Morgunblaðið - 10.10.1999, Side 58

Morgunblaðið - 10.10.1999, Side 58
58 SUNNUDAGUR 10. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ *> Þ e k k I n g í þ í n a þ á g u NAMSKEIÐ £ £ Tölvu- oa verkfrœOlþjónustan Qrtniitvegl 16 pöntunarsfmf ~r FÓLK í FRÉTTUM Bello, Mel Gibson, David Paymer, Debra Kara Un- ger og Lucy Liu á frumsýningu Payback í Los Angeles í vetur. Myndbönd Bulworth ★★★'/á Frábær mynd Warrens Beattys um stjórnmálamann sem tekur upp á þeirri fjarstæðu að fara að segja sannleikann - í rappformi. Beatty er frábær og hinar beinskeyttu rapp- senur snilldarlegar. Vatnsberinn (The Waterboy) ★★★ Farsi sem einkennist af fíflagangi og vitleysu, en kemst ágætlega frá því. Aðdáendur Sandlers ættu að kætast og aðrir ættu að geta notið skemmti- legrar aíþreyingar. Hjónabandsmiðlarinn (The Matchmaker) ★★★ Anægjuleg rómantísk mynd sem flestir ættu að njóta. Menn með byssur (Men with Guns) ★★★1/z Hæg, þung og öflug vegamynd um undarlega krossferð inn í myrkviði frumskóga ónefnds lands. Engin sér- stök skemmtun, en án efa meðal betri kvikmynda sem komið hafa út lengi. Henry klaufi (Henry Fool) ★★★★ Mynd Hartleys er snilldarvel skrifuð, dásam- lega leikin og gædd einstakri kímnigáfu. Ynd- isleg mynd um seigfljótandi samskipti, tilvist- arkreppur, list og brauðstrit. Hin hárfína lína (The Thin Red Line) ★★★★ Stríðsmynd eftir leikstjórann Ter- rence Malick sem er mun meira en stríðsmynd. Hún fjallar um hlut- skipti mannsins í hörmungunum miðjum, lífið og náttúruna. Heillandi og ristir djúpt. Elskuð (Loved) -k-k'Æ Forvitnileg mynd sem veltir upp eðli andlegs ofbeldis í samskiptum manna. Robin Wright Penn er heill- andi og William Hurt hæglátur og hlýlegur að vanda. Póstur til þín (You’ve Got Mail) ★★★ Sérlega ljúf, sjarmerandi og sígild ástarsaga með geysisterkum leikara- hópi. Helst til löng og svoldið væmin. Verðmætari en rúbínn (Price Above Rubies) ★★★ Ævintýraleg, dulúðug og tímalaus frásögn, með frábærum leikarhópi. Hæglát frásagnargleði skilar óvenju- legri og skemmtilegri mynd. Svín í borginni (Babe: Pig in the City) kkkVz Óvenju vel hepnuð og þrælskemmti- leg fjölskyldumynd. Frábær per- sónusköpun, vönduð saga og stór- kostleg sviðsmynd. Ekki síður fyrir unglinga og fullorðna en ungra börn. Nomafár (Witch Way Love) kk'/i Þokkaleg mynd sem sækir í hefð franskra gamanmynda frekar en þá engilsaxnesku, þó að í myndinni sé nær eingöngu töluð enska. Verður dálítið framandleg fyrir vikið. Fín- asta afþreying og ágæt tilbreyting frá Hollywood gamanmyndunum. Phoenix kk'/z Dökk glæpamynd af sígildri gerð. Leikur í góðu lagi en herslumuninn vantar. Belgrur (Belly) ★★★ Alvarleg og góð klíkumynd. Maður finnur fyrir heilindum og góðu sam- ræmi í ólíkum þáttum myndarinnar og hún er bæði töff í útliti og ágæt- lega leikin. Fortíðarhvellur (Blast from the Past) ★★★ Brendon Fraser lætur einkar vel að leika furðuleg og sérlunduð góð- menni og er mjög sjarmerandi í hlut- verki sínu. Þetta er fín gamanmynd, vel fyrir ofan meðallagið. Strætóland (Metroland) ★★★ Vel byggð og vandlega unnið drama með frábærum leikurum. Það er óhætt að mæla með þessari við þá kröfuhörðustu. Mulan ★★★ Þrælskemmtileg fjölskyldumynd sem sver sig í ætt sína með því að bjóða upp á allt það sem búast má við af góðri Disney mynd. Tæknilega er myndin stórkostleg, þótt mikið glatist við færslu frá risatjaldinu á sjónvarpsskerminn. Viðvarandi miðnætti (Permanent Midnight) ★★★ Ben Stiller fer á kostum og skapar trúverðuga ímynd dópista sem nýtur velgengni um skeið. Svartur húmor og vandað drama. Spillandinn (The Corruptor)**1/* Hæfilegur skammtur af sprenging- um og hávaðasömum bardagaatrið- um í bland við sígildar löggufélaga klisjur. Fín afþreying og sumstaðar eilítið meira. Menntun Litla Trés (The Education ofLittle Tree) kk'/z Sígild saga með skýrum andstæðum milli góðs og ills. Leikur til fyrir- myndar, ekki síst hjá hinum korn- unga Joseph Ashton sem fer á kost- um. Ljúf og innileg lítil saga sem veitir ánægjulega aíþreyingu, þótt hún skilji lítið eftir sig. Simon Birch kk'/z Vönduð dramatík byggð á skáldsögu hins fræga höfundar John Irving. Myndin er áferðarfalleg en helst til væmin. Frábær lyrir aðdáendur fjölvasaklútamynda. Patch Adams kk'/z Robin Williams er hér í mjög kunn- uglegu hlutverki. Mikið er spilað á tilfinningasemina en boðskapurinn er jákvæður og sjálfsagt þarfur. Gjaldskil (Payback) ★★★ Endurvinnsla hinnar frábæru „Point Blank“. Hröð, harðsoðin, töff og of- beldisfull. Eftirminnileg persónu- sköpun og góður leikur. Ekki fyrir alla, en að mörgu leyti dúndur glæpamynd. Egypski prinsinn (The Prince of Egypt) ★★★ Vel heppnuð biblíusaga sem sannar að teiknimyndin er hentugur miðill fyrir slík ævintýri. Myndin er ekki síður ætluð fullorðnum en börnum og jafnvel dálítið óhugnaleg á köfl- um. Guðmundur Ásgeirsson/Heiða Jóhannsdóttir/Ottó Geir Borg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.