Morgunblaðið - 07.05.1999, Qupperneq 26
26 FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Samkomulag um að Baugur eða aðrir óskyldir aðilar kaupi hlut
Gaums í Ferskum kjötvörum og Lyfjabúðum
Vitað frá upphafi um hættu
á hag'smunaárekstrum
Komi til viðskipta við önnur félög
sem Gaumur á eignarhlut í mun stjórn
Baugs taka ákvarðanir um þau
SAMKOMULAG hefur orðið milli
stjómar Baugs hf. og eigenda
Gaums ehf., sem á um 25% í Baugi,
um að óska eftir utanaðkomandi
mati á verðmæti hlutabréfa Gaums
í Ferskum kjötvömm ehf. og
Lyfjabúðum ehf. með það fyrir
augum að Baugur hf. eða aðrir
óskyldir aðilar kaupi eignarhlut
Gaums í þessum félögum.
Að sögn Oskars Magnússonar,
stjórnarformanns Baugs hf., voru
stjórn Baugs hf. og eigendur
Gaums ehf. frá upphafí meðvituð
um að eignaraðild Gaums í áður-
nefndum félögum hefði í fór með
sér hættu á hagsmunaárekstrum
vegna viðskipta Baugs við þau. Því
var ákveðið að fjalla um þessi mál í
stjóminni og taka ákvarðanir þar
án þess að ákvarðanir væru teknar
af stjómendum Baugs sem tengdir
væra Gaumi né undirmönnum
þeirra í Baugi. Þannig hefði verið
unnið og nokkur mál tekin til um-
fjöllunar.
Hagsmunatengsl
geta valdið tortryggni
„Við viljum nú stíga skrefí
lengra og um það er fullt sam-
komulag við eigendur Gaums. Það
er vissulega traustast að rjúfa
þessi hagsmunatengsl og það er
það sem við eram að leggja af stað
með. Auðvitað getur þetta tekið
einhvem tíma, en við vitum af
þessum tengslum og höfum fylgst
með þeim. Það eitt að hætta geti
verið á hagsmunaárekstram getur
nægt til að valda tortryggni og því
best að hagsmunirnir fari sem
mest saman,“ sagði Óskar.
í tilkynningu sem Baugur hf.
hefur sent Verðbréfaþingi segir að
með því að Baugur kaupi eignar-
hlut Gaums í ofangreindum félög-
um, eða að eignaraðild Gaums
ljúki með öðrum hætti, muni
hætta á hagsmunaárekstrum í
þessum mikilvægu viðskiptum
verða úr sögunni. Komi til við-
skipta við önnur félög sem Gaum-
ur á eignarhlut í eða sem tengjast
Gaumi á annan hátt, þ.á.m. Pizza
Hut, muni stjóm Baugs taka
ákvarðanir um þau viðskipti eins
og ákveðið var í upphafi.
Engir samningar verið
gerðir við Pizza Hut
Aðspurður um hvers vegna
Pizza Hut væri nefnt sérstaklega
sagði Óskar að ástæða þess væri
sú að af hálfu nýráðins fram-
kvæmdastjóra Pizza Hut kæmi
það fram í Morgunblaðinu að það
verði gjarnan stefna hjá Pizza Hut
að vera sem víðast í verslunum
Nýkaups.
„Það er gott og göfugt markmið
en um það hafa nú ekki verið
gerðir neinir samningar við okkur
enn þá, og það er í samræmi við
stefnu okkar að slíkur samningur
verður ekki gerður nema við
stjórn félagsins," sagði Óskar
Magnússon.
Seðlabanki Islands
Gjaldeyris-
forðinn jókst
um 1,6 millj-
arða í apríl
GJALDEYRISFORÐI Seðlabanka
Islands jókst um 1,6 milljarða króna
í apiíl og nam í lok mánaðarins 34,2
milljörðum króna, eða jafnvirði 467
milljóna Bandaríkjadala á gengi í
mánaðarlok. í frétt frá bankanum
kemur fram að erlendar skamm-
tímaskuldir eru nær engar, og er-
lendar langtímaskuldir breyttust
óverulega í apríl og námu í mánað-
arlok 3,4 milljörðum króna. Höfðu
þær Iækkað um 1,7 milljarða króna
frá áramótum.
A millibankamarkaði með gjald-
eyri keypti Seðlabankinn 1,7 millj-
arða króna af gjaldeyri í aprfl um-
fram það sem hann seldi. Gengi ís-
lensku krónunnar mælt með vísitölu
gengisskráningar lækkaði um 0,4% í
mánuðinum.
Aukin ríkisvíxlaeign
Heildareign Seðlabankans í mark-
aðsskráðum verðbréfum nam 11,2
milljörðum króna í aprfllok miðað
við markaðsverð og jókst um 1,5
milljarða króna í mánuðinum.
Breytingin fólst nær öll í aukinni
ríkisvíxlaeign bankans sem nam 4,9
milljörðum króna í lok mánaðarins.
Kröfur bankans á innlánsstofnan-
ir lækkuðu um 0,4 milljarða króna í
aprfl og námu 12,1 milljarði króna í
lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjár-
málastofnanir hækkuðu um 0,9
milljarða króna og voru 5,7 miilj-
arðar króna í lok mánaðarins.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð
og ríkisstofnanir lækkuðu um 8
milljarða króna í apríl og vora nei-
kvæðar um 6 milljarða króna í lok
hans.
C IBM Aptiva )
C 129 900 -")
^^mmmmmmmmmmmmmmmtmmmmmmmmmmmmm^r n
IÐM Aptiva turntölva / margmiölunartölva
AMD K6 II 400MHz 3DNow örgjörvi.
512KB skyndlmlnnl,
64MB SDHAM vlnnsluminni (mest 256MB)
8(0GB EIDE harður diskur,
ATI Raga Pro 3D 2X AGP 8MB SGHAM skjákort
Innbyggt 56K mótald (v.9D)
32 hraða gelsladrii,
Víöóma SHS 3D hljóðkort,
40W Iníinity hátalarar með góðum hljómburð!
IBM lyklaborð með flýtihnöppum og IBM Scrollpoint flýtimús
IBM 17" Aptiva lággeisla litaskjár
m. vsk.
Hugbúnaður
Windows 98
Canhgsafe (tekur óryggisafrit af stýrikerfi)
Norton Antivlrus vínisvarnarforiit
Battlezone leikur
IBM Worldbook alfræðiorðabók
Internethugbúnaður
Hjálparhugbúnaöur ofl. ofl.
Mikill fjöldi ánægöra notenda IBM Aptiva tölvanna á íslandi ber
glöggt vitni um ágæti þeirra. Dflugur vél- og hugbúnaður þeirra
skilar sér í skemmtilegri vinnslu sem er bæði hröð og auðveld.
Þessir einstöku eiginleikar og frábært verð gera Aptiva-
tölvurnar mjög hentugar til heimilisnota.
Fjölmargir notendur IBM Aptiva á Islandi gera
sér grein fyrir þessu. - Hvað um þig?
x ' Ti
NÝHERJI
Skaftahlíö 24 Sími 5G9 7709
www.nyharji.is