Morgunblaðið - 07.05.1999, Page 44
44 FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
„ Skuggaspegill“
ILKE Vogler, f. 1950. Myndlýsing við ljóð eftir Elisabeth Ediger, f.
1930; Eg læt fara vel um mig/halla mér aftur og/loka augunum,/til að
sjá ykkur og sjá mig/ vendilegar,/ ítarlegar/ég loka þeim ekki,/sökum
of skærrar birtunnar ...
MARLA Reese f. 1942. Myndlýsing við ljóð eftir Inge Titzik, f. 1931;
Hið komandi/flýr/ eins og spurningamerki/ inn í auðar línur/von/ í
millibilunum/þar fyrir neðan/ nafn mitt.
MYNDLIST
Listusul'n Kópuvogs,
Gerðursufn
LJÓÐ OG MYND
SEXTÁN ÞÝSKAR
MYNDLISTARKONUR/
KVENRITHÖFUNDAR
Opið alla daga frá 12-18. Lokað
mánudaga. Til 9. maí. Aðgangur 200
krónur í allt húsið. Sýningarskrá/
bók 800 krónur.
ATHYGLISVERÐ sýning 16
myndlistarkvenna og jafnmargra
kvenrithöfunda frá Slésvík-Holt-
setalandi í norðursal, vekur upp
ýmsar spurningar. Um er að ræða
samvinnuverkefnið, Ljóð og mynd,
sem var hugmynd er þróaðist inn-
an samtakanna GEDOK, félags
listakvenna og listfrömuða í Slés-
vík-Holtsetalandi. Og árið 1995
kynnti málarinn og myndhöggvar-
inn Margit Huch áætlun um fram-
kvæmd sérstakrar þemasýningar
er byggðist á samvinnu myndlist-
arkvenna og kvenrithöfunda,
ásamt fjáröflun henni til styrktar,
sem fékk strax mikinn meðvind.
Rithöfundurinn og ljóðskáldið
Theresa Chromik, er hlaut bók-
menntaverðlaun GEDOK1989,
gekk svo í lið með henni.
Það liðu tvö ár þangað til að sýn-
ingin komst á laggirnar, og má af
öllu ráða að hér hefur ekki verið
kastað til höndunum, umbúnaður
um myndir og Ijóð hinn vandaðasti
og framtakinu fylgir vegleg sýn-
ingarskrá/bók, með ljóði og lit-
mynd eftir alla þátttakendurna.
Þannig er séð fyrir því að sýningin
týnist ekki, öll hin mikla vinna og
fórnfýsi sem að baki liggur sé unn-
in fyrir gýg, sem við þekkjum
neyðarleg vel til hér á landi. Þetta
er þannig ein þeiira sýninga sem
þola að hanga lengi uppi, utan við
alla síbylju og illa undirbúnar
skyndiframkvæmdir.
Þetta hefur rýnirinn sannreynt,
því sýningin vinnur á við hverja
heimsókn, það er einfaldlega svo
spennandi að skoða fyrst myndirn-
ar, bera síðan saman ljóð og mynd
og loks setja sig inn í skilning
myndlistarkvennanna á inntaki
textanna. Af þessu markaða ferli
er drjúgur ávinningur, en þeir sem
fara hratt yfir missa af miklu
vegna þess að ljóðin ljúka upp nýj-
um víddum, eru mörg hver af hárri
gráðu, orðkyngi mikil, tjáháttur
opinn, blóðríkur og beinskeyttur.
Segja má að sviðið stækki við
hverja yfírferð og þá er afar fróð-
legt að sjá ljóðin í íslenzkri þýð-
ingu á þennan sérstaka hátt. Sú
leið var valin, að koma öðru frem-
ur inntaki þeirra til skila með nán-
ast orðréttri þýðingu, þar sem
línuskipan frumtextanna fær að
mestu að halda sér. Þetta er nefni-
lega farsælasti hátturinn í þessu
tilviki, þótt listræn einkenni kunni
að glatast að hluta, og hárrétt að
það auki skilning á samspili máls
og myndar, sem vitaskuld er hér
aðalatriðið.
En þó skal gerð athugasemd,
sem er að æskilegt hefði verið að
geta gengið að þýðingunum í heft-
um blöðum, því það er seinlegt og
þreytandi að vera alltaf að glugga í
þær við hlið myndanna, og sum
eru löng. Þá hefur gleymst að
ganga frá nöfnum listakvennanna
við hlið myndanna sem er óskiljan-
leg yfirsjón varðandi annars jafn
óaðfinnanlega og mikilsverða
framkvæmd.
Það sem sýningin öllu öðru
fremur segir okkur á mjög svo
áþreifanlegan hátt, er að í upp-
runalandi siðaskiptanna hafa
menn fyrir löngu þróast langt
langt burt frá niðurrifi á allri
skreytigleði páfadómsins er í kjöl-
far þeirra íýlgdu. Myndin/mynd-
listin jafn rétthá rituðu máli meðal
Þýðverja, á meðan hún hefur
lengstum mætt afgangi hérlendis
líkast því sem siðaskiptin sitji sem
kökkur í hálsi landsmanna, sjón-
menntaarfurinn afskiptur. Hér
gæti komið langur kafli og reiði-
þrungin um fátækt og búraskap
varðandi myndlýsingar seinni tíma
íslenzkra bókmennta. Og þótt til
framfara horfi höfum við enn ekki
tekið við okkur á viðlíka hátt um
skreytingar guðshúsa og þeir
sunnar í álfunni. Þá var bókbandi
úthýst úr skóla lista og íða í stað
þess að setja það í víðfeðmara og
æðra samhengi og nefna einfald-
lega bókverk. Þessi sending frá
Slésvík-Holtsetalandi, flytur okkur
þannig ósjálfrátt mikil og gagnleg
boð um hvernig staðið skuli að
þessum málum og þar fyrir utan er
sýningarskráin bókverk sem við
getum dregið drjúgan lærdóm af.
Uppsetning efnis hreint og klárt,
textar skilvirkir og lausir við allar
hjáleitar langlokur og andlega
leikfimi í ritmáli, hér er það sýn-
ingin sjálf sem máli skiptir, að hún
rati þráðbeint til skoðandans.
Hvetji hann til að taka afstöðu og
lyftir honum á hærra svið. Menn
beri einungis þessa framkvæmd
saman við þá sem fyrir var í hús-
inu á undan og skaraði þó mikil
tímamót í sögu grafíklista á landi
hér. Þá er það mikilsvert að ekki
er um neina þrönga og miðstýrða
einstefnu í myndavali að ræða,
fjölbreytni þannig drjúg, hvoru-
tveggja í stílbrögðum sem vinnu-
ferli, ásamt því að engin aldurs-
greining er viðhöfð, allar kynslóðir
réttháar. Hér eru þannig myndir
sem menn gætu allt eins rekist á í
Ingólfsstræti 8, Nýlistasafninu og
listhúsinu Fold.
Allt eru þetta vel menntaðar
konur, sumar hámenntaðar með
langan feril að baki og má vera
borðleggjandi að hér hefur misskil-
ið lýðræði, einstefna harðra hags-
muna- og markaðsafla ásamt
snobbi niður á við átt erfitt upp-
dráttar...
Mér skilst að sýningin komi
hingað fyrir tilstilli Þýska sendi-
ráðsins, og hefur hér verið unnið
gott og þakkarvert verk. Væri vel
ef fleiri sendiráð færu að dæmi
þess á vondum tímum er hverri
menningarstofnuninni af annarri er
lokað, þeim er vísa til háleitra vits-
muna, en hvers konar útlimavirkt
lyft á stall. Vonandi fáum við einnig
í mynd og máli að taka örlítinn þátt
í 250 ára fæðingai-afmæli Goethe,
en honum voru sjónmenntir einnig
mjög hugleiknar. Er málarinn
J.H.W. Tischbein (1751-1829) sendi
Goethe teikningar sínar skrifaði
hann hugleiðingar við hverja eina
þeirra, og skáldið eyddi 40 árum
ævi sinnar í rannsóknir á litakerf-
inu, og taldi það sitt mesta afrek á
fjölþættum lífsferli.
Bragi Ásgeirsson
Leiðrétting
I rýni minni um sýninguna,
World Press Photo, þann 4. maí
hnikaðist til ein málsgrein ofarlega
í öðrum dálki. I vinnslu blaðsins
breyttust orðin homo sapiens sapi-
ens í homo sapiens. Munurinn telst
þó umtalsverður í þróunarsögunni,
nokkur árþúsund. I fyrra fallinu er
vísað til hins viti borna manns en í
því seinna til mannsins, rétt og
slétt. Þetta leiðréttist hérmeð með
nokkrum áhersluþunga, því á þess-
um hugtökum er gerður skýr eðlis-
munur í mannfræðinni.
OLIVER J. Kentish, stjórnandi Kammersveitar Tónlistarskóla Hafnar-
ijarðar, stjórnar hér æfingu sveitarinnar.
Vortónleikar
tónlistarskólanna
Tónlistarskóli Hafnaríjarðar
HÁTÍÐARTÓNLEIKAR Kammer-
sveitar Tónlistarskóla Hafnarfjarðar
verða í Tónlistarskólanum Hásölum
á morgun, laugardag, kl. 17. Þess
verður minnst að 100 ár eru liðin frá
fæðingu Jóns Leifs sem fæddist 1.
maí í Húnavatnssýslu og Helga Páls-
sonar, sem fæddist 2. maí á Trölla-
nesi í Norðfirði.
Eftir Helga verður flutt Menuett í
gömlum stíl fyrir strengjasveit og
Hinsta kveðja op. 53, sem Jón Leifs
samdi til minningar um móður sína,
Ragnheiði Bjamadóttur.
A tónleikunum verður einnig
flautukonsert í e-moll eftir J.S. Bach
þar sem Eyjólfur Eyjólfsson verður
einleikari, en leikur hans með sveit-
inni er hluti af burtfararprófi hans
frá skólánum.
Hljómsveitin mun síðan leika
Adagio fyrir strengi eftir Samuel
Barber, en tónleikunum lýkur með
Divertimento í F-dúr K. 138 eftir
W.A. Mozart.
Þetta er í fyrsta skipti sem leikið
verður á nýja sembal skólans og í
fyrsta skipti sem Kammersveitin
heldur tónleika í Hásölum. Stjórn-
andi Kammersveitarinnar er Oliver
J. Kentish.
Tónlistarskóli FÍH
VORTÓNLEIKAR tónlistarskóla
FÍH verða haldnir í sal skólans að
Rauðagerði 27 á morgun, laugardag,
kl. 14. Fram koma nemendur á öllum
stigum, einnig munu samspilsbönd
skólans leika.
Suzukitónlistarskólinn Allegro
Fyrstu vortónleikar nýstofnaðs
Suzukitónlistarskóla, sem hlotið hef-
ur nafnið Allegro, verða haldnir í
húsnæði KFUM & K, Holtavegi 28,
á morgun, laugardag kl. 13.30.
Á efniskránni verða samleiksatriði
um 80 fiðlu- og píanónemenda, byrj-
enda og lengra kominna, sem læra
eftir Suzukiaðferðinni. Suzukiaðferð-
in byggir m.a. á því að börnin hefja
hljóðfæranámið mjög ung, læra lögin
eftir eyra í fyrstu og að foreldrar
þeirra taka virkan þátt í tónlistar-
náminu.
Tónlistarskólinn í Grafarvogi
Tónlistarskólinn í Grafarvogi held-
ur þrenna vortónleika í Húsaskóla á
morgun, laugardag, kl. 10,11.15 og 13.
Tónskóli Eddu Borg
Seinni vortónleikar skólans verða
í Seljakirkju á morgun, laugardag,
kl. 11,13 og kl. 14. Fram koma nem-
endur í einleik og samleik.
Strengjasveit skólans kemur fram á
tónleikunum kl. 11 og blásarasveit
kl. 13 og kl. 14. Forskólabörn koma
fram og syngja og leika á blokk-
flautur.
Tónleikar eldri nemenda verða
þriðjudaginn 11. maí í Seljakirkju.
Sýning í
Leifsstöð í
tilefni 1000
ára kristni
í FLUGSTÖÐ Leifs Eiríks-
sonar verður opnuð sýning í
dag, föstudag, kl. 13.30 í til-
efni 1000 ára kristni á Is-
landi. A sýningunni, sem
verður í landgangi flugstöðv-
arinnar, verða ýmsir munir,
þar á meðal frá Þjóðminja-
safni Islands, mósaíkmynd
Nínu Tryggvadóttur úr Skál-
holtskirkju, ljósmyndir tekn-
ar af Ragnari Th. Sigurðs-
syni og Rafni Haffjörð og eft-
irprentun af mynd Coll-
ingwoods frá Þingvöllum.
Ávörp flytja Halldór Ás-
grímsson utanríkisráðherra
og biskup íslands, herra Karl
Sigurbjörnsson.
Biskup íslands, herra Karl
Sigurbjörnsson, hefur samið
texta á sýningarspjöldum,
þar sem samfylgd kristni og
þjóðar er reifuð.