Morgunblaðið - 07.05.1999, Síða 12
12 FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/RAX
FÓLK á öllum aldri lítur inn í kosningamiðstöð Sjálfstæðisflokksins en þar er daglega
tekið á móti gestum og gangandi, jafnvel þótt þeir séu ekki með kosningarétt eins og
þessir krakkar sem Ijósmyndari blaðsins hitti í gær.
Morgunblaðið/RAX
KOLBRÚN Halldórsdóttir, frambjóðandi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, og
Kolbeinn Óttarsson Proppé kosningastjóri spjalla við kjósendur í kosningamiðstöð
framboðsins í gær.
Morgunblaðið/Ásdís
VERKIN, sem tala á kosningaskrifstofu Framsóknar eru meðal annars nýbakað brauð og
lax frá kjósenda, sem Örn Gústafsson kosningastjóri og gestir hans gæddu sér á í gær.
Morgunblaðið/Ásdís
HIN rétta breytni Samfylkingarinnar í gær var að mæta á kosningahátíð við Iðnó og
þar var Óskar Guðmundsson kosningastjóri auðvitað mættur.
Erum þar
sem kjós-
endur eru
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN er með
kosningamiðstöð í Skipholti 19 og níu aðrar
kosningaskrifstofur í öðrum hverfum borgar-
innar. Stefna flokksins íyrir þessar kosningar
er að fara til kjósenda fremur en að láta þá
koma til sín, að sögn Friðjóns Friðjónssonar,
starfsmanns miðstöðvarinnar.
í Skipholtinu hefur verið opið síðasta mán-
uðinn frá klukkan 14 og fram á kvöld. Þangað
hafa kjósendur leitað með spurningar um ým-
is málefni sem þeir vilja spyrja út í. Að sögn
Friðjóns hefur verið töluverð umferð á mið-
stöðina, sérstaklega þegar þar eru haldnar
uppákomur eða fundir. í gærkvöldi var til
dæmis skemmtun undir yfirskriftinni konur
og stjórnmál þar sem skemmtidagskrá var
blandað saman við stjómmál í léttum dúr.
Einnig hefur að sögn Friðjóns mikið verið
hringt í miðstöðina með spurningar.
Aðsókn eykst eftir því
sem nær dregur kosningum
„Fólk spyr um allt milli himins og jarðar.
Frá stefnu flokksins í sjávarútvegsmálum til
stefnu hans í málefnum samkynhneigðra.
Fólk spyr líka um sérstök áhugamál og einnig
kemur fyrir að það hringir til að rífast,“ segir
Friðjón og bætir við að fyrirspumir berist
einnig á tölvupósti.
Friðjón segir að flokkurinn leggi sig fram
við að vera á þeim stöðum þar sem fólkið er.
Frambjóðendur flakka daglega á milli vinnu-
staða til að kynna málefni flokksins auk þess
sem þeir eru í Kringlunni og í öðrum verslun-
armiðstöðvum. „Spurningar fólks, aðsókn á
kosningamiðstöðina og á skipulagða atburði
kosningabaráttunnar hefur aukist jafnt og
þétt eftir því sem nær dregur kosningum. Að
auki fer fram mikið starf á hverri kosninga-
skrifstofu og við reynum að ná til fólks með
því að hringja í ákveðna markhópa, senda
póst og standa fyrir uppákomum," segir
Friðjón.
Friðjón segist ekki hafa fundið fyrir deyfð í
kosningabaráttunni eins og nokkuð hefur bor-
ið á í umræðu um kosningamar undanfarið.
Hann segist fínna fyrir því að fólk sé almennt
ánægt með ástandið og flokkurinn hafi mikinn
meðbyr fyrir þessar kosningar. Að lokum seg-
ir hann að frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins
muni einbeita sér að því að vera þar sem kjós-
endur era á lokaspretti kosningabaráttunnar
sem er í dag.
Kjósendur
forvitnir um
nýtt framboð
KAFFI og kanilsnúðar eru á boðstólum í
kosningamiðstöð Vinstri hreyfingarinnar -
græns framboðs á Suðurgötu 7. Þar sitja
frambjóðendumir Ögmundur Jónasson og
Kolbrún Halldórsdóttir og spjalla við kjósend-
ur. Undanfama daga hafa frambjóðendur
flokksins verið til viðtals í þessum bækistöðv-
um flokksins en á morgun verða þeir á þönum
um allan bæ að spjalla við kjósendur og kynna
málstaðinn.
Kolbeinn Óttarsson Proppé er kosninga-
stjóri framboðsins í Reykjavík og er ávallt við í
kosningamiðstöðinni á Suðurgötu. Hann segir
að mikið sé um að fólk kíki inn og spyrji út í
ýmis mál, enda skrifstofan í alfaraleið á horni
Suðurgötu og Vonarstrætis. Kolbeinn segir að
mest beri á því að spurt sé um stefnu flokksins
í umhverfismálum og segist hann gjarnan
heyra að fólki hafi fundist vanta flokk sem
setji þau mál á oddinn.
Engin deyfð yfír kosningabaráttunni
„Við eram nýtt framboð og kannski þess
vegna era margir sérstaklega forvitnir um
okkur. Mér finnst mikið bera á því að fólk er
ekki búið að gera upp hug sinn og er að kanna
nýja kosti eins og okkur. Auk þess sem menn
koma hingað hringja þeir og senda fyrirspurn-
ir á Netinu. En vegna þess að við eram nýtt
framboð þurfum við að kynna okkar stefnu frá
granni. Við verjum ekki miklum fjármunum í
auglýsingar heldur höfum við kosið að kynna
stefnu okkar með fræðslu. Við höfum starf-
rækt bæði Grænu smiðjuna og Rauðu smiðj-
una þar sem við höfum verið með fræðslufundi
um umhverfismál annars vegar og velferðar-,
menntunar- og menningarmál hins vegar.
Auk viðveru í kosningamiðstöð hafa fram-
bjóðendur kynnt stefnu flokksins á vinnustöð-
um og í verslunarmiðstöðvum eins og í Kringl-
unni og fleiri verslunarmiðstöðvum. Undan-
famar vikur hafa verið haldnir 3-4 fundir í
viku í kosningamiðstöðinni og Kolbeinn þver-
tekur fyrir að áhugaleysi nki meðal kjósenda
íyrir þessar kosningar. „Ég hef oft staðið í
kosningabaráttu en aldrei fundið fyrir svona
miklum áhuga. Á fundum okkar hefur verið
fullt hús og við höfum haft miðstöðina opna
fram á kvöld í rúman mánuð þar sem hér hefur
verið stöðug traffík.“
„Frambjóðend-
ur verða að
vera sýnilegir“
„HÉR er verulegur straumur, þegar fram-
bjóðendur hafa tíma til að vera hér,“ segir Öm
Gústafsson, kosningastjóri Framsóknarflokks-
ins, þegar litið er inn á kosningaskrifstofu
flokksins við Hverfisgötu. Á borðum eru klein-
ur og kökur, að ógleymdu nýbökuðu brauði og
reyktum laxi, gjöf frá góðum flokksmanni. Við
hlið góðmetisins er andleg fæða í formi lesefn-
is. Fyrir konur á uppleið er til sölu bókin
„Gegnum glerþakið“, sænsk bók um leið
kvenna til valda. Nokkrir gestir sitja og gera
veitingunum góð skil og Ólafur Örn Haralds-
son þingmaður og Finnur Ingólfsson við-
skipta- og iðnaðarráðherra hafa litið við.
„Það er misjafnt hvað hingað kemur mikið
af fólki,“ segir Örn og bætir við að þegar fram-
bjóðendur gefi sér tíma til að koma sé veraleg-
ur straumur á skrifstofuna.
Dagurinn á skrifstofunni hefst með morg-
unfundi, þar sem sjö efstu frambjóðendur á
listanum mæta. Þá er farið yfir dagskrá dags-
ins, hvaða vinnustaðir verða heimsóttir og
annað sem gert er. Auk þess sér skrifstofan
um útgáfu bæklinga. „Vinnudagarnir vilja
verða langir og mikið að gera,“ segir Örn.
„Frambjóðendur verða að vera sýnilegir
þegar um fjöratíu prósent kjósenda eru enn
óákveðnir," segir Örn. Því eru frambjóðendur
flokksins daglega í Mjóddinni og í Kringlunni.
I dag fer rúta með sextán frambjóðendum um
bæinn og heimsækja þeir vinnustaði. „Móttök-
urnar era yfirleitt vinsamlegar," segir Örn,
„þótt einn og einn sé önugur. Áhugaefnin á
vinnustöðunum fara eftir hvaða vinnustaðir
eiga í hlut.“
Órn hefur orð á því hvað yngstu kjósend-
umir séu áhugasamir um að afla sér upplýs-
inga. „Hingað komu til dæmis þrjár ungar
stúlkur og höfðu þá farið á kosningaskrifstof-
ur allra flokkanna. Ég er hræddur um að
þetta hefði ég ekki gert á þeirra aldri.“
Efnin sem fólk ræðir helst að sögn Arnars
era velferðarmál eins og barnabætur, tekju-
trygging, skattamál og barnakortið, en þá nýj-
ung setur Framsókn á oddinn. „Þeir sem
koma hingað hafa ekki sterkar skoðanir á
kvótamálinu.“
„Fólk vill auðvitað helst ræða við frambjóð-
endur hér og fá skýr svör,“ segir Örn. „Sumir
ræða jafnvel persónuleg mál og leita úrlausn-
ar, aðrir ræða hugðarefni sín.“ Svo hringir
fólk mikið til að leita eftir upplýsingum um
kjörskrá, en eins til að leita eftir að fá fram-
bjóðendur í vinnustaðaheimsóknir eða á aðrar
samkomur."
Öm segist ekki hafa langa reynslu af kosn-
ingabaráttu og því ekki geta metið hvort kosn-
ingabaráttan sé dauf, eins og margir halda
fram. „En flokkamir era líkir og þá verður
þetta meira spuming um persónur, þar sem
forystumennirnir gegna auknu hlutverki."
Á lokasprettinum er verið að undirbua
keyrslu á kjördag og kosningavöku, sem að
þessu sinni verður haldin á Grand hóteli, auk
þess sem skrifstofan býst við að um hundrað
manns komi við í kaffi á kjördag. „En línurnar
í baráttunni hafa þegar verið lagðar og þeuri
stefnu verður ekki breytt. Menn hafa verið
málefnalegir í kosningabaráttunni, en hún er
ekki búin enn og allt getur gerst.“
„Kosninga-
skrifstofan er
torg fram-
bjóðenda“
KOSNINGAHÁTÍÐ Samfylkingarinnar í og
við Iðnó síðdegis í gær færði kosningaskrif-
stofu hreyfingarinnar þangað úr Ármúlanum
og þar var Óskar Guðmundsson kosninga-
stjóri að hlýða á kórsöng er blaðamann Morg-
unblaðsins bar að. Utandyra reyndu krakkar
kraftana með sleggju, tónlist hljómaði úr gjall-
arhornum og innan dyra var hægt að kaupa