Morgunblaðið - 07.05.1999, Side 11

Morgunblaðið - 07.05.1999, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1999 11 Nefnd fulltrúa 5 flokka um fjárhagslegan stuðning við stjdrnmálaflokka Oæskilegt að afnema nafnleynd styrktaraðila Þorskkvóti í verð- laun í kosninga- happdrætti Þrír aðil- ar lofa kvóta NEFND sem forsætisráðherra skipaði 1995 til að fjalla um fjárhagslegan stuðning við stjórn- málaflokka komst að þeirri niðurstöðu í skýrslu sinni að óæskilegt væri að afnema nafnleynd styi’ktaraðila stjórnmálaflokkanna. I nefndinni sátu fulltrúar fimm stjórnmálaflokka og skilaði hún niðurstöðum sínum í desember sl. Davíð Oddsson forsætisráðherra fól nefndinni að gera tillögur að reglum um fjárhagslegan stuðning við stjóx-nmálaflokka og þá þætti sem slíkum stuðningi tengjast. í nefndinni sátu Hreinn Loftsson hæstaréttarlögmaður, sem var formaður nefndarinnar, Kjax-tan Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, Helgi S. Guðmundsson, tilnefndur af Framsóknax-flokki, Einar Karl Haraldsson, tilnefndur af Alþýðu- bandalagi, Sigurður Ax’nórsson, tilnefndur af Al- þýðuflokki og Kiistín Sigurðardóttir, tilnefnd af Kvennalistanum. Arthur Morthens tók sæti Ein- ars Karls í nefndinni 1996 og Ingvar Sverrisson tók einnig þátt í störfum nefndarinnar fyrir Al- þýðuflokkinn. Pjóðvaki tilnefndi ekki fulltrúa í nefndina. Yrðu háðari ríkisframlögum en ella Nefndin fjallaði m.a. ýtarlega um opinber framlög til stjórnmálaflokka og gerði tillögur um skiptingu fjárframlaga en fjallaði einnig um fjár- hagslegan stuðning fyx-irtækja og einstaklinga við stjói’nmálaflokka. I niðui’stöðum nefndarinn- ar segir m.a. um það álitamál: „Ljóst er, að ef nafnleynd styi’ktai’aðila yrði aflétt myndi draga mjög úr frjálsum fjárframlögum til flokkanna, sem aftur gerir þá enn háðari ríkisframlögum en ella og hætta skapast á því, að þeir festist í fjár- hagslegum viðjum hins opinbera. Það er af þeim ástæðum óæskilegt að afnema nafnleyndina, auk þess sem fráleitt væri að ætla að afnám hennar gæti verið allsherjarlausn til að koma í veg fyrir spillingu og misferli og e.t.v. fælist í því falskt ör- yggi. I þessu sambandi er einnig rétt að líta á það sem rétt einstaklinga og félaga, að styrkja tiltek- in samtök án vitneskju annarra óski viðkomandi eftir því, enda eru allir skv. 1. mgi’. 73. gr. stjói'n- arski’árinnar „frjálsir skoðana sinna og sannfæi’- ingar“.“ Bent er á það í skýrslunni að stuðningur við stjómmálaflokka sé m.a. kominn til vegna vel- vilja í þeirra garð og stuðnings við málstað þeirra, en gera verði ráð fyrir því að breytt eign- arhald fyrii’tækja og almenn hlutabréfaeign hafi stuðlað að því að stjórnmálaflokkar standi jafnar en áður hvað varðar möguleika þeirra á að afla slíks fjár. „Hluthafar í hlutafélögum eiga heimt- ingu á því að fá upplýsingar um styrki slíki’a fé- laga og veita stjórnendum og stjómum þar með aðhald og eftirlit,“ segir í skýrslunni. Fram kom að fulltrúi Kvennalistans í nefnd- inni var ekki sammála mörgum þeirra forsendna sem nefndai’menn settu fram og taldi m.a. eðli- legt að sett yrðu séi’stök lög um starfsemi og fjárreiður stjórnmálaflokka. SAMFYLKINGIN hefur efnt til kosningahappdrættis þar sem fyrsti vinningur er eins tonns þorskkvóti, að andvirði um 820 þúsund krónur. Hólmsteinn Brekk- an, einn framkvæmdastjóri happ- drættisins, segir þijá aðila hafa heitið því að láta þennan kvóta til happdrættisins og gangi vinning- urinn út, verði einn þeirra að efna það loforð. Um helstu fjáröfiunar- leið Samfylkingarinnar sé að ræða. „Vinningar í happdrættinu eru á einn eða annan hátt tengdir stefnumálum Samfylkingai’innar. Eitt af áherslumálunum er að auð- lindirnar séu í þjóðareign og því kviknaði sú hugmynd að hafa þorskkvóta í verðlaun,“ segir Hólmsteinn. Skoðanakönnun Gallups Fylgi D- lista hefur aukist lítil- lega FYLGI Sjálfstæðisflokksins var um einu prósenti meira í skoðanakönnun Gallup sem birt var í gær heldur en í könnun Gallup frá miðviku- deginum. Litlar breytingar urðu á fylgi annarra flokka milli kannananna. Sjálfstæðisflokkurinn fær 43,2% atkvæða í kosningun- um ef marka má nýju könn- unina, en hafði 42,3% í sam- kvæmt fyrri könnuninni. Samfylkingin fær 27,3% í nýju könnuninni en fékk 27,1% í hinni fyrri. Fram- sóknarflokkurinn fær 18% en var áður með 18,3%. Vinsti’i- hreyfingin - grænt framboð mælist með 7,9% fylgi en var með 8,3% Frjálslyndi flokk- urinn fær nú 3,4% en var með 3,2%, Húmanistaflokkurinn var með 0,9% í síðustu könn- un en fær nú 0,2%. Fylgi Kristilega lýðræðisflokksins og Anarkista mældist í hvor- ugri könnuninni. Úrtakið var þúsund manns Urtakið í könnuninni var 1.000 manns af landinu öllu á aldrinum átján ára og eldri, þar af voru fimm hundruð spurð á miðvikudagskvöldið og voru þau svör lögð við svör í könnuninni sem gerð var á þriðjudagskvöldið 3. maí. Svai’hlutfall var um 71%, um 16,5% vora óákveðnir eða neituðu að svara, 4,2% sögðust ekki myndu kjósa eða ætluðu að skila auðu. _ Morgunblaðið/Kristján LEIKFELAG Menntaskólans á Akureyri sýndi atriði úr söngleiknum Kabarett á Samfylkingargleðinni í Sjallanum. Kjartan Höskuldsson, sem leikur skemmtanastjórann í verkinu, fékk þær stöllur, Margréti Frímannsdóttur, Jóhönnu Sigurðardóttur og Rannveigu Guðmundsdóttur til að hátta sig á sviðinu. Verðmæti 820 þús. og vex „Þegar miðarnir voru prentað- ir var verðmætið áætlað 820 þús- und krónur og fer hækkandi að sögn fróðra manna, vegna viðbót- arveiðiheimilda sem útdeilt verð- ur á næstu dögum. í landinu eru tíu kvótasölur þannig að nánast hver sem er getur stundað við- skipti með kvóta, en í þessu til- viki fengum við vilyrði frá þrem- ur aðilum sem voru tilbúnir til að selja kvótann eða láta hann frá sér. Við leituðum álits hlutaðeig- andi ráðuneyta og þetta mun vera heimilt." Hólmsteinn segir að vinnings- hafi þurfi ekki að eiga skip til að nýta sér kvótann. „I landinu eru um 4.000 fjölskyldur sem eiga bát eða hluta í bát, sumir hverjir kvótalausir, og ef vinningshafinn er svo heppinn að koma úr þessum fjölskyldum fer kvótinn beint á viðkomandi bát. En ef hann er ekki svo heppinn, fær vinningshaf- inn afhenta verðgildisávísun og getur annaðhvort selt kvótann þeim sem á bát eða nýtir sér þetta með einhverjum öðrum hætti.“ Margrét Frímannsdóttir á Samfylking- argleði í Sjallanum á Akureyri Davíð getur ekki setið rór í fleti sínu MARGRÉT Frímannsdóttir, tals- maður Samfylkingarinnar, gagn- rýndi Sjálfstæðisflokkinn harkalega í ræðu sinni á Samfylkingargleði í Sjallanum á Akureyxi í fyrrakvöld og vék sérstaklega að framkomu og einræðistilhneigingum Davíðs Oddssonar forsætisráðherra, eins og hún orðaði það. Afl sem getur gjörbreytt aldahlutföllum Margrét nefndi að Davíð hafi gerst bókmenntagagnrýnandi, skammaðprest opinbei’lega fyi’ir að skrifa smásögu sem honum líkaði ekki og veitt fréttamönnum ofaní- gjöf líki honum ekki fréttaflutning- ur þeirra. Hún sagði að forsætisráð- herra skammaði öryrkja og aldraða fyrir að auglýsa eigin kjör og verk ríkisstjórnarinnar og þá finnist hon- um að biskup Islands eigi ekki að hafa skoðun á því að hér á landi býr fólk við fátækt. „Þessi oi’ð og athugasemdir og sú framganga sem við höfum orðið vitni að er ekki sæmandi manni í hans stöðu. En hvei’s vegna er Davíð Oddsson að fara á taugum? Hvers vegna er hann svo striður í lund og óstýrilátur á mannamótum? Það er von að maður spyrji því staðan hjá höfuðandstæðingi okkar, Sjálfstæð- isflokknum, er sterk. En Davíð Oddsson veit jafn vel og við að ekki er allt sem sýnist. Upp er risið afl sem getur gjörbreytt valdahlutfoll- um í landinu til frambúðar. Og það pirrar hans viðkvæma geð. Þetta afl er komið til að vera. Hann veit að hér eftir getur hann ekki setið rór á fleti sínu,“ sagði Margrét. Samfylkingin troðfyllti Sjallann og auk Margi-étar fluttu ávarp Jó- hanna Sigurðardóttir, Rannveig Guðmundsdóttir og Svanfríður Jón- asdóttir en allar leiða þær lista Samfylkingai-innar í sínum kjör- dæmum. Einnig var boðið upp á skemmtiatriði sem vöktu mikla hrifningu viðstaddra. Morgunblaðið/Ásdís Sj álfstæðiskonur á kosningafundi Á ANNAÐ hundrað manns mættu á konukvöld sem haldið var í kosningamiðstöð Sjálfstæð- isfiokksins í gærkvöldi, þar á meðal allar konur á framboðs- lista fiokksins í Reykjavík og jafnframt nokkrir karlanna. Flutt var tónlist og boðið upp á skennntiatriði. Anna Gunnars- dóttir, „Anna og útlitið", fjallaði um tísku og útlit og Ásta Möller, sem er í níunda sæti á lista fiokksins í Reykjavík flutti ávarp um konur og stjórnmál. Sólveig Pétursdótt.ir alþingis- maður, sem er í fjórða sæti í Reykjavík, heilsar hér einum gestanna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.