Morgunblaðið - 07.05.1999, Page 6

Morgunblaðið - 07.05.1999, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR 10(OCoKKNQ3C0C0O)O)( "•,'"'0)0)ap)0)0)0)0)< CDOjOj. o>o>o>o>< Iggs i? Od i§ § <o to JSH co 1 25 20 ^ 15 r 10 r 5 I 0 V « ! <55 05 ð5 j 111o< 45 40 35 30 “ 25 I- 44,0% „ ■ ~ 43,7% 41;3%- 41,9% 20 37.1% Sjálfstæöisflokkur Ék Æ - ______Jl_________ 48,0% Framsóknarflokkur -i—i—i—i—i—i—i—i—;—i- 15 10 5 0 -i---1---1--1---1---1--1 Fylgi stjórnmálaflokka í kosningum 1995 og í skoðanakönnunum síðan 35 30 25 20 15 10 5 0 1© - -33:5% Samfylkingin 2,3% // \J 1 16,0% H i 28,6% Spurt 6. maí: Hvað ætla menn að kjósa í alþingis- kosningunum á laugardaginn, 8. maí? april maí Húmanistaflokkurinn 0,2% 0,3% 10 5 - 0 1- i Frjálslyndi flokkurinn Vinstri hneyfingin/ grænt framboð =:=!s4Í=;2,5% -t—t—0 7,5%—8,7% Skoðanakönnun Félag’svísindastofnunar HÉR er að fínna niðurstöður skoðanakönn- blaðið og samanburð við niðurstöður fyrri manna úrtaks og var framkvæmd í gær. unar Féiagsvísindastofnunar fyrir Morgun- kannana, en skoðanakönnunin náði til 1.200 Nettósvarhlutfall var 73%. Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkir göng undir Reykjanesbraut Dregið úr slysahættu á Reykja- nesbrautinni með undirgöngum Á FUNDI bæjarráðs Hafnarfjarðar í gær var ítrekað að öryggi vegfar- enda á gatnamótum Öldugötu, Reykjanesbrautar og Kaldársels- vegar yrði tryggt tafarlaust. Bæjar- ráðið samþykkti því að nú þegar yrði hafinn undirbúningur að gerð undirganga á gatnamótunum. Framkvæmdin verður fjármögnuð fyrst um sinn af bæjarsjóði og þangað til framkvæmdum lýkur verður varsla á gatnamótunum þar sem fjöldi slysa hefur orðið á liðnum árum. Gert er ráð fyrir að undirgöngin verði eins nálægt núverandi gang- braut og hægt er. Að sögn Magnús- ar Gunnarssonar, bæjarstjóra í Hafnarfirði, hefur áformum um uppsetningu umferðarijósa á gatna- mótunum hins vegar ekki verið ýtt út af borðinu, en ráðgert er að setja þau upp í sumar. „Pessi gatnamót hafa verið mjög slæm í langan tíma og með hliðsjón af sögunni er það niðurstaða okkar að við viljum bregðast fljótt og vel við,“ segir Magnús um samþykkt bæjarráðs um undirgöngin í gær. Hann segir ljóst að lega Reykja- nesbrautarinnar verði eins næstu 3—á árin en áætlað er að færa hana austur fyrir kirkjugarðinn í Hafnar- firði. „Brautin verður á sínum stað næstu 3-4 árin og þess vegna bregðumst við svona við og erum tilbúin að leggja fram fé úr bæjar- sjóði og auðvitað reynum við að fá Vegagerðina til að taka þátt í kostn- aðinum." Þess má geta að kostnaður við undirgöng undir akbrautir er talinn vera á milli 20-50 milljónir króna. Með vörslu við gangbrautina á Reykjanesbrautinni eins og talað er um í samþykkt bæjarráðs, er átt við gangbrautarvörð, sem mun hafa eftirlit með gangandi umferð yfír gangbrautina, a.m.k. þar til skólum lýkur. Ekki er Ijóst hve langan tíma tekur að Ijúka við undirgöngin. Viðbrögð allra aðila eru fagnaðarefni Að sögn Óla H. Þórðarsonar, framkvæmdastjóra Umferðarráðs, eru viðbrögð allra aðila sem að sam- göngubótinni koma fagnaðarefni og segist hann feginn að vita til þess að með fyrirhuguðum aðgerðum verði einni slysagildrunni færra á götun- um. Óli H. og Sigurður Helgason upplýsingafulltrúi gengu í gær á vettvang slyssins, sem varð á um- ræddum gatnamótum þar sem fímmtán ára gömul stúlka lést er hún varð fyrir bifreið á þriðjudag. Þeir voru sammála um að með fyr- irhuguðum undirgöngum yrðu gerðar miklar úrbætur í málefnum gangandi vegfarenda á Reykjanes- braut. Háfnarfjörðu Reiknað er með að innan fárra ára verði Reykjanesbrautin flutt austur fyrir kirkjugarðinn og liggi þar undir brú á Kaldárselsvegi. Astjörn LJÓST er að lega Reykjanesbrautarinnar við Öldutúnsskóla breytist ekki næstu 3-4 árin, en að þeim tíma loknum er áætlað að færa hana austur fyrir kirkjugarðinn í Hafnarfirði. Til að tryggja öryggi gang- andi vegfarenda þangað til verða grafin göng undir brautina nálægt núverandi gangbraut og í sumar er ráðgert að setja upp umferðar- ljós á gatnamótum Reykjanesbrautar, Kaldárselsvegar og Öldugötu í því skyni að draga úr umferðarhraða. . Urriðakots \% vatn Undirbuningur er hafinn að gerð undirganga undir Reykjanesbraut við Öldugötu VÁsfjall M__L____ 500 m Barna- og ung- lingageðdeild lokuð um helgar Aukið fjár- magn verði veitt til deildarinnar INGIBJÖRG Pálmadóttir heilbrigðisráðherra kveðst hafa lagt tillögur fyrir ríkis- stjórnina um að veitt verði aukið fjármagn til barna- og unglingageðdeildarinnar til að fjölga þar sérhæfðu starfsfólki. Hún segir að tek- ið hafí verið jákvætt í tillög- urnar en þær hafi ekki verið afgreiddar. Talsmenn Foreldrafélags geðsjúkra barna hafa dregið upp dökka mynd af því ástandi sem ríkir í heilbrigð- isþjónustu við geðsjúk börn. Komið hefur fram að barna- og unglingageðdeild Land- spítalans er lokuð um helgar og engin bráðaþjónusta þá fyrir hendi. 90 böm em á biðlista eftir innlögn á deild- ina. ’ HVjóti afgreiðslu á næstu dögum „Ég hef á kjörtímabilinu lagt mikla áherslu á málefni geðsjúkra, til dæmis með auknu fjármagni til bama- og unglingageðdeildar, fjölgun sérhæfðs starfsfólks, víðtækri stefnumótun og öflugum stuðningi við Geðhjálp. Þannig hefur tekist að efla geðheilbrigðisþjónustuna vemlega og jafnframt vekja athygli á þörfum þessa hóps. Sú vinna hefur skilað árangri og ég tel að nú ríki góður skilningur á málefnum geð- sjúkra á Islandi og þjónustan er á flestum sviðum jafn góð eða betri en við þekkjum ann- ars staðar," sagði heilbrigðis- ráðherra. Hún segir að tillögur þær sem hún hafi lagt fyrir ríkis- stjóm miði að því að bæta þjónustu við böm og unglinga enn frekar, enda sé mesta þörfin þar. „Ég vænti þess að tillög- urnar hljóti afgreiðslu. á næstu dögum, en þar er ekki um að ræða einhver kosninga- brögð heldur eðlilegt fram- hald af þeirri miklu stefnu- mótunar- og uppbyggingar- vinnu sem hefur verið í gangi undanfarin fjögur ár,“ sagði heilbrigðisráðherra. nu Herðum okkur á lokasprettinum. Frambjóðendur verða við símann frá kL l8 til 21 í kvöld, föstudagskvöld. Kosningakaffi á morgun. Kosningamiðstöð Ármúla 23, simi 588 4350 Borgarstjóri segir ekki rétt staðið að uppsögnum Starfsmönnunum verða fundin önnur störf BORGARSTJÓRI sagði á borgar- stjórnarfundi í gær að rangt hefði verið að verki staðið við uppsögn fjögurra fatlaðra starfsmanna hjá garðyrkjustjóra um síðustu mánaða- mót. Segir hún að þeim verði fundin önnur störf áður en uppsagnarfrest- ur þeirra rennur út. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi Sj álfstæðisflokksins, tók framangreindar uppsagnir til umræðu utan dagskrár á fundi borgarstjórnar í gær. Hann hélt því fram að borgarstjóra hefði verið kunnugt um að uppsagnir þessara starfsmanna stæðu til og látið átölulausar. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri sagði svo ekki vera, sér hefði fyrst verið kunnugt um uppsagnirn- ar síðastliðinn þriðjudag. Hún sagði borgarverkfræðing hins vegar hafa bent sér á fyrir nokkrum vikum að til þess gæti komið að segja yrði upp nokkrum starfsmönnum hjá gatnamálastjóra og garðyrkjustjóra. Hún kvað hann ekki hafa vitað að um fatlaða ein- staklinga væri að ræða. Borgarstjóri sagði enga breytingu hafa orðið á stefnu borgarinnar varð- andi störf fatlaðra, þeir starfsmenn borgarinnar þyrftu ekki að óttast um atvinnuöryggi sitt. Hún sagði að ýmsar breytingar yrðu iðulega á eðli starfa og því kæmi oft til þess að færa yrði starfsmenn til í störfum hjá borginni. Borgarfulltrúar tókust á um málið í tveggja tíma umræðum og sökuðu borgariulltrúar Reykjavíkurlistans minnihlútann um að gera Reykjavík- urlistann tortryggilegan í málinu í Ijósi þess að stutt væri til alþingis- kosninga. Sögðu þeir málflutning sjálfstæð- ismanna um mál viðkomandi starfs- manna þeim ekki til framdráttar. Borgarstjóri sagði fulltrúa beggja flokka sammála um að ekki væri rétt staðið að uppsögnunum og því væri ljóst að tveggja klukkutíma umræða um málið væri einungis í því skyni að gera það. að. pólitísku hitamáli..

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.