Morgunblaðið - 10.10.1999, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 10.10.1999, Blaðsíða 34
434 SUNNUDAGUR 10. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ ALÞJÓÐLEGI GEÐHEILBRIGÐISDAGURINN Sérfræðiþekking NÚ í ár er alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn - 10. október - helgað- ur öldruðum. Margt hefur áunnist í geðheil- brigðimálum síðustu ár- in og ber að fagna því. Geðhjálp, sem er fé- lag neytenda og að- standenda þeirra sem átt hafa við geðsjúk- dóma að stríða, hefur eignast glæsilegt hús að Túngötu 7 í Reykja- vík. „Geysir", tilrauna- verkefni á vegum ríkis, bæjar og ýmissa stofn- ana er fætt. Sú starf- semi kemur til með að mynda brú yfir í atvinnulífið, fyrir einstaklinga sem kljást við geðsjúk- dóma. Rauði kross Islands hefur sett á laggirnar athvarfið „Vin“ á Hverfisgötunni og „Dvöl“ í Kópa- voginum en það er samstarfsverk- efni Svæðisskrifstofu, Kópavogs- bæjar og Rauða krossins og er eins árs um þessar mundir. Starfsemin á þessum stöðum er gríðarlega mikilvæg fyrir stóran hóp fólks. Pað er ánægjulegt þegar margir taka höndum saman tii að ýta úr vör nýrri starfsemi. Geðsjúkir hafa fleiri úrræði en nokkurn tíma áður og það vegur þungt á vogarskálum aukinna lífsgæða þeirra. Meðferð geðsjúkra er í stöðugum framförum og þá ekki einungis með betri lyfjum, heldur líka með fag- fólki sem leggur metnað sinn í starfið og tekst að áorka miklu, þrátt fyrir lítið fjármagn og þá miklu manneklu sem einkennt hef- ur starfsemi geðdeildanna. Hér á landi eiga aldraðir með • geðræna sjúkdóma enga sérdeild sem hjálpar þeim að greina þann vanda sem þeir oft standa frammi fyrir eftir að hafa skilað sínu mikil- væga framlagi til samfélagsins. Er- lendis hafa sérdeildir aldraðra ver- ið starfræktar í mörg ár og vel mætti nota uppbygg- ingu þeirra sem fyrir- mynd fyrir fleiri hópa. Þar er sérfræðiþekk- ing í sínu víðasta sam- hengi sameinuð og unnið út frá þeirri for- sendu að nauðsynleg sé bæði þekking á lík- ama og sál, og sam- vinna allra öldrunar- þjónustustofnana. A þessum sérhæfðu deildum er unnið jafnt með geðræna og lík- amlega þætti. Barnaspítalinn er ekki risinn, en þessar tafir á byggingarfram- kvæmdum verða kannski til þess að þarna rísi spítali þar sem með- höndlaðir verða allir þeir sjúkdóm- ar sem hrjá börn. Inni á sjúkrahúsunum er sam- vinna hinna mismunandi starfshópa lykilatriði til að sá sem þarf á þjón- ustunni að halda - neytandinn - fái sem besta þjónustu á sem skemmstum tíma. Til að markmið sjúkrahúsanna nái tilætluðum ár- angri er starfsemi utan þeirra ekki síður mikilvæg. Samvinna stofnana er misjöfn og mætti hlúa betur að henni. Sú þekking sem við búum yf- ir, hér í okkar litla samfélagi, er oft dreifð þannig að kraftar nýtast ekki sem skyldi. Einn þátt vil ég sérstaklega nefna sem oftast gleymist í endur- skoðun á starfsemi heilbrigðisstofn- ananna, en það er sérfræðiþekking neytandans. Hvers vegna er sú reynsla sem einstaklingar hafa áunnið sér í geðheilbrigðiskerfinu ekki virkjuð? Þeirra reynslu ætti að nýta betur til að leiðbeina stjórn- málamönnum hvert eigi að beina fjármagni og á hvað eigi að leggja áherslu í nýsköpun. Stjómendur ættu að hafa að leiðarljósi þessa sérfræðiþekkingu þegar endurmeta á þjónustuna. Einn galli er þó sá á Geðheilbrigðisdagurinn Heilbrigðisþj ónustan þarf ef til vill að finna jafnvægi í áherslum; finna fleiri úrræði, segir Elín Ebba Ásmundsdóttir, t.d. til að hjálpa fólki að njóta elliáranna - ekki aðeins að ná háum aldri. gjöf Njarðar að neytendahópur geð- sjúkra gerir ekki kröfur, m.a. vegna þess að sjálfstraustið er í lágmarki. Fagfólk og aðstandendur hafa orðið málsvarar skjólstæðinganna. En sjálfstraust eykst ekki ef einstak- lingurinn fær ekki sjálfur að láta álit sitt í ljós og nýta ákvörðunar- rétt um eigin þarfir, heldur þarf að sætta sig við gildismat og úmæði annarra. I mörgum löndum hefur sá póll verið tekinn í hæðina að styrkja þennan neytendahóp svo hann geti verið og fái að vera eigin málsvari. Svörin við þeim spurningum sem við blasa, er ekki öll að finna á ein- um stað, né heldur er til eitt ákveð- ið svar við því hvernig best er að haga gerð barnaspítala, stýringu geðheilbrigðismála eða öldranar- þjónustu. Gagnlegt er þó að hlusta með opinn huga, og leyfa þeim sem mestra hagsmuna eiga að gæta, að ieggja sitt til málanna. Heilbrigðisþjónustan þarf ef til vill að finna jafnvægi í áherslum; finna fleiri úrræði t.d. til að hjálpa fólki að njóta elliáranna - ekki að- eins að ná háum aldri. Höfundur er iðjuþjdlfi og forstöðu- maður iðjuþjálfunar geðdeilda Landspítalans. Elín Ebba Ásmundsdóttir „Við erum ekki ein“ í HÁTÚNI 10 hefur klúbburinn Geysir fengið afnot af tveimur litlum herbergjum þar sem við búum okkur undir að opna í Hafnar- stræti 16 sem er hús sem Reykjavíkurborg hefur keypt og munum við deila því með SÍM. Áður en af því getur orðið þarf að gera ein- hverja bragarbót á því en þangað til munum við nota tölvurnar okk- ar þrjár og útbúa nauð- synlegustu pappíra fyr- ir starfsemina. Ætlunin er að fara af stað með RTR (ráðning til reynslu) en það gengur þannig fyrir sig að við í klúbbnum gerum samning við at- vinnurekendur til 6 mánaða í senn, hálfan daginn, og klúbburinn ábyrgist 100% vinnuframlag þann tíma sem ráðning stendur yfir. Ef sá sem vinnur starfið veikist kemur annar í staðinn. Starfsmenn klúbbs- ins eru orðnir tveir, báðir konur. Það hefur komið í ljós að þrátt fyrir hugræn veikindi leynast á meðal okkar nokkrir ágætlega hæf- ir tölvarar ásamt hæfileikafólki á hinum ýmsu sviðum öðrum og hefur flest einhverja reynslu af því að hafa verið úti á vinnumarkaði áður en geðrænir kvillar hröktu það inn- fyrir veggi stofnana og í sumum til- fellum á bak við eigið vonleysi. Sumir félaga klúbbsins vilja reyna fyrir sér á vinnumarkaðnum og verður það eitt af markmiðum klúbbsins að styðja fólk tO þátttöku í samfélaginu, í byrjun með því sem heitir RAÐNING TIL REYNSLU. Aðalmarkmið klúbbsins verður þó að gera sig óþarfan að því leyti að Geysi fólk öðlist nægilegan styrk til sjálfstæðrar atvinnuþátttöku en for- dómar eru staðreynd og það að þegja yfir kvillum sínum til þess að fá vinnu hefur ekki reynst ganga til lang- frama. Það að fá tæki- færi úti á almennum vinnumarkaði með stuðningi gefur sjálfs- traust og sjálfsvirðingu til að halda áfram. Þeir sem ekki treysta sér til að fara tO vinnu geta fengið þörf sinni fyrir athafnir fullnægt í hús- inu en þar er ætlunin að vera með hádegismat á kostnað- arverði og hver kannast ekki við húsverk, viðhald, skrifstofuvinnu, sendiferðir og allt það sem hús- rekstri fylgir? Að takast á við ný viðfangsefni, að reyna sig í mismun- andi störfum innan klúbbsins, gefur tækifæri til vaxtar og þroska ein- staklingsins. Undanfara þeirra umbrota sem nú eru í Geysi má rekja til þess að haustið 1996 fóru tveir iðjuþjálfar til Svíþjóðar og kynntu sér hin ýmsu úrræði sem til greina koma eftir út- skrift af stofnun og varð hugmynda- fræði Fountain House fyrir valinu sem kostur hér á landi. „Við erum ekki ein“, kölluðust þau sem komu þessu af stað úti í New York í kringum 1940 og endum við grein þessa á þeim orðum. Frekari upplýsingar um klúbbinn Geysi má fá í síma 5515166 eða e- maO geysir@centrum.is. Þessi grein er í samantekt Ólafs Jakobssonar með aðstoð félaga og starfsfólks. Umbrot í klúbbnum Ólafur Jakobsson Þannig eruð þið best . SUNNUDAGURINN 10. október er alþjóð- legur geðheilbrigðis- dagur. Segja má að 10. október sé í senn bar- áttudagur fyrir bættum kjörum geðsjúkra og hátíðisdagur þar sem í boði eru ýmsar uppá- komur, málin reifuð og áfangasigrum fagnað. Undanfarin ár hefur margt jákvætt gerst tO hagsbóta fyrir geð- sjúka. Þar er mér efst í huga bætt aðstaða geð- sjúkra utan stofnana með stöðum eins og Vin, Dvöl og Geðhjálp. Þó ber að varast að starfsemi þess- ara staða sé of einsleit, því markmið- ið hlýtur að vera að auka fjölbreytni notendanna, þar sem þarfir og bak- grunnur geðsjúkra er æði misjafn. Með auknum tilboðum og tækifær- um aukum við lífsgæði geðsjúkra og af því leiðir sjálfkrafa að endurinn- lögnum fækkar þannig að þjóðfé- lagslegur sparnaður er einnig mikill. En hver eiga næstu skref að vera? Að mínu mati er það einkum tvennt, bætt aðstaða til menntunar og átak til aukinnar atvinnuþátttöku og vinnuþjálfunar. Nú nýverið var stofnaður vinnuklúbb- urinn Geysir sem hefur það hlutverk að undir- búa og virkja geðsjúka á hinum almenna vinnu- markaði. Segja má að með stofnun Geysis sé farið inn á nýja braut og vonandi verða fleiri skref tekin í þessa átt á næstu árum. Við ykkur sem eigið við geðræn vandamál að stríða vil ég segja: Verið bjartsýn, það horfir ýmislegt til betri vegar. Verið sátt við ykkur eins og þið eruð og lifið á eigin forsend- Geðheilbrigði Verið bjartsýn, segir Ægir Magnússon, það horfir ýmislegt til betri vegar. um. Þannig eruð þið best, þannig eruð þið frábær. Höfundur starfar i Vin, athvarfi fyrir geðsjúka. Ægir Magnússon Eru rimlagardínurnar óhrcinar! ViJ hretnsum: Rimla, strimla, plíseruð og sólargluggatjöld. Setjum afrafmagnandi bónhúð. Sækjum og sendum ef óskaö er. Jf * Nýi° L tækmbreinsunin Sólheimar 35 • Sími; 533 3634 • OSM: 897 3634 Geðheilbrigði aldraðra í DAG, 10. október, er alþjóðlegi geðheil- brigðisdagurinn hald- inn hátíðlejgur um all- an heim. Akveðið hef- ur verið að beina sjón- um sérstaklega að geðsjúkdómum aldr- aðra. Oft áttar fólk sig ekki á því hve geðsjúk- dómar eru algengir hjá öldruðum. Þeir geðsjúkdómar sem helst hrjá þennan ald- urshóp eru þunglyndi og heilabilun af ýmsu tagi. Hallgrímur Magn- ússon geðlæknir, sem starfar nú sem heilsugæslulæknir í Grundar- firði skrifaði fyrir nokkrum árum doktorsritgerð um algengi og ný- gengi geðsjúkdóma hjá Islending- um sem voru á aldrinum 85-87 ára. Sú rannsókn er þekkt víða um heim. Aðrir íslenskir geðlæknar hafa tekið þátt í viðamiklum rann- sóknum á geðheilsu aldraðra á er- lendri grund. Hér á landi er því Aðsendar greinar á Netinu vg> mbl.is _4UWF eiTTHV'AÐ HÝTT fyrir hendi mikil þekk- ing á geðsjúkdómum aldraðra, en flestir sem koma nálægt þessum málum eru sammála um að bæta þarf þjónustuna fyrir þennan hóp. Hvað er til ráða? Ingibjörg Pálma- dóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráð- herra skipaði hinn 20. febrúar 1997 starfs- hóp, til að vinna að stefnumótun í málefn- um geðsjúkra. Hópur- inn skilaði ítarlegri skýslu til ráðherra hinn 10. október 1998, eða fyrir réttu ári. Starfshóp- urinn athugaði hvernig skipulag þessarar þjónustu var í öðrum löndum og gerði úttekt á þjónust- unni hér á landi. Loks gerði hópur- inn áætlun um þörf á þjónustu við aldrað fólk hér á landi með geð- sjúkdóma. I þehTÍ áætlun var stuðst við spá Hagstofunnar um fjölda aldraðra á íslandi næstu 30 árin, notaðar voru niðurstöður rannsókna til að áætla fjölda veikra og loks var gerð áætlun um þörf á Geðheilbrigðisdagurinn Allir hljóta að vera sammála um að hinir öldruðu, segir Tómas Zoega, njóti bestu heilbrigðisþj ónustu sem völ er á. sjúkrarúmum fyrir öldrunargeð- lækningar á Islandi næstu áratug- ina og var þá tekið mið af staðli breska geðlæknafélagsins. Tillögur um aðgerðir Öldrunarlæknar eru þeir læknar sem á síðustu árum hafa haft for- ystu um að bæta almenna heil- brigðisþjónustu við aldraða. Skipu- lag þemra mála hefur breyst til batnaðar og þjónustan orðið betri. Betur má ef duga skal og sér- staklega þarf að greina og með- höndla geðtruflanir aldraðra með markvissari hætti en verið hefur. Áðurnefndur starfshópur dró sam- IEinkennal 156 Einkennalaus af heiftarlegu ofnæmi - Ótrúlegt! -1- J Tómas Zoega 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.