Morgunblaðið - 07.05.1999, Page 20

Morgunblaðið - 07.05.1999, Page 20
20 FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1999 AKUREYRI MORGUNB LAÐIÐ Undan vetri AÐALHEIÐUR S. Eysteins dóttir opnar sýningn í Ljós- myndakompunni á morgun, laugardaginn 8. maí, kl. 15. Yfirskrift sýningarinnar er Undan vetri. Aðalheiður útskrifaðist úr málunardeild Myndlistarskól- ans á Akureyri 1993. Hún hef- ur haldið nokki-ar einkasýning- ar og tekið þátt í samsýningum þar sem hún hefur ýmist sýnt málverk eða tréskúlptúra. Að þessu sinni sýnir hún ljós- myndir. Vinnustofa hennar er að Kaupvangsstræti 24 og þar hefur hún einnig rekið Ljós- myndakompuna síðastliðið eitt og hálft ár. Ljósmyndakompan er opin frá þriðjudegi til laug- ardags frá kl. 14 til 17. Fj ölsky lduhátíð á Ráðhústorgi svið. Hljómsveitin Sóldögg leikur fyrir dansi á eftir. Kosningakaffí D-listans verður á fjórum stöðum í kjördæminu, í Sjallanum á Akureyri frá 15 til 17.30 á kjördag, í Víkurröst frá kl. 14-17, á Gamla Bakkanum á Húsa- vík frá kl. 10 til 22 og í húsi aldr- aðra í Ólafsfirði frá kl. 10 til 22. Kosningavökur verða á sömu stöð- um, nema hvað á Akureyri verður hún í Kaupangi. hefði komið mikið fjármagn í bæinn, auk þess sem miðbærinn hefði átt möguleika á að blómstra á ný, með tengingu við verslanamiðstöð á vell- inum. „Við sáum fyrir mikla mögu- leika þarna en úr því sem komið er munum við beina okkar fjárfesting- um annað,“ sagði Jákup og nefndi Reykjavíkursvæðið og Kanada í því sambandi. Á þessari teikningu sést frumathugun á afmörkun svæðis fyrir stórmarkað austan Samkomuhússins. Mikil undir- búningsvinna er nauðsynleg áður en unnt verður að taka endanlega ákvörðun. Þá eru líka mjög skiptar skoðanir meðal bæjarbúa um þetta svæði undir verslanamiðstöð. KEA vill kanna möguleika á lóð austan Samkomuhússins á Akureyri upp 1 um 180 milljóna króna kröfur SKIPTUM er lokið í þrotabúi Hall- dórs Jóhannssonar og búi einkafyr- irtækis hans, H.J. teiknistofu, en búin voru tekin til gjaldþrotaskipta í október 1996. Halldór hafði einka- leyfí á sölu aðgöngumiða á Heims- meistarakeppnina í handknattleik sem fram fór hér á landi vorið 1995. Lýstar kröfur í bú Halldórs námu 127,1 milljón króna en í bú H.J. teiknistofu var lýst 49,1 milljón króna, þar af voru forgangskröfur tæplega 5,7 milljónir króna. Ekkert kom upp í kröfur né heldur vexti eða kostnað eftir úrskurðardag gjaldþrotaskipta. Óverulegar eignir fundust í búinu og gengu þær upp í skiptakostnað. # Morgunblaðið/ HUSABAKKAKORINN Góðir hálsar úr Svarfaðardal er á leið til Finnlands. Svarfdælsk börn á faraldsfæti MORGUNVERÐARFUNDUR verður á vegum Sjálfstæðisflokks- ins á Norðurlandi eystra á Greifan- um í dag, fóstudag kl. 8. Frambjóð- endur flytja stutt ávörp og sitja fyrir svörum. Síðar um daginn, kl. 16.30 verður fjölskylduhátíð á Ráð- hústorgi. Leiktæki verða á staðn- um, fjörug tónlist og veitingar. Ungir sjálfstæðismenn verða með skemmtun í Sjallanum um kvöldið, en hún hefst kl. 23.30 þeg- ar „Hundur í óskilum" stígur á Ekkert fékkst Rúmfatalagerinn hefur ekki áhuga FORSVARSME NN Rúmfatala- gersins hafa ekki áhuga á því að koma upp verslun á lóðinni austan Samkomuhússins á Akureyri. Kaup- félag Eyfírðinga hefur hins vegar áhuga á að skoða þá möguleika sem þar eru og er verið að vinna úttekt á því fyrir félagið. Að sögn Sigmundar Ófeigssonar framkvæmdastjóra verslunarsviðs KEA kemur tii greina að byggja 10-12 þúsund fer- metra hús á lóðinni og að fleiri aðilar en KEA Nettó yrðu þá með rekstur í þvi. Jákup Jacobsen annar eigenda Rúmfatalagersins sagði líklegt að byggt yrði við núverandi húsnæði Rúmfatalagersins við Norðurtanga á Akureyri. Rúmfatalagerinn hafði lýst yfir áhuga á því að byggja allt að 12 þúsund fermetra verslunar- miðstöð á Akureyrarvellinum, sem var framkvæmd með heildarkostnað upp á um einn milljarð króna. Nú er hins vegar líklegast að byggt verði við húsnæðið við Norðurtanga, sem Jákup taldi að gæti verið fram- kvæmd upp á um 30 milljónir króna. Skipulagsnefnd Akureyrar sam- þykkti á fundi sínum nýlega tillögu vinnuhóps nefndarinnar þess efnis að benda forsvarsmönnum Rúm- fatalagersins og Kaupfélags Eyfírð- inga á lóð austan Samkomuhússins til að byggja 12 þúsund fermetra verslunarhúsnæði. Fyrirtækin sóttu skömmu fyrir áramót um lóð Akureyrarvallar til að reisa á verslunarhúsnæði og sem fyrr sagði hafði Rúmfatalagerinn lýst yfir vilja til að byggja húsið og framkvæma á vellinum fyrir um einn milljarð króna. Að mati nefnd- arinnar er Akureyrarvöllur of lítill fyrir þá starfsemi sem fyrirtækin ætluðu að vera með þar, auk þess sem kostnaður við uppbyggingu íþróttaaðstöðu annars staðar í bæn- um væri of mikill. Þá var heldur ekki nægileg sátt um að völlurinn færi undir verslunarsvæði. Verði farið í að byggja á lóðinni austan Samkomuhússins þarf að fylla upp 20-22 þúsund fermetra svæði og færa Drottningarbraut til austurs. Aætlaður kostnaður við þá framkvæmd er um 170 milljónir króna. „Við ætlum ekki að gefast upp og viljum meina að það gæti orð- ið Norðlendingum tii framdráttar að setja þama upp öfluga verslun. Mál- ið er í eðlilegum farvegi en við höfum ekki sett okkur nein tímatakmörk. Við leggjum jafnframt áherslu á að gera þessa hluti í sátt og samlyndi við Akureyringa og aðra Norðlend- inga,“ sagði Sigmundur. Sáum mikla möguleika Jákup sagði að ef áætlanir þeirra hefðu gengið eftir og leyfi fengist til aö byggja á Akureyrarvellinum, IU//UÍ/C/0- bryggja ST0FNFUNDUR EININGAR - IÐJU haldinn á Fosshótel KEA15. maí 1999 kl. 14.00 DAGSKRA: 1. Aðalfundarstörf: a) Staðfesting á lögum og reglugerðum hins nýja félags. b) Lýst stjórnarkjöri. c) Kosning í stjórnir og nefndir fyrir næsta starfsár. d) Ákvöröun um félagsgjald. 2. Önnur mál. 3. Skemmtiatriði: Blokkflautuleikarar frá Tónlistarskólanum á Akureyri, stjórnandi Jacqueline FitzGibbon. Þuríður Vilhjálmsdóttir og Hildur Tryggvadóttir syngja við undirleik Helgu Bryndísar Magnúsdóttur. PKK flytja írska þjóðlagatónlist. 4. Kaffiveitingar. Félagar fjölmepnið á þessa stóru stund í sögu eyfirskrar verkalýðshreyfingar. Stjórnir Einingar og Iðju. Góðir hálsar til Helsinki HÚSABAKKAKÓRINN Góðir hálsar í Svarfaðardal heldur tón- leika í Dalvíkurkirkju á morgun, laugardaginn 8. maí, og hefjast þeir kl. 14. Á efnisskránni eru ís- lensk og erlend sönglög, en með þá dagskrá fer kórinn á barna- kóramót í Helsinki í Finnlandi í næstu viku. I kórnum eru böm og ung- lingar á aldrinum 10 til 16 ára, 21 að tölu, nemendur við Húsa- bakkaskóla I Svarfaðardal. Bamakóramótið hefst 12. maí en kórinn kemur aftur til iands- ins 18. maí næstkomandi. Kórar frá öllum Norðurlöndum taka þátt í mótinu m.a. fleiri kórar frá Islandi. Sungið verður í dóm- kirkjunni í Helsinki, Temple kirkjunni. Að kóramótinu loknu halda Góðir hálsar til vinabæjar Dal- víkur í Finnlandi, Borgá, og syngja á tónleikum í dómkirkj- unni þar. KA-messa KA-MESSA verður í Akureyrar- kirkju á sunnudag, 9. maí, og hefst hún kl. 14. Taka KA-menn virkan þátt í messunni með ritningarlestri og flytur Jóhannes Bjarnason þjálf- ari predikun. KA-kórinn syngur í messunni. Kaffísala á vegum félagsins verð- ur í Safnaðarheimili eftir messu. Kirkjustarf LAUFÁSPRESTAKALL: Kyrrð- arstund verður á sunnudagskvöld, 9. maí kl. 21 í Grenivíkurkirkju. Guðsþjónusta verður á Grenilundi á uppstigningadag, 13. maí kl. 16. AKUREYBARBÆR BYGGINGADEILD Fax 462 7536 Akureyrarbær óskar eftir tilboöum í breytingar og endurbætur á leikskólanum Árholti. Verktími er 1. júní 1999—15. júlí 1999. Útboösgögn verða afhent á Arkitektastofunni í Grófargili, frá og með mánudeginum 10. maí 1999. Tilboðin skulu merkt: Leikskólinn Árholt — breytingar 1999. Tilboðum skal skila á byggingadeild Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 4. hæð. Tilboðin verða opnuð þar þriðjudaginn 18. maí 1999 kl. 11.00. Deildarstjóri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.