Morgunblaðið - 26.10.1999, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 26.10.1999, Blaðsíða 63
TÍSKUSKÓR Á STELPUR Kr. 1.995 DOMUS MEDICA við Snorrabraut - Reykjavík. Sími 551 8519 STEINAR WAAGE KRINGLAN Kringlunni 8-12 • Reykjavík. Sími 568 9212 Ryofri stalsmiði og almenn stálsmíði Getum bætt við okkur verkefnum í sérhæfðri stálsmíði úr ryðfríu stáli ásamt allri almennri stálsmíði. Höfum mikla reynslu í uppsetningu á háþrýstum og lágþrýstum vökvakerfum, uppsetningu á búnaði og almennri MORGUNBLAÐIÐ BREF TIL BLAÐSINS ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTOBER 1999 Litur svart rúskinn og svart leður. Stærðir 27-35 Góðir leðurskór með hlýfóðri j ^HUlUÍ^VCHottlboði BRIMSTÁL ehf. Vesturgötu 9-13 220 Hafnarfirði Sími 555 6015 Farsími 898 1320 Fax 426 8680 „Besti þátturinn - hingað til langbesti þátturinn“ Frá Ara V. Ragnarssyni: LAUGARDAGSKVÖLDIÐ 9. þ.m. hófst í sjónvarpsstöð Ríkisútvarps- ins sýning á vikulegum þáttum í vetrardagskránni, sem bera heitið Stutt í spunann og er ætlað hverj- um og einum að vera „skemmtiþátt- ur, svona fjölskylduþáttur," eins og annar umsjónarmaður þeirra kynnti þann fyrsta. Að honum lokn- um litu báðir umsjónarmennirnir yfir verk sitt og lýstu því ánægðir á svip með orðunum, sem eru yfir- skrift þessara skrifa minna. Hvorugt okkar hjóna horfði á þennan þátt, en skömmu síðar frétt- um við, að hann hefði verið öðruvísi og að sumu leyti betri en samsvar- andi þættir í fyrravetur, en þó hafi ákveðið efni í honum verið smekk- laust og til vansæmdar. Okkur vai- boðin að láni myndbandsspóla með upptöku af þættinum og litum við á hana af forvitni. Þátturinn reyndist að ýmsu leyti góð dægradvöl með söng, viðtölum, glensi, o.fl., en því miður hafa um- sjónarmenn hans ekki hugsað til enda hvílíka smán þeir voru að kalla yfir sig þegar þeir ákváðu og út- bjuggu þrennt af því sem sýnt var. Fyrsta „skemmtiatriðið" var sem sé það að tvisvar var sýndur aftur- endinn á hesti og hár fretur látinn heyrast um leið. Það minnti óneit- anlega á Radíusbræður, þegar þeir töldu sig vera að skemmta í sjón- varpinu með því að lyfta upp læri og freta framan í áhorfendur. Þótt þetta „skemmtiatriði" væri ekki upp á marga fiska var það þó gull á móti því sem kom í ljós er líða tók að lokum þáttarins. Þá reyndu umsjónarmennirnir að sýna „snilli“ sína, með því að hafa Clinton-hjónin að skotspæni. Ég fer hér nokkrum orðum að því sem að frúnni laut. Þar var sýnt „viðtal" annars um- sjónarmannsins við frú Hillary Clinton. Auðvitað var umræðuefnið einkamál hennar, og voru sýnd Loftpressur Skrúfupressur -stimpilpressur siemens Haust-Búhnykkur! raunveruleg myndbrot af henni í heimalandi hennar, þar sem hún gefur svör við spurningum um sama efni. Þau svör gaf hún af öðrum ástæðum en þeim að vilja bera einkamál sín á torg. Eftir þetta „viðtal“ var hún sýnd eða öllu heldur leikin við hesthús, sem sagt var í Mosfellsdal, þar sem spyrjandinn úr „viðtalinu“ íyrr- nefnda „færði henni að gjöf' svartan hest og gula tík með þessu orðum: „Þetta er gjöfin frá íslensku þjóð- inni.“ Hér er hesturinn. Þetta er svokallaður ... foli. Hann heitir Tilli, en þú mátt kalla hann Bill, ef þú vilt. - Taktu við taumunum, og hér er ís- lenska tíkin. Hún heitir ... „Þú mátt gera það sem þú vilt við hana.“ Er þættinum lauk, bætti hann svo þessu við: „Niðurstaða þáttarins er: Milli manns, hests og hunds og Hill- ary hangir leyniþráður." Smekklegt var það eða hitt þó heldur. Hafa umsjónarmenn þáttar- ins enga sómatilfinningu? Skilja þeir ekki, að með atferli sínu voru þeir að draga erfið tilfinningamál góðs gests niður í svaðið, en ötuðu aðeins sjálfa sig út? Þeir end- urguldu góðum gesti þá vinsemd og virðingu, sem hann sýndi landi okk- ar og þjóð, þegar hann dvaldi hér á ráðstefnunni um konur og lýðræði með því að reyna að gera hann hlægilegan. En það mistókst. Þeim tókst ekki að sýna neina fyndni og allra síst á kostnað gestrisni, enda var allt of mikið bil á milli lágkúru og þeirra annars vegar og reisnar og virðuleika frú Hillai'y Clinton hins vegar til að það gæti tekist. Við hjónin horfðum á næsta þátt sem var viku seinna, h. 16. þ.m. Það gerðum við ekki af áhuga á að sjá hann heldur með þá spurn í huga hvort umsjónarmennirnir myndu sjá sóma sinn í því að biðjast afsök- unar á framferði sínu. Engan vott þess var að sjá eða heyra né heldur frá neinum yfirmönnum þeirra. Svo lítur helst út sem þetta fólk átti sig hreint ekki á því að með siðuðu fólki gilda þær sjálfsögðu reglur að sýna beri hverjum manni almenna kurt- eisi og virðingu og láta einkamál hans í friði. Sjónvarpið hefir verið nefnt menningarstofnun. Það hefur vissu- lega sýnt á sér slíkar hliðar, en því miður líka hið gagnstæða eins og enn gerðist fyrir rúmri viku (þegar þetta er ritað) í fyrrnefndum þætti, Stutt í spunann, þar sem umsjónar- mennirnh' urðu sér til háborinnar skammar - og meira en það: Þeir urðu Ríkisútvarpinu til háborinnar skammai' og landi sínu og þjóð urðu þeir til háborinnar skammar. Svartur blettur var settur á Rík- isútvarpið í ofangreindum dag- skrárþætti. Sá blettur hverfur ekki fyrr en stjórnendur þeirrar stofn- unar þvo hann af með því að biðjast opinberlega afsökunar og láta um- sjónarmenn þáttarins gera hið sama. ARI V. RAGNARSSON, fv. kennari, Löngufit 38, Garðabæ. DÖMU-, BARNA- OG HERRAFATNAÐUR ÁRMÚLA 23 GERIÐ FRÁBÆR KAUP Á AL.L.A FJÖLSKYLDUNA FYRIR DÖMUR OG HERRA: FYRIR BÖRN Dúnúlpur/Pelsar 6.000 Leðurjakkar 6.000 Stuttkápur 6.000 Peysur 1.900 Skyrtur 1.900 buxur 2.000 Blússur 1.900 PlLS 2.000 BOLIR 1.000 Flíspeysur 1.200 JOGGINGGALLAR VESTISFÖT bolir ÚLPUR NÆRFÖT, 5 STK. 1.800 1.800 500 1.800 1.000 Berðu saman verð, gæði og þjónustu! 69.900 kr. stgr. 65.900 h.K'. stgr. KG 31V20 198 I kaelir, 105 I frystir. Hxbxd=170x60x64 sm. KG 36V20 235 I kælir, 105 I frystir. H x b x d = 186 x 60 x 64 sm. 61.900 #cr_ stgr. KG 26V20 198 I kælir, 65 I frystir. Hxbxd = 150x60x64 sm. Allar stærðir og gerðir. Hagstætt verð. Eigum einnig loftþurrkara í mörgum stærðum og gerðum. Komið og skoðið í sýningarsal okkar í Akralind 1, Kópavogi. Sérhæfum okkur í loftstýribúnaði. PAÐ LIGGUR I LOFTINU AVS n““ 5 ?sr-= nr= Akralind 1,200 Kópavogur, sími 564 3000. 4 4SMITH& S NORLAND Nóatúni 4-105 Reykjavík Sími 520 3000 • www.sminor.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.