Morgunblaðið - 07.05.1999, Page 10

Morgunblaðið - 07.05.1999, Page 10
10 FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sjónvarp og útvarp verða með fjölbreytta dagskrá á kosninganótt Kosningavaka hefst strax eftir fréttir SJÓNVARPSSTÖÐVARNAR, Rík- isútvarpið og netmiðlamir koma til með að flytja stöðugar fréttir af úr- slitum alþingiskosninganna 8. maí. Reiknað er með fyrstu tölum úr flest- um kjördæmum strax eftir að kjör- staðir loka kl. 22. Kosningabaráttunni lýkur formlega í kvöld þegar foi'ystu- menn framboðanna sem bjóða fram á landsvísu ræðast við í sjónvarpssal. Ríkissjónvaipið og Stöð 2 verða í samkeppni um áhorf á kosninganótt- ina, en stöðvarnai' verða þó með sam- starf á nokkrum sviðum. Þær koma til með að samnýta útsendingarbúnað á talningastöðunum um allt land og sameiginleg útsending verður frá við- ræðum forystumanna flokkanna þeg- ai’ fyrstu tölur hafa borist kl. 22.30 og aftur skömmu eftir miðnætti. Von á fyrstu tölum um kl. 22 Árni Þórður Jónsson, umsjónar- maður með kosningasjónvarpi RÚV, sagði að sjónvarpið myndi hefja út- sendingu kl. 20.50 og reiknað væri með að haldið yrði áfram þangað til allar tölur hefðu borist. Búist væri við fyrstu tölum úr flestum kjör- dæmum skömmu eftir að kjörstöðum er lokað kl. 22. Veður gæti þó sett strik í reikninginn. Árni Þórður sagði að talsverðar breytingar hefðu verið gerðar á framsetningu talna frá kosninga- sjónvarpinu fyrir fjórum árum. Not- ast yrði við nýtt grafískt form, sem Hafnarbót ÞEGAR þeir Geir H. Haarde fjár- málaráðherra og Halldór Blöndal samgöngui-áðhen-a voru á opnum stjórnmálafundi í Grímsey sl. þriðju- dagskvöld, impraði Halldór Blöndal m.a. á því að Grímseyingar fengju eitt stórgrýti í höfnina, fyrir hvert atkvæði, en stórgrýtið þarf að flytja til Grímseyjar úr landi. Heimamenn töldu eðlilegra að verðleggja hvert atkvæði þannig að tvö til þrjú stór- gi-ýti kæmu í staðinn. Morgunblaðið/RAX UNDIRBÚNINGUR fyrir kosningasjónvarp RUV stendur nú sem hæst, en hann hvílir m.a. á (f.h.) Árna Þórði Jónssyni fréttamanni, Bimu Ósk Björnsdóttur dagskrárgerðarmanni, Boga Ágústssyni fréttastjóra, Loga Bergmann Eiðssyni fréttamanni og Elínu Hirst fréttamanni. hefði það að markmiði að gera áhorf- endum sem auðveldast að sjá þær breytingar sem eru að verða á fylgi flokkanna. Hann sagði að Ólafur Harðarson stjómmálafræðingur yrði fréttamönnum til aðstoðar við að skýra tölurnar, en auk þess yrði rætt í Grímsey! Fram kom í frétt hér í blaðinu í gær að Geir H. Haarde hafi við þetta tækifæri snarað fram þessum fyrri- parti til samgönguráðherrans: Láki-biður bara um grjót Blöndal lofar steinum Og nú hefur Blöndal botnað á eft- irfarandi hátt: Því hér er þörf á hafnarbót Hafs að stöðva öldurót við frambjóðendur og komið við á kosningavökum. Ennfremur yrði boðið upp á fjölbreytt skemmtiatriði, m.a. hljómsveitina Hljómbrot. Sjónvaipið verður auk þess með umræðuþátt nk. sunnudagskvöld með forystumönnum framboða sem ná kjöri á Alþingi. Þar verður farið yfir úrslitin og spáð í framhaldið. Karl Garðarsson, umsjónarmaður með kosningasjónvai-pi Stöðvar 2, sagði kosningasjónvarp Stöðvar 2 hefjast strax eftir fréttir kl. 20 og stæði fram undir morgun þegar úr- slit í öllum kjördæmum lægju fyrir. Kosningavakan einkenndist af fjöl- breyttu skemmtiefni, viðtölum við frambjóðendur og gesti. Meðal þeirra sem kæmu fram væri hljóm- sveitin Kjörseðlamir. Karl sagði að Stöð 2 yrði með nýj- ungar í grafískri framsetningu talna. M.a. yrði boðið upp á grafík í þrí- vidd. Farið yrði í eins konar flugferð inn í Alþingishúsið og þar gætu áhorfendur séð hvernig þingsæti skiptust á milli flokka. Karl sagði að Bylgjan yrði að hluta með samtengdai’ útsendingar með Stöð 2 á kosninganóttina. Á há- degi á sunnudag yrði ítarleg umfjöll- un um úrslitin í samtengdum frétta- tíma Bylgjunnar og Stöðvar 2. Kári Jónasson, fréttastjóri fréttastofu Út- vaips, sagði að kosningavaka Rásar 1 hæfist kl. 21.30 og stæði þangað til úrslit lægju fyrir í öllum kjördæm- um. Sent yrði út bæði á langbylgju og stuttbylgju. Þorkell Helgason stærðfræðingur yrði fréttamönnum til aðstoðar við túlkun talna. Talað yrði við stjórnmálamenn og vegfar- endur um allt land um úrslit kosn- inganna. Daginn eftir yrði ítarlega sagt frá úrslitum í morgunfréttum, en auk þess yrði tveggja tíma þáttur um úrslitin milli kl. 10 og 12. Þessi þáttur, sem hefur m.a. að geyma við- töl við stjórnmálamenn, yrði endur- tekinn um kvöldið. Úrslit í öllum kjördæmum yrðu nákvæmjega tí- unduð kl. 16. Kári sagði að Útvarpið kæmi til með að hafa nánara sam- starf við fréttastofu Sjónvarps en oft áður um kosningavökuna, t.d. yrði notast við sama tölvukerfið. Kosningavakt á fréttavef Morgunblaðsins Vakt verður á fréttavef Morgun- blaðsins alla kosninganóttina þangað til úrslit liggja fyrh’ í kosningunum, að sögn Guðmundar Sv. Hermanns- sonar fréttastjóra. Fylgst verður með tölum úr öllum kjördæmum og leitað eftir viðbrögðum fi’ambjóð- enda. Á kosningavefnum verður sett fram spá um heildarúrslit strax og fyrstu tölur berast. Þar verður einnig að finna nöfn frambjóðenda. Tölur verða settar fram á grafísku formi. Ljósmyndarar verða á ferð- inni og verða myndir birtar á vefnum um leið og þær berast. Vakt verður á fréttavef Vísis fram yftr miðnætti, að sögn Ásgeirs Frið- geirssonar fréttastjóra. Hann sagði að blaðamenn og ljósmyndarar yrðu á vakt og myndu fylgjast með við- brögðum frambjóðenda við úrslitum kosninganna. Úrslitin yrðu sett fram með grafískum hætti. Ekki yrði vakt alla nóttina, en lögð yrði áhersla á ít- arlegar fréttir á sunnudaginn þegar úrslit lægju fyrir. Formannaþáttur í kvöld Kosningabaráttunni lýkur form- lega í kvöld með umræðum forystu- manna framboðanna sem bjóða fram á landsvísu. I þættinum verða Hall- dór Ásgrímsson, formaður Fram- sóknarflokksins, Davíð Oddsson, for- maður Sjálfstæðisflokksins, Sverrir Hermannsson, formaður Frjálslynda flokksins, Kjartan Jónsson, efsti maður á lista Húmanista í Reykja- vík, Margrét Frímannsdóttir, tals- maður Samfylkingarinnar, og Stein- grímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar. Umræðun- um stýra Bogi Ágústsson, frétta- stjóri fréttastofu Sjónvarps, og Páll Magnússon, fréttastjóri Stöðvar 2. Forsætisráðherra telur að birta eigi skattframtöl þingmanna og frambjóðenda Skiptar skoðanir á birtingu skattskýrslna Forystumenn stjórnmálaflokkanna taka misjafnlega undir þá hugmynd forsætis- ráðherra að rétt sé að birta skattskýrslur stjórnmálamanna en eru þó þeirrar skoð- unar að þörf sé á reglum um fjárreiður og~ framlög til sjórnmálamanna og stjórnmála- fiokka. Ómar Friðriksson ræddi við for- ystumenn flokkanna. DAVÍÐ Oddsson, forsætisráðheiTa og formaður Sjálfstæðisflokksins, sagðist í viðtali í Morgunblaðinu í gær vera þeirrar skoðunar að setja ætti þá reglu að skattframtöl allra þingmanna og jafnvel þeirra sem bjóða sig fram í prófkjöri séu birt. Morgunblaðið leitaði álits forystu- manna annarra stjómmáiasamtaka á þessari hugmynd. Setja á sams konar reglur um stjórnmálamenn og í Noregi Halldór Ásgrímsson, utanríldsráð- herra og formaður Framsóknai’- flokksins, segist ekkert hafa á móti því persónulega þó skattframtöl stjómmálamanna verði birt en leggur tíl að teknar verði upp sambærílegar reglum og í gildi eru á hinum Norður- löndunum. „Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að við eigum að setja sams konar reglur um stjórnmálamenn og eru í Noregi,“ segir Halldór. „Þar hefur verið sett ákveðið há- mark á til dæmis gjafir sem stjórn- málamenn mega þiggja og ef þær fara yfir þau mörk ber að skýra frá því á þinginu. Einnig ber stjórn- málamönnum að leggja fram upplýs- ingar um eignir sínar. Þessar reglur voru settar í Noregi fyrir skömmu og ég tel að það megi læra af þeim. Eg veit hins vegar ekki um dæmi þess að nokkurn tíma hafí verið far- ið út í að birta skattskýrslur þó að ég hafí persónulega ekkert á móti því. Ég tel að þær reglur sem hafa verið settar á Norðurlöndunum á undanförnum árum séu til eftir- breytini,“ segir Halldór. Stjórnmálaflokkaniir geri hreint fyrir sínum dyrum Sverrir Heimannsson, formaður Frjálslynda flokksins, segist ekki hafa velt því sérstaklega fyrir sér hvort rétt sé að birta skattframtöl þing- manna. „Aðalatriðið er að stjómmála- flokkamir geri hreint fyrir sínum dyr- um í fjármálum. Auðvitað er það mik- ilsvert að þingmenn geti fært á það sönnur að þeir séu alveg óháðh’ og sjálfstæðir. Ég held þó að ef flokkam- ir geta sýnt óyggjandi fram á þetta þá væri það stærsta skrefið en það er ekki að heyra að það sé talið þarft,“ segir SveiTÍr. Hann bendir einnig á að stjómmálaflokkum á Norðurlöndun- um sé skylt að gera sérstaka grein fyrir öllum stærri framlögum sem þeir fá. „Mér er sagt að það séu bara tvö lönd í Evrópu þar sem þessar reglur eru ekki komnar á og það sé í Bretlandi og á fslandi en Bretar munu vera í þann veginn að setja þær á svo þá verða íslendingar einir á báti. Það gengur ekki,“ sagði Sverrir. Þörf á löggjöf um takmarkanir á fjárframlögum „Ég hef almennt séð ekkert nema gott um það að segja að stjórnmála- menn og stjórnmálaflokkar geri gi’ein fyrh’ sínum málum og leggi þau spil hreint á borðið en ég hef verið þeirrar skoðunar að heppileg- ast væri að setja um þetta löggjöf og að við ættum að stefna að því að setja lög hér á landi um bæði fjár- stuðning við stjórnmálastarfsemi sem og um takmarkanir á fjárfram- lögum til flokka,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyf- ingarinnar - græns framboðs. „I slíkri löggjöf mætti líka eftir því sem ástæða væri til mæla fyrir um tiltekna upplýsingaskyldu stjórn- málamanna um sín persónulegu fjár- mál. Ég óttast að tilraun til að koma þessu á með einhvers konar hefðar- reglu gæti orðið endaslepp. Ég tel að sá flokkur sem hefur verið þyngstur í vöfum hvað varðar alla upplýsinga- skyldu um sín fjármál og lagst gegn því hafi einmitt verið flokkur forsæt- isráðherra," sagði Steingrímur. Sjálfsagt; að birta heildar- tölur yfír íjárframlög Margi’ét Frímannsdóttir, talsmað- ur Samfylkingarinnai’, segir að við fyrstu sýn virðist sér ekki eðlilegt að skattframtöl þingmanna verði 001; í heilu lagi. „Hins vegar get ég tekið undir það að menn eigi að gera grein fyrir því ef um er að ræða hlutabréfa- eign eða aðrar verulegai’ eignh’ þar sem hugsanlega gæti verið um hags- munaárekstra að ræða,“ segir hún. Margrét telur að hafa beri sama hátt á ef t.d. er um það að ræða að stjórn- málamenn hafa notið persónulegra styrkja frá fyrirtækjum í prófkjörs- baráttu eða vegna sinnar pólitísku starfa, þai’ sem hugsanlega gæti orðið um hagsmunaárekstra að ræða. „Að öðru leyti finnst mér heimilsbókhald- ið ekki koma þessu við,“ sagði hún. „Það þarf að setja heildstæðar reglur um það með hvaða hætti eigi að fara með upplýsingar s.s. um það hverjir það eru sem styrkja stjórn- málaflokka eða stjórnmálamenn," segir hún. „Það þarf að setja sam- ræmdar reglur. í dag verður auðvit- að að virða trúnað við þá sem fram á það fara en ég tel sjálfsagt að birta engu að síður heildartöluna yfir fjár- framlög fyrirtækja eða einstaklinga til flokka," sagði Margrét.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.