Morgunblaðið - 26.10.1999, Page 42

Morgunblaðið - 26.10.1999, Page 42
MORGUNBLAÐIÐ 42 ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1999 Orðabók óskast / / Eg fer ekki ofan afþví að Islensk orðabók sé safaríkasta bókin sem við eigum því allt sem ritað er og kugsað á íslensku á sér þar stoð, uþþsþrettu, sþeglun, skýringu. Uppáhaldsbókin mín er íslensk orðabók. Allar útgáfurnar frá 1963, þó sér í lagi 9. prentun annarrar útgáfu frá 1996. ís- lensk orðabók, kennd við Menn- ingarsjóð - allar 1263 blaðsíð- urnar. Ég skrifaði nafn þessarar bókar meira að segja á blað og sendi í viðeigandi pósthólf þegar Bókasamband Islands bað fólk í vor um að velja bók aldarinnar. Hún vann nú reyndar ekki, það gerði önnur góð bók, en ég fer samt ekki ofan af því að Islensk orðabók sé safaríkasta bókin sem við eigum því allt sem ritað er og hugsað á íslensku á sér þar stoð, uppsprettu, speglun, skýringu. VIÐHORF Eftir Sigur- björgu Þrast- ardóttur Eða þannig fannst mér það alla vega horfa við, þar til fyr- ir skömmu að ég fór að hugsa málið. Á huga minn sóttu skyndilega öll þau kynstur ný- yrða og undarlegra orðmynda sem skjóta daglega upp kollin- um í fréttaljósum og spjallþátt- um fjölmiðlanna, og á einni kvöldstund komst ég að því að helftar þeirra er hvergi getið í uppflettiritinu góða. Þar er hvorki að finna erfðagreiningu, leiðigarða, miðlunarlón né óm~ sjá, hvað þá gagnagrunn. Ég fletti áfram og fann heldur ekki skýringar á eldri og útbreiddari nafnorðum á borð við nýbúa, gæðastaðal, netfang eða strika- merki. Þessi orð eru þó í dag á nær hvers manns tungubroddi og jafnvel svo kunnug og skilj- anleg að fæstir myndu í raun þurfa á því að halda að fletta þeim upp í orðabók. Og þó. Hvað með íslendinga sem búið hafa erlendis um lengri eða skemmri tíma? Fólk sem aðeins hefur fengið íslensku dagblöðin send endrum og sinn- um, til viðbótar við bréf og sím- töl. Fjölmörg orð hljóta að koma slíku fólki spánskt fyrir sjónir þegar það snýr aftur heim og tekur til við daglega neyslu frétta í innlendum fjölmiðlum. Ekki tekur betra við hjá þeim sem í grandaleysi renna augum yfir rað- og atvinnuauglýsingar blaðsins síns. Þar má að vísu búast við nokkuð sértækara orðfæri en á öðrum síðum, en fyrr má nú aldeilis fyrr vera. Hljóðvistarflokkanir, rauntíma- kerfí, farandgæsla og birgjaaf- stemmingar gnæfa þar yfir önn- ur og auðmýkri nafnorð á þann hátt að meðaljón hlýtur að finna til vanmáttar. Hann gæti svo sem skilið orðin hljóð, vist og flokkun hvert fyrir sig, en er engu nær um hvað þau merkja öll saman í graut. Og hann kann ekki við að spyrja. Ný orð eru nauðsynleg til þess að orða nýja hugsun og breyttan lífsmáta og því ekki skrýtið að þau spretti upp eins og gorkúlur í okkar grósku- mikla samfélagi. I markaðs- fræðum eru ný hugtök smíðuð utan um nýjar leikreglur, í heil- brigðisgeiranum þarf að þýða heiti nýrra tækja, lyfja og með- ferða og boðskiptatæknin kallar daglega á nýjar leiðir til þess að útskýra tæknilegar framfarir. Skipulagsfræðin láta ekki sitt eftir liggja og hafa umhverfís- mat og grenndarkynning til dæmis unnið sér þegnrétt í mál- inu á augabragði. Þróun þessi er á köflum of hröð fyrir athyglisgáfu hins al- menna borgara. Þegar svo í ljós kemur að orðabækur heimilisins bregðast þeirri skyldu sinni að reiða fram skýringar, hlýtur sem snöggvast að koma óreiða á hugann. Um leið kann að koma óreiða á samfélagsgerðina, til að mynda sambúð kynslóðanna, vegna vaxandi misræmis í orða- forða. Dæmi: Margir sem komnir eru um eða yfir miðjan aldur koma ungum viðmælend- um sínum í opna skjöldu með torkennilegu orðavali, svo sem sagnorðunum ýra, gjögta, porra og öðrum úr nægtabrunni gamalgróinnar íslensku. Þeir hinir sömu af eldri kynslóðinni hvá hins vegar í samræðum við yngri samferðamenn þegar koma upp lýsingarorðin þver- faglegur og sjálfbær, sem nú eru meðal hinna vinsælli í orða- forða samtímans. Síðari dæmin læra yngri kynslóðimar að til- einka sér strax á námsárum og taka því með sér öðmvísi orða- safn inn í framtíðina en foreldr- ar, ömmur og afar. Hinir eldri reyna fyrir sitt leyti að kynna sér völundarhús hins aukna orðaforða en enginn skyldi lá þeim þótt þeir tapi stundum áttum. Ekki síst þegar þeir reka sig á það að band- breidd vísar ekki lengur til sverleika garns í rokki heldur flutningsgetu gagna um Ijósleið- ara, og vefur er víst ekki lengur voð í vefstól heldur blikandi táknaflóð á tölvuskjá. Ömmur og afar orða þetta sum hver svo að tungumálið sé í upplausn, en átta sig þá ekki á því að upp- lausn merkir aldeilis ekki leng- ur aðeins ringulreið, heldur hef- ur orðið með gæði tölvumynda að gera og vísar til punktafjölda á flatarmálseiningu. Við nýyrðasmíð eða endurnýj- un eldri orða er ekkert að at- huga. Óþrjótandi möguleikar til þess ama era þvert á móti með helstu kostum íslenskunnar sem lifandi tungu. Þess verður hins vegar að gæta að nýjum orðum fylgi aðgengilegar skýringar svo almenningur geti kynnt sér meriringu og bakgrann orðanna. Þess vegna hlýtur nýrrar og ít- arlegrar orðabókar íslenskrar tungu að vera beðið með óþreyju. Þangað til geta áhugasamir leitað orðskýringa í tölvutækum gagnagrannum, svo sem í bráð- snjöllum Orðabanka Islenskrar málstöðvar. Og kannski er sú að- ferð jafnvel haldbetri þegar allt kemur til alls. Orðasöfn á vefn- um hafa nefnilega þann augljósa kost að þau má uppfæra daglega og þannig leysast sjálfkrafa þau vandamál sem á undan eru rak- in. Að því sögðu er sennilega rétt að játa að endurútgáfa uppá- haldsbókarinnar minnai' kann að vera óþörf eftir allt saman - nýir tímar og nýjar aðferðir hafa tek- ið við. _____MINNINGAR__ AUÐUR AUÐUNS + Auður J. Auðuns var fædd á ísafirði 18. febrú- ar 1911. Hún lést á Drop- laugarstöðum hinn 19. októ- ber siðastliðinn. Foreldrar hennar voru Jón Auðunn Jónsson, alþingismaður, f. 17.7. 1878, d. 6.6. 1953, og Margrét Guðrún Jónsdóttir, húsfreyja, f. 27.4. 1872, d. 12.3. 1963. Systkini Auðar voru Sigríður, húsfreyja, f. 13.1. 1904, d. 28.6. 1992, Jón Auðuns, dómprófastur, f. 5.2. 1905, d. 10.7. 1981, Árni Auðuns, skattsljóri á Isa- firði, f. 19.6. 1906, d. 26.3. 1952, og Einar, f. 3.5. 1914, d. 19.7.1917. Maki Auðar var Hermann Jónsson, hrl., f. 23.12. 1912, d. 28.9. 1969. Börn þeirra eru: 1) Jón, f. 16.11. 1939, kvikmyndagerðarmaður, kvæntur Kolbrúnu Jóhannes- dóttur, og eru synir þeirra Jó- hannes og Hermann. 2) Einar, f. 25.12. 1942, skipaverkfræðing- ur, kvæntur Kristínu Guðna- dóttur, og eru synir þeirra Guðni og Árni. 3) Margrét, f. 3.5. 1949, fornleifafræðingur, og er sambýlismaður hennar Sigfús Björnsson, en dóttir Mar- grétar er Auður Ýrr. 4) Árni, f. 30.8. 1954, kennari, kvæntur Erlu Gunnarsdóttur, og eru börn þeirra Elísabet, Gunnar Viðar og Auður Sandra. Auður lauk stúdentprófi frá MR 1929 og lagaprófi frá Háskóla ís- lands 1935 og stundaði málfiutn- ingsstörf á ísafírði 1935-1936. Hún var borgarfulltrúi í Reykja- vík 1946-1970 og var forseti borg- arstjórnar 1954-1959 og 1960- 1970 og átti sæti í fræðslu- ráði, heilbrigðisnefnd og framfærslunefnd borgarinn- ar. Hún var kjörin borgar- s^jóri með Geir Hallgríms- syni 1959-1960. Auður var varaþingmaður Reykvíkinga 1947 og 1948 og þingmaður árin 1959-1974. Hún var dóms- og kirkjumálaráð- herra 1970-1971. Auður sat í mæðrastyrks- nefnd 1939-1981 og var lög- fræðingur nefndarinnar 1940-1960. Auður átti sæti í milliþinganefnd um endur- skoðun framfærslulaga 1946, í nefnd um endurskoð- un almannatryggingalaga 1954 og í sifjalaganefnd frá 1961-1989. Hún var kjörin í útvarpsráð 1975-1978. Hún sat allsheijarþing Samein- uðu þjóðanna 1967 og var formaður sendinefndar íslands á Kvennaráðstefnu SÞ í Mexíkó 1975. Auður var formaður Hvat- ar, félags sjátfstæðiskvenna, 1976-1978 og formaður Lands- sambands sjálfstæðiskvenna 1973-1975. Hún starfaði lengi í Zonta-hreyfingunni. Útför Auðar verður gerð frá Hallgrímskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Kveðja frá Sjálfstæðisflokknum Frú Auður Auðuns á sess í sögu Sjálfstæðisflokksins. Það var flokknum til vegs að hafa forystu um að hefja konu til mestu ábyrgð- ar, bæði á vettvangi borgarstjómar Reykjavíkur og í landsmálum. Svo undarlega sem það hljómar nú, var það ekki sjálfgefið íyrir 30 til 40 ár- um. Og það var gifta flokksins að Auður Auðuns var valin til að ryðja braut. Þar réði hvorki tilviljun né óeðlileg framagirni af hennar hálfu. Öðra nær. Auður hafði þegar brotið niður hindranir, sem stóðu í vegi þess að kraftar kvenna og hæfileik- ar nýttust með verðugum hætti í þjóðlífinu. Hún var meðal fyrstu kvenna sem luku langskólanámi og fyrsti íslenski lögfræðingurinn úr þeirra hópi. En hún gat aðeins orð- ið öðram konum fordæmi og fyrir- mynd ef í ljós kæmi að hún risi undir þeim trúnaðarstörfum sem flokkurinn fól henni. Þar skorti ekki á neitt. Hún var allt í senn; at- hugul, vandvirk og stefnuföst. Vel- gengni hennar var því verðskulduð og steig henni þess vegna ekki til höfuðs eins og gerist iðulega þegar óverðugir fá óvæntan frama. Auður Auðuns var flokksmann- eskja í besta skilningi orðsins. Hún hafði ung gengið flokknum á hönd vegna þeirra megin gilda sem hún setti í öndvegi. Hún vék aldrei frá þeim gildum til að tryggja sjálfri sér greiðari för upp metorðastig- ann. En hún lét til sín taka ef henni mislíkaði veralega við útfærslu ein- stakra stefnumiða. Hún lagði ungu baráttufólki lið í baráttu þess innan flokksins, ekki síst kynsystram sín- um og gladdist yfir velgengni sjálf- stæðiskvenna, þótt of hægt færi að hennar mati. Af pólitískum friðar- stóli sínum lagði hún aldrei nema gott til gamla flokksins síns. Af öll- um þessum ástæðum og svo mörg- um öðrum, telst hún í hópi ágæt- ustu manna í forystusveit Sjálf- stæðisflokksins fyrr og síðar. Davíð Oddsson. Með andláti Auðar Auðuns er lokið mikilvægum kafla í sögu kvenna á Islandi. Ái'ið sem sett voru lög um jafnan rétt kvenna og karla til menntunar og embætta fæddist vestur á ísa- firði lítil stúlka sem átti eftir að koma þessum lagaákvæðum í fram- kvæmd. Tuttugu og fjöguma ára gömul lauk Auður Auðuns embætt- isprófi í lögfræði frá Háskóla Is- lands og varð dómarafulltrúi ári síðar. Hún leit svo á að þetta væri sjálfsagt og ekkert væri eðlilegra. Með lífi sínu afsannaði hún kenn- ingar þeirra tíma úrtölumanna kvenréttinda, að konur, sem veldu braut háskólamenntunar og emb- ætta, höfnuðu þar með hinum hefð- bundnu verkefnum kvenna við um- önnun heimilis og barna. Johann Wolfgang Goethe skrif- aði um „das ewig weibliche“ - hið eilífa kvenlega. I huga mínum er mynd af atviki sem sýnir einmitt lítið dæmi um það, hvernig Auður sameinaði embættisverkin og hið eilífa kvenlega. Það var á hafnar- bakkanum þegar Auður, forseti borgarstjórnar, fagnaði fyi-ir hönd Reykvíkinga Gullfossi, flaggskipi íslenzka flotans, en hún var þá greinilega komin fast að barns- þurði. Þessi mynd þætti ekki tíð- indum sæta í dag, sem betur fer, en svo var þá. Ég kynntist því síðar að Auður var meistari í því að nýta stopular stundir til að sinna búi og börnum, enda heimili hennar fagurt og börnin stolt hennar. Eitt sinn varð ég þess vör á þingi að Auður fór heim í klukkutíma fundarhléi. Hún tók strætisvagn í Lækjargötu og vestur á Ægisíðu. Tæpast gat kom- ið út úr þessu nema hálftími heima. Ég spurði hana, hvort henni fynd- ist taka þessu, hvað hún gæti eigin- lega gert við þennan hálftíma. Hún svaraði: „Ég get til dæmis þurrkað af.“ Þá sá ég að Auður var til fyrir- myndar í fleira en stjórnmálunum. Auður Auðuns hafði mikil áhrif í ýmsum ópólitískum félagasamtök- um. Má þar nefna Kvenréttindafé- lag íslands og Zontaklúbbinn, sem henni var mjög annt um. Rifja má upp fund í Kvenréttindafélaginu á sjötta áratugnum. Á dagskránni vora skattamál hjóna, hið sívinsæla og eldfíma umræðuefni. Auður var fundarstjóri og var lagin við að greiða úr tillöguflóði um málið. Er dró að fundarlokum og fækka tók í salnum gerðist það sem altítt var í félaginu á þessum áram, að upp skutu kollinum stórpólitískar til- lögur, sem ekkert komu dagskrár- málinu við, til dæmis um varnar- mál. Reyndi þá mjög á fundarstjór- ann. Aðdáun vakti af hvílíkri festu og skýrleika hún stjórnaði, enda naut hún trausts samherja og mótherja. Raunar átti Auður gott samstarf við ýmsar konur á önd- verðum meiði í stjórnmálum. Má nefna Aðalbjörgu Sigurðardóttur, Helgu Rafnsdóttur, Rannveigu Þorsteinsdóttur og margar fleiri. Þessa gætti ekki sízt í störfum fyr- ir Mæðrastyrksnefnd, sem veitti réttarhjálp án endurgjalds. Auður mótaði þetta starf, var lögfræðing- ur nefndarinnar um tuttugu ára skeið. Margar ungar konur og börn þeirra nutu góðs af störfum henn- ar, sem vora fyrst og fremst á sviði sifjaréttar. Auður átti sæti í sifjalaganefnd dómsmálaráðuneytisins og nor- rænu sifjalaganefndinni, svo að reynsla hennar á því lagasviði hef- ur komið í góðar þarfir. Efa ég ekki að áhrifa hennar sjái stað í hinni nýju sifjaréttarlöggjöf. Auður hóf afskipti af stjórnmál- um 1946 er hún hlaut þriðja sæti á bæjarstjórnarlista Sjálfstæðis- manna í prófkjöri, sem þá var ný- mæli. Ofar á listanum voru einung- is þeir Bjarni Benediktsson sem þá var borgarstjóri og Guðmundur Ásbjörnsson sem þá var forseti bæjarstjórnar. Sjálf var hún forseti bæjarstjórnar 1954 til 1970 að und- anskildu því ári sem hún var borg- arstjóri ásamt Geir Hallgrímssyni. Mat hún mikils samstarf og vináttu við Geir þá og alla tíð síðan. Störf Auðar í borgarstjórn mót- uðust vitaskuld af þeim málaflokk- um, sem hún hafði með höndum og stundum hafa verið kölluð dæmi- gerð kvennamálefni, fræðslumál, framfærslumál og heilbrigðismál, allt málefni sem varða daglegt líf borgaranna. Enda hefur sú gleði- lega þróun orðið með jafnari verkaskiptingu karla og kvenna, að stjórnmálamenn almennt skynja nú hið pólitíska mikilvægi þessara málaflokka og að stjórnmál era fleira en fjármál, efnahags- og at- vinnumál í þrengsta skilningi. Auður var kosin á þing 1959 og átti þar sæti óslitið tÖ 1974. Sam- starfið við hana á þingi var bæði gott og lærdómsríkt. Undirrituð var svo lánsöm að njóta leiðbeininga hennar og vináttu, sem stundum varð til þess að tveggja áratuga ald- ursmunur gleymdist. Störf Auðar á þingi mótuðust af prúðmennsku, festu og þekkingu. I þingsölum fylgdi hún málum fast fram án há- vaða og fyrirgangs, en á þingflokks- fundum talaði hún enga tæpitungu. Hún vildi svo sem verða mátti fá mál útkljáð á þingflokksfundum án þess að hlaupið væri með þau í fjöl- miðla. Hún vildi að þingflokkurinn kæmi fram út á við sem ein heild og hollustu við samstarfsmenn mat hún mikils. Hún sat alla tíð í efri deild Alþingis, þar sem nefndar- starf var meira en í neðri deild hjá hverjum og einum þingmanna. Átti hún þar ágætt samstarf bæði við pólitíska andstæðinga og samherja

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.