Morgunblaðið - 07.05.1999, Blaðsíða 71

Morgunblaðið - 07.05.1999, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1999 71 UMRÆÐAN Nafnleyndarkerfí Islenskrar erfðagreiningar í ólestri UMRÆÐAN um nafnleyndarkerfi fs- lenskrar erfðagreining- ar hefur verið á villigöt- um frá upphafi og hefur einkennst af því að ís- lensk erfðagreining staðhæfir að það sem þeir geri sé fullnægj- andi og að gagnrýni sem komið hefur fram sé ekki á rökum reist. Sannleikurinn er þó annar. Nú eru liðnir þrír mánuðir síðan lögin um miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði voru samþykkt og eru dulkóðunarskrefin þrjú sem mikið hefur verið rætt um enn í ólestri. Ljóst er að nafnleyndarkerfi ís- Gagnagrunnur Nafnleyndarkerfí ís- lenskrar erfðagreining- ar, segir Oddur Þór Þorkelsson, getur ekki virt réttindi sjúklinga. lenskrar erfðagreiningar getur ekki orðið við beiðni sjúklinga er óska að ákveðnar heilbrigðisupplýsingar um þá verði ekki sendar í miðlægan gagnagrunn. E>ví hefur verið haldið fram að þegar gögn væru send til dulkóðunarstofnunar fengi hún ein- göngu einnar áttar dulkóðaðar kennitölur og dulkóðaðar heilsu- farsupplýsingai-. Neitunarskrá landlæknis inniheldur einnig einnar áttar dulkóðaðar kennitölur, sem nota skal til að fjarlægja upplýsing- ar um einstaklinga sem ekki vilja vera í gagnagrunni íslenskrar erfðagreiningar. Sjúklingar geta á hinn bóginn til- greint sérstaklega hvaða upplýsing- ar um þá eigi ekki að flytja í gagna- grunninn. Þetta þýðir að dulkóðun- arstofnunin sem á að taka út upp- lýsingar um einstaklinga eftir neit- unarskrá landlæknis þarf einnig að hafa aðgang að heilsufarsupplýsing- um þeirra einstaklinga, sem verið er að fiytja í gagnagrunninn. Að öðrum kosti gætu þeir ekki tekið burt þær heilsufarsupplýsingar og komið í veg íyrir flutning þeirra í miðlægan gagnagrunn. Undarlegt er að „sérfræðingur" Islenskrar erfðagreiningar, sem virðist telja sig óskeikulan, skuli ekki geta séð jafn augljóst atriði sem þetta. En hann hefur hamrað á því að af öryggisástæðum þurfi Oddur Þór Þorkelsson þessar upplýsingar að vera dulkóðaðar, en séu þær það er ekld hægt að ijarlægja þær. Svo bregðast krosstré sem önnur tré. Nafnleyndarkerfi Islenskrar erfðagrein- ingar getur því ekki virt réttindi sjúklinga. Önnur sjálfsögð rétt- indi sem virðist eiga að svipta einstaklinga er að geta hætt þátttöku í rannsóknum sem hafn- ar eru og látið eyða gögnum um sig úr mið- lægum gagnagrunni. Finnist okkur að ís- lensk erfðagreining sé að misbjóða siðferðiskennd okkar í rannsóknum sínum getum við ekkert gert og verðum áfram misnotuð í rannsókn- um þeirra gegn viija okkar. Þetta eina atriði ætti að vera næg ástæða fyrir flesta til að segja sig úr gagna- grunninum nú þegar. Islensk ungmenni njóta ekki þess réttar að geta sagt sig úr miðlægum gagnagrunni, enda hafa stjórnar- flokkamir ákveðið að ekki megi eyða gögnum úr gagnagrunninum eftir að þær hafa einu sinni verið settar inn í hann. Því ætti að gera kröfu um að upplýsingar ungmenna undir 18 ára aldri verði ekki færðar í gagnagrunninn. Einnig að það líði að minnsta kosti sex mánuðir frá því að ungmenni verða átján ára þangað til upplýsingar um þá verði sendar í gagnagrunninn og að á þessum tíma verði þeim öllum send- ar upplýsingar um rétt sinn hvað þetta varðar. Hafi þau síðan frá þeim tíma sem þau taka sannanlega við upplýsingunum sex mánuði líkt og aðrir þegnar landsins til að ákveða hvort þau vilji taka þátt í heilsufarsgagnagrunninum. Hvet ég umboðsmann barna til að huga að þessu og athuga hvort ekki sé verið að ganga á réttindi barna og ungmenna verði þetta ekki gert. Alveg eins ætti að gera kröfu um að það h'ði minnst sex mánuðir frá því að upplýsingar um heilbrigði sjúklinga eru skráðar þanngað til þær verði sendar í gagnagrunninn. Þetta gefur sjúklingnum smátíma til að ákveða hvort hann vilji að þessar nýju upplýsingar verði færð- ar í gagnagrunninn. Enda hefur sjúklingurinn um nóg annað að hugsa meðan hann er veikur og þarf á meðferð að halda. Eitt sem hefur alveg gleymst er sú staðreynd að ennþá hefur ekkert verið gert til að vara útlendinga við nýju lögunum. Lögin fjalla um sjúk- linga og eru útlendingar sem heim- sækja okkur og nota læknisþjón- ustu hér engin undantekning. Lög þessi fjalla þannig um þegna ann- arra landa, hvort sem okkur líkar það betur eða verr. Hætt er við að upp komi illvígar deilur og gagnrýni ef farið verður að flytja upplýsingar um útlendinga í gagnagrunninn. Engin úrsagnareyðublöð hafa verið gerð fyrir útlendinga. Ég stórefa að ferðamenn sem heimsækja okkur hafi áhuga á að láta misnota sig með ,;ætluðu samþykki“ á þann hátt sem Islendingum er boðið upp á. Ætlað samþykki í heilbrigðisrannsóknum er í raun ekkert annað en aðferð til að misnota fólk. Ég mun þvl segja mig úr hverjum þeim miðlægum gagnagrunni sem stjórnvöld kunna að vilja búa til um ókomna framtíð og ekki er staðið að á þann hátt sem siðlegur eða öruggur getur talist. Á sama hátt hvet ég alla landsmenn til að segja sig úr gagnagrunninum áð- ur en það er of seint. Að lokum vil ég benda alþjóð á að Ross Anderson er eini sérfræðing- urinn í öryggi tölvukerfa sem hefur kynnt sér nafnleyndarkerfi ís- lenskrar erfðagreiningar og gaf hann því falleinkunn. Af þessum sökum hafa aðrir sérfræðingar ekki verið beðnir um álit á því, enda gerir íslensk erfðagreining sér það ljóst að þeir gæfu því einnig falleinkunn. Höfundur er tölvunarfrædingur. A heitum reit í Indlandshafi • Jórdömk matargerd • Gómsœtt án sykurs motur ocj vin fra ýmsum lönöum Mexíkósk veisla „Matargerðarlistamað- urinn" Hildur Petersen Tafland - Kesara, doktor og matgæðingur Þorri velur vín með austurlenskum mat Veisiuborð frá Víetnam Innlit í i’ldhús - Diljá Einursdóttir • Karlar skoru - Guðmundur HreiöHrsson • KuJJi Gurrí giignrýnir Sólon AV^ Grjóthálsi 1 Sími 575 1200 www.bl.is FREELANDER MEÐ SPOLVORN FRÁ 2.650.000 kr. tfmmtD - \ \rROV£Kj/ FREELANDER
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.