Morgunblaðið - 07.05.1999, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1999 59 ’*
I
1
MINNINGAR
Samferðamenn Vilhjálms hafa
dregið upp skemmtilega mynd af
honum í sögum sínum, þetta var
greinilega maður sem leitaði uppi
góð ævintýri, hvar sem þau var að
finna í heiminum, og ég sakna þess
að hafa ekki fengið að vera ferðafé-
lagi hans í lífinu. Eg er um leið
þakklátur fyrir að hafa þekkt hann
svolítið, ekld síst fyrir að hafa feng-
ið að kynnast háifsystkinum mín-
um, Vilhjálmi, Guðrúnu og Inga, og
fjölskyldum þein'a. Það á ég Fríðu
mágkonu minni að þakka. Og nú er
fátt eitt ósagt, mér líður helst
einsog syninum sem faðirinn sendir
bui-t, í ljóði Braga Ólafssonar, nú
þegar við Vilhjálmur pabbi höldum
hvor í sína áttina: „Eg mun snúa
aftur með ný orð og ég mun geta
orðað það sem miður fer á nýjan
hátt. A þann veg sem mér er ófær
núna.“
I guðs friði.
Þorsteinn J. Vilhjálmsson.
Þegai’ við systumar vorum litlar
vorum við hjá ömmu og afa í sumar-
bústaðnum þeirra við Skutulsfjörð
sumarlangt, umvafðar öryggi
hversdagsins þar sem allt gekk sinn
vanagang eftir mynstri sem amma
skapaði með sinni festu. Þó svo við
vissum að Villi frændi kæmi við hjá
okkur á Grundinni á leið sinni norð-
ui' í Aðalvík á hverju sumri, þá varð
koma hans alltaf jafn óvænt og
spennandi. Eg komst að því mörg-
um árum seinna að Villi frændi og
amma voru systkinaböm - en ég
man að ég furðaði mig alltaf á því að
hann skyldi vera frændi hennar
ömmu, svo gerólík sem þau vom.
Villi birtist alltaf skyndilega.
Hann renndi í hlað á jeppa, hemlaði
snöggt, vatt sér útúr bflnum, lág-
vaxinn, sólbrúnn og kátur og faðm-
aði ömmu sem varð alltaf jafn glöð
þó hann gerði aldrei boð á undan
sér. Hann var laglegur og karl-
mannlegur, dökkur á brún og brá
og klæddi sig allt öðruvísi en aðrir
gestir sem bar að garði. Hann var
oftast í ljósum jakkafótum (sem
ömmu þóttu nú ekki praktísk) og
mér fannst hann alltaf vera nýkom-
inn frá útlöndum. Hann var líka
þeirrar gerðar að hann gaf bömum
gaum og tíma. Hann færði okkur
vel valdar smágjafir; einu sinni gaf
hann mér öskju með mörgum litlum
súkkulaðistykkjum og á hverju
þeirra var mjög falleg mynd frá
Hollandi, af blómaökrum, stúlkum
með hollensk höfuðfót og á trékloss-
um, af frægum byggingum o.s.frv.
Eg borðaði aldrei súkkulaðið því ég
dáðist svo mikið að umbúðunum og
súkkulaðiaskjan sú reyndist mér
drjúg undirstaða í landafræðinámi
um Holland í barnaskóla.
Einu sinni kom Villi frændi með
rauðan og hvítan hraðbát í eftir-
dragi vestur og hann lét sig ekki
muna um að sjósetja hann á firðin-
um sem sumarbústaðurinn stendur
við. Hann svipti okkur um borð og
þeysti af stað í áttina til ísafjarðar
og leyfði mér að stýra á ofsahraða.
Þama stóð ég yfírspennt og alsæl
við stýrið og saltur og kaldur sjór-
inn lamdi mig alla og mér fannst ég
vera að slíta af mér öll bönd - og
var raunar að því í bókstaflegri
merkingu - því amma og afi áttu
gamlan árabát (rauðan og hvítan!)
sem vai- alltaf hafður í löngu bandi í
öryggisskyni þegai' við rerum út á
fjörðinn.
Kraftar Villa frænda voru alveg
þrotnir undir það síðasta og bnínu
augun sindruðu ekki sem fyrr. Eg
hitti hann síðast við minningarat-
höfnina um ömmu í febrúar í fyrra
og þá vissi ég að varla yrði langt á
milli þeirra frændsystkina. Eg vil
með þessum orðum þakka honum
fyrir litríka daga sem kveiktu ævin-
týraþrá í brjósti lítillar frænku fyrir
vestan.
Ég votta allri fjölskyldunni inni-
lega samúð mína.
Margrét K. SveiTÍsdóttir.
• Fleirí minningnrgrciimr um
Vilhjálni Hans Vilhjálmsson bíða
hirtingnr og niunu birtast í blaðinu
næstu daga.
+ Ásdís Eiríks-
dóttir var fædd
13. ágþíst 1914. Hún
lést 1. maí síðastlið-
inn. Foreldrar
hennar voru Eirík-
ur Gíslason og Guð-
rún Ásmundsdóttir.
Ásdís eignaðist tvö
börn með Ágústi
Erlendssyni: 1)
Helga Ágústsdóttir,
f. 17.3. 1934, gift
Birni T. Gunn-
laugssyni. Börn
þeirra eru Sigur-
björg, d. 1992,
Anna Ásdís, Sigurveig og
Nú hefur Ásdís amma okkar
kvatt þetta jarðlíf hvfldinni fegin,
því síðustu vikur hennar hér herjaði
sjúkdómur sá sem lagði hana að
velli stíft á hana, annars hafði amma
alla tíð verið með afbrigðum heilsu-
hraust.
Hún var kona hlédræg, flíkaði
ekki tilfínningum sínum, en hafði
mikinn áhuga á öllu sem viðkom
okkar fjölskyldum, t.d. mundi hún
alla afmælisdaga og ár. Amma var
fróðleiksfús, hlustaði mikið á útvarp
og las mikið. Hún var nægjusöm
kona og fór ekki fram á mildð en
það sem fyrir hana var gert, var
hún mjög þakklát fyrir.
Með þessum orðum kveðjum við
hana ömmu okkar og þökkum henni
samfylgdina.
Hvfli hún í friði.
Tilvera okkar er undarlegt ferðalag.
Við erum gestir og hótel okkar er jörðin.
Einir fara og aðrir koma í dag
því alltaf bætast nýir hópar í skörðin.
En það er margt um manninn á svona stað
og meðal gestanna er sífelldur þj's og læti.
Allt lendir í stöðugri keppni um að koma sér
að
og krækja sér í nógu þægileg sæti.
Gunnlaugur Auð-
unn. 2) Hörður
Ágústsson, f. 2.10.
1935, d. 19.6. 1937.
Ásdís giftist síðan
Jóhanni Siggeirs-
syni. Þau eignuðust
Hörð Jóhannsson, f.
18.7. 1938, kvæntur
Sigríði Einarsdótt-
ur. Dætur þeirra
eru Margrét, Ásdís
og Elín Brynja.
Útför Ásdísar fer
fram frá Fossvog-
skapellunni í dag
og hefst athöfnin
klukkan 10.30.
En þó eru sumir sem láta sér lynda það
að lifa úti í horni, óáreittir og spakir,
því það er svo misjafnt sem mennimir leita
að
og misjafn tilgangurinn sem fyrir þeim vakir.
(Tómas Guðm.)
Anna Ásdís, Sigurveig
og Gunnlaugur.
Elsku langamma okkar.
Takk fyi-ir allar góðu stundirnar
með okkur og allar gjafirnar sem þú
gafst okkur.
Snert hörpu mína, himinboma dís,
svo hlusti englar guðs í paradís.
Við götu mína fann ég ijalarstúf
og festi á hann streng og rauðan skúf.
Ur furatré sem fann ég út við sjó
ég fugla skar og líka’ úr smiðjumó.
I huganum til himins oft ég svíf
og hlýt að geta sungið í þá líf.
Ég heyri í Qarska villtan vængjaþyt.
Um varpann leikur draumsins perluglit.
Snert hörpu mína, himinboma dís,
og hlustið, englar guðs t paradís.
(Davíð Stef.)
Sólveig Helga og Bjöm Ari.
+
Elskuleg móðir mín,
HELGA ALBERTSDÓTTIR
hjúkrunarkona,
Ljósheimum 20,
lést á Landakotsspítala föstudaginn 30. apríl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Hörður Guðmundsson.
Ástkær faðir okkar,
SIGURÐUR G. ÓLAFSSON
bifreiðastjóri,
Hraunbæ 102-D,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkúr að kvöldi mið-
vikudagsins 5. maí.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Ólafur Sigurðsson,
Bryndís H. Sigurðardóttir,
Margrét G. Sigurðardóttir,
Sigurður G. Sigurðsson,
Magdalena Sigurðardóttir.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
AÐALHEIÐUR GUÐMUNDA ÞÓRARINSDÓTTIR,
Mánagötu 3,
Reyðarfirði,
lést á sjúkrahúsinu í Neskaupstað miðvikudaginn 5. maí.
Jóhanna Sölvadóttir, Davíð Valgeirsson,
Freydís Sölvadóttir, Jón Þorláksson,
barnabörn og barnabarnabörn.
ÁSDÍS
EIRÍKSDÓTTIR
+
Eiginmaður minn,
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
frá Efri-Tungu,
Bugðutanga 8,
Mosfellsbæ,
lést þriðjudaginn 4. maí.
Anna Einarsdóttir.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
VILBORG KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR,
hjúkrunarheimilinu Seli,
áður til heimilis
á Eyrarvegi 17, Akureyri,
verður jarðsett frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn
11. maí kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim, sem vildu minnast
hennar, er bent á minningarkort frá Alzheimer-félögunum.
Jörundur Guðmundsson, Guðrún Kolbeinsdóttir,
Sveinbjörn Guðmundsson, Þorgerður Halldórsdóttir,
Þórhalla Guðmundsdóttir, Stefán Stefánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Útför elsku frænku okkar,
GUÐMUNDU BJÖRNSDÓTTUR,
Fornasandi1,
Hellu,
er andaðist þriðjudaginn 27. apríl, fer fram frá
Hlíðarendakirkju í Fljótshlíð laugardaginn
8. maí kl. 11.00 fyrir hádegi.
Fyrir hönd vandamanna,
Örn Guðjónsson og dætur.
+
Systir mín,
VALBORG ÞORSTEINSDÓTTIR
frá Klúku, Fljótsdal,
lést aðfaranótt föstudagsins 30. apríl sl. á Heilbrigðisstofnuninni Egils-
stöðum. Jarðsungið verður mánudaginn 10. maí frá Valþjófsstaðakirkju
kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Heilbrigðisstofn-
unina Egilsstöðum.
Sverrir Þorsteinsson.
+
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför
SIGRÍÐAR HELGADÓTTUR
frá Laugarbökkum,
Skagafirði.
Sérstakar þakkir til Álftagerðisbræðra.
Aðstandendur.
Hugheilar kveðjur og þakkir fyrir alla samúð, vindttu og hlýhug
við andldt okkar kœra
Sigurðar Ásmundssonar
Sú minning sem gafstu, hún mun okkur kœr,
þú mörgum ert harmdauði fjœr eins og nœr.
Far vel, sem að skildist frá vonum og óloknum önnum.
(J.H.)
Samhugur á sorgarstundu mun aldrei gleymast.
Karí Karólína Eiríksdóttir
Edda Dagmar, Birna Katrín, Sigurður K. Kolbeinsson
Ellisif Astrid, Sunna Miriam Erlingur Hjaltested
ömmu- og afabörn Hafliði Ragnarsson
Lokað
Skrifstofur okkar verða lokaðar milli kl. 13.00 og 15.00 í dag, föstu-
daginn 7. maí, vegna útfarar GUÐRÍÐAR NIKULÁSDÓTTUR.
Mata ehf.,
Eggert Kristjánsson hf.,
Kexverksmiðjan Frón ehf.
4
*