Morgunblaðið - 10.10.1999, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 10. OKTÓBER 1999 11
Skipulag
SH samsteypunnar
SH hf.
Eignarhaldsfélag
SH
Þjónusta ehf.
5^—
^Colduvater
Breytt
stj órnskipulag
okkar, ÍS. Þeir hafa átt við mikið
rekstrartap að stríða og staðið í
erfiðum fjárfestingum og því var
þetta ágætis leikur hjá þeim. Það
er alveg ljóst að sameinað félag
mun veita okkur mikla samkeppni,
sem við verðum að standa okkur í.
Eg held að samlegðin af samein-
ingu SH og ÍS hefði orðið meiri.
Það slitnaði upp úr viðræðum um
sameiningu SH og IS í desember í
fyrra og menn sáu ekki ástæðu til
að taka þráðinn upp að nýju. Eg
hef ekki trú á því að það verði að-
eins eitt öflugt sölufyrirtæki í
frystum fiski á Islandi. Eg tel að
framleiðendur eigi að hafa valkost
og að samkeppni sé okkur holl. Ég
held hins vegar að hin stífa blokk-
armyndun sem var í kringum SH
og ÍS hafi háð starfsemi beggja fé-
laganna.“
Utiloka aldrei samvinnu
Kemur einhver samvinna til
greina milli SH og SÍF eftir þessa
sameiningu, til dæmis í rekstri
fiskréttaverksmiðja í Bandaríkjun-
um?
„Ég held að menn eigi aldrei að
útiloka samvinnu við keppinauta
eða einhverja aðra. Það er alveg
ljóst að bæði þessi félög eru að
vinna að endurskipulagningu
rekstrar síns. Félögin ætla sér að
hagnast og vinna að góðum hlutum
til framtíðar. Ég er nokkurn veg-
inn viss um, að komi í ljós að þarna
sé um beggja hag að ræða verði
samvinna af einhverju tagi skoð-
uð.“
Nú hafa þessi tvö félög farið
aðra leið en SH í stefnumörkun og
skipulagningu rekstrarins. Eru
þau á rangri leið að þínu mati?
„Ég ætla ekki að dæma um
þeirra stefnu. Báðar þessar leiðir
eru vel þekktar í rekstri samsettra
fyrirtækja. Annars vegar er öflugt
móðurfélag, sem er með alla
strengi í sínum höndum og hins
vegar að valddreifa, færa ábyrgð-
ina út til dótturfélaganna sem eru í
beinu sambandi við framleiðend-
urna, og reka þau sem hagnaðar-
einingar.
Gengi hlutabréfa
ekki áhyggjuefni
Verð á hlutabréfum í SH hefur
lækkað lítillega síðustu mánuði. Er
það áhyggjuefni fyrir þig sem
stjórnarformann og stóran hlut-
hafa?
„Gengi hlutabréfa í SH var í
kringum 4,5 í kringum aðalfund
okkar í vor. Það fór síðan upp í 5
og hefur síðan lækkað í 4,4 til 4,5
aftur. Þetta veldur mér ekki
áhyggjum í dag. En verði markað-
urinn sama sinnis að ári verður
það vissulega áhyggjuefni. Þá held
ég að við höfum ekki náð að endur-
skipuleggja þetta fyrirtæki á þann
hátt, sem við viljum gera, og ekki
náð þeim árangri sem við ætlum
okkur. Það er mjög eðlilegt að
hlutabrefámarkaðurinn vilji sjá
einhvern árangur af endurskipu-
lagningunni. Þeir sem skilgreina
það, sem við erum að gera, eiga
kannski meiri möguleika á því að
meta hvort þetta sé hátt eða lágt
verð.
Við teljum okkur þegar í stað
sjá árangur af þessum breyting-
um, en það er alveg ljóst að við
berum umtalsverðan kostnað af
endurskipulagningunni út allt
þetta ár.“
Verður mikil hagræðing af þess-
um breytingum?
„Ég hefði ekki unnið að þessum
breytingum nema vegna þess að
ég trúi því að SH verði nútímalegt,
öflugt og framsækið markaðsfyrir-
tæki. Sérhæft útflutningsfyrirtæki
í frystum fiski og rækju með ein-
falt og skilvirkt stjórnskipulag,
beint samband framleiðenda og
markaðsfyrirtækja að stærstum
hluta og góða og markvissa þjón-
ustu á Islandi og skili eigendum
sínum viðunandi arði. Sá sparnað-
ur, sem verður í rekstrinum hér
heima, kemur ekki fram sem
kostnaður hjá framleiðendum og
dótturfyrirtækjum erlendis nema
að mjög litlu leyti. Rekstrarkostn-
aður hér heima hefur verið mjög
hár. Árið 1997 kostaði reksturinn
um 740 milljónir króna og starfs-
mannafjöldi var 105. A næsta ári
er kostnaður áætlaður 350 milljón-
ir og starfsmannafjöldi um 40.
Það er óbilandi trú mín að það
sé ein samfelld keðja frá því kvóta
er úthlutað og þar til fiskurinn er
kominn á disk neytandans. Þegar
útgerðar- og framleiðslufyrirtæki
fær úthlutað kvóta eiga stjórnend-
ur þess að geta sezt niður með
markaðsfyrirtækinu og gert
rammasamning um það, hvemig
veiða eigi og vinna þennan fisk.
Þess vegna getur markaðsfyrir-
tækið unnið að því á markvissan
hátt að selja fiskinn langt fram í
tímann. Ekki þannig að fiskurinn
sé unninn upp á von og óvon um
það að hann seljist á þeim tíma,
sem óskað er eftir. Ég er viss um
það, að sé farið að með þessum
hætti næst hámarksvirðisauki úr
framleiðslunni.
Stærstu eigendur og framleið-
endur, sem tengjast SH, standa
mjög þétt að baki félaginu í gegn-
um þessar breytingar. Þeir era
með miklar væntingar um, að
breytingarnar muni skila félaginu
og þeim sem að því standa auknum
arði og tekjum.
Aðdragandinn að þessum breyt-
ingum er miklu lengri en menn
halda. Það var farið að tala um
breytingar af þessu tagi áður en
félaginu var breytt í hlutafélag. Að
hluta til var þetta ágreiningsefni,
um hvert skyldi stefna og hvernig
skyldi vinna, annars vegar með
dótturfyrirtækjunum og hins veg-
ar með framleiðendum. Þetta er
ekkert sem kom upp í vor. Þessar
breytingar hafa átt sér langan að-
draganda.
Skilar sér í betri afkomu
Með nýju skipulagi munum við
sjá dótturfyrirtækin vaxa hratt
með sölu og vinnslu afurða frá öðr-
um framleiðendum en íslenskum.
Islenzki framleiðandinn og íslenzki
fiskurinn verða að sjálfsögðu
áfram homsteinn félagsins. Það
eru hins vegar markaðssvæði sem
taka við fiskitegundum og afurða-
flokkum sem við höfum ekki verið
að bjóða upp á. Með þessum breyt-
ingum aukum við einnig svigrúm
framleiðenda og færum viðskiptin
yfir í það nútímalega rekstraram-
hverfi, sem hæfir alþjóðlegum við-
skiptum með sjávarafurðir. Ég er
sannfærður um að við erum á
réttri leið og þessar breytingar
eigi eftir að skila sér í betri af-
komu SH og þeirra framleiðenda
sem félagið selur fyrir,“ segir Ró-
bert Guðfinnsson.
STJÓRNSKIPULAG SH-sam-
steypunnar er frremur einfalt.
SH-eignarhaldsfélag er fá-
mennt félag (4-5 stm.) sem hef-
ur það hlutverk að stuðla að
uppbyggingu og samræmingu
heildarinnar, aðstoða dótturfé-
lög og hafa eftirlit með rekstri
þeirra. Forstjóri SH er jafn-
framt stjórnarformaður í dótt-
urfélögunum.
Dótturfélögin þ.e. markaðs-
fyrirtækin og SH-Þjónusta ehf.
era sjálfstæð fyrirtæki undir
eigin framkvæmdastjórn.
Hjá hreinum markaðsfyrir-
tækjum SH samsteypunnar
vinna um 8-14 manns víða um
heim. Undantekning eru fram-
leiðslu- og markaðsfyrirtækin,
Coldwater UK og - USA. Alls
starfa 1350 manns hjá sam-
steypunni. Á árinu 1998 nam
verðmæti vöru sem SH annað-
ist sölu á yfir 40 milljörðum
króna.
Beint samband
Framleiðandinn hefur beint
samband við hvert markaðsfyr-
irtæki um markaðs- og við-
skiptaleg málefni. Með þessu
TIL AÐ lýsa því hvernig
„kaupin gerast á eyrinni“ eftir
breytingarnar á starfsemi SH
má líta á eftirfarandi saman-
tekt: f upphafi er gerður svo-
kallaður rammasamningur
milli markaðsfyrirtækja og
framleiðandans. Aðeins er um
einn samning að ræða fyrir
hönd allra markaðsfyrirtækja.
I rammasamningi er kveðið á
um þær leikreglur sem al-
mennt gilda um samskipti þess-
ara aðila og er hann gerður til
langs tíma. Ekki er kveðið á
um magn eða viðskiptaskilmála
í rammasamningi.
Svo oft sem þurfa þykir, til
dæmis um áramót eða við upp-
haf fiskveiðiárs, gerir framleið-
andi sölusamning við hvert
markaðsfyrirtæki fyrir sig um
þau viðskipti sem þeir ætla sér
að eiga á tímabilinu. Þar er
kveðið nánar á um afurðir,
magn og áætlaðan afhending-
artima í framleiðslu- og af-
hendingaráætlun. Einnig er
kveðið á um atriði eins og
greiðsluskilmála og verð eða
verðmyndun, en þeir þættir
hljóta þó að vera til endurskoð-
unar eftir því sem á tímabilið
líður. Framleiðsluáætlanir eru
endurskoðaðar svo oft sem
þurfa þykir.
Lokastigið er svo gerð pönt-
unarstaðfestingar sem mark-
aðsfyrirtæki og framleiðandi
móti færist framleiðandinn nær
því sem er að gerast á markaðn-
um, boðlínur verða styttri og
viðbragðsflýtir meiri. Þetta
kemur sér vel t.d. í sambandi
við vöruþróun og þjónustustig.
SH-Þjónusta ehf. annast síðan
þá þjónustu sem beðið er um af
markaðs-fyrirtækjunum og/eða
íramleiðendum. Þar er um að
ræða umbúðasölu, flutningsmiðl-
un, gæðamál og þjónustu við
landvinnslu, þjónustu við sjó-
frystiskip og aðfangadeild.
Sambandi framleiðanda við
markaðsfyrirtæki má lýsa á eft-
irfarandi hátt:
Framleiðandi og markaðsfyr-
irtæki gera með sér samning
um kaup og sölu afurða milli-
liðalaust. Þeir semja um af-
hendingu, verð og aðra skilmála
og greiðir markaðsfyrirtækið
framleiðanda beint. SH-Þjón-
usta veitir umbeðna þjónustu
og greiðii- markaðsfyrirtækið
yfírleitt fyrir hana. Undantekn-
ing er sala umbúða og stök til-
felli. SH hf. eignarhaldsfélag
fær ekki beinar tekjur af við-
skiptum þessara aðila.
ná samkomulagi um. Er þá
kominn á bindandi samningur
um afhendingu ákveðinnar
vöru á ákveðnu verði og tíma
með þeim skilmálum sem samið
hefur verið um.
Hagkvæmir
flutningar
SH hefur samið um flutninga
fyrir öll sameiginleg innkaup
markaðsfyrirtækjanna og eiga
þannig að nást hagkvæmari
flutningar fyrir alla aðila, jafnt
framleiðendur sem SH. Með
þessu móti er hagkvæmast að
afhendingarskilmálar vöru
miðist við afhendingu við verk-
smiðju, en aðrir skilmálar, s.s.
FAS eða FOB, koma til greina.
SH-Þjónusta býður upp á fulla
þjónustu við gerð útflutnings-
skjala og flutningsmiðlunar og
þarf framleiðandi þess vegna
ekki að gera annað en skrifa
vörureikning vegna viðkom-
andi sendingar.
Reiknað er með að við undir-
skrift rammasamnings verði
kveðið á um að gildandi um-
sýslusamningar falli niður. Hin
nýju og beinu samskipti er
unnt að taka upp þegar á
haustmánuðum 1999 en vegna
uppbyggingar á tölvukerfi og
aðlögunar SH að nýju kostnað-
arumhverfí miðast viðskipta-
skilmálar nýs kerfis við ára-
mótin 1999/2000.
Þannig gerast
kaupin á eyrinni
Þjónusta
í fimm
megin-
þáttum
SH-ÞJÓNUSTA er þjónustu-
fyrirtæki markaðsfyrirtækja
SH og framleiðenda á Is-
landi. Það sér um þá þjón-
ustu sem þörf er fyrir í
tengslum við kaup frá þeim
framleiðendum sem gerðir
hafa verið sölusamningar við.
Ef undan er skilin sala um-
búða, greiða markaðsfyrir-
tækin fyrir þjónustuna og er
hún þá innifalin í því verði
sem samið er um. Kostnaði
við þjónustuna verður haldið
í lágmarki enda mun spurn
eftir henni ráða ferðinni.
Lögð verður áhersla á gæði
þjónustunnar gagnvart kaup-
endum hennar. I upphafi
munu um 40 manns starfa
hjá fyrirtækinu.
• Umbúðadeild mun starfa á
sama hátt og áður. Hlutverk
hennar er að útvega framleið-
endum umbúðir og aðrar
rekstrarvörar á hagstæðu
verði með sameiginlegum inn-
kaupum.
• Flutningsmiðlun útvegar
sértilboð í flutning, pantar
flutning og fylgist með fram-
kvæmd hans. Hún útvegar
vátryggingu, gerir farmbréfs-
fyrirmæli, sér um uppruna-
vottorð, heilbrigðisvottorð og
EUR-1 skírteini. Deildin sér
um gerð útflutningsskýrslu
og tollafgreiðslu, safnar sam-
an og sendir öll skjöl til mót-
takanda. Þá annast hún úr-
vinnslu flutningakrafna og
býður upp á almenna flutn-
ingaráðgjöf.
• Sjófrystideild starfar eins
og áður í þjónustu útgerða og
markaðsfyrirtækja. Hún
heldur utan um framleiðslu
skipanna, miðlar upplýsingum
um framleiðslu og gæðamál,
gefur út viðmiðunarverð og
aðstoðar um flest þau mál er
upp kunna að koma. Deildin
leiðbeinir um pökkunarreglur
og aðstoðar með vinnslu um
borð. Hún sér um gæðamál
frystiskipa, þ.m.t. gæðakerfi,
handbækur og myndbönd og
framkvæmir skoðanir.
• Gæðadeild landvinnslu sér
um viðhald og dreifingu
gæðahandbóka, úttektir á
virkni gæðakerfa, húsnæði og
hreinlæti. Hún annast þýð-
ingu pökkunarreglna og sér
um útgáfu þeirra, sér um
gerð birgðaspjalda og
kassamiða. Gæðakröfur verða
unnar beint á milli markaðs-
fyrirtækja og framleiðenda,
en gæðadeild aðstoðar við
lausn kröfumála. Þá býður
deildin upp á úttektir á vör-
um, aðstoð við vöruþróun og
lausn sérstakra mála, s.s.
beinavandamála í blokkum.
• Aðfangadeild er skipuð n.k.
þjónustufulltrúum fyrir
markaðsfyrirtæki og þá fram-
leiðendur sem svo kjósa. Hún
annast innkaup fyrir hönd
markaðsfyrirtækja gagnvart
einstökum skilgreindum
framleiðendum eða vöruflokk-
um. Hún heldur utan um ver-
tíðarbundna framleiðslu, t.d
loðnu og loðnuhrogn, á svip-
aðan hátt og verið hefur. Þá
skipuleggur hún fundi og að-
stoðar við heimsóknir kaup-
enda til landsins.