Morgunblaðið - 26.10.1999, Side 1
243. TBL. 87. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
SÞ sendir gæslulið
til Austur-Tímor
Leggja
grunn að
sjálfstæði
New York. Reuter.
ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóð-
anna tók í gær einróma ákvörðun
um að senda 11.000 manna frið-
argæslu- og lögreglulið til A-
Tímors og leysa af hólmi fjöl-
þjóðlegu hersveitirnar sem þar
hafa verið undir forystu Astrala
frá því um miðjan september. SÞ
munu fara með yfirstjórn á A-
Tímor næstu tvö til þrjú árin, eða
meðan verið er að undirbúa
stofnun sjálfstæðs ríkis.
Samkvæmt ákvörðun öryggis-
ráðsins munu tæplega 9.000 her-
menn, 200 hemaðarlegir ráðgjaf-
ar, rúmlega 1.600 lögreglumenn
og fjöldi annarra sérfræðinga
halda til A-Tímor á næstunni.
Nokkur ríki, þeirra á meðal
Kína, hafa boðist til þess að
leggja til mannafla.
AP
Lögreglumenn og björgunarmenn í Suður-Dakóta við brakið úr Learjet-þotunni. Unnið var að því í gærkvöldi að bera kennsl á líkin en enginn af
fimmmenningunum komst lífs af. Líklegt er talið að þeir hafi allir verið látnir er vélin skall til jarðar.
Kylfíngurinn Payne Stewart ferst ásamt fjórum mönnum í flugslysi
Hrapaði eftir stjórnlaust
flug yfír Bandaríkin
Washington. AP, Reuters.
TVEGGJA hreyfla einkaþota af
gerðinni Learjet 35 með fimm manns
um borð hrapaði í óbyggðu mýrlendi
í Suður-Dakóta í Bandaríkjunum í
gær og fórust allir um borð, þ.á m.
kylfingurinn Payne Stewart. Þotan,
sem lagði upp frá Orlando í Flórída
áleiðis til Dallas í Texas, flaug stjórn-
laust í nokkrar klukkustundir norður
á bóginn yfir Bandaríkin áður en hún
steyptist til jarðar.
Ottuðust menn um hríð að hún
hrapaði á byggt svæði og kom til
greina að láta herþotur skjóta hana
niður til að koma í veg fyrir mann-
tjón á jörðu niðri en til þess kom
ekki. Hefði þurft sérstakt leyfi
Bandaríkjaforseta til slíkra örvænt-
ingaraðgerða.
Þotan hrapaði eftir fjögurra
stunda flug um þrjá kílómetra vestan
við smábæinn Mina í norðurhluta
sambandsríkisins Suður-Dakóta og
seint í gærkvöldi voru hjálparstarfs-
menn að reyna að bera kennsl á lík-
amsleifarnar. Munu þeir fyrstu hafa
komið á staðinn aðeins nokkrum mín-
útum eftir slysið.
„Nefið á þotunni vísaði nokkurn
veginn beint niður,“ sagði Lesley
Braun, sem býr í Mina og varð vitni
að því er vélin hrapaði. „Brakið
dreifðist ekki um stórt svæði.“ Elds-
neytið var búið og því kom ekki upp
verulegur eldur í brakinu. Enginn á
jörðu niðri mun hafa slasast, að sögn
Joe Lockharts, talsmanns Hvita
hússins.
Flugvélin verður
eldsneytislaus
oghrapar
SUÐUR
DAKÓTA
Herþotur
komaað
vélinrii
Dallas,
TEXAS
Learjet 35
Áætluð flugleið
KRT og Morgunbtaðió
Rugumferðarstjórar
missa samband við
véiina20 mínútum
eftir flugtak
Orlando
FLÓRÍDA
Þotan var í eigu Stewarts, af gerð-
inni Learjet 35 og smíðuð 1976. Flug-
hraði véla af þessari gerð er um 850
km á klukkustund og flugdrægnin
rúmlega 2.000 km, hámarksflughæð
um 45 þúsund fet og vélin getur tekið
allt að tíu manns í sæti.
Learjet-þotan hóf sig á loft klukk-
an 13:20 að íslenskum tíma og höfðu
flugmennirnir síðast fjarskiptasam-
band er hún var yfir Gainesville í
Flórída, að sögn talsmanns banda-
rískra flugyfirvalda í Chicago. Annar
talsmaður sagði að þotan hefði flogið
í um 43 þúsund feta hæð, sem er
nokkru hærra en algengast er um
farþegaþotur í áætlunarflugi og eng-
in svör hefðu borist frá henni við
ítrekuðum fyrirspurnum flugumferð-
arstjóra.
Var þá herþota með bækistöð í
Tyndall í Flórída látin elta Learjet-
Þjóðernissinnaðir hægrimenn sigra í Sviss
Þjóðarflokkurinn vill
annað ráðherraembætti
Bern, Genf. AP, AFP, Reuters.
SVISSNESKI Þjóðarflokkurinn
(SVP), sem sett hefur baráttu gegn
innflytjendum og aðild að Evrópu-
sambandinu á oddinn, var sigurveg-
ari þingkosninganna í Sviss á sunnu-
dag. SVP hlaut um 23% atkvæða og
er nú næststærsti flokkur landsins á
eftir Jafnaðarmannaflokknum.
Flokkurinn á aðild að fjögurra
flokka ríkisstjórn Sviss en var
minnstur stjórnarflokkanna fyrir
þessar kosningar og með einungis
einn ráðherra í sjö manna ríkisstjórn
landsins, vamarmálaráðherrann Ad-
olf Ogi.
Christoph Blocher, einn áhrifa-
mesti þingmaður flokksins, krafðist
þess í gær að hlutur SVP í ríkis-
stjórn yrði aukinn í ljósi úrslitanna.
„Við eigum rétt á því að vera næst-
stærsti flokkur stjómarinnar," sagði
hann. SVP bætti við sig 15 þing-
mönnum og hefur nú 44 þingmenn í
neðri deild þingsins þar sem alls 200
þingmenn eiga sæti. Jafnaðarmenn
misstu þrjá þingmenn og hafa nú alls
51 þingsæti.
Undanfarna fjóra áratugi hefur
ákveðið kerfi verið viðhaft við stjóm-
armyndun í Sviss, þar sem helstu
flokkar skipta á milli sín ráðherra-
embættum, samkvæmt föstum regl-
um. Hefur þetta kerfi verið kallað
„töfralausnin" en sumir fjölmiðlar
spáðu því í gær að nú yrði að endur-
skoða það.
Oft hefur komið til harðra deilna á
milli jafnaðarmanna og SVP og náðu
þær hámarki í síðustu viku er
Blocher, sem er í forystu SVP í
Ziirich, var sakaður um að hafa farið
lofsamlegum orðum um bók þar sem
því er haldið fram að helfor gyðinga
hafi aldrei átt sér stað. Blocher
hefur verið áberandi í baráttunni
AP
CHRISTOPH Blocher, helsti
áhrifamaður Þjóðarflokksins.
gegn aðild Sviss að Evrópusamband-
inu og Sameinuðu þjóðunum og hef-
ur hann iðulega gagnrýnt stefnu
stjórnarinnar í innflytjendamálum.
Reuters
Payne Stewart var 42 ára gam-
all. Hann var einn af þekktustu
kylfingum í heimi.
þotuna, að sögn fulltrúa flughersins.
Tvær orrustuþotur frá Eglin-flug-
stöðinni í Flórída tóku við því hlut-
verki og síðan tvær F-16 orrustuþot-
ur frá Tulsa í Oklahoma.
Herflugmennirnir munu hafa
skýrt frá því að rúður þotunnar
væru þaktar ís og því ekki hægt að
sjá mennina um borð en ekkert benti
til þess að nokkur væri á lífi um
borð.
ísingin bendir til þess að jafn-
þrýstibúnaður þotunnai- hafi bilað.
Telja sérfræðingar líklegt að menn-
irnir fimm hafi látist nær samstundis
úr kulda og súrefnisskorti ef dyra-
umbúnaður hefur bilað eða glugga-
listi. Muni þeir þá jafnvel ekki hafa
haft tíma til að setja á sig súrefnis-
grímur. Hafi þrýstingurinn hins veg-
ar minnkað hægt og hægt er talið að
þeir hafi smám saman misst meðvit-
und. Hefur Learjet-þotan þá haldið
áfram ferð sinni þar til bensínið var
búið. Flugmenn skipta oftast yfir á
sjálfstýringu þegar flugvél er komin
í fulla flughæð.
John Nance, sem er atvinnuflug-
maður og hefur ritað um flugmál,
segist ekki vita til þess að jafnþrýsti-
búnaður hafi bilað í farþegaflugvél á
flugi þótt það hafi komið fyrir her-
flugvélar.
Sviplegt fráfall/Bl