Morgunblaðið - 10.10.1999, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 10.10.1999, Blaðsíða 50
. 50 SUNNUDAGUR 10. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ I Heklugos Ami Sæberg Brú yfír efans haf Eldgos, hafís, jarðskjálftar, ofanflóð og vá- lynd veður eru hluti af íslenzkum veruleika. Stefán Friðbjarnarson skrifar um land elds og ísa og „bifröst lífsins yfír efans svartahaf‘. Hver á sér fegra föóurland með fjðll og dal og bláan sand, með norðurljósa bjarmaband og björk og lind í hlíð. Með friðsæl býli, ljós og ljóð, svo langt frá heimsins vígaslóð. Geym, Drottinn, okkar dýra land erduna jarðarstrið. (Skáldkonan Hulda á stofnári íslenzks lýðveldis, 1944.) Séð með íslenzkum augum er landið okkar fegurra en öll önn- ur. Ófáir útlendingar eru á sama máli. Fegurð Fjallkonunnar var og kveikjan að fjölmörgum ætt- jarðarljóðum, sem kynslóðir lærðu og sungu af tiifinningu. Megi svo verða um ókomna tíð. En land elds og ísa á sér einnig aðra hlið og neikvæðari: Eldgos, hafís, jarðskjálfta, ofanflóð (aur- skriður og snjófljóð) og illviðri, sem heyra til norðurslóðum. Eggert Ólafsson og Bjami Pálsson ferðuðust um flest hér- uð íslands árin 1752 til 1757. Ferðasaga þeirra, sem kom fyrst út í Sórey í Danmörku árið 1772 en síðast í vandaðri útgáfu Arnar og Örlygs hf. árið 1975, geymir hafsjó af fróðleik um landið og fyrri tíð. 11. október árið 1755 vóru þeir félagar staddir á Höfðaströnd í Skaga- firði. Þá reið yfir jarðskjálfti, sem „hristi allt Norðurland", segir í bók þeirra. Gluggum að- eins í þá frásögn: „I Fljótum féllu nokkrir ríð- andi menn af hestum - í Flatey eyddust 4 bæir... Hreyfing skjálftans gekk frá austri til vesturs í hafinu fyrir utan land- ið. Tók hún síðan fyrst nesin, en barst síðan inn í landið. Menn veittu þessu bezt athygli í Siglu- firði. Fjörðurinn er mjór, en há og brött fjöll á báðar hliðar. Presturinn þar var um þetta leyti á ferð á báti yfir fjörðinn. Hann var í miðjum firðinum er hann heyrði háan hvin, líkt og hvirfilvindur færi yfir. Báturinn stöðvaðist skyndilega, og var sem öldumar þjöppuðu honum saman frá báðum hliðum og þrýstu honum lítið eitt niður. Þá sér prestur reykjarmökkinn standa upp frá yztu fjallatöng- um og hreyfast síðan ásamt skriðuhruninu inn eftir hlíðun- um, allt inn í botn ... I Grímsey urðu hræringamar svo ákafar, að hús skemmdust, en mikið hrandi úr björgum...“ „Hin hliðin" á Fjallkonunni hefur minnt á sig á öilum öldum byggðar í landinu, stundum með sorglegum hætti. Tínum til örfá dæmi af fjölmörgum úr þjóðar- sögunni. Arið 1896 dundu fyrir- varalítið yfir Suðurlandsundir- lendið ógurlegir jarðskjálftar, sem ollu stórtjóni. Árið 1910 far- ast tuttugu manns í snjóflóði í Hnífsdal. Árið 1919 fórast átján manns í snjóflóðum í og við Siglufjörð. Árið 1906 fórastu tuttugu menn er þilskip strand- aði í ofsaveðri á Viðeyjarsundi. Árið 1908 fórust tólf menn í lendingu við Stokkseyri. Sjálft fullveldisárið, 1918, gaus Katla og olii stórskaða. Þetta sama ár teppti hafís siglingar fyrir Norð- uriandi, Vestfjörðum og Aust- fjörðum. Frosthörkur vóru svo miklar í janúar 1918 að Kolla- fjörður varð ein íshella og gengt var til Engeyjar og Viðeyjar. Fátt eitt er nefnt af fjölmörgu, sem hægt væri að tína til, um „hina hliðina" á heimaslóðum Is- lendinga. Með nútíma tækni og þekkingu eram við að vísu betur undir það búin en fyrri tíðar kyn- slóðir að mæta náttúrahamför- um, Guði sé lof. Tæknin og þekk- ingin nægja okkur hins vegar hvergi nærri til að ráða við eld- gos, haíis, jarðskjálfta eða veður- far. Við eram allt að því ber- skjölduð gegn margs konar nátt- úravá, er yfir getur dunið. Og þó. Brjóstvöm kristins manns er vonin og trúin. Grímur skáld Thomsen á Bessastöðum komst svo að orði um þá öraggu vörn: Þeir vita það, sem tala mest um trúna, að trú er von, og sá sem hana gaf, hann gaf oss bifrðst lífsins, léttu brúna, sem liggur yfir efans svarta haf, gaf hægindið oss hugan fyrir lúna, í háikum þankans traustan göngustaf: Og því er hver einn bezt til ferða búin, ef bilar hann ei vonin eða trúin. í DAG VELVAKAJ\PI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Samkynhneigðir Á FIMMTUDAGINN las ég grein í Morgunblaðinu, „Lækning fyrir samkyn- hneigða" eftir Steingrím Ómar Lúðvíksson. Stein- grímur bendir á að hommagenið hafi aldrei fundist þrátt fyrir tals- verðar rannsóknir. Þá spyr ég: Hefur fundist það gen sem gerir fólk örvhent? Mér finnst óskaplega sorg- iegt að fóik eigi að breyta lífsstíl sínum og þá að búa með einhverjum í ástlausu sambandi til þess eins að þóknast fólki eins og hon- um. Hann talar nefnilega um að margir hafi læknast eftir meðferð doktors Jos- ephs Nicolosi sem hann kallar „reparative ther- apy“. Ætlar Steingrímur þá ekki að stofna skóla til að lækna örvhenta til þess að þeir geti lært að skrifa eins og almennt gengur og gerist? Hildur Embla. Orð Jesú skulu standa SVO mælti réttilega sr. Ragnar Fjalar Lárusson, fv. prófastur í yfirheyrslu um heitt mál í útvarpinu nýlega. En það er ekki bara stundum og stundum ekki, sem orð Jesú skulu og eiga að standa. Þau eiga að vera okkur kristnum leiðarljós í einu og öllu í daglegu lífi, sbr. orð sr. Hallgríms Péturssonar í Ps. 7,3: Virtur fv. sóknarprestur í Þjóðkirkjunni vakti ný- lega í ræðu athygli á að máltíð drottins, kvöldmál- tíðin, væri hið sýnilega orð guðs meðal okkar manna eftir upprisu Drottins. Hann sagði við kveðjumál- tíðina við lærisveina sína: „Drekkið allir hér af... Gjörið þetta svo oft sem þér drekkið í mína minn- ingu.“ Og nefndur prestur bætti við: „Svo leyfa prest- ar kirkjunnar sér að víkja hér frá, breyta orðum Jesú, og láta „ídýfingu" nægja, þ.e. ídýfingu brauðsins í vínið nægja. Skulu ekki orð Jesú einnig standa í þessu til- viki: Drekkið, en ekki ídýf- ið? Má bjóða sr. Ragnar Fjalar að tjá sig um þetta atriði og/eða aðra tals- menn þjóðkirkjunnar? Helga R. Ingibjargard., Espigerði 2, Rvík. Bósi er týndur BÓSI er síamsköttur sem týndist frá Auðarstræti 19 fimmtudaginn 29. sept. Hann er ólarlaus og ómerktur. Hann er ógeltur og vanur útivist en tekinn að reskjast og farinn að tapa sjón. Þeir sem hafa séð Bósa eru beðnir að hafa samband í síma 551 6337 eða 869 1382. Morgunblaðið/Ómar Þingstaðahlauparar á leið frá Þingvöllum til Reykjavíkur Víkverji skrifar... VÍKVERJI fór með bifreið sína í skoðun hjá Aðalskoðun hf. á dögunum, sem er svo sem ekki í frá- sögur færandi nema vegna þess að nokkram dögum áður hafði hann farið með sömu bifreið í reglu- bundna 45.000 kílómetra skoðun hjá umboðinu þar sem hann keypti gripinn. Þar virðist allt milli himins og jarðar skoðað, allt frá bremsum og ljósum til þess hvort bíllinn mengi of mikið. Fyrir þetta greiddi Víkverji rúmar 18.000 krónur. Aðalskoðun hf. greiddi Víkverji tæpar 3.700 krónur, en af þeirri upphæð rennur reyndar 200 króna umferðaröryggisgjald til Umferðar- ráðs og mengunarmælingagjald er 400 krónur. Víkverja er reyndar ekki kunnugt um hver nýtur góðs af því, en velti því fyrir sér hvort báð- ar þessar skoðanir væru nauðsyn- legar. Er ekki hægt að sameina þetta, þannig að verkstæðin sjái um að skoða bifreiðamar, eða er það kannski hægt án þess að Víkverja sé það kunnugt? xxx VÍKVERJA barst eftii-fai-andi bréf frá vinkonu sinni, sem var ekki hrifin af því hve mikið hún þurfti að greiða fyrir áfengi í milli- landaflugi Flugleiða: „1 miniature, sem inniheldur 50 ml er seldur á 300 kr. um borð. í 11 eru 20 slíkir miniaturar sem þýðir að áfengislítrinn er seldur á 6.000 kr. Lítraflaska af Beefeater gini er seldur á 1.050 í verslun Fríhafnar- innar (sama gin og ég keypti um borð nýlega). I báðum tilvikum toll- frjálst og án virðisaukaskatts en varla selt í Fríhöfninni án viðunandi álagningar. Mig minnir að ég borgi 300 kr. fyrir einn einfaldan (á ís) á veitingahúsi en hef það þó ekki staðfest. (í Atlantica, tímariti Flug- leiða um borð, er sagt að 1 miniat- ure innihaldi 20 cl (200 ml) sem er rangt, á flöskunni sjálfri stendur að í henni séu 50 ml. Um borð era einnig seldar hálfflöskur (pelar) af áfengi sem kosta aðeins 500 kr., hálfur lítri, og er það í samræmi við verð í Fríhöfninni. Ekki má kaupa það til. að drekka um borð, enda ein- ungis selt undir lok ferðar. Þar sem ég þoli illa að vera höfð að féþúfu mun ég varla láta það eft- ir mér að fá mér í litlu tána á ferða- lögum framvegis." XXX ÍKVERJI velti því fyrir sér, þegar hann skaust á Þingvelli síðastliðinn sunnudag, hvort of margir Islendingar væru hættir að kunna eða vilja klæða sig almenni- lega. Ekki er hægt að segja að kalt hafi verið í veðri, en þó var svalt og Víkverji og ferðafélagar hans í peysum og úlpum. Nokkrir þeirra sem hann rakst á voru jafn vel bún- ir en einn og einn gekk um svæðið svo léttklæddur að Víkverji undrað- ist stórlega. Það er ekki skynsamlegt, í landi eins og Islandi, þar sem allra veðra getur verið von að búa sig illa. Nóg er af kvefpestum og öðrum ófögnuði sem herjar á landann ár- lega svo fólk geri beinínis ekki í því að forkælast. Þykir gamla, góða ull- arpeysan ef til vill ekki nógu fín lengur? Eða hefðbundnar úlpur hallærislegar? xxx EFTIR að Víkveiji fór að Þing- völlum ók hann að Nesjavöllum. Þar í kring era miklar vegafram- kvæmdir í gangi, og talsvert mikið eftir af þeim, sýndist Víkverja. Hann undraðist þvi að sjá hvert skiltið af öðra þar sem tilkynnt var að verklok væra fyrirhuguð 1. októ- ber 1999, vegna þess að Víkverji var á ferðinni sunnudaginn 3. október.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.