Morgunblaðið - 10.10.1999, Síða 26
26 SUNNUDAGUR 10. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Gamalt sakamál
endurvakið
Ulf Örnkloo, Þórarinn Eldjárn og Gyrðir Elíasson.
Bókaverðir á Bókastefnunni í Gautaborg: Þórdís
Þorvaldsdóttir sem starfað hefur í íslenska básnum
frá upphafí, Lisbet Ruth og Andrea Jóhannsdóttir.
Blær mannlífs og bóka
ERLEIMDAR
BÆKIIR
Spennusaga
EINFALDUR SANNLEIKURINN
„THE SIMPLE TRUTH“
eftir David Baldacci. Warner Books
1999. 511 síður.
EINN af þeim bandarísku lögfræð-
ingum sem gerst hafa spennu-
sagnahöfundar á undanförnum ár-
um, og þeir eru heilmargir, heitir
David Baldacci. Hann hefur aðeins
sent frá sér fjórar bækur en er
nokkuð kunnur vestanhafs einkum
eftir að ein þeirra var kvikmynduð.
Hún hét Algert vald eða „Absolut
Power“ og var með Clint Eastwood
í aðalhlutverki og verður að segjast
eins og er að hún var með slappari
myndum goðsins. Sagan var ein-
faldlega ekki nógu spennandi, þrátt
fyrir að vera byggð á ágætu póli-
tísku samsæri, og rann út í sandinn
í lokin.
Leitin að sannleikanum
Það sama má eiginlega segja um
nýjustu sögu David Baldacci. Hún
heitir Einfaldur sannleikurinn eða
„The Simple Tnith“ og kom fyrir
skemmstu út í vasabroti hjá Warn-
er Book-útgáfunni og hefur vermt
toppsætin á bandarískum metsölu-
listum. Samsærið sem hún lýsir er
svo sem nógu safaríkt en leitin að
sannleikanum er hálfgerð þrauta-
ganga fyrir lesandann.
Baldacci virðist hafa fengið fína
dóma í bandarísku pressunni fyrir
bækur sínar og þær eru sannarlega
vinsælar. Fyrir utan þær tvær sem
þegar hafa verið nefndar hefur
hann sent frá sér Algjöra stjórn eða
„Total Control" og Sigurvegarann
eða „The Winner“.
Einfaldur sannleikurinn gerist að
nokkru leyti við Hæstarétt Banda-
ríkjanna og snýr að gömlu sakamáli
innan hersins (við sjáum það á nýju
hasarmyndunum að vestan að am-
eríski herinn er vinsæll vettvangur
hneykslis- og morðmála nú til dags)
og ef bókin væri ekki fimmhundruð
og ellefu þéttskrifaðar síður hefði
Baldacci ugglaust getað gert sög-
una sína meira spennandi. Hann
vill sannarlega gera vel.
Svartur fangi og fyrrverandi her-
maður, sem setið hefur í fangelsi í
heilan aldarfjórðung, fær einn dag-
inn inn í klefa til sín bréf frá hern-
um og við lestur þess er eins og
hann fái allt í einu minnið aftur og
honum verður ljóst að morð hans á
lítilli stúlku á herstöðvarsvæðinu
fyrir öllum þessum árum, á sér
ákveðnar skýringar í meðhöndlun
sem hann hlaut innan hersins.
Hann hefur samband við sinn
gamla lögfræðing og ákveður að
leita til Hæstaréttar með mál sitt
en vegna þess að þeir sem í raun
réttri bera ábyrgð á því hvernig
fór, eru í dag komnir í áhrifastöður,
bregður lögmanni Hæstaréttarins í
brún þegar hann les skjalið, ákveð-
ur að sýna það engum en hitta
fangann til þess að skilja betur
hvað hann er að fara. Hann snýr
aldrei aftur úr þeim leiðangri.
Dæmigerður samsæristryllir
Maður þessi á bróður sem er
fyrrverandi lögreglumaður en
starfar einnig sem lögfræðingur í
dag og hann fer á stúfana til þess
að grafast fyrir um hvað kom fyrir
bróður hans og inn í þær athuganir
flækist mýgrútur persóna m.a.
glæsileg starfsstúlka við Hæsta-
réttinn, dómarar hans, lögreglu-
menn, fanginn og bróðir hans, eig-
inkonur, eiginmenn, foreldi'ar, ill-
menni og óbermi ýmiss konar.
Einfaldur sannleikurinn er
dæmigerður bandarískur samsær-
istryllir og er nokkuð í ætt skotið
við fyrri bók höfundarins, ,Absolut
Power“. Baldacci er í mun að
skapa andrúmsloft gamalla hefða
og valdabaráttu innan Hæstarétt-
arins og nýtur við það lagakunn-
áttu sinnar. Hann reynir einnig að
skapa samúð með manni sem setið
hefur í fangelsi í tuttugu og fimm
ár en er að líkindum saklaus, lýsa
sambandi bræðranna tveggja sem
einkenndist af metingi og afbrýði-
semi og þar fram eftir götunum.
Hver einasta persóna bókarinnar
hefur sinn mikla bakgrunn jafnvel
þótt sumar hverjar skipti ekki
miklu máli og það tekur tíma fyrir
Baldacci að rekja það allt saman;
sum samtölin í bókinni ætla aldrei
neinn enda að taka. Með góðri rit-
stýringu hefði sæmilegasta afþrey-
ing eflaust getað orðið miklu
hvassari.
Arnaldur Indriðason
MANNLÍFIÐ fær á sig annan blæ
þegar kemur að fyrirlestrum, upp-
lestrum og pallborðsumræðum.
Biblían og trúarbrögð skipa stóran
sess á Bókastefnu nú. Sennilega
eiga aldamótin sinn þátt í því. Eft-
ir efniskynningum að dæma sveifl-
ast Jesús eins og pendúll, ýmist
andfélagslegur, óþarfur, eða eina
von og hjálp mannkyns.
Trúarbrögðin í heild eru mikið
rædd í pallborðsumræðum. Og
þegar „Biblían og Kóraninn" voru
rædd var svo þétt setinn 700
manna salur að lítt gerlegt reynd-
ist þeim er aftast sátu að fylgjast
með. Enski rithöfundurinn og
bókmenntakennarinn Karen Am-
strong vakti áheyrendur til íhug-
unar. Frá 17-24 ára var hún
nunna í rómversk-kaþólsku
klaustri. Fyrirlestur hennar
nefndist: „Bibeln ock Gud“ - „Jag
tror inte pá en personlig Gud,
men - jag tror det finnst en ytt-
erligt outsaglig betydelse með
livet...“ segir Karen Amstrong,
sem er virtur rithöfundur í heima-
landi sínu.
Sænsku skáldin Bengt Ander-
berg (1920) og Lennart Helsing
(1919) voru mættir. Báðir með
frægan rithöfundaferil að baki,
auk verðlauna og viðurkenninga.
Anderberg sagði frá nýjustu bók
sinni, „Amarina", og Hellsing,
sem er barnabókahöfundur, tók
þátt í pallborðsumræðum, er
byggðust á rithöfundaferli hans.
Hin 72 ára „veraldarrithöfundur
kvenna,“ sagði frá ritstörfum sín-
um og vissi vel af sér. Því er þess-
ara þriggja rithöfunda getið hér
að á löngum ferli hafa þeir sannað
Skáldskapur þeirra
verður að teljast með
því besta sem íslenskri
tungu gefst nú í sam-
tíðinni, skrifar Jenna
Jensdóttir um framlag
íslensku skáldanna,
Þórarins Eldjárns og
Gyrðis Elíassonar á
Bókastefnunni í
Gautaborg.
sig í æ ríkari mæli og metnir eftir
því.
Islensku skáldin Gyrðir Elías-
son og Þórarinn Eldjárn áttu þétt-
setinn sal áheyrenda í umræðum
sem Ulf Örnkloo stýrði. Bæði er
það að Örnkloo er góður og áheyri-
legur og skáldin tvö frábær efni-
viður. Skáldskapur þeirra verður
að teljast með því besta sem ís-
lenskri tungu gefst nú í samtíðinni.
Og í sinni djúphygli bliknar hann
hvorki né fölnar þótt hann sé
þýddur á önnur tungumál. Við
bætist hógværð þeirra og látleysi.
Þórarinn lék sér á tveimur tungu-
málum. Og þýðandi Gyrðis á
sænska tungu var áheyrilegur vel í
upplestri. Bæði ljóð og sögur
þeirra skálda snertu djúpt áheyr-
endur. Það var auðsætt.
Auður Magnúsdóttir, ungur
sagnfræðingur, flutti erindi um:
„Den starka vikingakvinnan?" Því
miður - sökum brottfarar síðasta
dag ráðstefnunnar, var leitað til
nokkurra áheyrenda, sem báru
fyrirlestri hennar mjög gott orð.
Anna S. Björnsdóttir skáld las
upp úr ljóðum sínum í „Speakers
Corner“. Ljóð hennar, stundum
rómantísk, stundum tregablandin,
komust vel til skila í vönduðum
upplestri hennar á þremur tungu-
málum.
„Bækur og bókasöfn“ er yfir-
skrift sænsku bókastefnunnar
hverju sinni. Máttur bókasafn-
varða er umtalsverður þáttur í
framþróun allri. Orð eru helstu
verðmæti menningarþjóða. Þau
geyma arfinn frá kynslóð til kyn-
slóða. Heilindi, menntun og færni í
starfí þeirra er á bókasöfnum
vinna varðar því miklu. Þessi
hugsun er vissulega endurvakin á
hverri Bókastefnu.
í grein Kristínar Bjarnadóttur
blaðamanns (í Morgunblaðinu. 22.
sept.) segir frá blaðamannafundi í
lok Bókastefnunnar þar sem fram-
kvæmdastjórinn, Bertel Falck,
kynnti drög að næstu Bókastefnu
- árið 2000. Án þess að endurtaka
orð Kristínar er hér vakin athygli
á því að uppistaða stefnunnar
byggist á „lestrarherferð“ og
áhersla verður lögð á að ná til
unga fólksins. Sigrún Eldjárn, rit-
höfundur og myndlistarmaður,
hefur unnið kynningarspjald vænt-
anlegrar Bókastefnu.
Vitað er að eitt af þekktustu
skáldum okkar verður gestur þar.
Areiðanlegt er að Anna Einars-
dóttir, í nefndinni, vinnur ötullega
að þátttöku Islendinga hverju
sinni.
J&S bílaleiga ehf
ug»ýsir haustsölu á nokkrum bflUm t
d.
Dodge Ram 1500 '97,
318 bensínvél, ssk.,
rauður, 4x4.
Verð 1.980 þús.
Plymouth Voyager '93,
grænn, 4x4, ssk., 3,3 vél,
ekinn 148 þús. km.
Verð 1.180 þús.
Ford 150 '97, rauður, 4x4,
vél 4,6, 8 cyl., ek. 61 þús.
km, 3 dyra.
Verð 1.890 þús.
Iu.C ..... . . Smiðjuvegi 1, Kópavogí,
iJofiJ bilaleiga ehf. sími 564 6000.
Banff-fjallakvikmyndahátíðin
s
Myndir frá Islandi
í fremstu röð
MIKE Mortimer, forseti Kana-
díska alpaklúbbsins, setur 24.
fjallakvikmyndahátíðina á Is-
landi í Kringlubíói á morgun,
mánudag, kl. 20 og verður þá
forsýning á kvikmyndahátíðinni.
Almenn sýning verður þriðju-
daginn 12. október í Kringlubíói
kl. 20.
Sýnt verður úrval sjö kvik-
mynda, þar á meðal helstu verð-
launamyndir hátíðarinnar.
Myndin sem hlaut fyrstu verð-
laun í flokki fjallamynda var
tekin á Islandi á síðasta ári og
nefnist „Kayak Islanda". Jafn-
Td lað u h rei at ú t
Þú getur treyst hreinu og öruggu sambandi hjá Simanum þegar þú hringit til útlanda.
SÍMINN
www.simi.is
framt verður sýnd önnur mynd
tekin á Islandi sem greinir frá
afreksmanni í ísklifri og glímu
hans við kletta og ís á Snæfells-
nesi. Leiðin sem farin er í mynd-
inni hefur verið nefnd „Black
Death", sem er fyrst og fremst
lýsandi fyrir erfiðleikastig far-
arinnar, en einnig til heiðurs
samnefndri séríslenskri fram-
leiðslu.
Kvikmyndahátíðin er kennd
við Banff-setrið (Banff Centre)
sem er skammt frá kanadísku
borginni Calgary.
Banff-kvikmyndahátíðin fer
fram í tugum landa og í á annað
hundrað borgum ár hvert. Fyrir
kvikmyndahátíðinni stendur Na-
noq, útivistarvöruverslun, sem
verður opnuð í Kringlunni 14.
október nk. Stefnt er að því að
hátíðin verði framvegis árviss
atburður í menningar- og
fræðslustarfi verslunarinnar.