Morgunblaðið - 07.05.1999, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Kennarar sjálf-
um sér verstir
„BRÝNT að breyta
vinnutíma kennara"
var haft eftir formanni
samtakanna Heimilis
og skóla í Morgunblað-
inu 17. apríl sl. Ingi-
björg Sólrún Gísla-
dóttir segir að nú megi
auka tekjur kennara
en það skilyrði fylgi að
afsláttur frá kennslu-
skyldu verði felldur
niður og einnig sé gert
ráð fyrir ýmsum
breytingum á vinnu-
tíma þeirra.
Sem kennari veltir
maður því oft fyi-ir sér
hvers konar örlög það
séu fyrir kennarastéttina að þurfa
sífellt að biðjast afsökunar á sjálfri
sér og hlusta á endalausar tillögur
fólks í öðrum atvinnustéttum um
hvernig kaup og kjör kennarastétt-
arinnar eigi að vera. Hafa aðrar
Launakjör
Hjá kennarastéttinni,
einni allra stétta, segir
Haukur R. Hauksson,
er það kallað kaup-
hækkun að auka við
sig vinnuna.
stéttir spurt kennara að því hvað
þeim fmnist um kaup og vinnutíma
þeirra, t.d. borgarstjóra, lækna,
dómara, bankastjóra, flugmanna
o.s.frv.? Eg sé ekki að þessar
starfsstéttir séu stanslaust að
spyrja almenning álits á sínum
kjörum.
Kennarastéttin er eina lögvernd-
aða stéttin er lætur það viðgangast
að ófaglært fólk gangi óheft inn í
störf þeirra ef menntamálaráð-
herra býður svo við að horfa. Um
það bil 17% leiðbeinenda eru ein-
göngu með grunnskólapróf. Hvaða
önnur stétt myndi líða þetta?
Er von að kaupið sé lágt í stétt-
inni? Því má ekki beita
þessu leiðbeinenda-
kerfi í öðrum fagstétt-
um? Til dæmis leið-
beinanda-hjúkrunar-
fræðingur, leiðbein-
anda-læknir o.s.fi-v.
Ætli reksturinn yrði
ekki léttari fyrir ríkið
með slíkri aðgerð?
í hvert skipti er
kennarar fara fram á
kauphækkun era
framsettar kröfur frá
mótaðila um skert
áunnin réttindi svo
sem að minni kennslu-
skylda skuli afnumin
og alltaf, ég endurtek
alltaf, er farið fram á lengri vinnu-
tíma, þá fyrst sé hægt að „hækka“
launin. Já, hjá kennarastéttinni,
einni allra stétta, er það kallað
kauphækkun að auka við sig vinn-
una. Kennarar eru trúlega þeir
einu sem þurfa að fara í verkfall út
af kröfu mótaðilans. Þ.e. kennarar
setja fram kröfur um launahækkun
en fá framan í sig alls konar
óskyldar kröfur frá mótaðilanum
og þurfa svo að eyða kröftum sín-
um í að halda aftur af þeim kröfum.
Því á aldrei að ljá máls á slíkum
óskyldum kröfum samhliða kröf-
unni um kauphækkun. Þá er betur
heima setið en af stað farið.
Hafið það hugfast kennarar og
þá ekki síst þið sem eruð í forystu-
sveit okkar að það er aðeins kenn-
arinn sem sendur er inn í skóla-
stofuna og þarf að glíma við alla þá
vinnu og öll þau vandamál sem upp
koma. I ofanálag þarf hann að lifa
við ein hin aumustu launakjör
þessa lands. Eyðið ekki tíma ykkar
í samningsumleitanir um skert
kjör og lengri vinnutíma. Allri
slíkri eftirgjöf fylgja fleiri kröfur í
sömu átt og ávinningur fleiri ára-
tuga gloprast niður.
Kennarar, hættið að biðjast af-
sökunar á sjálfum ykkur og spyrjið
fyi-st og fremst um það hvað þið
viljið en ekki Pétur eða Páll úti í
bæ
Höfundur er kennari.
Á morgun gæti það verið
Of SeÍnt Hringdu
Stanislas Bohic • Landslagsarkitekt • ( 898 4332
Haukur R.
Hauksson
FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1999 67
Alltaf yfir strikið!
Við þurfum d þér að halda d kjördag
A morgun hefst lokaspretturinn
íkosningabaráttunni. Við óskum
eftir sjálfboðaliðum með bíl og
GSM sfma til að aka kjósendum
fyrir okkur á kjördag.
Ný framsókn til nýrrar aldar
B
Hafðu samband við okkur á Hverfisgötu 33 f síma 552 7020 / 552 7045