Morgunblaðið - 07.05.1999, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 07.05.1999, Qupperneq 58
58 FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ VILHJÁLMUR HANS VILHJÁLMSSON + Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson stórkaupmaður fæddist á Sæbóli í Aðalvík 12. júlí 1914. Hann lést á Hrafnistu í Reykja- vík 30. apríl síðast- liðinn. Foreldrar Vilhjálms voru hjón- in Ingibjörg Katrín Hermannsdóttir, f. 22. mars 1884, d. 7. ágúst 1943, og Vil- hjálmur Hans Magn- ússon, f. 12. septem- ber 1879, d. 13. nóv- ember 1914. Hálfbróðir Vil- hjálms var Finnbogi H. Sigurðs- son, f. 27. janúar 1920, d. 25. júní 1989. Vilhjálmur var tvíkvæntur. Fyrri eiginkona hans var Ingi- björg Asgeirsdóttir. Þau eignuð- ust einn son, Asgeir, f. 17. júlí 1938. Börn Asgeirs eru: 1) Aðal- steinn Ómar, f. 3. nóvember 1958, kvæntur Auði Matthías- dóttur og eiga þau fjögur börn. 2) fvar, f._15. júní 1959, kvæntur Þórunni Arnadóttur og eiga þau eina dóttur. 3) Annette, f. 19. september 1961, gift Hákon Iv- ersen og eiga þau þijú böm. 4) Lena, f. 27. janúar 1966. 5) Pat- rick, f. 7. apríl 1969. Síðari kona Vilhjálms var Margrét Aðalheiður Sigurgeirs- dóttir, f. 5. nóvember 1921, d. 30. janúar 1974. Börn þeirra era: 1) Geir Viðar, f. 12. janúar 1942. 2) Vilhjálmur Hans, f. 24. júní 1950. Hann er kvæntur Fríðu S. Kristinsdótt- ur og eiga þau þrjá syni, Vilhjálm Hans, f. 20. október 1971, Finn Þór, f. 12. maí 1979, og Inga Frey, f. 27. september 1980. 3) Ingi Hermann, f. 17. febrúar 1952. 4) Guð- rún Brynja, f. 1. sept- ember 1958. Hún er gift Hauki Geirmundssyni. Þeirra böra eru: Margrét Aðalheiður, f. 22. febrúar 1979, Araa Dröfn, f. 31. mars 1982, Harpa Snædís, f. 18. janúar 1989, Fanney, f. 4. október 1992, og Vilhjálmur Geir, f. 9. maí 1994. Börn Vilhjálms og Ingibjargar Þorsteinsdóttur f. 5. október 1934, d. 23. ágúst 1997, eru: 1) Þor- steinn Jens, f. 2. mars 1964, kvæntur Maríu Ellingsen og eiga þau eina dóttur, Láru, f. 21. janú- ar 1999. Sonur Þorsteins og Sig- rúnar Arnardóttur er Tómas, f. 8. desember 1988. 2) Guðrún Sigríð- ur, f. 2. mars 1964. Dóttir Guðrún- ar og Sigurðar Guðjónssonar er Ingibjörg Ósk, f. 6. október 1987. Börn Guðrúnar og Rafns Sigur- björnssonar eru: Sigurbjörn Gauti, f. 14. júní 1990, Hrefna Björk, f. 15. október 1991, og Þorsteinn Dagur, f. 19. ágúst 1994. Vilhjáhnur ólst upp á Sæbóli hjá móður sinni og síðari eigin- manni hennar, Sigurði A. Finn- bogasyni. Hann fluttist til Reykjavíkur árið 1930 og starf- aði þar sem matreiðslumaður og þjónn í Oddfellowsalnum og á Hótel Borg. Eftir það vann hann í nokkur ár sem kokkur og bryti á skipum Eimskipafélags Islands hf. Árið 1938 hóf Vilhjálmur störf sem sölumaður hjá heild- versluninni Eddu hf. og síðar hjá heildverslun Geirs Stefánssonar. Árið 1944 stofnaði hann heild- verslunina Hólm hf. ásamt Teiti Finnbogasyni og ráku þeir fyrir- tækið saman til ársins 1953. Það ár stofnaði Vilhjálmur heild- verslun undir sínu nafni og rak hana óslitið til ársins 1985, lengst á Bergstaðastræti llb í Reykjavík. Hann gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir samtök stórkaupmanna, m.a. sat hann í stjórn Félags íslenskra stór- kaupmanna og sijórn Verslunar- ráðs íslands. Þá átti hann sætj í bankaráði Verslunarbanka Is- lands og var formaður þess um skeið. Vilhjálmur var félagi í Oddfellowstúkunni Hallveigu frá árinu 1944. Einnig var hann meðlimur í Kiwanishreyfing- unni. Árið 1971 var hann einn þeirra sem stofnuðu Kiwanis- klúbbinn Nes. Vilhjálmur var fyrsti forseti klúbbsins og heið- ursfélagi hans síðustu ár. Útför Vilhjálms verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Æskuvinur minn Vilhjálmur H. Vilhjálmsson iést að morgni 30. apr- íl síðastliðins eftir erfið veikindi, á áttugasta og fimmta aldursári. * Hann hafði átt viðburðarík æviár, fyrst bemsku- og unglingsárin í Að- alvík en síðan komst hann til góðra efna í Reykjavík. Faðir Vilhjálms hafði verið mikill athafnamaður í heimabyggð sinni. Hann hóf búskap á Sæbóli árið 1908 er hann gekk að eiga frænku sína Ingibjörgu Her- mannsdóttur. Þá strax á næsta ári reisti hann fjölskyldu sinni tvílyft hús byggt úr steini, er enn í dag 90 árum síðar er veglegt sumarhús fyrir bamabörn þeirra hjóna. Áiið 1911 keypti Vilhjálmur mótorbát, er hann nefndi „Gunnar“, og hóf um leið útgerðarrekstur og formennsku í eigin útgerð. Nokkru síðar tók + hann að sér verslunarútibú Ás- geirsverslunar á Látrum þótt hann byggi í raun í Vesturvíkinni, en á haustdögum árið 1914 veiktist hann af bráðri lungnabólgu, er leiddi hann til dauða á örfáum dögum, þ. 13. nóvember það sama ár. Þann 12. júlí um sumarið hafði Ingibjörg alið þeim hjónum sveinbam, er gefið var nafn fóður síns. Sveinninn var því aðeins fjögurra mánaða gamall er faðir hans lést. Við þetta sorg- lega fráfall varð ekkjan að ráða sér formann á bát þeirra og tókst henni að fá Markús Finnbjömsson til að taka að sér útgerðina, en honum láðist að fá bátinn vátryggðan og árið 1915 sökk hann á Sæbólslagi í aftakaveðri án þess að nokkrar bæt- ur kæmu íyrir. Þetta var ekkjunni mikið fjárhagslegt áfall, til viðbótar við missi bónda síns ári áður. Það eina sem létti undii- með henni var að henni tókst að fá hreppinn til að leigja af sér stofuna í nýja steinhús- inu og var skólinn þar til húsa næstu árin. Er Vilhjálmur vinur komst í skilning um áfall fjölskyld- unnar syrgði hann fóður sinn sárt. Nokkmm árum síðar giftist móðir hans aftur manni úr víkinni, Sigurði . Alexander Finnbogasyni, og átti nneð honum Finnboga, hálfbróður Villa, sem látinn er fyrir nokkrum áram. Sigurður var heilsuveili, sem leiddi til þess að Vilhjálmur varð oftsinnis fyrir fermingu að ganga í verk hans á planinu hjá Guðmundi Helga, því fjölskyldan mátti ekki verða af þessari vinnu. Ég man sér- ^staklega eftir því árið 1927 að við Ingimar Guðmundsson frá Þverdal voram sendir til sundnáms inn í Reykjanes við Ísaíjarðardjúp, að Vilhjálmur átti að fara á þetta nám- skeið, en gat það ekki, þar eð stjúpi hans hafði veikst og Villi varð að taka að sér hans störf, þó að hann hefði sannarlega hvorki aldur né þroska til þess, enda innan við fermingu. En fjölskyldan varð að halda vinnunni til að geta skrimt. Vorið 1928 fermdust tólf ung- menni í Staðarkirkju í Aðalvík, þar á meðal við vinimir, en á næsta hausti eða árið 1929 héldum við til Isafjarðar og settumst í Unglinga- skólann þar. Ég fékk inni í óupphit- uðu þakherbergi hjá gömlum hjón- um á Brunngötu 12, en Vilhjálmi var komið fyrir hjá móðurbróður sínum, Finnbimi Hermannssyni, í herbergi með frændum sínum. En hann borðaði til skiptis þar og hjá Margréti, tengdamóður Sverris Hermannssonar, en hún var gift Kristjáni Tryggvasyni klæðskera- meistara. Á þessum vetri voram við mikið saman, en um vorið fékk ég að taka próf fyrir páska til að geta mætt til róðra fyrir norðan og varð Vilhjálmur samferða mér heim og var hann þá ákveðinn að mæta ekki aftur til skólans að hausti, heldur fara tO Reykjavíkur þegar hann gæti og setjast í skóla matreiðslu- manna þar. Næstu tvö sumur vann Villi á síldarstöðinni á Hesteyri en hélt síðan til Reykjavíkur árið 1932 og sótti matreiðsluskólann þar auk þess sem hann vann nokkurn tíma sem þjónn í Oddfellowhúsinu og á Hótel Borg. Á þessu tímabili varð hann fyrir því að veikjast af berkl- um og var um tíma á Vífilsstöðum, en hann náði sér frá þeim veikind- um og réð sig þá sem matsvein á gamla Selfoss og var þar um tíma einnig bryti í því gamla skipi þar til árið 1938 að hann réð sig sem sölu- mann hjá Heildverslun Eddu. Þar var hann sannanlega kominn á rétta hillu í lífinu, því hann reyndist með afbrigðum hæfur sölumaður. Bæði var hann einstaklega næmur á klæðaburð auk þess sem hann hafði góð áhrif á fólk. Árið 1944 stofnaði hann svo eigið firma með Teiti Finnbogasyni er þeir nefndu Heild- verslunin Hólmur. Voru þeir Teitur saman til ársins 1953 að hann stofn- aði Heildverslunina V.H. Vilhjálms- son, er hann rak í mörg ár, eða þar til tvö yngri böm hans, Guðrún og Ingi, tóku að mestu við rekstri fyr- irtækisins árið 1984. Vilhjálmur vin- ur vann sér hvarvetna traust og var kosinn til margháttaðra tránaðar- starfa innan verslunarstéttarinnar. Hann sat meðal annars í allmörg ár í stjóm Verslunarbankans, sem og í fleiri tránaðarstörfum fyrir verslun- arstéttina. ViUijálmur var tvíkvænt- ur. Fyni kona hans var Ingibjörg Ásgeirsdóttir, en þau skildu eftir stutta sambúð. Þau áttu einn son, Ásgeh', er ólst að öllu leyti upp hjá móðurforeldram sínum, Ásu Ás- grímsdóttur og Ásgeiri Sigurðssyni skipstjóra. Er við Vilhjálmur voram í Námsflokkum Reykjavíkur árið 1937 kynntist hann bráðfallegri stúlku, sem fljótlega leiddi til hjóna- bands, og eignuðust þau þrjá drengi og eina dóttur. Árið 1950 byggðu þau sér myndarlegt einbýUshús á Skólabraut 17 á Seltjamamesi. Þar þjuggu þau þar tíl Vilhjálmur vai'ð fyrir þeirri miklu sorg að missa konu sína á besta aldri árið 1974 er leiddi til þess að hann seldi húsið og keypti sér íbúð í húsum aldraðra á Seltjamamesinu. Vilhjálmur hafði auk þess keypt hús í Bergstaða- stræti fyrir verslun sína og þar byggði hann einnig nýtt verslunar- hús upp á þrjár hæðir. Vilhjálmi gekk allt vel í verslunarrekstrinum. Eg hitti Villa vin aftur árið 1935 er ég flutti til Reykjavíkur og bjó ég með honum á Kirkjustræti 8 hjá Fríðu Pétursdóttur frá Hesteyri og manni hennar Árna Hinrikssyni. Síðan fluttum við inn á Karlagötu. Þai' bjó ég með honum þar til ái'sins 1937 að ég fór að búa með konu minni, Unni Halldórsdóttur. Við Vilhjálmur höfum ávallt haft mikið samband hvor við annan. Árið 1949 buðu þeir Garðar Guðmundsson frá Þverdal og Vilhjálmur mér að ger- ast meðeigandi í hákarlshjalli sem þeir voru að reisa úti við Ráðagerði og þáði ég það boð. Við áttum svo margar ánægjustundir í hjallinum við hákarlsverkun allt þar til Garðar vinur okkur var frá okkur kallaður á besta aldri hinn 28. júlí árið 1971. Eftir það gleymdist hjallurinn og við Villi höfðum ekki fyrr en þá gert okkur ljóst að það var Garðar sem kallaði okkur til starfa og útvegaði okkur hákarl úr toguranum. Við Vilhjálmur stóðum einnig fyrir út- gáfu Sléttuhreppsbókarinnar ásamt Sigurði Stiu-lusyni, Guðmundi Snorra og Guðmundi Guðnasyni frá Búðum. Þessi störf og fleiri fyrir okkar kæru heimabyggð vora okk- ur einkar ljúf og eigum við frá þess- um áram margar góðar minningar sem ástæða er til að þakka fyrir að leiðarlokum mínum góða vini Vil- hjálmi. Ég sendi bömum hans og öðram afkomendum innilegar sam- úðarkveðjur. Gunnar Friðriksson. Það er komið að kveðjustund, pabbi minn, og ótal minningabrot fylla hugann. Ferðalög vora þitt líf og yndi og naut ég svo sannarlega góðs af því. Ég læt hugann reika til baka. Það er sumar og ég er í sveit- inni. Þið mamma komið upp í Steinsholt og við fóram inn í Þjórs- árdal og gistum þar í hjólhýsinu. Hjálpaifoss og meira að segja Gaukshöfði vora líka vinsælir án- ingarstaðir. Það virtist ekki vera neitt mál í þá daga að stoppa hvar sem löngunin sagði til og eiga næt- urstað. Eitt sinn man ég að ég vaknaði upp ein í hjólhýsinu, á ferð og það leið óratími þar til þú stopp- aðir og ég fór upp í bílinn til þín. „Morgunninn var svo fallegur," sagðirðu og að þú hefðir orðið að halda áfram en ekki tímt að vekja mig. Ég var ekki há í loftinu er þú fórst með mig á Fimmvörðuháls, man ég ekld ýkja mikið eftir því ferðalagi. En þegar þú gekkst með okkur Guðfinnu vinkonu upp á Esj- una hef ég verið u.þ.b. 10 ára. Okk- ur var orðið ansi kalt og eitthvað famar að bera okkur illa þegar þú sagðir: „Það er bara tvennt í stöð- unni, að duga eða drepast." Voram við fljótar að velja fyrri kostinn. Á mínum uppvaxtarárum á Sel- tjamarnesi fór ég oft með þér út í hjall. Þar verkaðir þú, ásamt félög- um þínum Garðari og Gunnari, há- karl og hertir þorskhausa. Mai'gir nutu góðs af þessari framleiðslu ykkar og var þetta ásamt harðfiski það besta sem þú fékkst. Þrátt fyrir að þú hafir verið mikill heimshornaflakkari, naust þú þín sérstaklega vel úti í íslenskri nátt- úra og efalaust vita allir sem þig þekktu að þú tengdist Aðalvíkinni sterkum böndum. Þú kenndir okkur systkinunum að njóta og upplifa fegurðina og friðsældina sem þar er ríkjandi, sem vai'ð til þess að við sækjum í að koma þama á hverju sumri ásamt okkar fjölskyldum. Og svo er einnig um fjölmarga ættingja okkar, þama kynnast ættliðfrnir hver af öðram og samgangurinn er mikill. Er þetta sá staður sem börn- in okkar kjósa helst að eyða sumar- fríinu. Kölluðu krakkamir Aðalvík- ina oft „afavík“ og hafðir þú gaman af. Við áttum góðar samverustundir í Aðalvíkinni síðastliðið sumar. Áttatíu og fjögurrra ára afmælis- dagurinn þinn, hinn 12. júlí, var bjartur og fagur og komu nær allir sem í víkinni vora í afmæli til þín. Var sungið og spilað á gítar, hami- onikku, sagðar sögur og farið með vísur fram eftir degi. „Þú varst ekki tilbúinn til þess að fara heim þegar við Haukur og bömin fórum með Fagranesinu daginn eftir afmælið þitt, svo Ingi var með þér í nokkra daga í viðbót, og urðu það síðustu dagamir þínir í víkinni þinni góðu. Þú talaðir oft um gömlu dagana og ég fann að þú saknaðir þess að hafa ekki kynnst fóður þínum. Oft hefurðu talað um það með miklu stolti hversu framsýnn faðir þinn hafi verið að 1908 hafi hann látið byggja steinhús sem var eina stein- húsið í hreppnum. í fyrrasumar sagðir þú mér frá því að Magnús afi þinn hafi reitt allt efni í húsið neðan frá sjó á Bránku sinni og maður að nafni Albert hafi innréttað það fyrir 300 krónur. Húsið var pússað 20 ár- um síðar af Guðmundi Snorra frænda þínum. Ogleymanlegar era þær stundfr sem við höfum setið með þér í eld- húsinu í Steinhúsinu og hlustað á þig segja sögur af fólki og atburðum frá liðinni tíð. Oft hafa Sigga og Dísa verið með okkur og höfum við hlustað af athygli á ykkm' spjalla saman um gömlu dagana. Þefr era heldur ekki fáir bragimir og vísum- ar sem þú kunnir. Þú beittir öllum ráðum til þess að ná þér í þorsk til þess að búa til hausastöppu og var oft hrært í hausastöppupottinum á öllum tímum sólarhringsins. Þama varst þú á heimavelli og svo sannar- lega í essinu þínu. Þú talaðir oft um það sem þitt „lán í óláni“ þegar þú vannst sem bryti á einum fossinum, en mættfr of seint til vinnu einn morguninn. I þá daga biðu menn í röðum eftfr starfi og varst þú látinn hætta. Þá fékkstu vinnu sem sölumaður hjá heildversluninni Eddu. Næst þegar sama skip lagði úr höfn varst þú eini fai'þeginn um borð, á leið í sölu- ferð kringum landið. Vai- það upp- hafið að þínum viðskiptaferli. Þrátt fyrir litla menntun, einn vetur í unglingaskóla og námskeið í náms- flokkunum kom það ekki í veg fyrir að þú af einstökum dugnaði og kjarki stundaðir viðskipti um allan heim. En tungumálakunnátta þín byggðist að mestu leyti á sjálfs- námi. Síðustu mánuðir vora þér erfiðir, þar sem þú þurftir að fai-a allra þinna ferða í hjólastól og þai' sem athafnaþráin var þér í blóð borin varst þú ekki sáttur við að eldast og oft sagðirðu nú seinni árin, ,já, hún er slæm þessi elli“. Hugurinn bar þig lengra en heilsan leyfði og ekki er langt síðan þú vildir drífa þig ut- an í sólina. Skemmst er að minnast ferðar sem þú fórst til Kanaríeyja páskana 1997 með mér, Hauki og bömunum. Þar sem við vöktum hvarvetna at- hygli, þú í hjólastólnum með Fann- eyju og Villa á hnjánum á þér og Hörpu hangandi aftan í. Dögunum eyddfr þú svo dormandi úti við sundlaug, með vindil og hatt. Föstudagurinn 30. apríl sl. var sólríkur og fallegur. Þá lagðir þú upp í þína hinstu fór. Ég trái því að nú getirðu ferðast til allra þeiiTa staða sem þú þráðfr. Og minnist ég orða þinna sl. sumar er þú sast í blíðunni á pallinum fyrir utan stein- húsið í Aðalvík er þú sagðir „það má vera gott hjá honum sankti Pétri ef það verður betra en þetta“. Ég sakna þín, pabbi minn, tilver- an verður tómlegri án þín. Ég hefði viljað hafa þig lengur hjá mér en gangi lífsins verður ekki breytt, en ég trái því að nú líði þér vel. Mig langar í lokin að kveðja þig með fyrsta erindinu af fallega ljóð- inu sem Jón Pétursson orti um Að- alvík og er eins konar þjóðsöngur okkar fólksins sem er ættað þaðan. Sól að hafi hnígur, hamra gyllir tind. Með söngvum svanur flýgur sunnan móti þýðum vind. Króna hægt á blómum bærist, brosa þau svo unaðsrík. Kvölds þá yfir friður færist, fegurst er í Aðalvík. Guð geymi þig, elsku pabbi, og hjartans þakkir fyrir allt. Þín dóttir Guðrún Brynja. Það er undarleg tilfinning að kveðja mann, sem að mörgu leyti var mér einsog mjög fjarskyldur ættingi. Vilhjálmur H. var pabbi minn, og ég hef eiginlega aldrei get- að vanist þessu orði, pabbi. Ég þekkti manninn ekki mikið, á þann mælikvarða sem menn bregða upp á náin kynni, samt þekkti ég hann vel fannst mér. Þegar við hittumst sá ég í honum spegilmynd sjálfs mín, bránu augun, og ómælt skapið, ég skynjaði í honum gífurlegan lífs- kraft, og um leið hið gagnstæða, vonleysi, kannski uppgjöf. Hann var alinn upp í þessari litlu vík fyrir norðan, sem heitir hvorki meira né minna en Aðalvík, í Steinhúsinu sem svo er kallað. Pabbi hans lést þegar hann var komungur, og mér finnst einsog sorgin vegna þess hafi fylgt honum hvert fótmál síðan.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.