Morgunblaðið - 07.05.1999, Síða 70
70 FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
99 AURAR
og geimferð í kaupbæti!
UMRÆÐAN
lil
Ef þú kaupir 'fdl., þ.e. gerist
TímaTALs áskrifandi í tólf mánuöi
meö kreditkorti, bjóðast þér þessir
símar á aöeins 99 aura.
því að BT
býður
alltaf
betur!
Pað er sama
IBt þú kýst! Þeir
kosta ekki krónu...
Siemens S6
• Vegur165 gr
• 30 klst. í bið
• 4 klst. ending í notkun
SMSskilaboð
Númerbirting
Grafískur skjár ofl. ofl.
Allir sem kaupa símann fá miða á geim-
sápuna, Hnetuna, sem sýnd er í Iðnó
Athugið: TALkort kostar 1.999,- og
er selt aukalega. Hægt er að velja
mismunandi þjónustuleiðir. Til dæmis
TímaTAL 30 sem innifelur 30
mínútna taltíma, talhólf,
númerabirtingu og SMS
textaskilaboð. Allt fyrir aðeins
kr.990,- á mánuði.
M: HliSi M.
m i Z. i m s A f > & j
GASGRILL
Þriggja daga kynningar-
tilboð. Gríptu tækrfærið
og grillaðu í kvöid!
BT • Skeifunni 11 • 108 Rvk • Sími 550 4444
BT • Reykjavíkurvegi 64 • 220 Hafnarf. • Sími 550 4020
Brúðhjón
Allur boróbilnaður - Glæsileg gjaíavdra - Briíðtijónalistar
YERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Um fæðingar-
þjónustu
í TILEFNI af
greinaskrifum í Morg-
unblaðið undanfarið
um Kvennadeild Land-
spítalans og þá fæðing-
arþjónustu sem fer þar
fram, heimafæðingar
og vatnsfæðingar,
langar mig að koma
eftirfarandi á fram-
færi.
Kvennadeild Land-
spítalans þjónar þorra
fæðandi kvenna á Is-
landi, þeim sem bú-
settar eru á stór-
Reykjavíkursvæðinu
svo og þeim konum ut-
an af landi sem vegna
áhættumeðgöngu, fyrirburafæð-
inga eða annarra orsaka þurfa eða
kjósa að fæða þar. Að öðrum fæð-
ingarstöðum ólöstuðum er þar
stærsta og fullkomnasta fæðingar-
deild landsins og þar vinnur stór
hluti íslenskra ljósmæðra.
Þar fer fram gott og faglegt
starf og þar vinnur hæft og duglegt
starfsfólk sem sorglega þó er ekki
metið til réttlátra launa í þjóðfélag-
inu, en það er annað mál sem ekki
skal tíundað hér. Þar er ávallt leit-
ast við að koma til móts við þarfir
og óskir kvenna varðandi fæðingar
að svo miklu leyti sem unnt er á
hverjum tíma og flestar konur eru
ánægðar með þá þjónustu sem þær
fá þar.
Astæður þess að fæðingardeild
Landspítalans býður ekki upp á
vatnsfæðingar eru margvíslegar.
Að hluta til að það tekur tíma að
koma því í framkvæmd. Það tek-
ur tíma að þjálfa upp mikinn
fjölda starfsfólks og ekki eru
alltaf allir sammála á stórum
vinnustað um hvað rétt sé og
best. Eins og stendur er boðið
upp á vatnsbað sem verkjastill-
ingu í fæðingum, á útvíkkunar-
stigi, en einungis eitt baðker er
komið svo því miður er það stund-
um svo að konur sem þess óska
geta ekki notið þess, en það kem-
ur samt sjaldan fyrir því ásóknin
er ekki það mikil. Vatnsbað hent-
ar ekki öllum konum, en þær
þurfa að hafa þetta val. Strangar
öryggiskröfur eru viðhafðar og
nákvæmt eftirlit er haft með
móður og barni við notkun vatns-
baða í fæðingum.
A nokkrum fæðingarstöðum í
nágrannasveitarfélögum Reykja-
víkur er boðið upp á vatnsfæðingar
og er það vel, þangað geta konur
leitað ef þær óska eftir að fæða í
vatni. Konur hafa nefnilega leyfi til
að velja sér fæðingarstað, en það
eru bara ekki allar konur sem átta
sig á því og þeim er e.t.v. ekki
kynnt það nægilega vel.
Ég ætla ekki að rekja hér hvers
vegna fæðingar á íslandi fluttust
á sjúkrahús og tel að fyrir heil-
brigðar konur í eðlilegri með-
göngu sé það ekki endilega kjör-
fæðingarstaður. Mörgum konum
hentar sjálfsagt betur
að fæða heima eða á
fæðingarheimili þar
sem þær þarfnast lít-
ils annars en stuðn-
ings og eftirlits frá
ljósmóður til að full-
nægja öryggiskröfum
við fæðingar.
Hér á höfuðborgar-
svæðinu er því miður
lítið val um fæðingar-
staði. Það er sjúkra-
hús eða heima. Lokun
Fæðingarheimilisins
hér í Reykjavík tók frá
konum þann góða val-
kost að fæða á litlum
heimilislegum stað.
Með auknum áherslum síðari ára á
upplýst val á meðgöngu og í fæð-
ingu er það nú svo að margar kon-
Fæðingar
Hræðsluáróður vegna
vankunnáttu, fordóma
Jenný Inga
Eiðsdóttir
og forræðishyggju,
segir Jenný Inga Eiðs-
dóttir, á ekki rétt á sér
en vill því miður oft
verða ofan á.
ur kjósa að fæða heima frekar en á
sjúkrahúsi og þeim fer fjölgandi.
Konur og ljósmæður hafa brugðist
við með stofnun félags áhugafólks
um heimafæðingar og æ fleiri ljós-
mæður gefa nú kost á sér til þess-
arar þjónustu.
Það getur enginn bannað konu
að fæða heima, en að sjálfsögðu er
það ekki ráðlegt nema um sé að
ræða heilbrigða konu í eðlilegri
meðgöngu og engir alvarlegir
áhættuþættir séu íyrir hendi. Það
sama gildir um ljósmæður, það
getur enginn bannað þeim að taka
á móti bömum í heimahúsum þar
sem þær hafa til þess fullgilt emb-
ættispróf og leyfi.
Það getur heldur enginn bannað
konu að nota vatn sem verkjameð-
ferð í fæðingu og jafnvel að fæða
ofan í vatni. Konan þarf hins veg-
ar að hafa kynnt sér hvað um er
að ræða og þarf að vera upplýst
um þennan valkost eins og alla
aðra. Hræðsluáróður vegna van-
kunnáttu, fordóma og forræðis-
hyggju á ekki rétt á sér en vill því
miður oft verða ofan á og er það-
miður.
Heimafæðingar og vatnsfæðing-
ar eru upplýst val nútímakvenna
og þær ljósmæður sem gefa sig út
til að sinna þeim konum eru vel
upplýstar og meðvitaðar um kosti
og galla og hafa ávallt velferð móð-
ur og barns í fyrirrúmi. Að halda
öðru fram er bæði ósmekklegt og
móðgandi fyrir allar ljósmæður og
konur og vegið stórlega að starfs-
heiðri ljósmæðra og skynsemi
kvenna og er í senn forræðishyggja
í sinni svörtustu mynd og argasta
kvenfyririitning. Þessar konur og
ljósmæður vita jú alveg hvað þær
eru að gera og hafa fullan rétt til
þess.
Sem betur fer eru konur eins
misjafnar og þær eru margar, hafa
ólíkan smekk, þarfir og langanir
og það er hlutverk ljósmæðra að
uppfylla þarfir þeirra og óskir
varðandi fæðingar að eins. miklu
leyti og hægt er og innan ákveð-
inna öryggismarka og sem betur
fer eru ljósmæður ólíkar og hafa
mismunandi skoðanir og áhuga-
svið og okkur ber að virða það og
fagna því.
Konum sem kjósa forræðis-
hyggju heilbrigðisstarfsfólks á
meðgöngu og í fæðingu stendur
hún til boða, þær konur sem kjósa
upplýst val og að virðing sé borin
fyrir þeirra þörfum og óskum
þurfa líka að eiga sér málsvara og
þeim konum fer fjölgandi.
Höfundur er Ijösmóðir - starfandi
á fæðingardeild Landspítalans.
Konur
ÖLL STRIÐ eru
mannskemmandi. Þau
leyfa manndráp á lög-
legan hátt. I stríðum
kemur hið versta fram
í manninum. A síðustu
árum hafa okkur
borist hræðilegar sög-
ur af stríði og nauðg-
unum á Balkanskaga.
Enn berast okkur fi-á-
sagnir af nauðgunum
á konum þar.
Stríð og nauðganir
Hermenn ganga um
og nauðga konum og
stúlkum hinna stríðs-
þjáðu landa. Þeir fara
svo heim til sín og setjast að borði
með dætrum sínum, mæðrum, eig-
Stríö
Þessa meðferð á okkur
konum af hendi sona
okkar, segir Koibrún S.
Ingólfsddttir, er ekki
hægt að þola lengur.
Kolbrún S.
Ingólfsdóttir
á konum og börnum af
hálfu hermanna. Stríð
eru talin vöm þjóða til
að verja landareign
sína og föðurland.
Það er stutt síðan
fjallað var um jap-
anskar konur sem
hafðar höfðu verið í
kynlífsþrælabúðum í
heimsstyrjöldinni síð-
ari. Það eru karlmenn
sem eru sendir á víg-
völlinn og gleyma að
haga sér eins og menn
gagnvart vamarlaus-
um kvenmannslíköm-
um.
Konur verða
að mótmæla
inkonum, ömmum og barnabörn-
um eins og ekkert sé. Hvemig
hugsunarháttur og menningararf-
ur er það sem getur af sér karl-
menn sem haga sér svona?
Stríð eiga ekki að vera vettvang-
ur til að svala kynlífsfysn karl-
manna. Stríð á ekki að vera eins
konar vottorð sem leyfir nauðganir
Konur á íslandi og um allan
heim eru í margs konar samtök-
um innan stjórnmálaflokka, innan
kirkjunnar og í ýmsum öðrum fé-
lagasamtökum. Konur á íslandi
ættu að taka höndum saman og
hafa samband við kynsystur sínar
um allan heim og mótmæla með-
ferðinni á helmingi mannkynsins.
Margar konur geta ekki mót-
mælt vegna stjórnmálaástands
heimalanda sinna og hjá öðrum eru
ekki hæg heimatökin, annaðhvort
eru þær óupplýstar eða ólæsar. En
kvenfólk í Evrópu er fleira en 300
milljónir og í Bandaríkjunum um
150 milljónir. Þessa meðferð á okk-
ur konum af hendi sona okkar er
ekki hægt að þola lengur.
Höfundur er meinatæknir
og húsmóðir.