Morgunblaðið - 07.05.1999, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1999 57
MINNINGAR
JÚLÍANA GUÐRÚN
ÞORLEIFSDÓTTIR
+ Guðrún Þorleifs-
dóttir húsmóðir
var fædd að Hofi í
Garði 26. maí 1908.
Hún lést á Dvalar-
heimilinu Garðvangi
í Garði 28. aprfl síð-
astliðinn. Foreldrar
Guðrúnar voru Júlí-
ana Hreiðarsdóttir
húsmóðir, frá
Hátúnum í Land-
broti, V-Skaftafells-
sýslu, f. 12.10. 1871,
d. 9.8. 1964, og Þor-
leifur Ingibergsson
útvegsbóndi, frá
Sléttabóli á Síðu, V-Skaftafells-
sýslu, f. 15.5. 1863, d. 4.12. 1942.
Systkini hennar voru Sigurberg-
ur Helgi, hreppstjóri og vita-
vörður, f. 30.8. 1905, d. 23.11.
1989; tvíburasystir hennar Sig-
ríður húsmóðir, f. 26.5. 1908, d.
15.5. 1995; Pálína Hreiðbjörg
húsmóðir, f. 11.9. 1911, d. 24.1.
1997, og fóstursystir Björný Hall
Sveinsdóttir, f. 10.8. 1922, d.
10.12. 1989.
Maki Guðrúnar var Matthías
Oddsson smiður og verkstjóri, f.
31.12. 1900, d. 30.12. 1988. Þau
bjuggu að Móhúsum í Garði. Frá
6.10. 1992 hefur
Guðrún dvalið að
Dvalarheimilinu
Garðvangi í Garði.
Sonur þeirra er Þor-
leifur Július tann-
læknir, f. 7.8. 1931,
maki Nang Matthf-
asson, sonur þeirra
ér Tómas Matthías-
soii, f. 15.8. 1990.
Börn Þorleifs frá
fyrra hjónabandi:
Matthías Aurel, f.
27.11. 1961, dreng-
ur, f. 3.2. 1966, d.
13.6. 1966, Björn
Gunnar, f. 20.2. 1967, og Andri,
f. 30.11. 1968. Dóttir Þorleifs
fyrir hjónaband er Hrönn Fann-
dal, f. 19.6. 1961. Fósturdóttir
Guðrúnar og Matthíasar er Guð-
nin Ólafía Sign'ður Guðmunds-
dóttir D’Autorio, f. 24.4. 1948,
maki Robert D’Autorio. Börn
þeirra Angela, f. 1968, látin, Gus
Matthías Guðmundur, f. 1971,
látinn. Sonur Guðrúnar, Gunnar
Víldngur, f. 1966, látinn.
Utför Júlínu Guðninar fer
fram frá IJtskálakirkju í Garði í
dag og hefst athöfnm klukkan
14.
Pú ljós, sem ávallt lýsa vildir mér
þú logar enn,
í gegn um bárur, brim og voðasker.
Nú birtir senn.
Og ég finn aftur andans fógru dyr
og engla þá sem barn ég þekkti fyr.
(M. Joch.)
Árið 1953 er ég var fimm ára
gömul kom ég að Móhúsum í Garði
til Matthíasar og Guðrúnar. Fram
að þeim tíma var ég á flakki og átti í
raun engan að. Gunna og Matti tóku
mig inn á heimilið og ég fann og
vissi að ég var komin heim. Gunna
var mér sem móðir og kenndi mér
kærleika og blíðu. Hún talaði aldrei
illa um nokkum mann og vildi alltaf
gera gott úr öllu. Hún lifði mjög
einföldu lífi, heimilið og fjölskyldan
var það sem hún lifði fyrir. Kærleik-
ur hennar til systkina sinna var
mjög mikill eins og sást best á síð-
ustu árum hennar og Pöllu systur
hennar á Dvalarheimilinu Garð-
vangi.
Ég vil þakka Gunnu fyrir allt sem
hún gerði fyrir mig. Ég lærði mikið
af henni, góðmennsku hennar og því
hvemig hún kom fram við annað
ótrúlega samrýndar og skipti þar
fjarlægð engu máli. Það var eitt-
hvað það samband á milli þeirra
systra sem enginn komst í snert-
ingu við. Ég á Gunnu mikið að
þakka, margar skemmtilegar
bemskuminningar, því mamma
dvaldi hjá þeim hjónum, Gunnu og
Matta, með okkur krakkana flest
sumur meðan pabbi var á síldveið-
um. Við vorum þar líka á flestum
stórhátíðum. Svo skemmtilega vildi
til að ég fæddist í rúminu þeirra
hjóna í Móhúsum og við Erling gift-
um okkur í Móhúsum og byrjuðum
að búa þar á neðri hæðinni. Ein
dóttir okkar er líka skírð þar, Júlí-
ana Dagmar, en amma hélt henni
undir skírn. Yngsta dóttir okkar
Sigrún, heitir í höfuðið á þeim tví-
burasystram, en hún fæddist á af-
mælisdegi þeirra.
Eins og fyrr segir voru þær
mjög samrýmdar, þótt ólíkar væru
og fannst okkur krökkunum alltaf
skrítið að Gunna var stærri en
mamma, þótt mamma fæddist á
undan. Þær störfuðu að ýmsu sam-
an og áttu t.d. hænsni saman og
tóku blautfisk sem þær og við
krakkarnir sólþurrkuðum uppi á
reit uppi í heiði. Við voru í hey-
skap, en Gunna átti kýr sem voru
svo hændar að henni að ein gekk
óboðin upp allar tröppurnar til að
komast inn til hennar. Gunna bak-
aði líka afbragðs kleinur sem öllum
þótti góðar, þær voru kallaðar
Gunnu-kleinur og man ég að
tengdafólk mömmu í Grindavík var
mjög hrifið af þeim. Matti var mik-
ill hagleikssmiður. Hann byggði
mörg hús og þar af nokkur í Gr-
indavík. Hann byggði Glaumbæ
rétt hjá Móhúsum og þar var okkar
brúðkaupsveisla í nýbyggðu húsinu
á nýársdag 1955. Það eru margar
minningarnar sem hugurinn rifjar
upp. Það voru margar ánægju-
stundirnar í Garðinum hjá Gunnu
og Matta, með syni þeirra Þorleifi,
Nýlendu-bræðrum, systkinabörn-
unum í Hofi og vinum úr Akurhús-
unum, Nýjabæ, Guðlaugsstöðum
og Akurgerði, ásamt mörgum fleir-
um. Gunna var myndarleg húsmóð-
ir og þau hjón voru mjög gestrisin
og leituðu margir til þeirra sem
þau hlúðu að. Ég man sérstaklega
vel eftir gamalli einstæðri konu,
Guðbjörgu, sem kom til að dvelja
þar eina nótt en dvaldist þar í
fjölda ára. Mér er minnisstæður
höfuðbúnaður hennar, en henni var
alltaf svo illt í höfðinu. Guðbjörg
lést í Móhúsum. Það bjuggu marg-
ir á neðri hæðinni í Móhúsum og
margir hafa fæðst þar. Þegar sr.
Valdimar Eylands kom til að þjón-
usta Útskálaprestakall þá fluttu
Gunna og Matti á neðri hæðina og
eftirlétu prestsfjölskyldunni efri
hæðina í nokkra mánuði, meðan
verið var að lagfæra prestsbústað-
inn.
Gunna átti einn bróður, Sigur-
berg Helga, tvær systur, Sigríði og
Pálínu Hreiðbjörgu og eina uppeld-
issystur, Björnýju. Var alla tíð mik-
ill kærleikur á milli þeirra systkina.
Palla bjó í næsta húsi og þótti þeim
systrum það frábært. Síðar þegar
Gunna dvaldi á Garðvangi voru þær
saman þar og höfðu mikla ánægju
og stuðning hvor af annarri. Það var
Gunnu mikið áfall þegar Palla dó.
Það var mjög vel hugsað um Gunnu
á Garðvangi og þökkum við öllum
þar fyrir aðhlynninguna. Sérstakar
þakkir til Helgu og Eyjólfs fyrir
þeirra miklu ummönnun. Við send-
um Þorleifi, Guðrúnu og öllum
hennar ættingjum innilegar samúð-
arkveðjur.
fólk.
Takk fyrir allt.
Þín dóttir,
Guðrún (Lilla).
Vertu dyggur, trúr og tryggur.
Tungu geymdu þína.
Við engan styggur, né í orðum hryggur
athuga ræðu mína.
(H. Pét.)
Júlíana Guðrún Þorleifsdóttir frá
Móhúsum í Garði andaðist 28. apríl
1999. Blessuð sé minning hennar.
Eiginmaður hennar var Matthías
Oddsson og einkasonur er Þorleifur
Júlíus Matthíasson tannlæknir.
Gunna eins og við kölluðum hana
fæddist í Hofi og byggðu þau sitt
fyrsta hús við hliðina á því og
nefndu það Áræði. Fljótlega byggðu
þau myndarlegt hús, Móhús, sem
þau bjuggu í æ síðan. Gunna og
Matti tóku að sér litla móðurlausa
stúlku, Guðrúnu Ólafíu Sigriði Guð-
mundsdóttur. Þau tóku henni sem
sinni eigin dóttur og reyndust henni
alla tíð þannig. Lilla eins og við köll-
uðum hana var þeim alla tíð mjög
góð og sýndi þeim mikla ræktar-
semi. Svo skemmtilega vildi til að
hún ber bæði nafn Gunnu og
mömmu. Gunna hló innilega. Hún
var róleg og dul og með afbrigðum
trygg og traust. Amma mín Júlíana
fór til þeirra þegai- afi Þorleifur dó
1942 og var þar ætíð síðan. Þau
hlúðu ávallt vel að henni.
Gunna var tvíburasystir mömmu
minnar, Sigríðar, og í raun og veru
hennar annar helmingur. Þær voru
Þórdis Björnsdóttir, Ruggero Cortelino,
Árni Haukur Björnsson, Þórey Bjarnadóttir.
+
Útför föður okkar, tengdaföður og afa,
VILHJÁLMS H. VILHJÁLMSSONAR
frá Sæbóli f Aðalvík,
verður gerð frá Fossvogskirkju í dag, föstu-
daginn 7. maí, kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Slysa-
varnafélag íslands.
Ásgeir Vilhjálmsson,
Geir Viðar Vilhjálmsson,
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, Fríða S. Kristinsdóttir,
Ingi H. Vilhjálmsson,
Guðrún B. Vilhjálmsdóttir, Haukur Geirmundsson,
Þorsteinn J. Vilhjálmsson, María Ellingsen,
Guðrún S. Vilhjálmsdóttir
og barnabörn.
Gunna er nú komin til Guðs, eig-
inmanns, systkina og annarra ætt-
ingja sem taka henni opnum örm-
um. Ég og fjölskylda mín viljum
þakka ykkur hjónum samverana í
Móhúsum og allar ánægjustundirn-
ar á lífsleiðinni. Sofðu rótt, Gunna
mín.
Þóra og Erling.
Elsku Gunna mín, við Eyi vorum
vakin að morgni 28. aprfl. Hjúkr-
unarforstjóri Garðvangs, Guðrún
Hauksdóttir, hringdi og tilkynnti
okkur að þú hefðir látist kl. 6.20.
Þú fékkst hægt andlát og má
þakka fyrir að þú þurftir ekki að
líða. Það er alltaf sárt að missa ást-
vini en tími þinn hefur verið kom-
inn. Gunna mín, mig langar til að
þakka þér hvað þú varst alltaf góð
við mig þegar ég var hjá ykkur
Matta í Móhúsum að hjálpa tU, árið
sem ég fermdist. Þú varst með átta
karlmenn í fæði sem unnu í frysti-
húsi Gerðabáta, þar sem Matti var
verkstjóri. Þeir héldu til í kjallar-
anum hjá ykkur, en ég var á efri
hæðinni og svaf í herbergi með
Júlíönnu mömmu þinni, sem var á
heimilinu. Hún var mjög góð við
mig, kenndi mér bænir og góða
siði. Öll ykkar fjölskylda var kær-
leiksrík og gott að treysta á.
Stundum var ég syfjuð á kvöldin,
ég varð samt alltaf að fara með
bænir. Ein er mér alltaf minnis-
stæð; „Kristur minn ég kalla á
þig“. Ég átti eftir að tengjast fjöl-
skyldu þinni þegar ég giftist
Eyjólfi, sem var fóstursonur Odds
og Kristínar í Presthúsum. Kristín
var systir Júlíönnu móður þinnar.
Það var mikill samgangur á milli
heimilanna, þar sem Eyjólfur og
Þorleifur sonur Gunnu og Matta
voru miklir vinir og era enn. Það
var erfitt hjá þér Gunna mín þegar
Matti þinn dó. Þá kom Lilla fóstur-
dóttir þín frá Ameríku og var hjá
þér í langan tíma. Hún var svo góð
og sýndi þér mikinn kærleik og
væntumþykju, hún hefur verið að
launa þér uppeldið. Robert maður
hennar var svo góður þér líka. Lilla
fór aftur út en var alltaf með hug-
ann hjá þér, sendi þér pakka og
hringdi alltaf. Það er ekki auðvelt
að vera svona langt í burtu frá sín-
um, eiga son, fósturdóttur og
barnabörn erlendis. Synir Þorleifs
af fyrra hjónabandi, Matthías,
Björn og Andri, heimsóttu ömmu
sína þegar þeir voru hérlendis og
móðir þeirra, Evamarie, líka.
Þáttaskil urðu í lífi Gunnu þegar
hún þurfti að fara á Garðvang í
október 1992. Hún var heppin, því
Pálína systir hennar var þar á
heimilinu, hefur alltaf verið kært á
milli þeirra. Þær máttu aldrei hvor .
af annarri sjá, því var mjög erfitt >
hjá Gunnu þegar Palla dó 24. janú-
ar 1997. Gunna var aldrei söm eftir
það, alltaf að spyrja um Pöllu syst-
ur. Gestur sonur Pöllu kom á
hverjum degi til mömmu sinnar og
var Gunna alltaf glöð að sjá hann.
Siggi og Haddý, þakka ykkur fyrir
gjafir og heimsóknir til Gunnu.
Gunna mín, ég þakka þér fyrir að
fá að hugsa um þig á Garðvangi og
vona að ég hafi getað borgað þér
fyrir hvað þú varst góð okkur Eyja
og börnum okkar, sem við nutum í
ríkum mæli hjá ykkur Matta. Við
Eyi biðjum góðan Guð að styrkja
Þorleif, Nan og litla Tómas Matthí-
as í Taílandi sem geta ekki verið við
útfór Gunnu. Einnig ber að þakka
öllu hinu góða starfsfólki á Garð-
vangi fyrir allt það sem það hefur
gert fyrh- Gunnu. Biðjum við góðan
Guð að styrkja aðstandendur henn-
ar. Blessuð sé minning þín, kæra
vina.
Kristur minn ég kalla á þig,
komdu að rúmi mínu.
Gjörðu svo vel og geymdu mig,
Guð í faðmi þínum.
F.h. fjölskyldu minnar,
Helga Þ. Tryggvadóttir.
í dag fylgjum við bræðurnir
ömmu okkar til grafar.
I dagsins önn á þönum á eftir ein-
hverju fánýtu, er gott að minnast
konu sem ekki eyddi lífinu í að
hlaupa á eftir duttlungum dagsins.
Við minnumst ömmu okkar sem
hlédrægri konu, konu sem lifði í sátt
við guð og menn í góðu húsi suður
með sjó. Hún sauð ýsu handa okkur
í hádeginu og steikti læri um helg-
ar. Það var gott að vera pottormur í _
heimsókn um helgar og seinna ung- *
lingur í sumarvinnu.
Aldrei heyrðum við hana tala illa
um nokkurn mann, og reyndar
minnust við þess ekki að hún hafi
nokkum tímann hvesst sig við okk-
ur. Ekki svo að skilja að við bræð-
umir höfðum aldrei til þess unnið,
það var einfaldlega ekki hennar eðli
að óskapast yfir uppátækjum ann-
arra.
Amma, við þökkum þér allt sem
þú hefur gert fyiTr okkur í gegnum
tíðina. Megir þú hvfla í friði.
Matthías, Bjöm og
Andri Þorleifssynir.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
INGIMUNDUR REIMARSSON,
Árbliki,
Ölfusi,
lést á Sjúkrahúsi Suðurlands sunnudaginn
2. maí. Jarðarförin fer fram frá Selfosskirkju
láugardaginn 8. maí kl. 13.30.
Steinunn Hermannsdóttir,
Reimar Ingimundarson, Brynja Þrastardóttir,
Guðbjörg Ingimundardóttir, Karl Óskar Svendssen,
Halla Ingimundardóttir, Birgir Hilmarsson,
Jón Hermann Ingimundarson
og barnabörn.
+
Elskuleg kona mín, móðir, stjúpmóðir, amma,
systir og frænka,
ÞÓRA BJÖRK ÓLAFSDÓTTIR,
(Dúa í Lótus),
Álftamýri 7,
Reykjavfk,
lést á Líknardeild Landspítalans fimmtudaginn
6. maí.
Jón R. Lárusson,
Þór Bjarkar,
stjúpbörn, barnabörn,
systur og systkinabörn.
♦