Morgunblaðið - 10.10.1999, Page 30

Morgunblaðið - 10.10.1999, Page 30
30 SUNNUDAGUR 10. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Ásdís Ólafur Garðarsson, lögmaður og umboðsmaður knattspyrnumanna: „Þegar ég fékk mér þessi réttindi hélt ég að mest yrði að gera við að fara á leiki hér heima og fylgjast með ungu strákunum. Það er auðvitað hluti þess sem ég geri en aðallega er þetta markaðsstarfsemi.“ AÐ SELJA ÍSLENSKA KNA TTSPYRNUMENN VIÐSKIPn iOVINNUUF Á SUNNUDEGI ►Ólafur Garðarsson, lögmaður og umboðsmaður knattspyrnu- manna, fæddist 13. nóvember 1959. Hann varð stúdent frá Verzlunarskóla íslands 1979, varð lögfræðingur frá Háskóla ís- iands 1984, héraðsdómslögmaður í janúar 1986 og hæstarrétt- arlögmaður í nóvember 1992. Ólafur starfaði fyrst sem fulltrúi hjá Gísla Baldri Garðarssyni hrl. í eitt og hálft ár en stofnaði síðan stofu með Jóhanni Pétri Sveinssyni heitnum. Þegar Jó- hann Pétur lést, langt fyrir aldur fram, kom Jóhannes Albert Sævarsson hdl. til samstarfs við Ólaf og reka þeir nú lögmanns- stofu. Ólafúr hlaut réttindi til að starfa sem alþjóðlegur um- boðsmaður knattspyrnumanna haustið 1997. Eiginkona Ólafs er Laufey Johannessen og eiga þau saman eitt barn, Jóhannes, sem er fæddur 2. desember 1998. Ólafur á tvö börn með fyrri konu sinni, Garðar Stein, 16 ára, og Rebekku, 14 ára. eftir Skapta Hallgrímsson. IÐSKIPTAHLIÐ íþrótta, ekki síst knatt- spymu, verður stöðugt meira áberandi, leik- menn eru seldir milli liða fyrir sífellt hærri upphæðir og launaskrið knattspyrnumanna virð- ist meira en gengur og gerist. Skynjar þú, sem umboðsmaður, með beinum hætti hve knattspyrnan snýst orðið mikið um viðskipti? „Ekki hér á Islandi, en ég hef feng- ið að heyra - oftar en einu sinni og oftar en tvisvar - t.d. þegar ég sendi erlendu félagi myndband af Rúnari Kristinssyni, sem er 29 ára, að hann sé vissulega mjög góður en þar sem hann sé orðinn þetta gamall sé útilok- að að liðið geti selt hann aftur síðar og því hafl það ekki áhuga! Menn segja hreint út: þú verður að átta þig á að fótbolti er ekki bara fótbolti leng- ur; hann er bisness! Það er því ekki bara getan sem skiptir máli og stað- reyndin er sú að fáir framkvæmda- stjórar félaga úti í heimi - ef einhver - vakna á morgnana og hugsa sem svo; það er best að skella sér til ís- lands að finna einhverja góða og ódýra leikmenn. Eg er því stanslaust að kynna forráðamönnum erlendra félaga íslenska leikmenn. Læt þá hafa myndbandsspólur og reyni að fá þá til að koma til landsins og horfa á við- komandi menn. Þegar ég fékk mér þessi réttindi hélf ég að mest yrði að gera við að fara á leiki hér heima og fylgjast með ungu strákunum. Það er auðvitað hluti þess sem ég geri en að- allega er þetta markaðsstarfsemi." Að þessu leyti hefur knattspymu- heimurinn breyst mikið á tiltöiulega skömmum tíma, ekki satt? „Jú, og það er hægt að nefna eitt dæmi. Atli Eðvaldsson varð næst- markahæstur í efstu deild í Þýska- landi á sínum tíma, gerði fimm mörk í síðasta leiknum [vorið 1983] og var með lausan samning eftir keppnis- tímabilið. Ef hann væri í þessari stöðu í dag hugsa ég að greiðsla til hans, bara fyrir að skrifa undir samning við lið, yrði á bilinu 70 til 90 milljónir króna og að hann gæti fengið annað eins í árslaun. Atli hef- ur vafalaust fengið góð laun á sínum tíma en laun knattspyrnumanna hafa hækkað mikið síðustu ár.“ Ertu í samstarfí við erienda um- boðsmenn? „Já, ég vinn með norskum um- boðsmönnum, dönskum, enskum, hollenskum, austurríkum, þýskum og fleirum. Eg hef mikið reynt að komast inn á Italíu og Spán en það er erfitt margra hluta vegna. Ein stærsta hindrunin er að umboðs- menn þar tala nánast ekkert nema móðurmálið. En það mjakast og maður frá Bologna verður á lands- leiknum í Frakklandi [sem fram fór í gærkvöldi]. Af hverju ættum við ekki að eiga atvinnumenn á Italíu og Spáni? Þar eru þónokkrir Danir og Svíar og án þess að ég sé að gera lít- ið úr þeim eru margir þeirra engar sérstakar stjörnur." Gætu spilað á Italíu og Spáni „Ég tel okkur eiga leikmenn í landsliðinu, sem allir spila að vísu er- lendis, sem gætu hæglega spilað á Italíu og Spáni. Ég nefni sem dæmi Rúnar Kristinsson, sem að mínu mati gæti spilað í hvaða deild sem er í heiminum því hann bætir sig alltaf eftir því sem mótstaðan er meiri. Við sjáum það í hverjum landsleiknum á fætur öðrum. En það getur verið erfitt að sannfæra menn; ég hef látið fleiri en eitt enskt úrvalsdeildarlið fylgjast með Rúnari og fékk meðal annars að heyra að hann tæklaði ekki nóg og væri ekki nógu góður varnarlega. Staðreyndin er hins veg- ar sú að Rúnar skilar mjög góðri varnarvinnu þó hann sé kannski ekki sífellt tæklandi andstæðingana upp í efri vör! Ég sendi ensku úrvalsdeildarliði einu sinni spólu með Rúnari, en for- ráðamenn þess skoðuðu hann ekki nánar þó þeir segðu hann ágætan leikmann. Framkvæmdastjóri þess fór svo til Noregs að skoða fram- herja, sá Rúnar spila og hringdi í mig eftir þá ferð og kvaðst betur hafa farið að mínum ráðum og at- hugað strax með Rúnar. Hann hefði verið yfirburðamaður á vellinum. Rúnar geldur fyrir það nú að vera orðinn 29 ára en hann er reyndar svo léttur að hann á eftir að vera stór- góður í fjögur til fimm ár í viðbót. Og það er ekki loku fyrir það skotið að eitthvað gerast í hans málum!“ Ertu með marga leikmenn á þín- um snærum? „Ég reyni að vera með tvo til þrjá í hverri stöðu, fyrir utan yngri leik- menn, og ég reyni að takmarka þann fjölda sem ég er með. Margir vilja auðvitað komast út en ef ég trúi ekki á leikmanninn get ég ekki hjálpað honum að komast út. Ég styðst auð- vitað líka við skoðanir annarra, en ef mér finnst ieikmaður ekki nógu góð- ur er mjög erfitt fyrir mig að reyna að selja hann. Þá tek ég hann helst ekki að mér.“ Hefurðu selt marga knattspyrnu- menn úr landi? „Nei. Ég er að vinna í mörgum málum en það hefur ekki verið mikið um sölur. Ég er ánægður ef ég næ að selja tvo til þrjá á ári. Mín fyrsta sala var Jóhann B. Guðmundsson til Watford og hann skipar alltaf ákveð- inn sess hjá mér, enda úrvalsdreng- ur. Síðasta salan var Grétar Hjartar- son til Lilleström í Noregi. Þar fer einnig vandaður strákur sem á mikla framtfð fyrir sér.“ Umboðsmenn eru gífurlega marg- ir erlendis. Sérðu fyrir þér að við- skipti með íslenska knattspyrnu- menn verði svo blómleg að umboðs- menn verði í fullu starfí við það hér- lendis? „Ég leyfi mér að efast um það. Það er auðvitað mikil samkeppni í þessu; einn annar Islendingur er með FIFA-réttindi og ég er líka í samkeppni við marga útlendinga. Hér eru margir norskir, enskir og skoskir umboðsmenn á markaðnum, enskir og skoskir. Ég er í samstarfi við marga þeirra, aðrir eiga samstarf við einhverja aðra íslendinga eða koma bara sjálfir. Ég sit því ekki einn að markaðnum en hef kannski það forskot að vera Islendingur; menn þurfa ekki að tala annað tungumál og auðvelt er að spyrjast fyrir um mig. í starfi mínu sem lög- maður hef ég reynt að starfa af heil- indum og samviskumsemi og vona að það nýtist mér í þessu starfi." Er verðið of lágf ? Pegar íslenskir leikmenn fóru fyrst til erlendra félagsliða var stundum gantast með að greitt væri fyrir með tíu boltum. Talsvert fé er greitt fyrir suma í dag, en margir virðast á því að það sé enn alltoflítið. Ertu sammála því? „Ég hef heyrt þessa skoðun en ég held að þangað til við höfum ein- hvern til að ryðja brautina - ein- hvern sem gerir það reglulega gott til dæmis í ensku úrvalsdeildinni - sé erfitt að hækka verðið mikið. Það breytti miklu fyrir Finna eftir að Jari Litmanen gerði það gott í Hollandi; nú eru hátt í 30 Finnar at- vinnumenn í Hollandi en enginn ís- lendingur þó þeir eigi ekki að vera mikið betri en við í fótbolta. Ef Eiður Smári - sem hefur auð- vitað alla burði til þess, ef hann verð- ur ekki þjakaður af fyrri meiðslum - Arnar Gunnlaugsson eða Jóhann B. Guðmundsson, fara að gera rósir í efstu deild í Englandi breytast þess- ar forsendur algjörlega. Ég hef heimsótt mikið af liðum í Englandi, Skotlandi, Austurríki, Þýskalandi og Noregi og er að draga menn hingað heim. Hingað kom mjög mikið af mönnum í sumar til að skoða leik- menn og ég segi stundum í gríni að sá eini sem er að græða á minni starfsemi til þessa séu Flugleiðir; oft voru fjórir eða fimm menn hér að horfa á leik og fljúga auðvitað allir með Flugleiðum. Menn frá neðri deildarliðum í Englandi hafa komið og skoðað leikmenn og það gæti skil- að sér þó það gerist ef til vill ekki endilega strax. Ég var með norskan umboðsmann á bikarúrslitaleik KR og Akraness um daginn; hann hafði ekki séð leik hér áður en var upp- numinn. Hélt að hvorki knattspyrn- an né umgjörðin væru á þessu stigi. Ég sagði honum reyndar að þessi leikur hefði verið heldur dapur og hann átti bágt með að trúa því. Hann sá þarna marga leikmenn sem hon- um fannst góðir.“ Mjög viðráðanlegir Pví hefur verið haldið fram að ís- lenskir leikmenn séu almennt mjög vel Iiðnir. Þeh• leggi sig alltaf fram, eins og aðrir Skandinavar, sem sé meira en mörgum fínnist um ýmsa aðra. „Þetta er auðvitað eitt af því sem ég held alltaf fram. Það er auðvelt fyrir mig að segja framkvæmda- stjóra á Englandi að íslenskur leik- maður muni örugglega ekki kvarta undan veðrinu, að hann tali tungu- málið og að hann verði ekki til vand- ræða. Það er almenn skoðun í knatt- spyrnuheiminum að leikmenn frá Skandinavíu séu mjög viðráðanlegir. Hægt er að finna meira af leiftrandi hæfileikamönnum sunnar í álíúnni, en þeim fylgja yfirleitt fleíri vanda- mál. Forráðamenn liða erlendis hafa sagt mér að þeir forðist leikmenn frá ákveðnum löndum." Nokkrir leikmenn sem ekki hafa verið nálægt landsliðinu hafa farið frá Islandi út og gerst atvinnumenn hin síðari ár. Er þetta vegna tilkomu umboðsmanna hér heima? Reynirðu jafnvel frekar að koma umbjóðend- um þínum til liða í neðri deildum, að minnsta kosti til að byrja með? „Ef við horfum kalt á stöðuna erum við ekki með marga leikmenn hér heima sem gætu farið beint inn í úr- valsdeildina í Englandi. En við erum hins vegar með marga sem gætu end- að þar. Það er hæpið að bestu menn á Islandsmótinu - ég get talið upp Bjama Þorsteinsson, Sigurð Örn Jónsson og Marel Baldvinsson til að nefna einhverja - stökkvi beint inn í 16 manna hóp úrvalsdeildarliðs. Þar eru 35-45 leikmenn á samningi og ég held því að viturlegra sé, í mörgum tilfellum, að fara í liðs í 1. deild. Á hverjum einasta leik, hvort sem um er að ræða aðallið eða varalið slíks fé- lags, eru tugir þjálfara og fram- kvæmdastjóra að horfa á og standi menn sig vel í þeim útstillingarglugga komast þeir áft-am. Og ég held að það verði algengara í framtíðinni en hing- að til, að Islendingar fari til neðri- deildar liða, til dæmis í Englandi, því hér eru margir ágætir knattspyrnu- menn þó þeir séu ekki í landsliðinu. Það verður líka algengt að félög reyni að fá til sín unga leikmenn, því þau vilja sjálf móta þá sem knatt- spyrnumenn. Ég skil mæta vel að það er erfitt fyrir íslenska foreldra að senda 16 ára strák til útlanda; það er erfitt þegar unglingar fara af heimilinu, hvað þá til útlanda. Og eins eru menn hræddir um að kröf- urnar til náms séu minni. Ég er tals- maður náms en hef sagt á móti að gott sé að gefa strákunum tækifæri. Þeir eru í skóla, bekkjarkerfið er ef til vill ekki nákvæmlega það sama og námsefnið ekki heldur, en í mínum huga skiptir ekki höfuðmáli hvort menn verða stúdentar tvítugir eða tuttugu og tveggja ára. Það kemur í ljós á næstu tveimur til þremur ár- um hvort samið verði við þá_ aftur; hvort þeir séu nógu góðir. Ég hef nefnt við foreldra að ef þeir ættu dóttur sem væri sérlega efnileg í ballett og San Francisco-ballettinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.