Morgunblaðið - 10.10.1999, Side 40

Morgunblaðið - 10.10.1999, Side 40
40 SUNNUDAGUR 10. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR RAKEL SOLBORG ÁRNADÓTTIR + Rakel Sólborg Árnadóttir fæddist á ísafirði 27. ágúst 1936. Hún lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 29. september siðastlið- inn og fór útför hennar fram frá Fríkirkjunni í Hafn- arfirði 7. október. Það mun hafa verið í febrúar 1954 að leiðir okkar Rakelar lágu saman. Þá varð ég fyr- ir þeirri reynslu að þurfa að fara á Vífilsstaði. Eg lenti þar á átta manna stofu með yndis- legum konum, sem allar voru mér frábærlega góðar. Ein í hópnum var Rakel sem var þeirra yngst, aðeins sautján ára gömul en ég nýorðin fimmtán, svo yið urðum strax góðar vinkonur. Ég kom frá Flatey á Breiðafirði en hún átti heima í Hafnarfirði hjá foreldrum sínum. Þangað bauð hún mér oft í heimsókn þegar frá leið og við máttum hafa bæjar- leyfi. Þegar leið á vorið kom í ljós að hún átti kærasta sem var í Menntaskólanum í Reykjavík. Það var hann Bragi hennar. 17. júní fengum við bæjarleyfi. Þá varð Bragi stúdent með hvítan koll og við gengum með honum um bæinn rígmontnar, en reglurnar voru þær að við urðum að vera komnar heim um kvöldmat, þrátt fyrir þjóðhátíðar- dansleik og skemmtilegheit, því hlýddum við. Þetta sumar var ákaflega sólríkt og viðburðaríkt. Þá varð sól- myrkvi, sem sagt myrkur um miðj- an dag. Við sigldum á vatninu og gengum um hraunið. Sóluðum okk- ur í leguskálanum með lök yfir okkur samkvæmt læknisráði. Lærðum að dansa tjútt sem fjörugar gangastúlkur kenndu okkur. Lífið var nú samt ekki bara leikur. Ég var á Vífilsstöðum í þrettán mánuði og náði mér alveg, en sama var ekki að segja um Rakel mína. Hún þurfti að fara þangað aftur. En leiðir skildi, ég fluttist til Stykkishólms 1957 og hef verið þar síðan en Rakel búið viða. Þó viss- um við alltaf hvor af annarri. A jól- um 1956 fékk ég fallega mynd af þeim Rakel og Braga með frum- burð sinn. Þegar Bragi var við framhaldsnám í Svíþjóð, en hann er læknir, fylgdi Rakel honum þangað. Þá heyrði ég frá þeim af og til. Svo líða árin. Mikið gladdi það okkur hjónin þegar Rakel og Bragi leituðu okkur uppi á „dönskum dögum“ í Stykkis- hólmi fyrir nokkrum árum. Þá vora þau mætt á tjaldstæðið á sínum húsbíl. Það urðu fagnaðarfundir. Þetta endurtóku þau svo 1997. Þá fóram við í „grandferð“ með Eyja- ferðum og skemmtum okkur vel. Og enn var ætlunin að mæta nú í sumar en það fór á annan veg. Elsku Rakel mín, ég þakka þér fyrir glaðværð þína og góðar stund- ir. Elsku Bragi, við Einar vottum þér og ástvinum þínum okkar dýpstu samúð. Pálína Guðný Þorvarðardóttir. SIGRUN SIGURÐARDÓTTIR + Sigrún Sigurð- ardóttir fæddist í Reykjavík 2. aprfl 1923. Hún lést á Landakoti 30. ágúst síðastiiðinn og fór útför hennar fram frá Laugarnes- kirkju 7. september. Hann er orðinn stór hópurinn sem hefur tengst okkur í Hlíð á einn eða annan hátt, sumir koma og fara en aðrir staldra lengur við. Þegar við nú kveðjum Sigrúnu Sigurðardóttur eða Sillu eins og við kölluðum hana alltaf er kannski rétt að rifja það upp að nú munu vera liðin 60 ár frá því að hún kom fyrst að Hlíð eða v/ T-ossvoQskirkjwgaKð Síwii 554 0500 sumarið 1939. Hvemig það bar að verður ekki rakið hér, enda aðrir færari um það en ég, en þetta sumar mun hafa verið einstakt fyrir mikla veðurblíðu og öllum þeim sem það upplifðu afar eftir- minnilegt og því í raun táknrænt fyrir allt það sem á eftir kom. Tryggð hennar við staðinn og vinátta hennar og trygglyndi í garð okkar Hlíðarfólks var sem eilíft sumar og einstök blíða í öllum okkar sam- skiptum og fjölskyldu hennar. Ég og yngri sonur Guðmundar og Sillu vorum á svipuðum aldri og allt frá því við fyrst munum eftir okkur og til þessa dags miklir fé- lagar og vinir. Ekki síst þess vegna varð það hlutverk Sillu að gera ým- Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Áralöng reynsla. Sverrir Olsen, útfararstjóri Sverrir Einarsson, útfararstjóri Útfararstofa íslands Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300 Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/ OSWALDS sími 551 3485 ÞJÓNUSTA ALLAN SÓLARHRINGINN AÐAI-STRÆTI 4B • 101 RI VKJAVÍK Davið Ingér ÚLifur Útfimmij. Ihnsjón Útfimirstj. L í K KISTUVIN N l JSTO FA EYVINDAR ÁRNASONAR islegt fyrir mig sem ljúft er að minnast. Fyrir sveitastrák að aust- an var það framandi heimur að koma til höfuðborgarinnar, alls staðar ys og þys. Þá var gott að eiga góða að og gott að koma á Hr- ingbrautina, leikfélagamir eins og þeir gerast bestir og ekki spillti ná- lægðin við höfnina, sem var heill ævintýraheimur út af fyrir sig. Seinna var það mér ómetanlegt að eiga nánast annað heimili í Hvassaleitinu í fjóra vetur og höfð- ingsskapur Guðmundar og Sillu nokkuð sem seint verður fullþakk- að. Það er margs að minnast en þó held ég að síðasta samverastundin verði mér seinna meir minnisstæð- ust. Erfiðir mánuðir vora að baki sem einir og sér hefðu getað lamað lífsþróttinn og flestum og trúlega best henni sjálfri ljóst að kveðju- stundin nálgaðist. A þessari stundu sýndi hún best styrk sinn, bjartsýn með brennandi áhuga á málefnum líðandi stundar, enda afburða vel greind og fljót að átta sig og vak- andi yfir velferð annarra. Innilegar samúðarkveðjur héðan frá Hlíð og þakkir fyi-ir samfylgd- ina. Tryggvi Steinarsson. ALDARMINNING JULIUS ODDSSON + Afi okkar, Júlíus Oddsson, fæddist í Hafnarvík í Hrísey 11. október árið 1899 og lést langt um aldur fram, nýorðinn 47 ára. Hann var elstur af átta börnum foreldra sinna, Odds Sigurðs- sonar skipstjóra og útvegsbónda í Hrísey og Sigrúnar Jörands- dóttur. Foreldrar Sigrúnar voru hákarla-Jörund- ur Jónsson skipstjóri og útvegsbóndi í Syðstabæ í Hrísey og seinni kona hans Margrét Guðmundsdóttir. Foreldrar Odds voru Sigurður Stefánsson og Guðlaug Ólafsdóttir á Steindyrum á Látraströnd. Júlíus stundaði nám við Gagn- fræðaskólann á Akureyri 1915-17 en þegar skólahald lagðist niður þar frostaveturinn mikla 1918 fór hann til Reykjavíkur og lauk prófi frá Verslunarskóla íslands 1921. Næstu tvö árin vann Júlíus í versl- un Carls Höpfners á Akureyri en veiktist síðan af berklum og lá á Vífilsstaðaspítala um skeið. Eftir að hann hafði náð bata stofnaði hann verslun í Hrísey 1926 og rak hana til æviloka. Jafnframt versl- un sinni rak hann lengst af útgerð frá Hrísey. Hann sat lengi í hreppsnefnd Hríseyjar, var hrepp- stjóri frá 1939 og sýslunefndar- maður Hríseyinga frá 1942 til dauðadags. Hann var formaður Utgerðarmannafélags Hríseyjar og hafði ýmis umboð á hendi, þar á meðal Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda, og var auk þess póst- og símstjóri Hríseyinga um árabil. Árið 1930 kvæntist Júlíus frænku sinni Sigríði Jörandsdótt- ur sem fæddist að Botni í Þor- geirsfirði 4. febrúar 1911. Hún lést fyrir 10 áram, 15. maí 1989. Jör- undur faðir hennar var sonur há- karla-Jörundar og vora þau hjón því systkinaböm. Móðir Sigríðar var María Sigurðardóttir. Vorið 1946 veiktist Júlíus af nýrnaveiki og lést af hennar völd- um í Landspítalanum í Reykjavík 23. október sama ár. Útför hans var gerð í Hrísey 5. nóvember. I fréttum Morgunblaðsins og ís- lendings á Akureyri greinir frá því að skipið Andey hafi flutt fjöl- t Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, PÉTUR HRAUNFJÖRÐ, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 12. október kl. 15.00. Fyrir hönd barna, tengdabarna og systra, Björg Hraunfjörð Pétursdóttir. LEGSTEINAR t Marmari Islensk framleiðsla Granít Vönduð vinna, gott verð Blágrýti Sendum myndalista Gabbró MOSAIK Líparít Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík 1 sími 5871960, fax 5871986 Opið hús Þjórsárgata 9, 101 Rvík, Kiedri sérhæð Til sýnis og sölu nýleg, glæsileg neöri sérhæð, 104,3 fm ásamt 21 fm bílskúr, í „Litla Skerj'afirði". Húsið og skúrinn er byggður 1983. 3 svefnherb. Parket og flísar á gólfum. Falleg ræktuð lóð. Stór sólverönd. Eign í algjörum sérflokki. Áhv. 1,5 millj. byggsjóður og 3 millj. húsbréf, alls 4,5 millj. Benedikt tekur vel á móti gestum í dag, sunnudag, milli kl. 15 og 18. Brynjólfúr Jónsson fasteignasala, sími 511 1555, gsm 898 9791. menni frá Akureyri til að vera við jarðarför- ina og var þar á meðal fjöldi Oddfellow-félaga sem stóðu heiðursvörð um kistuna og báru hana úr kirkju. „Hér um bil hvert manns- barn í eynni fyigdi Júl- íusi sál. til grafar, og stóð nokkuð af lík- fylgdinni úti fyrir kirkjunni með því að kirkjan var fullsetin," eins og segir í frétt Is- lendings. I minningargrein um Júlíus segir Brynleifur Tobías- son: „Júlíus sál. var áhugasamur framkvæmdamaður, er vildi greiða hverju því máli, er hann hafði tekið að sér, veg með vitsmunum og góðvilja. Hann var glaður og gam- ansamur, og varð honum því mjög vel til vina. Ahugi hans á þjóðmál- um var drjúgur, þó að hann hefði sig ekki mikið í frammi. Var fylgi hans betra en sumra tíu annarra. Hann sóttist ekki eftir virðingum, en virðing og traust annarra komu til hans.“ Júlíus og Sigríður eignuðust fjórar dætur en þrjár komust á legg. Elst þeirra var Jörgína Ragna kaupkona, f. 1933, d. 1976. Hún var gift Ólafi Björnssyni kaupmanni, d. 1980, og áttu þau tvö börn, Júlíus og Ölmu. - Önnur dóttir Júlíusar og Sigríðar er Heba Helena, f. 1937, skrifstofustjóri í Reykjavík. Hún var gift Þorkeli Valdimarssyni hagfræðingi og eiga þau tvö börn, Valdimar og Sigríði Elínu. Sambýlismaður Hebu er Gísli Theódórsson fyrrverandi framkvæmdastjóri. - Þriðja dóttir Júlíusar og Sigríðar er Sigrún, f. 1944, dósent í félagsráðgjöf við Háskóla Islands. Hún var áður gift Vésteini Lúðvíkssyni rithöfundi og eiga þau einn son, Orra. Seinni maður Sigrúnar er Þorsteinn Vil- hjálmsson prófessor, og er sonur þeirra Viðar, en Þorsteinn á þrjú börn frá fyrra hjónabandi, Vil- hjálm, Björn og Þórdísi Katrínu. - Barnabarnabörn Júlíusar og Sig- ríðar eru orðin tíu. Hjónaband Júlíusar og Sigríðar var sérstakt. Bréfin sem til eru frá banalegu hans í Reykjavík og með- an hún stýrði málum í Hrísey sýna ekki aðeins ást og vináttu heldur jafnræði sem líklega var ekki venja á þeim tíma. Eftir að Júlíus dó tók Sigríður við mörgum af verkefnum hans. Hún rak m.a. verslunina áfram ein og sinnti póst- og símstjóraskyldum um tíma, en 1949 fluttist Sigríður með dæturnar þrjár ásamt tengdamóð- ur sinni frá Hrísey til Reykjavíkur. Hún rak lengi verslunina Ósk, fyrst á Barónsstíg en síðan á Laugavegi. Hún hélt alla tíð tryggð við frændgarðinn, bæði þá sem búsettir voru hér sunnan heiða og eins í Hrísey. Blessuð sé minning þeirra hjóna. Barnabörnin. Hattar, húfur, alpahúfur, 2 STÆRÐIR. Mörkinni 6, s. 588 5518.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.