Morgunblaðið - 07.05.1999, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Aður óþekkt Kjarvalsverk komið í leitirnar í Svíþjóð
Handbragðið þesslegt að
um Kjarvalsverk sé að ræða
KJARVALSVERKIÐ, sem
sænskur maður festi kaup á á
flóamarkaði í Svíþjóð fyrir
skömmu og sagt var frá í
Morgunblaðinu í gær, hefur
ekki áður komið fyrir sjónir
tveggja sérfræðinga um verk
Jóhannesar Kjarvals sem
Morgunblaðið leitaði til. Sér-
fræðingarnir segjast hins veg-
ar báðir hafa séð sambærileg
verk eftir Kjarval.
Karl Andersson keypti verk
eftir Kjarvai á flóamarkaði í
Gautaborg fyrir skömmu á
rúmar 500 krónur. Verkið var
boðið upp hjá Bukowskis-upp-
boðshúsinu í síðustu viku en
seldist ekki. Útgangsverð hjá
Bukowskis samsvarar um
264.000 íslenskum krónum.
Karl Andersson ætlar að láta
íslenskan sérfræðing skoða
verkið og mun hann líklega
selja það hér á landi.
Ólafur Ingi Jónsson, forvörð-
ur hjá Morkinskinnu, segist
ekki hafa séð þetta tiltekna
verk áður, en það er af lands-
lagi með fossi. Ólafur segir
hins vegar að Kjarval hafi mál-
að mörg sambærileg verk.
„Myndir Kjarvals í þessum stíl
eru svokallaðar draumaiands-
myndir og málaði hann slíkar
myndir frá upphafi ferils síns.
Þetta draumalandslag byggist
ekki á neinum veruleika svo
myndin er injög líklega ekki
máluð eftir sérstakri fyrir-
mynd,“ segir Ólafur Ingi. Hann
telur litlar líkur á að verkið sé
falsað þótt erfitt sé að dæma
slíkt einungis af ljósmynd.
Hann segir að í fljótu bragði
líkist það mjög verki eftir
Kjarval sem hann gerði við ný-
lega. Ólafur segist telja út-
gangsverð Bukowskis-upp-
boðshússins í lægri kantinum
þótt erfitt sé að dæma um
ástand verksins af ljósmynd
einni.
Kristín Guðnadóttir, list-
fræðingur og forstöðumaður
Listasafns ASI, kannast ekki
við þetta tiltekna verk en seg-
ist hafa séð svipuð verk eftir
Kjarval. Kristín hefur sett, upp
nokkrar sýningar með verkum
Kjarvals og hefur góða yfirsýn
yfir þau og feril Kjarvals.
Verkið gæti verið
málað um 1940
„Þetta er mótíf sem hann
málaði í langan tíma, en ég
myndi telja að verkið væri mál-
að í kringum 1940. Án ábyrgð-
ar og miðað við að ég hef bara
séð verkið af ljósmynd þá virð-
ist það ekta en það er erfitt að
dæma eingöngu út frá blaða-
Ijósmynd. Það væri gaman að
fá að sjá verkið en það er alltaf
virkilega spennandi þegar ný
verk eftir Kjarval koma í ljós,“
segir Kristín.
Hún segir að mörg verk
Kjarvals hafi borist með ís-
lenskum íjölskyldum til Skand-
inavíu og heilmikið af verkum
eftir Kjarval sé til víða um
Norðurlöndin.
Eimskip fær nýtt skip
til Ameríkusiglinga
EIMSKIP hefur fengið nýtt skip í
flota sinn og hefur það hlotið nafnið
Selfoss. Verður það notað í Amer-
íkusiglingar en Goðafoss verður
fluttur á strandleið. Ráðgert er að
um 11 manns verði í áhöfn skipsins.
Haukur Már Stefánsson, for-
stöðumaður skiparekstrardeildar
Eimskips, sagði að skipið, sem var
smíðað í Danmörku árið 1991, hefði
verið tekið á þurrleigu, en að í
samningnum væri kaupheimild,
þannig að Eimskip gæti keypt
skipið á leigutímabilinu, en þannig
hefur Eimskip eignast flest sín
skip. Skipið, sem er í dag metið á
um 700 milljónir, er í eigu danska
útgerðarfyrirtækisins KIL Shipp-
ing sem á um 20 skip, bæði olíuskip
og gámaskip. Skipið er um 9 þús-
und tonn, tæplega 130 metra langt
og 724 gámaeiningar, en til saman-
burðar er Brúarfoss 1.012 gáma-
einingar.
Selfoss er tólfta skip Eimskips.
Eins og er eru tvö skip félagsins í
slipp erlendis, en þau koma í lok
mánaðarins. Ekki verða þá verk-
efni nema fyrir annað þem-a og
segir Haukur Már þá verða skoðað
hvort það verður selt eða leigt frá
félaginu. Hann sagði nýjan Selfoss
nýlegan og því kærkomna viðbót til
endurnýjunar skipaflotans og telur
líkur á að skipið verði keypt á
samningstímanum.
Skorradalsvegur er safnvegur og fær ekki aukafjárvcitingu
„Brotalöm í kerfínu“
Fyrsti áfangi að byggingu þjónustuskála
Framkvæmdir hefj-
ast í næstu viku
FRAMKVÆMDIR við fyrsta
áfanga að byggingu nýs þjónustu-
skála við Alþingishúsið við Austur-
völl hefst í næstu viku og er áætlað
að þeim ljúki í lok september á
þessu ári. Um er að ræða jarðvinnu
og uppsteypu 1650 fermetra bíla-
kjallara og kjallara en tilbúinn verð-
ur skálinn samtals 2400 fermetrar.
Alþingi hefur tekið tilboði lægst-
bjóðanda, félagsins Ólafs og Gunn-
ars ehf. um framkvæmdir við fyrsta
áfanga að upphæð 167,9 milljónir
króna og kynnti Ólafm- G. Einars-
son, forseti Alþingis, verksamning
við verktakann í fyrradag. Þrír aðr-
ir aðilar sem valdir voru í forvali
fyrir lokað útboð skiluðu einnig inn
tilboði í verkið og hljóðaði tilboð
hæstbjóðanda, Byggðaverks, upp á
rúmar 218 milljónir. Kostnaðará-
ætlun hönnuða gerði hins vegar ráð
----------------
Leiðsögumenn
vilja ekki LÍV
FÉLAGSFUNDUR Félags leið-
sögumanna, sem haldinn var 5. maí
sL, hafnaði einróma tillögu skipu-
lagsnefndar ASÍ um inngöngu fé-
lagsins í Landssambands íslenski'a
verslunarmanna, að því er segir í
fréttatilkynningu.
Félag leiðsögumanna hefur ekki
óskað aðildar að Landssambandi ís-
lenskra verslunarmanna og telur
hagsmunum félagsmanna sinna bet-
ur borgið utan þess, segir í fréttinni.
Skipulagsnefnd Alþýðusambands Is-
lands hefur verið send tilkynning um
ofangreinda afstöðu félagsfundarins.
fyrir því að verkið kostaði tæpar
190 milljónir króna.
Gert er ráð fyrir því að þjónustu-
skálinn, sem rísa á vestan við Al-
þingishúsið á lóðinni nr. 12 við
Kirkjustræti í Reykjavík verði til-
búinn í lok september ársins 2000.
EF allur Skorradalsvegurinn yrði
styrktur með um 40 til 50 cm malar-
lagi þá yrði hann í góðu lagi, en sú
framkvæmd myndi kosta nokkrar
milljónir. Þetta sagði Bjami Johan-
sen, rekstrarstjóri Vegagerðarinnar
í Borgarnesi, í samtali við Morgun-
blaðið. Hann sagði að eins og staðan
væri í dag væri ráðgert að verja um
1,5 milljónum króna í viðgerðir á
veginum vegna þess að hann flokk-
aðist sem safnvegur, en fjáiveiting-
ar til slíkra vega væru einungis
reiknaðar eftir lengd veganna en
ekki umferðarþunganum.
Ástand malarvega slæmt
Bjami sagði að Skorradalsvegur-
inn hefði ákveðna sérstöðu því hann
væri safnvegur með mikinn umferð-
arþunga, en á sumrin fara um 360
bflar um veginn á dag. Hann sagði
að ekki væri unnt að fá neina auka-
fjárveitingu út á umferðina og það
væri „brotalöm í kerfinu".
Að sögn Bjarna er ástand malar-
vega í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu
slæmt en vegurinn í Skorradal sér-
staklega slæmur og nánast aðeins
fær jeppum og helgast það af því að
hann er frá upphafi miklu lakari en
aðrir vegir á svæðinu. Hann sagði
að ástand vegarins væri með versta
móti í ár og að það væru býsna
mörg ár síðan hann hefði litið svona
út.
„Við getum eiginlega ekkert gert
á meðan klakinn er að fara úr því ef
að við reynum að keyra í eina og
eina rispu þá kannski búum við til
tvær nýjar í staðinn," Sagði Bjarni.
„Reynslan hefur kennt okkur að
best sé að reyna að þreyja þorrann
ef mögulegt er og vonast til þess að
klakinn fari úr veginum, þá þornar
hann mjög fljótt."
Bjarni útskýrði hvers vegna veg-
urinn væri svona slæmur. „Þegar
vegur frýs á vetuma þá myndast
undirþrýstingur undir klakaskel-
ember sl. um fiskveiðiréttindi hafi
sömuleiðis valdið talsverðum um-
ræðum á þinginu og kom það sam-
an í janúarbyrjun, á óvenjulegum
tíma, til að afgreiða breytingar á
lögunum um stjórn fiskveiða.
Friðrik bendir auk þess á að mörg
önnur mál hafi verið fyrirferðar-
mikil á þinginu svo sem byggða-
mál og skipulagsmál á hálendinu.
Rætt um störf
þingsins í 5 tíma
I ársskýrslu Alþingis má m.a.
sjá fjölda þingfunda og lengd
þeirra. Til dæmis var samtals 91
þingfundur á 123. löggjafarþingi
inni, sem sogar grunnvatnið upp í
veginn. Ef það frýs mjög hægt í til-
tölulega litlu frosti, svona 2 til 5
gráðu, þá vinnur tíminn á móti okk-
ur því þá sogast vatn í veginn áður
en hann frýs. Ef vegurinn frýs hratt
áður en vatnið sogast upp þá frýs
hann þurr og þegar frostið fer úr
aftur þá er miklu minna vatn sem er
að stríða okkur.“
Biðum eftir að
klakinn fari úr
„Það lagar þetta enginn nema
náttúran og tíðarfarið núna, við bíð-
um eftir því að klakinn fari úr, hann
er kominn um hálfan metra eða 40
cm niður og þegar klakaskelin sem
eftir er opnast þá lagast þetta í
hvelli því þá hripar vatnið niður.
„Þetta eru vegir sem fólk þarf bara
að gera sér grein fyrir að geta farið
svona og á meðan ekki eru meiri
fjárveitingar til vegagerðar hér þá
verður ástandið svona.“
og var heildarfundartími samtals
384 klukkustundir. Hann skiptist
á þann hátt að umræður um frum-
vörp tóku 220 klukkustundir, ræð-
ur um þingsályktunartillögur tóku
48 klukkustundir, atkvæðagi-eiðsl-
ur tóku 17 klukkustundir, umræð-
ur um skýi-slur tóku 21 klukku-
stund, svör við fyrirspurnum 25
klukkustundir og utandag-
skrárumræður 13 klukkustundir.
Þá hefur vakið athygli að ræður
um störf þingsins í upphafi fundar
hafi tekið samtals fimm klukku-
stundir eða jafn langan tíma og al-
mennar stjórnmálaumræður sam-
anlagt.
Arsskýrsla Alþingis gefín út í fyrsta sinn
Rekstrargjöld
síðasta árs námu
tæpum milljarði
HEILDARUTGJÖLD Alþingis
námu tæpum 966 milljónum króna
á árinu 1998, þar af var þingfarar-
kaup alþingismanna rúmar 216
milljónir króna og launagjöld á
skrifstofu Alþingis rúmar 269
milljónir króna. Alþingismenn eru
63 en stöðugildi á skrifstofu Al-
þingis voru 89,4 í árslok 1998, að
meðtöldu starfsfólki í afleysinga-
störfum vegna barnsburðarleyfa
og veikinda. Þetta kemur m.a.
fram í nýrri ársskýrslu um störf
og rekstur Alþingis. Þetta er í
fyrsta sinn sem slík skýrsla er
gefin út en í henni er greint frá
rekstri Alþingis fjárhagsárið 1998.
Ennfremur er skýrt frá störfum
123. löggjafarþings Alþingis, sem
hófst í byrjun október 1998 og
lauk 8. maí sl. í formála eftir Ólaf
G. Einarsson, forseta Alþingis,
segir að útgáfa skýrslunnar sé lið-
ur í þeirri viðleitni að gera starf-
semi Alþingis sýnilega.
Átakamál færri
í inngangi eftir Friðrik Ólafs-
son, skrifstofustjóra Alþingis, seg-
ir m.a. að það sé mál manna að
átakamál milli stjórnar og stjórn-
arandstöðu hafi verið færri á 123.
löggjafarþingi en oft áður. Engu
að síður hafi orðið mikil umræða
um mörg mál og beri þar hæst
frumvarpið um gagnagrunn á heil-
brigðissviði sem var afgreitt fyrir
jólahlé. Dómur Hæstaréttar í des-
Skipting fundartíma á 123. löggjafarþingi
Þingsályktunartillögur, 48 klst.
- Atkvæðagreiðslur, 17 klst.
- Skýrslur, 21 klst.
- Fyrirspurnir, 25 klst.
j|
57,3%
Frumvörp
220 klst.
Utandagskrárumræður, 13 klst.
1,3% Störf þingsins, 5 klst.
1,3% Alm. stjórnmálaumræður, 5 klst.
Annað, 30 klst.