍBV B/3
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is