Morgunblaðið - 26.10.1999, Qupperneq 63
TÍSKUSKÓR Á
STELPUR
Kr. 1.995
DOMUS MEDICA
við Snorrabraut - Reykjavík.
Sími 551 8519
STEINAR WAAGE
KRINGLAN
Kringlunni 8-12 • Reykjavík.
Sími 568 9212
Ryofri stalsmiði og
almenn stálsmíði
Getum bætt við okkur verkefnum í
sérhæfðri stálsmíði úr ryðfríu stáli ásamt
allri almennri stálsmíði.
Höfum mikla reynslu í uppsetningu á
háþrýstum og lágþrýstum vökvakerfum,
uppsetningu á búnaði og almennri
MORGUNBLAÐIÐ
BREF TIL BLAÐSINS
ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTOBER 1999
Litur svart rúskinn og svart leður. Stærðir 27-35
Góðir leðurskór með hlýfóðri
j ^HUlUÍ^VCHottlboði
BRIMSTÁL ehf.
Vesturgötu 9-13 220 Hafnarfirði Sími 555 6015
Farsími 898 1320 Fax 426 8680
„Besti þátturinn - hingað
til langbesti þátturinn“
Frá Ara V. Ragnarssyni:
LAUGARDAGSKVÖLDIÐ 9. þ.m.
hófst í sjónvarpsstöð Ríkisútvarps-
ins sýning á vikulegum þáttum í
vetrardagskránni, sem bera heitið
Stutt í spunann og er ætlað hverj-
um og einum að vera „skemmtiþátt-
ur, svona fjölskylduþáttur," eins og
annar umsjónarmaður þeirra
kynnti þann fyrsta. Að honum lokn-
um litu báðir umsjónarmennirnir
yfir verk sitt og lýstu því ánægðir á
svip með orðunum, sem eru yfir-
skrift þessara skrifa minna.
Hvorugt okkar hjóna horfði á
þennan þátt, en skömmu síðar frétt-
um við, að hann hefði verið öðruvísi
og að sumu leyti betri en samsvar-
andi þættir í fyrravetur, en þó hafi
ákveðið efni í honum verið smekk-
laust og til vansæmdar. Okkur vai-
boðin að láni myndbandsspóla með
upptöku af þættinum og litum við á
hana af forvitni.
Þátturinn reyndist að ýmsu leyti
góð dægradvöl með söng, viðtölum,
glensi, o.fl., en því miður hafa um-
sjónarmenn hans ekki hugsað til
enda hvílíka smán þeir voru að kalla
yfir sig þegar þeir ákváðu og út-
bjuggu þrennt af því sem sýnt var.
Fyrsta „skemmtiatriðið" var sem
sé það að tvisvar var sýndur aftur-
endinn á hesti og hár fretur látinn
heyrast um leið. Það minnti óneit-
anlega á Radíusbræður, þegar þeir
töldu sig vera að skemmta í sjón-
varpinu með því að lyfta upp læri og
freta framan í áhorfendur.
Þótt þetta „skemmtiatriði" væri
ekki upp á marga fiska var það þó
gull á móti því sem kom í ljós er líða
tók að lokum þáttarins. Þá reyndu
umsjónarmennirnir að sýna „snilli“
sína, með því að hafa Clinton-hjónin
að skotspæni. Ég fer hér nokkrum
orðum að því sem að frúnni laut.
Þar var sýnt „viðtal" annars um-
sjónarmannsins við frú Hillary
Clinton. Auðvitað var umræðuefnið
einkamál hennar, og voru sýnd
Loftpressur
Skrúfupressur
-stimpilpressur
siemens Haust-Búhnykkur!
raunveruleg myndbrot af henni í
heimalandi hennar, þar sem hún
gefur svör við spurningum um sama
efni. Þau svör gaf hún af öðrum
ástæðum en þeim að vilja bera
einkamál sín á torg.
Eftir þetta „viðtal“ var hún sýnd
eða öllu heldur leikin við hesthús,
sem sagt var í Mosfellsdal, þar sem
spyrjandinn úr „viðtalinu“ íyrr-
nefnda „færði henni að gjöf' svartan
hest og gula tík með þessu orðum:
„Þetta er gjöfin frá íslensku þjóð-
inni.“ Hér er hesturinn. Þetta er
svokallaður ... foli. Hann heitir Tilli,
en þú mátt kalla hann Bill, ef þú vilt.
- Taktu við taumunum, og hér er ís-
lenska tíkin. Hún heitir ... „Þú mátt
gera það sem þú vilt við hana.“ Er
þættinum lauk, bætti hann svo
þessu við: „Niðurstaða þáttarins er:
Milli manns, hests og hunds og Hill-
ary hangir leyniþráður."
Smekklegt var það eða hitt þó
heldur. Hafa umsjónarmenn þáttar-
ins enga sómatilfinningu? Skilja
þeir ekki, að með atferli sínu voru
þeir að draga erfið tilfinningamál
góðs gests niður í svaðið, en ötuðu
aðeins sjálfa sig út? Þeir end-
urguldu góðum gesti þá vinsemd og
virðingu, sem hann sýndi landi okk-
ar og þjóð, þegar hann dvaldi hér á
ráðstefnunni um konur og lýðræði
með því að reyna að gera hann
hlægilegan. En það mistókst. Þeim
tókst ekki að sýna neina fyndni og
allra síst á kostnað gestrisni, enda
var allt of mikið bil á milli lágkúru
og þeirra annars vegar og reisnar
og virðuleika frú Hillai'y Clinton
hins vegar til að það gæti tekist.
Við hjónin horfðum á næsta þátt
sem var viku seinna, h. 16. þ.m. Það
gerðum við ekki af áhuga á að sjá
hann heldur með þá spurn í huga
hvort umsjónarmennirnir myndu
sjá sóma sinn í því að biðjast afsök-
unar á framferði sínu. Engan vott
þess var að sjá eða heyra né heldur
frá neinum yfirmönnum þeirra. Svo
lítur helst út sem þetta fólk átti sig
hreint ekki á því að með siðuðu fólki
gilda þær sjálfsögðu reglur að sýna
beri hverjum manni almenna kurt-
eisi og virðingu og láta einkamál
hans í friði.
Sjónvarpið hefir verið nefnt
menningarstofnun. Það hefur vissu-
lega sýnt á sér slíkar hliðar, en því
miður líka hið gagnstæða eins og
enn gerðist fyrir rúmri viku (þegar
þetta er ritað) í fyrrnefndum þætti,
Stutt í spunann, þar sem umsjónar-
mennirnh' urðu sér til háborinnar
skammar - og meira en það: Þeir
urðu Ríkisútvarpinu til háborinnar
skammai' og landi sínu og þjóð urðu
þeir til háborinnar skammar.
Svartur blettur var settur á Rík-
isútvarpið í ofangreindum dag-
skrárþætti. Sá blettur hverfur ekki
fyrr en stjórnendur þeirrar stofn-
unar þvo hann af með því að biðjast
opinberlega afsökunar og láta um-
sjónarmenn þáttarins gera hið
sama.
ARI V. RAGNARSSON,
fv. kennari,
Löngufit 38, Garðabæ.
DÖMU-, BARNA- OG HERRAFATNAÐUR
ÁRMÚLA 23
GERIÐ FRÁBÆR KAUP
Á AL.L.A FJÖLSKYLDUNA
FYRIR DÖMUR OG HERRA: FYRIR BÖRN
Dúnúlpur/Pelsar 6.000
Leðurjakkar 6.000
Stuttkápur 6.000
Peysur 1.900
Skyrtur 1.900
buxur 2.000
Blússur 1.900
PlLS 2.000
BOLIR 1.000
Flíspeysur 1.200
JOGGINGGALLAR
VESTISFÖT
bolir
ÚLPUR
NÆRFÖT, 5 STK.
1.800
1.800
500
1.800
1.000
Berðu
saman
verð,
gæði og
þjónustu!
69.900 kr. stgr.
65.900 h.K'. stgr.
KG 31V20
198 I kaelir, 105 I frystir.
Hxbxd=170x60x64 sm.
KG 36V20
235 I kælir, 105 I frystir.
H x b x d = 186 x 60 x 64 sm.
61.900 #cr_ stgr.
KG 26V20
198 I kælir, 65 I frystir.
Hxbxd = 150x60x64 sm.
Allar stærðir
og gerðir.
Hagstætt verð.
Eigum einnig
loftþurrkara
í mörgum stærðum
og gerðum.
Komið og skoðið
í sýningarsal okkar
í Akralind 1, Kópavogi.
Sérhæfum okkur
í loftstýribúnaði.
PAÐ LIGGUR I LOFTINU
AVS
n““ 5 ?sr-= nr=
Akralind 1,200 Kópavogur,
sími 564 3000.
4 4SMITH&
S NORLAND
Nóatúni 4-105 Reykjavík
Sími 520 3000 • www.sminor.is