Morgunblaðið - 10.10.1999, Page 43

Morgunblaðið - 10.10.1999, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. OKTÓBER 1999 43"* Garðabæjarsókn Séra Friðrik J. Hjartar valinn SÉRA Friðrik J. Hjartar hefur ver- ið valinn til prestsembættis í Garða- bæ. Séra Friðrik starfar nú sem prestur í Ólafsvík, en hann hefur gegnt prestsembætti þai- og á Búð- ardal í um 20 ár. Að loknum fundi með umsækj- endum á föstudag kom valnefnd sér saman um að velja Friðrik, en hann hafði lengstan starfsaldur umsækj- enda. Sigurður Sigurðarson vígslu- biskum sagði nefndina þó sammála um að allir umsækjenda væru hæfír til að gegna prestsstörfum. Aðrir umsækjendur voru guð- fræðingamir Auður Inga Einars- dóttir, Stefán Karlsson og Elínborg Gísladóttir, séra Jón Hagbarður Knútsson, séra Magnús Bjöm Bjömsson og séra Þórey Guð- mundsdóttir. ---------------- Landssíminn reynir nýja gagnaflutnings- tengingu Hluti starfs- manna vinn- ur heima LANDSSÍMI íslands hf. er að hleypa af stokkunum verkefni sem kallast Fjölskylduvænir vinnustað- ir. Verkefnið er tilraun til að sam- ræma atvinnu og fjölskyldulíf starfsmanna með sveigjanlegum vinnutíma og notkun nýrrar gagna- flutningstengingar, svokallaðrar ADSL-tengingar, sem Landssíminn mun setja á almennan markað um næstu áramót. Fimmtíu starfsmenn hafa fengið nýju tenginguna heim til sín. Ætlast er til þess að þeir vinni 20% af störf- um sínum heima. „Með þessari öfl- ugu tengingu er lítill munur á vinnsluhraðanum í tölvunni heima hjá starfsmönnunum eða á vinnu- staðnum. Við ætlum að skoða hvaða ávinning þetta getur haft fyrir fyr- irtækið, starfsmanninn og hans fjöl- skyldu,“ segir Ólafur Stephensen, forstöðumaður upplýsinga- og kynningarmáia Landssímans. Verkefnið er þegar byrjað og stendur út nóvember. Ólafur segir að með þessu móti megi safna upp- lýsingum um tæknilegar hliðar tengingarinnar áður en að markaðs- setningu kemur og jafnframt hver verði félagsleg áhrif notkunar henn- ar meðal starfsmanna. ------♦-♦-♦----- íslandspóstur Bréfberum fjölgað ÍSLANDSPÓSTUR hefur ákveðið að fjölga bréfberum í hlutastarfi og minnka hverfin sem hverjum og einum er ætlað að bera út í. Þetta er gert í því skyni að bregðast við miklu álagi sem verið hefur á bréf- berum undanfarið. Áskell Jónsson, framkvæmdastjóri hjá Islandspósti, segir að meðal annars verði leitað eftir skólafólki til hlutastarfa á álagstímum. Askell segir að sprenging hafi orðið í póstmagni í fyrra og það hafi aukist enn það sem af er þessu ári. Einkum er mikil aukning í útburði á auglýsingabæklingum en árituðum bréfum hafi einnig fjölgað. Hann segir bréfberastarfið erfitt starf og fáir séu í 100% starfi og meirihlut- inn í hlutastarfi. Til að koma enn frekar til móts við bréfbera er pósti ekið til þeirra þegar póstmagnið er hvað mest og fyrirtækið vilji sýna bréfberum mikla viðleitni til að draga úr álaginu því þeir séu verð- mætur starfskraftur. FRÉTTIR________________ Mazda Premacy frumsýndur RÆSIR hf. frumsýnir um helgina nýja Mazda-bifreið, Premacy. Premacy er fjölnota fjölskyldubíll, hannaður fyrir fjölbreyttar kröfur fjölskyldunnar. Opið verður kl. 13-17 á sunnudag. Boðið er upp á fjölbreytta dag- skrá. Leikinn verður léttur djass, veitingar verða í boði og einnig verð- ur skemmtun fyrir krakkana. Bein útvarpsútsending verður frá sýning- unni, Skúlagötu 59, á FM og Létt. Fasteignaland ehf. Ármúla 20, 2. hæð. Sími 568 3040. Fax 588 3888. Guðmundur Þórðarson, hdl. og lögg. fasteignasali. Ingimundur Jónsson, sölustjóri. Opið í dag, sunnudag, frá kl. 12-15 Laufvanaur. Hfi. 4ra herb. 110 fm glæsileg íbúð á 3. hæð í ný- viðgerðu fjölbýli. Áhv. 2,5 m. Verð 10 m. Baldursaata 3ia herb. 64 fm á 3. hæð í steinhúsi. íbúðinni verður skilað fullbúinni með gólf- efnum. Geymsluris er yfir íbúðinni. Áhv. 5,6 m. Verð 7,9 m. Fokhelt raðhús í Mosfellsbæ. Ca 200 fm fokhelt endaraðhús. Húsið er fullbúið að utan en fokhelt að innan. Áhv. ca 5 m. Verð 9,5 m. Brekkusel — raðhús 250 fm á þremur hæðum, auk 23 fm bílskúrs. Arinn í stofu. Möguleiki á ibúð á jarðhæð. Verð 16,2 m. Garðsendi — einbvli Ca 225 fm með ca 30 fm bílskúr. Arinn í stofu. Stór og fallegur garður með fallegri stórri timburverönd. Möguleiki á 2 íbúðum eða á góðri vinnuaðstöðu. Verð 18,9 m. Mánalind — einbvli Ca 210 fm fokhelt einbýli með inn- byggðum bílskúr. Húsið afhendist fullbúið að utan með grófjafnaðri lóð. Áhv. 7,2 m. Verð 14,5 m. Barónsti'aur 4ra herb. 106 fm íbúð á 3. hæð í steinhúsi. Ekkert áhv. Verð 7,5 m. Skipti mög- uleg á 2ja íbúða húsi með bílskúr á svipuðum slóðum. ATVINNUHÚSNÆÐI Barónstíqur. Verslunarhúsnæði auk geymslu í kjallara. Húsnæöið er með mjög hagstæðan leigusamning. Áhv. ca 1,7 m. Verð 6,5 m. Dalvegur Kóp. Ca 360 fm með 3 innkeyrsludyrum. Áhv. ca 19 m tii 25 ára. Verð 29 m. Krókháls. Ca 700 fm húsnæði auk möguleika á millilofti. Verð 35 m. Höfðatún. Ca. 330 fm á 2. hæð. Áhv. ca 15 m. í hagstæðu láni. Verð 18 m. Seljendur athugið að okkur vantar allar gerðir af íbúðum og atvinnuhúsnæði á skrá. m Sími: 533 4300 FASTEIGNASAL' Miðhús - Reykjavík Stórglæsileg eign fyrir vandláta. Nýtískuleg hönnun með notagildi í fyrirrúmi. Vandaðar innréttingar, merbau-parket og flísar á gólfum. 5 herb. og 2 stofur. Suðursvalir, glæsi- legt útsýni (Bláfjöll—Snæfellsnes). Mahóni-innrétting í eld- húsi. Svefnálma sér. Ca 50 fm aukarými. Einstaklega fal- legur garður með heitum potti, verönd og skjólvegg. Verð 23,5 m. Glæsilegt hús og sérstök hönnun. Opið hús í dag mmmmssm SML 533 6050 á milli kl. 13 og 15 Opið hús Við á Höfða ehf. erum nú með í sölu þetta glæsilega ein- býlishús í Stórateigl 35 í Mosfbæ. íbúðin er á einni hæð ásamt tvöföldum bílskúr. Húsið er í barnvænu umhverfi enda stendur það í enda götunnar og mikið víðlendi í kring. Áhugasamir eru velkomnir milli kl. 13.00 og 15.00 í dag. Ásett verð eignarinnar er 17,2 millj. KÍ Morgunverðarfundur á Hótel Sögu Miðvikudaginn 13. október 1999, kl. 8:00 - 9:30 SKATTAMAL ATVINNULIF SINS / Tillögur skattahóps Verslunarráðs Islands um breytingar • Skattaleg meðferð kaupréttarsamninga • íþyngjandi eignarskattar • Einstaklingsrekstur færður í hlutafélag • Sérreglur um eignarhaldsfélög • Starfsmenn íslenskra íyrirtækja erlendis • Stimpilgjöld o.fl. FRAMSOGUMENN: Guðjón Rúnarsson, formaður skattahópsins gerir grein fyrir skýrslu hópsins Ámi Tómasson, löggiltur endurskoðandi Gunnlaugur Sigmundsson, framkvæmdastjóri FUNDARSTJÓRI: Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins m SAMTÖK ATVINNULÍFSINS Fundargjald (morgunverður innifalinn) kr. 1.500,- Fundurinn er öllum opinn en æskilegt er að tilkynna þátttöku fyrirfram í síma 510 7100 eða bréfasíma 568 6564 eða með tölvupósti mottaka@chamber.is. VERSLUNARRÁÐ ÍSLANDS 4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.