Morgunblaðið - 10.10.1999, Síða 1
STOFNAÐ 1913
230. TBL. 87. ÁRG. SUNNUDAGUR10. OKTÓBER1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Leggur fram friðar-
áætlun í þremur liðum
Dili, Brisbane. AFP, Reuter.
PETER COSGROVE, yfírmaður alþjóðlega friðargæsluliðsins á A-Tímor,
lagði í gær fram áætlun í þremur liðum um hvernig koma megi á friði á
eyjunni. Að sögn Cosgroves verður vígasveitum hliðhollum Indónesíu-
stjórn boðið að taka þátt í framkvæmd áætlunarinnar.
Hillary Clinton heimilt að taka við
auknum framlögum í kosningasjóð
Ekki komin til að
lýsa yfír framboði
Nærfata-
þjófur
nappaður
The Daily Telegraph.
BÍRÆFNUM breskum nærfata-
þjófi, sem hafði stolið undirfötum
sem samtals myndu kosta nær
sex miiijónir ísl. kr., var nýlega
gert að ieita aðstoðar geðlæknis,
eftir að hann var dæmdur í ann-
að sinn fyrir vafasama iðju sína.
Hinn 38 ára gamli Nadarajah
Jeyakumar var fyrst staðinn að
verki á siðasta ári, er nokkrar
konur, sem höfðu ítrekað orðið
fyrir því að undirfötum þeirra
væri stolið, egndu gildru fyrir
þjófínn. Hengdu þær bijóstahöld
og nærbuxur á þvottasnúru í
garði einnar þeirra og lágu í
leyni og fylgdust með er nærfata-
þjófurinn lét til skarar skríða.
Létu þær svo gamian lögregiu-
hund þefa þijótinn uppi og kró-
uðu hann af í lokuðum garði.
Breska lögreglan fann í kjöl-
farið marga sekki fuiia af nær-
buxum á heimili Jeyakumars í
norðvesturhluta Lundúna og
hlaut hann skilorðsbundinn fang-
elsisdóm fyrir þjófnað. Hann lét
sér þó ekki segjast, því nokkrum
dögum síðar var hann gómaður
við nærfataþjófnað á ný. Lög-
reglumenn fundu þá ellefu nýja
sekki fulla af undirfötum á heim-
ili Jeyakumars, sem neitaði því
að hann hefði gerst brotlegur við
lög, og fullyrti að gamlar kærust-
ur hefðu skilið nærfötin eftir.
---------------
Segjast hafa
fellt 100
rússneska
hermenn
Grosní. AFP.
AÐ MINNSTA kosti 100 rússnesk-
ir hermenn hafa fallið í átökum við
tjetsjneska uppreisnarmenn ná-
lægt borginni Chervilionnaya-
Uzlovaya á laugardag, að því er yf-
irvöld í Tjetsjníu herma. „Tjet-
sjneskar hersveith-, undir stjóm el-
Khattab ofursta, hafa náð aftur
tveimur þriðju borgarinnar á sitt
vald úr höndum Rússa,“ sögðu
embættismenn úr starfsliði forseta
Tjetsjníu í gær. Þeir fullyrtu að
einungis þrír Tjetsjníumenn hefðu
særst í átökunum, þar af einn al-
varlega. Borgin Chervilionnaya-
Uzlovaya stendur um 50 km norð-
austur af höfuðborginni Grosní.
HILLARY Clinton er ekki hér á
landi til að lýsa yfir framboði til öld-
ungadeildar Bandaríkjaþings að
sögn Eileen Parise, talsmanns
hennar. Starfsmenn Clinton sögðu á
fostudag að hún hefði skilað inn
skjölum til bandarísku kjörstjórnar-
innar, sem gera henni kleift að
herða róðurinn í söfnun kosninga-
framlaga, en jafngilda þó ekki form-
legu framboði. í fyrradag var hermt
að hún hygðist lýsa yfir framboði á
Þingvöllum.
„Hillary Clinton er ekki hingað
komin til að lýsa yfir framboði í
New York,“ sagði Parise í samtali
við Morgunblaðið í gær. „Hún er
hingað komin vegna ráðstefnunnar
um konur og lýðræði."
Clinton má nú taka við tvö þús-
und dollara (140 þúsunda króna)
framlögum í stað þúsund dollara (70
þúsunda króna). Hún hefur undan-
farið verið að kanna hvort grund-
völlur sé fyrir því að sækjast eftir
sæti öldungadeildarþingmannsins
Daniels Patricks Moynihans, sem
hyggst setjast í helgan stein, í kosn-
ingunum í nóvember á næsta ári.
Til þess hefur verið tekið að ekki
eru margir blaðamenn frá Banda-
ríkjunum með forsetafrúnni í för
hér á landi og samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins reynir starfslið
hennar að sjá til þess að ekki fari of
mikið fyrir henni í Evrópuferðinni,
sem lýkur hér á íslandi á morgun,
tO að koma í veg fyrir að hún verði
gagnrýnd fyrir að nota almannafé
tO að koma sér í fjölmiðla og styrkja
stöðu sína gagnvart kjósendum í
New York. Repúblikanar gagn-
rýndu HOlary Clinton á föstudag
fyrir að skila inn „tOkynningu um
framboð" á meðan hún væri á ferða-
lagi um Evrópu.
Samkvæmt áætluninni verður að-
Oum gert að leggja niður vopn í
áföngum og á sama tíma verður full-
trúum þeirra hópa sem leggja niður
vopn boðið að hafa áhrif á pólitíska
framtíð A-Tímor. „Þriðja stoð áætl-
unarinnar felur í sér tOraunir tO að
sætta þá hópa sem hér hafa de0t,“
sagði Cosgrove við fréttamenn í höf-
uðborginni DOi í gær.
Hann bætti við að vígasveitum
stæði tO boða að taka fullan þátt í
friðaráætluninni en viðræður yrðu
hafnar jafnvel þótt þær höfnuðu
þátttöku. „Eg vOjum að allir hópar
eigi aðOd að viðræðunum en ég hef
ekki efni á að halda að mér höndum
fari svo að einn hópur kjósi fremur
að láta vopnin tala en setjast að
samningaborði." Cosgrove hefur
þegar beðið her Indónesíu um að-
stoð við að koma á fundi með for-
ingjum vígasveitanna en sagði að
enn hefði ekki borist svar við þeirri
beiðni.
Ástralar ráðgera að halda fund
með þeim ríkjum sem sent hafa frið-
argæsluliða tU A-Tímors til að fara
yfir stöðu mála á eyjunni. Talið er
að fundur af þessu tagi muni geta
aukið enn á gremju stjómvalda í
Jakarta, sem hafa reiðst vegna þess
að Astralar gegna forystuhlutverki í
friðargæsluliðinu. Indónesum hefur
ekki verið boðið að sitja fundinn.
Indónesar hafa sakað Astrala um
að gera of mikið úr ástandinu á A-
Tímor og á föstudag var haft eftir
utanríkisráðherra Indónesíu að
samband landanna hefði aldrei verið
stirðara.
Fleiri lík
finnast
HERMENN úr Mexíkóher og
hjálparstarfsmenn á vegum Rauða
krossins hjáipast að við að grafa
lík úr aurskriðu í Teziutlan-héraði
í Puebla-íylki í Mexíkó. Skortur á
matvælum og hreinu vatni er
þegar farinn að gera vart við sig á
þeim svæðum sem verst hafa orðið
úti í flóðunum undanfarna daga.
Nú er tala þeirra sem fundist hafa
látnir komin upp í 293 og búast
hjálparstarfsmenn við að fínna
fleiri næstu daga.
Jeltsín á
spítala
Moskvu. AP, AFP.
BORÍS Jeltsín Rússlandsfor-
seti var á laugardagsmorgun
lagður inn á spítala. Talsmaður
Jeltsíns sagði forsetann vera
með inflúensu og háan hita.
Jeltsín, sem er 68 ára gam-
all, gekkst undir umfangsmik-
inn hjartauppskurð í nóvem-
ber 1996, og hefur síðan marg-
sinnis veikst alvarlega, meðal
annars af lungnabólgu og
flensu. Síðast var hann lagður
inn á spítala í febrúar á þessu
ári með magasár.
Stjórnarandstæðingar hafa
ítrekað krafist þess að forset-
inn segi af sér vegna heilsu-
brests en hann hefur sjálfur
lýst því yfir að hann sé nægi-
lega hraustur til að sitja út
kjörtímabilið, en því lýkur á
næsta ári.