Morgunblaðið - 26.10.1999, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRVERINU
Morgunblaðið/sigurgeir
Þegar fréttist af loðnuveiði við Kolbeinsey, bjuggu mörg skip sig til veiðanna í flýti. Það tókst ekki bet-
ur til en svo, þegar flyija átti nótina um borð í Sigurð VE í Vestmannaeyjum, að hún lenti útaf flutn-
ingavagni og í götuna. Töluverðan tíma tókað ná henni upp og koma um borð.
Fyllti sig á 13 tímum
í GÆRKVÖLDI voru fjögur skip á
loðnumiðunum skammt vestan við
Kolbeinsey og fleiri á leiðinni en
Víkingur AK og Guðrún Þorkels-
dóttir SU fengu fullfermi þar aðfar-
anótt laugardags. Víkingur fyllti
sig á þremur nóttum en Guðrún var
komin með fullfermi 13 tímum eftir
að skipið kom á miðin.
Sveinbjörn Orri Jóhannsson,
stýrimaður á Guðrúnu Þorkelsdótt-
ur, sagði að loðnan væri mjög góð
en aflinn um helgina, tæplega 1.000
tonn, fékkst í sex holum. „Við feng-
um eitt 300 tonna hol og annað 500
tonna en það fór niður í 70 tonn í
Góð loðnuveiði
vestan við
Kolbeinsey
holi,“ sagði hann við Morgunblaðið.
„Það var mjög gott að fylla á 13
tímum og mjög notalegt að taka 500
tonna hol á síðuna. Eg man ekki
eftir svona stóru kasti að hausti til
öll árin sem ég hef verið hérna og
hef ég verið ansi lengi til sjós. Ekki
hjá okkur, þó einhverjir hafí hugs-
anlega náð því. Þetta gefur okkur
vonir um að hún sé að koma og ekki
skemmir fyrir að þetta er mjög góð
loðna. Svo er talað um að það sé
talsvert mikið af loðnu töluvert
vestar og vonir standa til að hún
bætist við þetta.“
Guðrún Þorkelsdóttir landaði á
Eskifirði á sunnudag en um svipað
leyti landaði Víkingur tæplega
1.500 tonnum á Akranesi. Hann
hafði fengið um 900 tonn á föstudag
og fyllti sig aðfararnótt laugardags
sem íyrr segir. Bæði skipin voru
komin aftur á miðin en Seley SU og
Kap VE voru á svipuðum slóðum.
Hafrannsóknastofnun hefur
farið yfír innfjarðarækjusvæðin
Nokkrum svæðum
er lokað í vetur
HAFRANNSÓKNASTOFNUN
leggur til að veiðar á innfjarðar-
ækju verði ekki leyfðar á Húnaflóa
og Skjálfanda í vetur og í Skaga-
fírði að svo stöddu og kvóti verði
minnkaður um helming í Öxarfirði,
að sögn Unnar Skúladóttur, fiskif-
ræðings hjá Hafrannsóknastofnun.
Hins vegar er gefið grænt Ijós á
veiðar í Arnarfirði og Isafjarðar-
djúpi að undanskildum Jökulfjörð-
um.
Unnur segir að Hafrannsókna-
stofnun hafi farið yfir öll veiðisvæð-
in og lagt fram tillögur sínar til
sjávarútvegsráðuneytisins.
„Yfirleitt er rækjan minni nema í
ísafjarðardjúpi," segir hún um
stöðu mála. Hafrannsóknastofnun
leggur til að Isafjarðardjúp verði
opið fyrir rækjuveiðar, að undan-
skildum Jökulfjörðum, á 650 tonna
bráðabirgðakvóta, sem verður end-
urskoðaður síðar á þessu hausti.
Ekki er lagt til að rækjuveiðar
verði leyfðar á Húnaflóa vegna þess
að ungfiskur er langt yfir viðmiðun-
armörkum og ástand rækjustofns-
ins er mjög bágborið. Það mat kann
að verða endurskoðað eftir leið-
angur í febrúar, að sögn Unnar.
Að svo stöddu er ekki lagt til að
veiðar verði leyfðar í Skagafirði
vegna þess að ungfiskur er yfir við-
miðunarmörkum og rækjumagnið
er minna en vanalega.
Lagt er til að Skjálfandi verði
lokaður í allan vetur. „Þar er nán-
ast engin rækja eftir,“ segir Unnur.
„Síðan leggjum við til opnun í Öxar-
firði en lækkum bráðabirgðakvót-
ann úr 1.000 tonnum í 500 tonn. Þar
er rækjan mjög þétt innst í firðin-
um en lítil sem engin utar. Hins
vegar er ungfiskur yfir viðmiðunar-
mörkum.“
Veidar Víetnama
ganga erfiðlega
ÁÆTLUN stjórnvalda í Víetnam
um uppbyggingu djúpsævisflota
síns gengur ekki sem skyldi. Veið-
arnar hafa gengið iila og afkoman
þar af leiðandi léleg. Stjórnvöld
undirbúa nú rannsóknir á djúpsæv-
inu til að geta gefið útgerðum betri
upplýsingar um fiskimið og fiskig-
engd. Einnig verður þeim veitt
aukin þjálfun og betri búnaður til
veiðanna.
Sjávarútvegsráðuneytið telur sig
hafa getað gefið nokkuð áreiðan-
legar upplýsingar um túnfiskmið,
þrátt fyrir að fé til rannsókna sé af
skomum skammti. Það dugir ekki
til og útgerðimar eiga erfitt með að
greiða af opinbemm lánum vegna
lélegra aflabragða. Stjórnvöld hafa
því verið hvött til að draga úr
greiðslubyrðinni.
Afli af djúpsævinu það sem af er
þessu ári er um 32.500 tonn að
verðmæti 64 milljónir dollara, 4,8
milljarðar króna. Við suðurströnd
landsins er afli svo lítill að einhverj-
ar útgerðir hafa hætt veiðum og
aðrar stunda veiðar á gmnnsævi
vegna skorts á veiðarfærum til
veiða á dýpra vatni.
Sérfræðingar telja að of mikil
áherzla hafi verið lögð á skipasmíð
ar, en djúpsævisfloti Víetnama er
nú um 700 skip og er ráð fyrir því
gert að þau verði orðin um 800 á
næsta ári. Þeir telja áætlanir um
350.000 tonna afla af djúpsævinu á
næsta ári vera allt of mikla
bjartsýni. Jafnframt benda þeir á
að þessi floti stundi í of miklum
mæli veiðar á grunnsævi og að-
stæður í landi séu ekki nægilega
góðar til að taka við aflanum og
vinna hann.
Lágt verð er á fiski á innanlan-
dsmarkaði og dregur það einnig úr
áhuga manna á djúpsævinu, því
mun dýrara er að sækja þangað. Þá
segja menn að þó skipunum sé ætl-
að að stunda veiðar í allt að mánuð í
senn, sé raunin sú að þau geti ekki
verið úti lengur en í hálfan mánuð
vegna lélegrar kælingar og fryst-
ingar. Nauðsynlegt sé að leiðbeina
sjómönnum betur um fmmvinnslu
aflans um borð svo koma megi í veg
fýrir skemmdir á fiskinum eftir að
hann hefur verið veiddur.
Viðurkenna mistök
Stjórnvöld viðurkenna að mistök
hafi verið gerð við framkvæmd
áætlana og leggja þau áherzlu á að
uppbyggingu í fiskihöfnum lands-
ins verði hraðað. Fjárskortur,
skrifræði og slakir verktakar hafi
valdið miklum seinagangi við upp-
bygginguna.
„FISKAREN“ opnar
skrifstofu á íslandi
NORSKA sjávarútvegsblaðið
„Fiskaren" opnar ritstjórnarskrif-
stofu á íslandi þann 1. desember
næstkomandi. Magnús Þór Haf-
steinsson blaðamaður veitir henni
forstöðu. Meginverkefni hans
verður að fylgjast með sjávarút-
vegsmálum á Bretlandseyjum, írl-
andi, Færeyjum, Islandi og báðum
heimsálfum Ameríku, að Grænl-
andi meðtöldu.
„Fiskaren" hefur verið í mikilli
þróun undanfarin misseri. Utgáf-
um hefur verið fjölgað úr tveimur í
þrjár á viku. Starfsmönnum hefur
fjölgað og mikið lagt í að bæta útlit
og efnistök blaðsins.
Ritstjórn „Fiskaren“ hefur í
auknum mæli lagt áherslu á að
flytja fréttir úr sjávarútvegi á öll-
um Norðurlöndum. Markmiðið er
að gera blaðið að vettvangi um-
fjöllunar um norrænan sjávarút-
veg. Opnun skrifstofu á Islandi er
liður í þessari þróun. Aðsetur
skrifstofu „Fiskaren" verður á
Akranesi.
Sjávarútvegsblaðið „Fiskaren"
var stofnað árið 1925, og blaðið er
elsta og stærsta sjávarútvegsblað
Norðurlanda. Starfsmenn eru nú |
35 talsins. Þar af eru 13 í ritstjórn.
Höfuðstöðvar „Fiskaren" eru í
Björgvin. Fastráðnir blaðamenn
starfa á skrifstofum í Álasundi,
Bodö og Tromsö. Nú bætist Island
í þennan hóp.
Árið 1998 keypti útgáfufyrir-
tækið Norges Handels- og Sjpf-
artstidende (NHST) meirihluta
hlutabréfa í Fiskaren AS. NHST
samsteypan á nú tæplega 90 prós-
enta hlut i fyrirtækinu. Hún gefur
einnig út viðskiptadagblaðið „Dag-
ens Næringsliv", alþjóða farm-
siglingablaðið „Trade Winds“ og ’
alþjóða olíuiðnaðarblaðið „Up-
stream".