Morgunblaðið - 07.05.1999, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 07.05.1999, Qupperneq 46
46 FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 UTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. UNDIR LOK KOSNINGABAR- ÁTTUNNAR EFTIR u.þ.b. sólarhring verða kjörstaðir opnaðir og landsmenn ganga til kosninga og kjósa fulltrúa sem sitja á Alþingi næstu fjögur ár. Allar vísbendingar um úr- slit kosninganna^ sem fram hafa komið í skoðanakönnun- um nokkurra aðila hafa bent til hins sama: að núverandi stjórnarflokkar standi vel að vígi og muni halda meirihluta sínum á Alþingi, að Samfylkingin hafi ekki náð sér á strik í kosningabaráttunni en að vinstri grænir hafí náð meiri fót- festu en ætla mátti í upphafi. Þetta er staðfest í nýrri skoðanakönnun, sem Félagsvís- indastofnun Háskóla Islands gerði fyrir Morgunblaðið í gær og í fyrradag og sagt er frá í blaðinu í dag. Þar kemur fram, að fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 41,9%, Sam- fylkingarinnar 28,6%, Framsóknarflokksins 18%, vinstri grænna 8,7% og Frjálslynda flokksins 2,5%. Þessar tölur eru nánast samhljóða niðurstöðum Gallup-könnunar, sem RÚV skýrði frá í gærkvöldi og þess vegna fer tæpast á milli mála, að þær gefí sterka vísbendingu um styrkleika flokkanna. Skýringin á sterkri stöðu stjórnarflokkanna blasir við: það hefur ríkt góðæri í landinu mestan hluta kjörtímabils- ins og aldrei meir en nú síðustu misserin. Við slíkar að- stæður eru stjórnarflokkar erfíðir viðureignar í kosning- um. Viðhorf kjósenda er jákvætt og þeir horfa með bjart- sýni til framtíðarinnar. Stjórnarandstöðuflokkar sem halda uppi gagnrýni á ríkisstjórn við þessar aðstæður eiga undir högg að sækja. Talsmenn þeirra þykja neikvæðir í málflutningi og þeir sem eru neikvæðir við núverandi að- stæður í þjóðarbúskapnum eiga ekki upp á pallborðið hjá kjósendum. Stjórnarflokkarnir hafa rekið skynsamlega kosninga- baráttu frá þeirra sjónarmiði séð. Sjálfstæðisflokkurinn hefur rekið rólega kosningabaráttu, sem hefur fallið kjós- endum vel. Framsóknarflokkurinn, sem hefur þurft að sækja harðar fram til þess að halda stöðu sinni hefur rekið mjög skipulega og markvissa kosningabaráttu. Eftir að forystumenn Samfylkingarinnar höfðu unnið það pólitíska afrek að sameina vinstri öflin að mestu leyti í einni fylkingunni eftir langa sundrungarsögu hafa þeir sennilega ekki haft kraft og úthald til þess að reka öfluga kosningabaráttu. I þeim efnum hafa þeim verið mislagðar hendur frá upphafí, fyrst með birtingu draga að stefnu- skrá sl. haust og síðan með framkvæmd kosningabarátt- unnar undanfarnar vikur. Það er t.d. ekki hyggileg bar- áttuaðferð að tala um að andstæðingar „ljúgi“ eins og gert var í auglýsingu frá Samfylkingunni hér í blaðinu og ann- ars staðar í gær. Samfylkingin hefur ekki megnað að verja vígstöðvar sínar til vinstri fyrir ásókn vinstri grænna, sem augljós- lega hefur sett verulegt strik í reikninginn. En jafnframt fer ekki á milli mála, að Sjálfstæðisflokkurinn hefur fengið töluvert af fyrra fylgi Alþýðuflokksins, þróun, sem sjá mátti fyrir og Morgunblaðið hefur áður gert að umtalsefni. Þessi kosningabarátta verður stjórnmálaflokkunum öll- um áreiðanlega töluvert umhugsunarefni, þegar upp verð- ur staðið. Af henni má mikið læra fyrir þá, sem á annað borð hafa áhuga á að kynna sér hvað hefur áhrif og hvað ekki í kosningum sem þessum. Það er gagnlegt að skipu- leggja kosningabaráttu með jafn löngum fyrirvara og Framsóknarflokkurinn hefur augljóslega gert. Það skiptir ekki öllu máli, að hafa uppi mikinn fyrirgang í kosninga- baráttu. Það sýnir róleg kosningabarátta Sjálfstæðis- flokks, sem hefur verið mjög árangursrík. Það er ekki lík- legt til ávinnings við aðstæður sem þessar að halda uppi mjög neikvæðum áróðri eins og stjórnarandstöðuflokkarn- ir hafa gert. Samfélagið er síður en svo gagntekið af kosningabarátt- unni eins og áður tíðkaðist. Fólk veitir henni eftirtekt en varla meir en ýmsu öðru sem er að gerast í þjóðfélaginu. Það er af hinu góða og eitt af mörgu sem er til marks um að við búum í heilbrigðara þjóðfélagi en áður. „Eins og Hitl- er teygi sig upp úr gröf- inni og segi: ég sigra!“ Mörg alþjóðleg samtök koma að hjálpar- starfí í flóttamannabúðunum í Makedóníu. Skapti Hallgrímsson blaðamaður og Sverrir Vilhelmsson ljósmyndari hittu þar líka fyrir bandaríska gyðinga sem tóku sig til upp á eigin spýtur og drifu sig á staðinn með ýmiss konar vörur sem þeir töldu þörf fyrir. NOKKRIR bandarískir gyð- ingar tóku sig til fyrir skömmu og söfnuðu ýmiss konar vamingi, drifu sig yfir til Evrópu og komu í byrjun vik- unnar á áfangastað; einar flótta- mannabúðirnar í grennd við Skopje í Makedóníu. „Við sáum myndir héðan úr búðun- um í sjónvarpinu íyrst eftir að þær voru settar upp og fyrstu viðbrögð mín voru: Nei! Petta getur ekki verið að gerast!" segir kona á miðjum aldri í samtali við Morgunblaðið í búðun- um. Foreldrar hennar voru báðir í út- rýmingarbúðum nasista í síðari heimsstyrjöldinni og henni er tíðrætt um Helförina. „Það er alltaf verið að tala um að ekki megi gleyma Hitler og nasistunum, að ekki megi gleyma Helförinni. Auðvitað er það alveg rétt en það sem ekki má gleyma nú er þetta fólk sem er hér. Að sjá fólkið í sjónvarpinu í þessum búðum minnir mig ískyggilega á Helfórina, þótt ekki sé um nákvæmlega sama hlutinn að ræða. Og eitthvað svipað og gerð- ist þá má aldrei koma fyrir aftur.“ 18 manns í hópnum I hópnum eru átján manns, sextán frá New Jersey og tveir bættust við frá New York. „Við erum öll gyðing- ar,“ segir hún en tekur þó skýrt fram að trúarbrögð skipti engu máli í þessu sambandi. „Ég er til dæmis alls ekki strangtrúuð og þetta kemur því gyðingdómnum ekki beint við. Mér ofbauð bara sem manneskju þegar ég sá í sjónvarpinu hvað var að gerast." Konan hringdi í kunningja sinn, sem einnig hafði verið að horfa á sjón- varpið, og strax eftir það samtal voru þau ákveðin í að gera eitthvað. Niður- staðan varð sú að safna alls kyns vamingi sem fólkið taldi þörf fyrir; skóm, alls kyns sjúkradóti, sokkum á bömin, dömubindum, útvarpstækj- um, rafhlöðum og skóladóti, svo eitt- hvað sé nefnt. Og söfnunin gekk mun betur en þau leyfðu sér að vona. „Við stóðum uppi með ótrúlega mikið af dóti. Þú hefðir átt að sjá staflana af skónum. Ég get sagt þér að rabbíinn okkar - sem er reyndar héma með okkur - grét þegar hann kom inn í salinn þar sem skónum hafði verið staflað. Sjónin sem blasti við minnti hann nefnilega svo mikið á Auschwitz. En þetta er auðvitað al- gjör andstæða; þar vom skór í stöfl- um sem teknir höfðu verið af fólki áð- ur en það var myrt, en hér vora skór sem við söfnuðum til að fólk gæti not- að þá.“ Þegar þama er komið samtalinu EIN af hjálparsveitunum í Brazda grísku læknai ÞÝSKUM spitala hefur verið komi inn í eitt s hljómar allt í einu lagið I will survive og konan tekur undir ásamt nokkram albönskum bömum sem fylgjast með okkur. „Við voram að kenna þeim þennan texta í morgun," segir konan - en heiti lagsins gæti útlagst Ég mun lifa af, á íslensku. Ekki gekk alveg þrautalaust fyrir hópinn að komast til Makedóníu. S Israelsk ungliðahreyfíng kom til Skopje til að hafa ofan af Heimsbyggðin ætti að skammast sín „VIÐ vitum hvað það er að þjást og fannst við verða að hjálpa þeg- ar við sáum hvað var að gerast héma,“ sagði Israelsmaður sem Morgunblaðið hitti í einum flótta- mannabúðunum við Skopje en þar var hann með hópi unglinga frá Israel sem komu í þeim tilgangi einum að hafa ofan af fyrir börn- um í þessum tilteknu búðum. „Hér var ísraelskt bráða- birgðasjúkrahús í mánuð, en síð- an komu Þjóðverjar með framtíð- arspítala og þess vegna var þeim ísraelska lokað. Þetta var fyrir tveimur vikum og þá tókum við upp á þessu í staðinn. Helförin var vissulega miklu skelfílegri en það sem er að gerast hér en ákveðin atriði eru þó keimlík, ef vel er að gáð. Til dæmis hvemig það er fyrir böm að vera á svona stað. Okkur fannst gríðarlega mikilvægt að reyna að sjá um skipulagða dagskrá fyrir þau og það hefur sýnt sig að þau hafa tekið þessu mjög vel. Það er hroðalegt fyrir börn að vera á svona stað án þess að hafa nokk- uð fyrir stafni,“ segir umræddur maður, Simcha Stein, forstöðu- maður The Ghetto Fighters’ Hou- se í Israel, en það er safn og rannsóknarstofnun. Annar maður, sem í ljós kemur að er Dr. Efraim Zuroff, forstöðu- maður Simon Wiesenthal stofnun- arinnar í Jerúsalem, segir búðirn- SKIPULEGGJANDI verkefnisins s« ur fyrir í einum flóttamannabúðum nokkrum bamanna ar sem við emm staddir í, þær einu þar sem sérstök dagskrá sé fyrir bömin frá morgni til kvölds. „Dagskráin byrjar klukkan níu og stendur til sólseturs. Það er spil- uð tónlist fyrir börnin, þau fá að
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.