Morgunblaðið - 07.05.1999, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1999 28
Skýrr með 11 milljónir í hagnað
á fyrsta ársfjórðungi
Unnið að ýmsu
til að skapa ný
sóknarfæri
Framkvæmdastjóri Sambands íslenskra
vióskiptabanka um fjölda banka hér á landi
Skýringarnar fjöldi
stofnana og dreifbýli
HAGNAÐUR Skýrr hf. nam 11
milljónum króna eftir skatta fyrstu
þrjá mánuði ársins samanborið við
16 milljónir króna á sama tímabili í
fyrra. Fyrirtækið greiðir nú tekju-
skatt og nemur
hann um 4,6 millj-
ónum króna en
ekki var um slíka
skattgreiðslu að
ræða á síðasta ári.
Gengi hluta-
bréfa í Skýrr
lækkaði um 5,3%,
úr 10,30 í 9,75, á Verðbréfaþingi
íslands í gær eftir að afkomutölur
félagsins voru kynntar.
Afkoman í takt
við áætlanir
Að sögn Hreins Jakobssonar,
forstjóra Skýrr, er afkoman í takt
við áætlanir félagsins en rekstrar-
áætlun gerir ráð fyrir um 1.300
milljóna króna veltu á þessu ári og
að hagnaður geti numið um 65
milljónum króna. A síðasta ári
nam hagnaður Skýrr 55,8 milljón-
um króna og veltan var 1.100 millj-
ónir króna.
„Hér er einungis um þriggja
mánaða tölur að ræða en þær eru
svipaðar og gert var ráð fyrir í
áætlun félagsins. Þetta er heldur
minni hagnaður en í fyrra en þá
greiddum við ekki skatta.“
Hreinn segir að herða þurfi
róðurinn til þess
að ná hagnaðar-
markmiðum árs-
ins og unnið sé að
ýmsum málum til
þess að skapa
sóknarfæri.
„Við erum með
verkefni á hug-
búnaðarsviði og ýmiskonar rekstr-
arþjónustu. Sem er okkar kjarna-
starfsemi. Verkefnastaðan í hug-
búnaði er mjög góð og síðan sjáum
við mikil sóknarfæri í rekstrar- og
margmiðlunarþjónustu,“ segir
Hreinn.
Veltufé frá rekstri nam 35 millj-
ónum ki’óna samanborið við 38
milljónir króna á síðasta ári.
Rekstrartekjur tímabilsins námu
303 milljónum króna samanborið
við 263 milljónir króna á síðasta
ári og er það 15% aukning milli
ára. Eigið fé félagsins í lok tíma-
bilsins nemur 260 milljónum króna
samanborið við 246 milljónir króna
í upphafi árs.
í FRÉTT sem birtist í Morgun-
blaðinu á þriðjudag kom fram að
samkvæmt útreikningum The
Economist er Island það ríki í
heiminum þar sem fjöldi banka er
einna mestur miðað við höfðatölu,
eða sem samsvarar 41,5 banka á
hverja 100.000 íbúa. Er ísland
þannig í öðru sæti á eftir Lúxem-
borg hvað þetta snertir en í flest-
um iðnríkjum er hlutfallið miklu
lægra.
I samtali við Finn Sveinbjöms-
son, framkvæmdastjóra Sambands
íslenskra viðskiptabanka, kom
fram að í meginatriðum væru skýr-
ingar á þessu tvær.
„Annars vegar liggur skýringin í
fjölda bankastofnana hér á landi og
hefur margsinnis komið fram að til
að fækka útibúum þurfi að koma til
samruna í greininni. Hins vegar
má rekja skýringuna til fámennis
og dreifbýlis hér á landi, langt er
milli staða og tiltölulega fáir íbúar
eru á hverjum stað sem hefur
óhagræði í för með sér,“ segir
Finnur.
Finnur segir líklegt að koma
muni til samruna banka hér á landi
og í kjölfarið muni útibúum fækka
nokkuð. Hann bendir einnig á að
hlutfallslega mikill fjöldi banka hér
hafi í för með sér kostnað fyrir
neytendur og að alþjóðlegur sam-
anburður leiði í ljós að bankaþjón-
usta hér sé nokkru dýrari en víða
annars staðar.
„Að vísu er samanburður svolítið
varasamur þar sem máli skiptir
hvort íbúðalánastarfsemi er inni í
bankakerfinu eða ekki og eins
hvort að langtímalán til fyrirtækja
eru stunduð af almennum bönkum
eða sérstökum fjárfestingarlána-
sjóðum. En ljóst er að hvorki al-
menningur né fyrirtæki sætta sig
við það til langframa að þurfa að
greiða hærri kostnað en gert er er-
lendis,“ segir Finnur.
Hlutabréfa-
sjóður
Búnaðar-
bankans hf.
Útboði lokið
Lokið er hlutafjárútboði
Hlutabréfasjóðs Búnaðar-
bankans hf. að nafnvirði 500
milljónir króna sem hófst hinn
24. desember sl. og seldist allt
hlutafé upp. Lokadagur út-
boðsins var 30. apríl 1999, sem
einnig er síðasti dagur fjár-
hagsárs sjóðsins.
Að loknu útboðinu er heild-
arhlutafé félagsins
1.416.790.592,58 kr. að nafn-
verði og á sjóðurinn á eigin
bréf að nafnverði
31.996.670,74 kr. Útistandandi
hlutafé er því 1.384.793.921,84
kr.
14.995
FJORFALDIR
FORCE 20" fjallahjól fyrir 6-8 ára,
6 gíra Shimano með Grip shift.
Tektro v-bremsur.
JUMP, gult, fyrir þau yngstu
Stærð 12V
AF OLLUM HJOLUM
TIL SUNNUDAGS
RIDER 26" fjallahjól, 21 gíra Shimano
ENERGY 24“
fjallahjól með dempara
18 gíra Shimano
Grip shift,Tektro v-bremsur.
POWER 24" fjallahjól
18 gíra Shimano með Grip shift,
Tektro v-bremsur
HAGKAUP
Meira úrval - betri kaup