Morgunblaðið - 07.05.1999, Qupperneq 72

Morgunblaðið - 07.05.1999, Qupperneq 72
1 72 FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN t. EINHVER mis- skilningur virðist koma upp öðru hverju um hvað iðnvæðing í kvikmyndagerð sé og hvert sé takmark hennar. Til að einfalda málið er best að gera grein fyrir því hvað sé ekki takmarkið; það er að fjöldaframleiða færibandakvikmyndm, svo sem mótorhjóla- myndir og brellu- bombur. Takmarkið er ein- faldlega að leggja traustan efnahagsleg- an grunn að starfi kvikmyndafyrirtækja svo þau geti vandað framleiðslu sína, lagað sig að breyttu umhverfi og verið sam- keppnishæf í alþjóðlegu umhverfi. Eignaraðild Verkefni og umhverfi kvik- myndafyrirtækja era flest þau sömu og annarra fyrirtækja, þau búa við samkeppni, pólitískt um- hverfi og fleira. Ólíkar áherslur í rekstri algengustu kvikmyndafyr- irtækja mótast aðallega af því að meta listrænt gildi hlutanna eða „lesa“ markaðinn. Sérstaða kvik- myndaiðnaðarins er mikil að þessu leyti. En listrænt frelsi felst ekki eingöngu í því að fyrirtæki fái pen- inga frá hinu opinbera eða stóru stúdíó-fyrirtæki úti í heimi og fari með það að vild, heldur liggur galdurinn í stjórnun fyrirtækisins sjálfs og meðferð þeirra aura sem era umleikis. Kvikmynd sem kostar 10 milljón- ir getur verið betri en sú sem kostar 1.000 milljónir. Það þekkja flestir. Þessar ólíku áhersl- ur á milli kvikmynda- fyrirtækja og annarra birtast í eignaraðild í fyrirtækjum og ein- stökum bíómyndum. Hluthafar leggja mun meiri áherslu á hverjir séu hinir hluthafarnir en t.d. ef um hunda- matarverksmiðju væri að ræða. Arðsemi er aðalmálið fyr- ir flesta hluthafa. Og þar sem áhættan er oftast nokkuð mikil í þessu fagi gera stórir hluthafar kröfu um háa ávöxtun, oft yfir 50%. Mörg dæmi era um að slík ávöxtun heppnist og gott betur, en til að koma á móts við háa ávöxtunar- kröfu og lækka hana er reynt að minnka áhættuna. I kvikmynda- gerð er að þessu leyti mikil áhersla lögð á rétta eignaraðild, því í gegn- um hana liggur áhættudreifingin, og er oftar en ekki forsenda fyrir því að kvikmynd verði gerð. A vesturlöndum er mesta áhersl- an lögð á aðgang að markaði, þ.e. dreifingarfyrirtæki eigi að minnsta kosti 25% hlut í verkefni. Með sterkt dreifingarfyrirtæki er hægt að gera áhættuna að nánast engu. Dreifingarfyrirtækið vill á móti - Kvikmyndagerð Kvikmynd sem kostar 10 milljónir, segir Ein- ar Þór Gunnlaugsson, getur verið betri en sú sem kostar 1.000 millj- ónir. Það þekkja flestir. til þess að geta selt myndina - traustan framleiðanda, góða hug- mynd, gott handrit, þekktan/góðan leikstjóra eða leikara o.s.frv. eða eitthvað af þessu. Að fara stjörnu- leiðina, það er að ráða eina stjörnu, var ein af lykilvinnureglum Hollywood frá upphafí og hefur gefist vægast sagt vel. Hvað telst gott er oftast matsatriði og mótast bæði af menningu og stefnu fyrir- tækis. En þar sem einstök dreif- ingaríyrirtæki gera ekki og styðj- ast ekki við viðhorfskannanir fyrir „vörar“ sínar geta þau haft mjög ólíkar áherlsur. Annað sem hluthafar leita eftir eins og gengur í rekstri er sam- starf við aðila sem veita aðgang að nýjum fjármagnsleiðum, nýrri þekkingu og nýjum samböndum al- mennt. Þetta er mjög áberandi hjá litlum og meðalstórum kvikmynda- fyi-irtækjum í Evrópu í dag þar sem evrópski iðnaðurinn er bæði fjölbreyttur og breytist ört. Og þegar hluthafi er metinn segir t.d. eiginfjárstaða viðkomandi fyrir- tækis mjög lítið um verðgildi þess. Ólíkt hugbúnaðar- og margmiðlun- ariðnaði, þar sem oft er mikil áhætta í undirbúningi verkefnis, hefur kvikmyndaiðnaðurinn um 100 ára sögu að baki, en enn er áhættuliðurinn sá sami. Listrænt frelsi I takmarki hluthafa, þ.e. arð- semi, felst oft krafa um listrænt gildi. Það er oftar en ekki reglan frekar en undantekningin, því flestir eigendur kvikmynda, fyrir utan nokkur Hollywood-dæmi, sjá markað og arð í því sem fólk vill sjá og heyra, eitthvað sem skiptir það máli. Þegar best verður á kosið og það sem einkennir góða stjórnun er þegar dreifendum og framleið- endum tekst að dreifa áhættu, laða að söluvænt nafn á myndina til þess að gefa hinum skapandi ein- staklingum sem „ekki selja" meira frelsi. Hið listræna mat framleið- andans og viðskiptnef listamanns- ins geta leitt til dýnamísks og ai'ð- bærs samstarfs. Góð stjómun er þegar þetta skarast á skynsamleg- an hátt. Vitaskuld er allur gangur á þessu og er mannlegi þátturinn þar mikilvægastur. Listrænt frelsi í kvikmyndagerð má því engan veginn vega og meta eins og listrænt frelsi listmálarans. Það er óraunhæf krafa i mark- aðsvæddum iðnaði og vinnubrögð eru einnig ört að breytast í styrkjakerfinu. Listamanninum kann að finnast hann svikinn þeg- ar hann sér að aðrir eiga meiri- hluta í kvikmyndinni „hans“ og að „peningamenn“ ráða öllu. Vera- leikinn er hins vegar sá, að þegar góðir stjórnendur hafa búið svo um hnútana að áhætta er dreifð og búast má við eðlilegri sölu hafa meirihlutahluthafar oft ekki áhuga eða tíma til að fylgjast með dag- legri vinnslu. Inn í þetta koma bæði undirverktaki og aðrir lista- menn, sem handritshöfundur og leikstjói-i ráða eftir eigin hyggju- viti. Sú ímynd loðir við kvikmynda- iðnað að þar séu listamenn sem ekki fá að njóta sín vegna valds peninganna og fara illa út úr við- skiptum við stóra „kalla“. Það er undantekning og hugsanlega er sú ímynd tilkomin vegna þess mann- lega eiginleika fólks að spá frekar í það sem illa fer en það sem vel er gert. Og þetta er líka undir lista- manninum sjálfum komið. En þessi ímynd er ekki til þess fallin að laða að nýtt fólki inn í greinina, hvorki viðskiptafræðinga. lögfræðinga né listamenn, sem við hér á Islandi þurfum á að halda ef við ætlum að vera samkeppnishæf. Opinbert fé Islensk kvikmyndagerð hefur starfað í skjóli styi'kja og þarf að tileinka sér breyttar áherslur ef hún ætlar að færa út kvíarnar. Myndir styrktar með opinbera fé era þó nauðsynlegar til að koma kvikmyndagerðai-mönnum á kopp- inn. En iðnvæðing er forsenda fyi'- ir því að Islendingar geti haft meiri forræði yfir myndum sínum sem era framleiddar með erlendum að- ilum, ekki síst listrænt séð eins og umhvei-fið er að þróast. Opinbera fé eb því best varið til hugmynda- og þekkingarvinnu, til þjálfunar og til að laða að nýja starfski-afta til iðnvæðingar. Höfundur er kvikmyndagerðar- niaður. Hvað er iðnvæðing? Einar Þór Gunnlaugsson Stöndum vörð um íslenska kúastofninn AÐ TILHLUTAN Landssambands kúa- bænda var í nóvember 1997 gerð skoðana- könnun meðal kúa- bænda um hvort heim- ila skyldi Bændasam- tökum íslands og Landssambandi kúa- bænda að sækja um leyfi fyrir innflutningi á erfðaefni til kynbóta á íslenska kúastofnin- um. Talsmenn tillög- unnar fóra út í öll hér- uð landsins með funda- höld til að kynna málið fyrir bændum. Þar var rekinn stífur áróður fyrir þessari hugmynd því engir frammælendur komu á þá fundi til þess að kynna gagnstæð sjónarmið. Þrátt fyrir það var tillögum um inn- flutningsleyfi á þessu erfðaefni hafnað með talsverðum atkvæða- mun. Mál þetta var svo lagt fyrir Bún- aðarþing. Þar var það samþykkt með litlum atkvæðamun og tel ég að með þessari samþykkt hafi meirihluti Búnaðarþings misnotað vald sitt með því að ómerkja þá skoðanakönnun sem Landssam- band kúabænda stóð fyrir. Friðjón Guðmundsson Nú getur hæglega bragðið til beggja vona um úrslit í þessu máli. En sem betur fer era ekki öll sund lokuð. Nýlega hefur komið fram sterk og skýlaus andstaða gegn inn- flutningsleyfi á erfða- efni í mjólkurkýr. Ber fyrst að nefna þrjá val- inkunna menn sem hafa víðtæka þekkingu og reynslu á þessu sviði, en þeir era Stef- án Aðalsteinsson, fyrr- verandi framkvæmda- stjóri Norræna gena- bankans, Sigurður Sig- urðarson, dýralæknir Keldum, og Ólafur Ólafsson, fyrrverandi land- læknir. Þessir ágætu menn skrifa grein í Morgunblaðið 27. febr. sl. og vara sterklega við innflutningi af ýmsum ástæðum, en sérstaklega vegna sjúkdómahættunnar. Mjólk- in úr íslensku kúnum sé betri og heilsusamlegri en úr þeim norsku og að íslenski kúastofninn sé meira virði en svo að réttlætanlegt sé að fóma honum og láta hann hverfa. Sigurður brýnir menn til and- stöðu og þá vil ég benda á skelegga grein Katrínar Andrésdóttur dýra- læknis og undirskriftir 213 bænda í Morgunblaðinu og Degi í mars sl. Þessar ábendingar og vamaðar- orð ber að þakka. Það er ekkert einkamál þessara Búnaðai'þings- fulltrúa sem óvirtu skoðanakönnun meðal bænda að taka bindandi ákvarðanir í þessu máli og halda þeim til streitu gegn eindreginni andstöðu þremenninganna sem hafa til að bera faglega þekkingu og reynslu sem treysta má. Og þetta er auðvitað í innsta eðli mál íslensku þjóðarinnar allrar. Norsku kýmar sem horft er til era væntanlega komnar á toppinn í afurðagetunni. Þær era píndar til ýtrastu afurða með gríðarlegri Kúakyn Stofninn er íslenskt fyrirbæri, segir Friðjón Guðmundsson, frábær og ómetanleg eign sem ekki á sér hliðstæðu í öðrum löndum. kjamfóðurgjöf og endingin er svo lítil að sagt er að þær séu ekki látn- ar eiga nema tvo kálfa. Þá er lík- legt að þær fari að úrkynjast úr þessu. Hins vegar era íslensku kýrnar alltaf að bæta við sig afurðum og með markvissum kynbótum er nyög líklegt að stofninn muni innan 15 ára skila mun meiri afurðum og muni ái'eiðanlega standa fyrii' sínu. Islenski kúastofninn er hreinn og óblandaður stofn. Hann er merkilegur fyrir það að hann hefur verið ræktaður í landinu í meira en ellefu aldir. Stofninn er því alveg einstaklega íslenskt fyrirbæri, frá- bær og ómetanleg eign sem ekki á sér hliðstæðu í öðrum löndum. Það væri því mikið glapræði, siðleysi og þjóðarskömm ef kúnum væri kastað fyrir borð. Eitt stórt og mikið slys sem ekki yrði bætt. Sök- um þess beini ég þeirri áskorun til íslenskra bænda, til starfsmanna kynbóta á íslenskum kúm, til þeirra sérfróðu manna sem hér að framan hafa verið nefndir og til ís- lenskra stjórnvalda að standa vörð og koma í veg fyrir þau óhappa- verk að flytja inn erfðaefni sem gæti leitt til þess að velta íslenska kúastofninum úr ellefu alda sessi fyrir fullt og allt. Slíkt má ekki ger- ast. „Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur.“ Höfundur er bóndi á Sandi, Aðaldal. Það er hugsjón í matinn, elskan í FRÉTTUM Stöðv- ar tvö í síðustu viku var sýnt frá opnun nýrrar líknardeildar fyrir deyjandi krabbameins- sjúklinga. f opnunar- ræðu sinni sagði ræðu- maður nokkur orð sem vöktu mig til umhugs- unar. Sagði hann að sú eiginhagsmunahyggja, hjá heilbrigðisstarfs- mönnum, sem lýsti sér í sífelldum kröfum um meira handa sjálfum sér, væri eitthvað sem þeir þyftu að taka til endurskoðunar. Þessi hugsun er reyndar ekki óþekkt, því allt frá því að Florence Nightingale gekk um með Iampann margfræga, hefur það verið skoðun margra að hjúkrunarstörf ættu að vera hugsjónarstörf. Að vissu leyti er ég þessu sammála, hjúkran er Launakjör / Eg er orðin þreytt á því, segir Elín B. Birg- isdóttir, að heyra verð- andi starfsfélaga mína kallaða frekjur þegar þeir biðja um mann- sæmandi laun. hugsjón og enginn getur starfað við hana nema að hafa í sér hugsjón. En hér þarf meira að koma til. Allir hjúkranarfræðingar gera sér grein fyrir þeirri ábyrgð sem þeir bera gagnvart skjólstæðingum sínum og í raun lyfta þeir grettistaki þegar kemur að því að efla lífsgæði og vellíðan sjúklinga sinna. En þó hlýt- ur sú ábyrgð sem þeir bera gagn- vart þeim börnum sem Guð hefur gefið þeim, að vega meira. Það er framskylda allra for- eldra að fæða og klæða börn sín og veita þeim tækifæri til menntunar og annarra mannrétt- inda. Það verður ekki gert með hugsjónina eina að vopni. Ef hjúkranarfræðingar þurfa stöðugt að vera að hafa áhyggjur af því hvort hægt verði að gefa börnunum eitt- hvað að borða í kvöld eða hvort hægt sé að kaupa blýant og strokleður fyrir þau í skólann, er hætt við að hugurinn verði oftar heima en í vinnunni. Þeir sem til þekkja vita að þegar unnið er með mannslíf, getur slíkt haft alvarlegar afleiðingar. Það er í sjálfu sér alveg nógu mikið álag á börnin að verða að vera án foreldris síns um jól, páska og aðra hátíðisdaga þegar aðrir eiga frí, þó að þau hafi eitt- hvað að borða yfir hátíðirnar. Það hefur verið farið stórum orðum um þær háu prósentutöluhækkanir sem hjúkrunarfræðingar hafa fengið á launum undanfarið. En slíkt er í raun bara Ieikur að orðum, því það þarf ekki mikinn stærðfræðing til að sjá að há prósenta af litlu er enn- þá lítið. Meðan hægt er að borga bankastjóram fleiri hundruð þús- und fyrir það eitt að hætta í vinn- unni, hlýtur að vera hægt að borga hjúkrunarfræðingum fyrir að vera í vinnunni. Ég sem hjúkrunarfræði- nemi er því orðin heldur þreytt á því að heyra verðandi starfsfélaga mína kallaða frekjm- þegar þeir biðja um mannsæmandi laun fyrir störf sín, þannig að þeir þurfi ekki lengur að hafa fyrirvinnu til að geta stundað þau. Það er ekki lengur hægt að ætlast til að þeir segi við börnin sín: Það er hugsjón í matinn, elskan. Hiil'undur er nemi í hjúkninnrfrætli við Háskóln íslnnds. Elin B. Birgisdóttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.