Morgunblaðið - 07.05.1999, Page 32
32 FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1999
MORGUNB LAÐIÐ
Safaríkt vortilboð
CLlNIQUt
Fáðu sumarkaupauka frá CLINIQUE í Hygeu Laugavegi 100% ilmefnalaust
Ofnæmisprófað
Ef þú kaupir tvær vörutegundir eða fleiri frá Clinique, færð þú eina
of þessum safaríku töskum sem gjöf. Töskurnar eru iitríkar og
skemmtilegar og innihalda úrval snyrtivara frá Clinique, að
verðmæti kr. 4.050. Tilboðið gildir meðan birgðir endast.
H Y G E A
Laugavegi 23, sími 511 4533.
Brúðhjón
Allur borðbtinaðúr - Glæsileg gjafavara - Brliðhjdnalistar
VERSLUNIN
Luugavegi 52, s. 562 4244.
ÚR VERINU
Morgunblaðið/Benedikt
SVEINN Benediktsson SU, sem er nýlegt skip í flotanum, hefur verið á kolmunnaveiðum síðan hann
var keyptur frá Noregi og landaði um 1.100 tonnum á Seyðisfirði í gær.
Góð kolmunnaveiði sunnan við Færeyjar
Allir með fullfermi og
löndunarbið á Seyðisfírði
GÓÐ kolmunnaveiði hefur verið að
undanförnu milli Færeyja og
Skotlands og hefur gengið vel hjá ís-
lensku skipunum þótt þau hafí verið
lengur að fylla en erlendu skipin.
Sveinn Benediktsson SU landaði um
1.100 tonnum á Seyðisfirði í gær og
Bjarni Ólafsson AK, sem var með
um 1.000 tonn, beið þar eftir að
landa en Óli í Sandgerði AK og Há-
kon ÞH voru á leið í land með full-
fermi, sín 1.000 tonnin hvort skip.
Faxi RE var á miðunum en þar var
bræla í gær.
Þijá sólarhringa á miðunum
Sveinn Benediktsson var þrjá sól-
arhringa á miðunum og fékk aflann í
fímm hölum. „Við vorum fljótastir að
fylla núna,“ sagði Halldór Jónasson
skipstjóri sem var í annarri ferð
sinni. Eins og greint hefur verið fí’á
keypti SR-mjöl skipið frá Noregi
ekki alls fyrir löngu og er Reyðar-
fjörður heimahöfn þess en Halldór
sagði að það hefði reynst vel.
„Þetta hefur gengið upp og niður en
að þessu sinni fengum við um 1.000
tonn í fimm hölum á tæpum fímm sól-
arhringum,“ sagði Runólfur Runólfs-
son, skipstjóri á Bjarna Ólafssyni.
Hann sagði að túrinn hefði gengið vel
nema hvað pokinn hefði slitnað. „I
þriðja hali fylltum við pokann og hann
slitnaði af en við náðum honum aftur
með um 150 til 200 tonnum.“
Norðmenn staðnir að ólög-
legum veiðum við Færeyjar
Þórshöfn. Morgunblaðið.
SKIPSTJÓRI á norska skipinu
Trombas var í gær dæmdur íyrir
færeyskum dómstólum til að greiða
ríflega eina milljón íslenskra króna í
sekt vegna ólöglegra kolmunnaveiða
á færeysku hafsvæði. Afli og veiðar-
færi skipsins voru auk þess gerð
upptæk, samtals að verðmæti 8,5
milljónir íslenski’a króna. Þetta er í
annað sinn á skömmum tíma sem
færeyskir dómstólar sekta norskar
útgerðir og skipstjóra fyrir ólöglegar
veiðar innan lögsögu Færeyinga.
Færeyska gæsluskipið Tjaldrid
stóð norska skipið að kolmimnaveið-
um um 30 sjómflm- innan færeysku
fískveiðilögsögunnar. Skipið hafði
ekki leyfí til veiðanna og var því fært
til hafnar í Þórshöfn. Skipstjórinn bar
fyrir rétti að hann hefði talið sig hafa
tilskilin leyfí til kolmunnaveiða innan
lögsögunnai’. Þannig hefði hann til-
kynnt færeyskum stjómvöldum þegar
hann sigldi inn á færeyskt hafsvæði
og um leið leitað staðfestingar hjá út-
gerð skipsins í Tromso um að sldpið
hefði tilskilin leyfi og fengið þau.
Dómai’anum í málinum fannst hins
vegar sýnt að skipið hefði engin leyfi
og veiðar þess því ótvírætt ólöglegar.
I síðustu viku var norskur togara-
skipstjóri dæmdur í 300 þúsund
króna sekt fyrir að veiða kolmunna
án tilskilinna leyfa. Þá vai’ afli skips-
ins einnig gerður upptækur en verð-
mæti hans var áætlað um 900 þús-
und krónur. Athygli vekur hve mis-
háar sektirnar era í málunum tveim-
ur, þrátt fyrir að þau séu sama eðlis.
' ” 'Wi Jónína Bjartmarz veit aS fjölskyldumdl eru forgangsmdl.
. Jónína d erindi d Alþingi.
Ný framsókn til nýrrar aldar
FRELSI FSSTA * FRAMSÓKN 1 tR w w w . x b . i s / r ey kj a v i k