Morgunblaðið - 26.10.1999, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1999 25
ERLENT
Opna leið milli Vestur-
bakkans og Gaza
Erez, Jerúsalem. Reuters.
ISRAELAR og Palestínumenn
opnuðu í gær örugga leið yfir Israel
milli Vesturbakkans og Gaza-svæð-
isins, landsvæðanna sem Palestínu-
menn vonast til að geta sameinað í
eitt ríki þegar fram líða stundir.
Ehud Barak, forsætisráðherra
Israels, tilkynnti ennfremur að ein-
um af helstu óvinum Ísraelsríkis í
30 ár, skæruliðaleiðtoganum Nayef
Hawatmeh, yrði leyft að fara til
sjálfstjórnarsvæðanna þar sem
hann styddi friðarsamninga Israela
og Palestínumanna.
Vegurinn milli landsvæðanna er
44 km langur og liggur meðfram
ísraelskum vegum sem voru þar
fyrir. Samið var um nýju leiðina
vegna kvartana Palestínumanna á
sjálfstjórnarsvæðunum sem segja
að Israelar hafi meinað þeim að
hitta vini og vandamenn.
I augum Palestínumanna er nýi
vegurinn mikilvægt tákn um bar-
áttu þeirra fyrir sjálfstæðu ríki.
Moussa Abu Sa’adeh, starfsmaður
palestínsku heimastjórnarinnar,
varð fyrstur til að aka veginn. Hon-
um var eitt sinn haldið í fangelsi í
Israel og eftir að hann var leystur
úr haldi var honum meinað að fara
þangað í fimm ár.
„Eg er mjög ánægður," sagði
Abu Sa’adeth. „Þetta er frábær við-
burður vegna þess að hann samein-
ar þjóð okkar að nýju.“
Óttast að Gaza-búar flykkist
til Vesturbakkans
Samið var um leiðina fyrir fimm
árum og ráðgert var að opna hana 3.
október samkvæmt friðarsamningi
Israela og Palestínumanna 5. sept-
ember en því var frestað vegna
deilna um öryggismál og tæknileg
úrlausnarefni. Hún liggur milli Er-
ez, nyrst á Gaza-svæðinu, og Turk-
umiya á suðurhluta Vesturbakkans.
Shlomo Dror, talsmaður ísra-
elska hersins, sagði að rúmlega
2.000 Palestínumenn hefðu þegar
fengið heimild til að aka veginn og
aðeins 80 umsóknum hefði verið
hafnað af öryggisástæðum. Flestir
þeirra sem sóttu um ferðaheimild-
ina væru ungir Gaza-búar sem vildu
fá tækifæri tO að skemmta sér á
Vesturbakkanum þar sem næturlíf-
ið er fjörugra. „Margir þein-a sögð-
ust vilja fara tO Jeríkó í spilavítið
þar - þótt engum Palestínumönn-
um sé leyft að fara í það,“ sagði
Dror og vísaði til reglna palestínsku
heimastjórnarinnar sem heimOaði
spilavítið. Hann bætti við að aðeins
um 200 Palestínumenn á Vestur-
bakkanum vildu fara á Gaza-svæð-
ið.
Palestínumenn sem fá heimOd tO
að ferðast til Vesturbakkans eða
Gaza-svæðisins geta dvalið þar í allt
að eitt ár og að þeim tíma liðnum
þurfa þeir að endumýja hana. Þar
sem launin í Israel og á Vestur-
bakkanum eru miklu hærri en á
Gaza-svæðinu óttast íbúar Vestur-
bakkans að margir Gaza-búar flytj-
ist þangað til að keppa við þá um at-
vinnu þar eða í ísrael.
Dror sagði að 120.000 Palestínu-
menn störfuðu í Israel og þar af
Palestínumaður í Hebron afhendir ísraelskum hermanni skilríki
sín áður en hann stígur um borð í rútu til Gaza-svæðisins.
helmingurinn ólöglega. Miklu auð-
veldara er að laumast inn í Israel
frá Vesturbakkanum en frá Gaza-
svæðinu þar sem landamæraeftir-
litið er strangara.
Um milljón Palestínumanna býr
á Gaza-svæðinu, sem er 363 ferkm,
og tvær mOljónir á Vesturbakkan-
um sem er 5.878 ferkm.
Hawatmeh tilbúinn að
viðurkenna ísraelsríki
Hawatmeh býr í Amman og ekki
er vitað hvenær hann hyggst fara tfl
palestínsku sjálfstjómarsvæðanna.
Hann stofnaði Lýðræðisfylkinguna
fyrir frelsun Palestínu (DFLP) árið
1969 og var áfltinn einn af hættuleg-
ustu óvinum Israelsríkis. Israelar
segja hann bera ábyrgð á dauða 24
skólabarna og hermanns sem biðu
bana í skotbardaga milli ísraelskra
hermanna og þriggja skæruliða
DFLP í skóla bæjarins Maalot í
norðurhluta Israels árið 1974.
Hawatmeh lýsti því yfir í vikunni
sem leið að hann styddi þá lausn að
stofnað yrði palestínskt ríki ,sem
hefði friðsamleg samskipti við Isra-
ela. Hann kvaðst vera tflbúinn að
viðurkenna Israelsríki um leið og
stjórn landsins undirritaði varan-
legan friðarsamning við Palestínu-
menn.
Rússar gera
árásir á út-
hverfi Grosní
Grosní. AP, Reuters.
RÚSSNESKAR herþotur gerðu í
gær sprengjuárásir á úthverfi
Grosní, höfuðborgar Tsjetsjníu, og
stjórskotaliðssveitir héldu uppi
hörðum árásum á búðir skæruliða í
suðurhluta landsins.
ITAR-Tass- fréttastofan skýrði
frá þvi að rússneski herinn hefði
sprengt upp tvær bifreiðar með
hópum skæruliða innanborðs og
eyðilagt loftvarnabyssu í árásunum
í suðurhluta Tsjetsjníu í gær. Rúss-
ar viðurkenndu að hafa gert árásir
á skotmörk í suður- og vesturhluta
landsins um helgina, en yfirvöld í
Tsjetsjníu fullyrða að um 40 manns
hafi látið lífið í árásum á sunnudag.
Flóttaleið
lokað
Rússneski herinn lokaði á sunnu-
dag síðasta veginum sem opinn var
til Tsjetsjníu, en tugþúsundir
flóttamanna hafa farið um hann á
leið til Ingúsetíu undanfamar vik-
ur. Að sögn yfirmanna hersins var
lokunin gerð í því skyni að auka ör-
yggisgæslu við landamæri Tsjetsj-
níu, en ýmsir telja hana vera til
marks um að Rússar ætli sér að
herða sóknina gegn Tsjetsjenum.
Eucerin
FM
til útlanda
-auövelt aö murid
SIMINN
www.simi.is
Héraðsforseti Ingúsetíu, Ruslan
Aushev, gagnrýndi í gær lokun
vegarins. Sagði hann að þrátt fyrir
að héraðið ætti fullt í fangi með að
taka á móti straumi flóttamanna,
væri óverjandi af hernum að loka
veginum og hefta þannig ferða-
frelsi rússneskra borgara. Sakaði
Aushev yfirmenn hersins um að
láta eins og þeir færa með völdin í
landinu.
Talið er að um 170.000 Tsjetsjen-
ar hafi flúið til Ingúsetíu eftir að ár-
ásir Rússa hófust. Rússneskar her-
sveitir hafa nú náð um þriðjungi
Tsjetsjníu á sitt vald og sækja að
Grosní frá norðri, austri og vestri.
Tilboð baðherbergissett!
Kr. 25.000,- stgr.
Baðkar.
170x70cm.
Handlaug á vegg.
Stærð 55 x 43 cm
Ath. öll hreinlætis-
tæki hjá okkur eru
framleidd hjá
sama aðila sem
tryggir sama
litatón á salerni,
salernissetu,
handlaug og
—baðkari.
Salerni með stut i vegg
eða gólf. Hörð seta og
festingar fylgja.
VERSLUN FYRIR AUA I
Atranei: BHverst, síml431 1985. Akureyrl: Höldurht. slmi4613000. EgilssteOir. BHa■ og búvélasalan ht. slm/4712011.
Kellavík: Bilasaian Biiavík, sími 421 7800. Veslmannaeylar: Bílaverkstæðid Bragginn, slmi 481 1535.
f 3d Civic 1.4 Si
1 90 hestöfl, 16 ventla, samlæsingar, rafdrífnar rúöur og speglar,
Lengd: 4,19 m. Hjólhaf: 2,62 m.
f 3d Civic 1.4 Si
90 hestöfl, 16 ventla, ABS, tveir loftpuöar, samlæsingar, rafdrífnar
rúöur og speglar. Lengd: 4,19 m. Hiólhaf: 2,62 m.
f 3d Civic 1.5 LSi - VTEC
115 hestöfí, 16 ventla, ABS, tveir loftpúðar, fjarstýrðar samlæsingar, raf-
drifnar rúður og speglar, hiti Ispeglum. Lengd: 4,19 m. Hjólhaf: 2,62 m.
( 3d Civic 1.6 VTi • VTEC
160 hestöfl, 16 ventla, ABS, tveir loftpúöar, 16" álfelgur, rafdrifin sóllúga,
leðurstýri, sportinnrétting, fíarstýrðar samlæsingar, rafdrifnar rúöur og
speglar, hiti i speglum, 6 hátalarar, samlitaður. Lengd: 4,19 m. Hjóthaf:
2,62 m.
Frcé kr. l.c3Q^.OOO
Ótrúlegur kraftur, eðallínur, formfegurð og ;
glæsilegar innréttingar, allt gerir þetta Civic Z
að lúxusbil sem veitir ökumanni og farþegum «
Ijúfa ánægjustund í hvert einasta sinn sem í
upp í hann er sest. Komdu og skoðaðu á ~
vefnum www.honda.is eða líttu inn og fáðu
að prófa.
HONDA
Vatnagörðum 24 ■ Sími 520 1100 ■ www.honda.is
Honda Civlcz =3 dyra