Morgunblaðið - 16.05.1999, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 16.05.1999, Blaðsíða 6
6 SUNNUDAGUR 16. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Reuters ISRAELSKUR óeinkennisklæddur hermaður bíður eftir strætisvagni í skýli er þakið hefur verið með veggspjöldum þar sem kjósendur eru hvattir til að kjósa Ehud Barak, leiðtoga Verkamannaflokksins. Kosningar fara fram í fsrael á mánudag Aukin áhersla á ímynd leiðtoga ✓ Israelar ganga að kjörborðinu eftir helgi og ekki er talið útilokað að úrslit í kosn- ingum um forsætisráðherraembættið ráðist strax í fyrri umferðinni. Sigrún Birna Birnisdóttir er í Israel og fylgist með kosningunum. OVENJU lítið hefur farið fyrir ísrael í heimsfrétt- unum að undanfömu enda má segja að landið hafl verið í hálfgerðri biðstöðu frá því ákveðið var að ganga til kosn- inga. Þá virðast Israelar sammála um að óvenju h'tið hafi farið fyrir kosningabaráttunni að þessu sinni þótt aðrir færi rök fyrir því að lá- deyðuna megi einmitt rekja til yf- irvofandi kosninga. Þannig hafi stjómvöld t.d. sýnt óvenjumikið langlundargeð í Líbanon að und- anfömu enda hafi þau ekki efni á að taka þar neina áhættu þar sem herseta Israela í Suður-Líbanon verði sífellt umdeildari heima fyr- ir. Þá hafi Vesturveldin tekið óbeinan þátt í kosningabaráttunni t.d. með því að leggja að Palest- ínumönnum að fresta því að lýsa yfir sjálfstæðu ríki og Palestínu- menn haft hugsanleg áhrif þess á kosningaúrslitin í huga er þeir gengu að því. A undanfómum ámm hefur það orðið æ meira áberandi í ísraelsk- um stjómmálum að kjósendur leggi áherslu á menn ekki síður en málefni er þeir ganga til kosninga. Þótt gömlu flokkamir tveir eigi enn sína dyggu stuðningsmenn og að í bakgrunninum megi alltaf greina hefðbundið fylgi ákveðinna þjóðfélagshópa við ákveðna flokka og afstöðu flokkanna til friðarferl- isins við Palestínumenn, hefur ímynd leiðtoga viðkomandi flokka verið að fá sífellt meira vægi með- al meginþorra kjósenda. Þannig hafa friðarviðræður við Sýriendinga, brottflutningur her- sveita frá Líbanon og framtíð landnemabyggða gyðinga á Vest- urbakkanum varla komið upp á yf- irborðið í þessari kosningabar- áttu. Hermennsku- og hetjuímynd Ehud Baraks, leiðtoga Verka- mannaflokksins, hefur á hinn bóg- inn gegnt ríku hlutverki í árang- ursríkri kosningabaráttu hans á sama tíma og fjölmargir dyggir stuðningsmenn Likudbandalags- ins hafa verið að snúa við því baki þar sem þeir fella sig ekki við ímynd leiðtoga þess, Benjamins Netanyahus, og telja sig ekki geta treyst honum. Frambjóðendur varkárir í trú sinni á skoðanakannanir Samkvæmt kosningalögum er forsætisráðherra landsins kosinn sérstakri kosningu og verður ein- hver frambjóðenda að hljóta 50% greiddra atkvæða til að ná kjöri. Þrátt fyrir að fimm frambjóðend- ur séu í kjöri til forsætisráðherra- embættisins er ljóst að slagurinn mun standa milli frambjóðenda hinna hefðbundnu hægri og vinstri flokka, Likud-bandalagsins og Verkamannaflokksins. Síðustu daga hafa menn því verið að velta því fyrir sér hvort einhver hinna fimm frambjóðenda muni draga framboð sitt til baka til þess að auka líkumar á því að úrslit ráðist strax á mánudag. Þá hafa menn jafnvel gert því skóna að úrslit í forsætisráðherrakjörinu muni hugsanlega ráðast í fyrri umferð kosninganna jafhvel þótt enginn frambjóðendanna dragi sig í hlé. Samkvæmt skoðanakönnunum hefur Ehud Barak verið að auka forskot sitt á Benjamin Netanya- hu forsætisráðherra. Stuðnings- menn beggja frambjóðenda hafa þó tekið niðurstöðum skoðana- kannana af varkámi enda ekki nema þrjú ár frá því Netanyahu vann óvæntan sigur á Shimon Peres, þáverandi formanni Verka- mannaflokksins, þvert ofan i allar skoðanakannanir og kosninga- spár. Þá virðast fulltrúar beggja fylkinga gera ráð fyrir því að úr- sht geti orðið allt önnur en skoð- anakannanir sýna ráðist þau ekki fyrr en í annarri umferð kosning- anna. Samkvæmt skoðanakönnun sem birt var í Jerusalem Post á föstu- dag nýtur Barak nú 45% fylgis en Netanyahu 39% fylgis. Barak fengi hins vegar 50% atkvæða og Netanyahu 43% væri einungis kosið milli þeirra tveggja nú. Stuðningsmenn Netanyahus von- ast hins vegar til þess að geta snú- ið stöðunni við áður en gengið verður til annarrar umferðar og stuðningsmenn Baraks óttast að þeim muni takast það. Aukið fylgi Baraks er einna helst talið koma frá rússneskum innflytjendum, nýjum kjósendum og stuðningsmönnum Miðju- flokksins. Þá hafa kommúnista- flokkurinn, Hadash, og arabaflokkurinn, UAL, hvatt kjós- endur sína til þess að kjósa Barak. Stuðningsmenn Þjóðareiningar- flokksins, harðlínuflokks Benny Begins, em hins vegar í auknum mæh sagðir vera að snúa sér til Netanyahus, enda stóð flokkurinn aldrei sameinaður að framboði Begins þótt hann væri leiðtogi flokksins. Netanyahu nýtur einnig stuðnings eins af fjórum flokkum rússneskra innflytjenda og tveggja helstu flokka heittrúaðra þrátt fyrir að stuðningsmenn Baraks hafi reynt að semja við þá um að þeir tækju ekki opinbera afstöðu til frambjóðenda. Ráðast úrslit í fyrstu umferð kosninganna? Auk Netanyahus og Baraks eru arabinn Azmi Bishara og tveir fyrrum ráðherrar í ríkisstjóm Netanyahus í kjöri. Þessir fyrr- verandi samherjar Netanyahus eru annars vegar Za’ev Benny Begin, sonur Menachems Begins fyrrum forsætisráðherra, og hins vegar Yitzhak Mordechai, sem leiðir Miðjuflokkinn, sem talinn er standa nær Verkamannaflokkn- um. Þar sem meiri líkur eru taldar á sigri Baraks ráðist úrslitin í fyrri umferð hafa Bishara og Mor- dechai verið undir sívaxandi þrýstingi að draga sig í hlé og auka þannig líkumar á því að úr- sht ráðist strax. Þrýstingur á Mordechai hefur verið sérstaklega mikill enda byggði hann kosninga- baráttu sína lengi framan af á nauðsyn þess að koma Netanyahu frá völdum. Þannig er hann nú sagður vera undir miklum þrýst- ingi frá þeim Dan Meridor og Ronni Milo, sem auk Mordechais og Amnon Lipkin Shahaks skipa framvarðasveit Miðjuflokksins. Mordechai hefur hins vegar þrjóskast við og er jafnvel sagður hafa heitið því að hætta í stjóm- málum verði hann að draga fram- boð sitt til baka. Töluverðar líkur em hins vegar taldar á því að Bishra, sem hefur minnst fylgi frambjóðenda sam- kvæmt skoðanakönnunum, dragi framboð sitt til baka nú um helg- ina og að það komi af stað keðju- verkun sem leiði til þess að Begin og Mordechai dragi sig einnig í hlé á síðustu stundu. Þannig hefur Begin þegar gefið í skyn að hann muni draga sig í hlé geri Bishra það og Ijóst er að þá mun verða erfitt fyrir Mordechai, sem hefur lagt áherslu á mikilvægi þess að koma Netanyahu frá völdum, að hætta á að hann sigri í síðari um- ferð kosninganna. Finnur þú ódýrari fargjöld í sumar? Ta " London Kaupmannahöfn Madrid Gautaborg Berlín SÍÓ10 Verö frá 19.880 kr. til London Samvinnuferðir Landsýn A verði fyrir þigl Carlo Azeglio Ciampi kjörinn forseti Italíu í fyrstu atrennu Kerfisumbætur brvnar Róm. Reuters. CARLO Azeglio Ciampi var á fimmtudag kjörinn 10. forseti ítal- íu. Lét hann þá af embætti sem fjármálaráðherra en við því tók Gi- uliano Amato, fyrrverandi for- sætisráðherra. Gekk þetta allt fyrir sig á einum degi og þykir það vel að verki verið þegar ítalska þingið er annars vegar. Ciampi er 78 ára að aldri og nýtur almennrar virðingar utanlands sem innan fyr- ir að hafa komið Ítalíu inn í Mynt- bandalag Evrópu. Fékk hann strax nauðsynlegan stuðning, meira en tvo þriðju atkvæða, og nokkrum tímum síðar hafði Massimo D’Alema, forsætisráðherra Ítalíu, skipað Amato, fyrrverandi forsæt- isráðherra úr röðum sósíalista, sem fjármálaráðherra. Hefur hann get- ið sér orð fyrir aðhaldssemi í ríkis- fjármálunum. Ciampi var seðlabankastjóri á árunum 1979 til 1993 og var al- menn samstaða um, að sem forseti gæti hann manna best hjálpað til við þær umbætur, sem taldar eru nauðsynlegar í ítalska stjórnkerf- inu. Stingur kosning hans mjög í stúf við kjör Oscars Luigi Scalfaros, núverandi forseta, fyrir sjö árum en þá hafðist það ekki fyrr en eftir alls kyns hrossakaup í tvær vikur og 16 atkvæðagreiðsl- ur. Bill Clinton Bandaríkjaforseti og Jacques Santer, forseti fram- kvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins, óskuðu Ciampi til ham- ingju með kjörið en hann er þriðji forsetinn á Italíu, sem kjörinn er í fyrstu atkvæðagreiðslu. Það er í hans verkahring að rjúfa þing, boða til kosninga og skipa forsæt- isráðherra en það hefur verið annasamt starf á Ítalíu þar sem setið hafa 56 ríkisstjórnir frá 1945. Amato, sem nú hefur tekið við fjármálaráðherraembættinu, var forsætisráðherra 1992-’93. Tókst honum þá að fá verkalýðsfélögin til að afsala sér ýmsum hlunnindum og hann varð fyrstur til að ráðast gegn þenslunni í opinberum út- gjöldum. Sem fjármálaráðherra fær hann við ærinn vanda að etja enda er haft eftir Ciampi, að ástandið í ítölskum efnahagsmál- um sé mikið áhyggjuefni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.