Morgunblaðið - 26.10.1999, Side 56
56 ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Opið bréf til biskups íslands
i
í Morgunblaðinu
þann 19. október sl.
birtist grein sem jafn-
framt var opið bréf til
forseta íslands. Til-
efni þess bréfs, eða
greinar réttara sagt,
var bæklingur um
trúarleg málefni sem
sendur var inn á hvert
heimili í landinu nú
um mánaðamótin
(september-október).
Bæklingur þessi var
-gefinn út af tilefni ár-
þúsundamótanna og
bar titilinn „Verða
tímamót í lífi þínu?“
með undirtitlinum „Ur
mínus í plús“.
Greinin var skrifuð af tveimur
„trúleysingjum" (að eigin sögn),
sem voru óánægðir með það að for-
seti Islands hefði ritað inngang að
bæklingi þessum sem gefinn var út
af ýmsum kristilegum trúarfélög-
um. Töldu greinarhöfundar að það
samrýmdist ekki embæjti forset-
ans, sem fulltrúa allra Islendinga
ekki aðeins þeirra kristnu, að lýsa
yfir stuðningi sínum við slíkan
bækling. Astæða óánægju þeirra
virðist þó ekki aðeins hafa verið sú,
að forseti lýðveldisins særði með
- þessu tilfinningar þeirra sem
standa utan trúfélaga, heldur einn-
ig sökum þess hvers konar „áróð-
ur“ var að finna í bæklingi þessum.
Þau nefna sem dæmi um innihaldið
í bæklingnum, að gengið sé út frá
því að fólk þyrfi að frelsast, þ.e.
eignast lifandi, persónulega trú, til
þess að geta lifað siðsamlegu lífi.
Gengið sé út frá að trúleysi feli í sér
siðleysi og eina leiðin íýrir mann-
kynið til að komast hjá því að tor-
'• tímast í eigin sora, sé að frelsast,
þ.e. að taka kristna trú. Greinar-
höfundar tala um þetta sem dæmi
um hroka og lítilsvirðingu gagnvart
þeim sem ekki eru kristin og telja
það ekki samrýmast embætti for-
setans að taka undir slíkan boð-
skap.
Eg vil ekki blanda mér í þessa
umræðu um starfshætti forsetans,
en hef aftur á móti starfs míns
vegna sérstakan áhuga á þátt bisk-
ups Islands og þjóðkirkjunnar í
Torfi K. Stefáns-
son Hjaltalín
gerð þessa bæklings.
Eins og kemur fram
hjá greinarhöfundum
þá tók þjóðkirkjan
þátt í útgáfu bækl-
ingsins (og reyndar
kristnihátíðarnefnd
einnig) og biskupinn
ritar formála. Grein-
arhöfundar hrósa
þjóðkirkjunni fyrir að
hafa allt til þessa gert
lágmarkskröfur til
þess efnis sem hún
hefur látið frá sér
fara, en harmar að svo
sé ekki varið í þetta
skipti. Þá er og biskup
gagnrýndur fyrir að
fullyrða að börn geti ekki upplifað
bestu gjafir lífsins svo sem kær-
leika nema í gengum kristna trú, og
lái ég ekki greinarhöfundum að
túlka þessi ummæli svo þau feli í
sér að þeir ekki-kristnu séu „óhæf-
ir foreldrar“.
Eg get tekið undir þessa gagn-
rýni á biskup og á þá aðila innan
þjóðkirkjunnar sem komu að út-
gáfu þessa bæklings og leyfi mér að
fullyrða að þær skoðanir sem fram
koma í bæklingnum eru ekki í sam-
ræmi við evangelíska-lúterska
kristni. Marteinn Lúter, stofnandi
okkar kirkjudeildar, lagði áherslu á
það að lögmálið væri ritað í hjörtu
alls mannkyns, þ.e.a.s. að hæfileik-
inn til að greina á milli góðs og ills
væri innbyggður í manninn og væri
þannig óháður trúarlegri reynslu,
eða með öðrum orðum kristinni
(trúarlegri) opinberun. Lúter talaði
um náttúrulega opinberun lögmáls-
ins (þ.e. hinnar réttu breytni) sem
væri gjöf Skaparans til alls mann-
kyns, óháð trú þeirra. Þessi afstaða
lúterskar kristni hefur einkennt
samskipti hennar við hið veraldlega
samfélag nú í um og yfír 450 ár með
þeim afleiðingum að samstarf ríkis
og kirkju í þeim löndum þar sem
lúterskar kirkjudeildir eru í mikl-
um meirihluta hefur verið með
miklum ágætum. Lúterska kirkjan
hér á Islandi hefur verið svo lán-
söm að fá að kallast þjóðkirkja, sem
sýnir að kirkjunni hefur tekist að
halda stöðu sinni sem sameiningar-
tákn þjóðarinnar allt til þessa dags.
Áhugaverð fyrirtæki
. Vilt þú vinna þér inn aukapening fyrir jól? Til sölu á frábæru verði
einstaklega fallegur og seljanlegur vörulager (ekki fatnaður). Hægt
að selja hann einum stórum aðila eða í tilheyrandi verslanir eða
opna jólamarkað og græða sjálfur mest á því. Verð kr. 4 millj. Ekki
gefið upp í síma.
2. Rit- og leikfangaverslun í 8 þús. manna hverfi, sú eina. Mikil viðskipti
sem fara vaxandi. Er staðsett í landsþekktu verslunarhúsi og í eigin
húsnæði sem einnig er til sölu. Blússandi tími framundan. Er með
umboð fyrir öll happdrættin. Skemmtilegt og þroskandi starf sem
gefur gott af sér.
3. Vantar þig gott fyrirtæki með mikla framlegð? Til sölu framköllunar-
fyrirtæki sem hefur mikið að gera, sér um innrömmun, stækkanir
og hefur stúdíó. Spennandi fyrirtæki sem þarf enga sérþekkingu.
Ótrúlegir tekjumöguleikar.
4. Góður skyndibitastaður í borginni sem allir þekkja. Góð velta og
selur mest af hamborgurum, steik, kjúklingum, fiski og frönskum
kartöflum. Einmitt það sem gefur best. Gott staðgreiðsluverð. Opið
til kl. 20.30.
5. Ert þú í vaktavinnu? Hefur þú góðan tíma og vilt þú auka tekjurnar?
Til sölu nokkur fyrirtæki sem hægt er að hafa heima og framleiða
t.d. kerti, tómar myndbandakassettur, sælgæti, heilsu- og inniskó,
silkiprentun, kaffivélar og áfyllingarefni til fyrirtækja og stofnana.
Góðir tekjumöguleikar.
6. Húsgagnaviðgerðir. Ert þú laginn? Til sölu er verkstæði sem gerir
við gömul húsgögn, mikil verkefni ávallt fyrirliggjandi langtfram
í tímann. Þarf að flytjast í nýtt húsnæði. Góðar tekjur, næg atvinna.
7. Góð tveggja til þriggja manna auglýsingastofa til sölu, búin öllum
tækjum og bókum sem þarf. Næg föst verkefni. Þjálfun á fólki fylgir
með.
8. Og rúsínan í pylsuendanum. Frábært innrömmunarfyrirtæki til sölu.
Er á góðum stað í borginni og vel þekkt. Næg verkefni. Frábær tæki
og góð vinnuaðstaða. Góðar tekjur fyrir réttan aðila.
Mikið af fyrirtækjum á skrá. Þú ert ávallt velkominn.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
f^fTTT77?I17I^ITVIT71
SUÐURVERl
SlMAR 581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
Bæklingur
Ég vil ítreka mikilvægi
þess að þjóðkirkjan
taki ekki þátt í slíku
samstarfi, segir Torfí
Kristján Stefánsson
Hjaltalín, nema á þeim
forsendum sem eru
í samræmi við þá
trúar- og lífsskoðun
sem hún og meðlimir
hennar hafa.
Nú eru aftur á móti blikur á lofti,
ekki síst með tilkomu nýs biskups,
sem kemur með aðrar áherslur en
áður hefur þekkst hér í yfirstjórn
þjóðkirkjunnar. Hann hefur valið
sér það að leggja mjög ríka áherslu
á mikilvægi trúarinnar, kristninn-
ar, hvað varðar siðferðileg og jafn-
vel pólitísk álitamál. Þetta hefur
hann gert í mun ríkara mæli en fyr-
irrennarar hans sem frekar hafa
haldið í heiðri hina klassísku að-
greiningu lúterskra kirkjudeilda,
þ.e. að greina milli þess trúarlega
og þess veraldlega, milli lögmáls og
fagnaðarerindis eins og við köllum
það á guðfræðimáli. Þar með hefur
biskup nálgast málílutning „sér-
trúarhópa" eins og hvítasunnusafn-
aðarins og annarra náðarvakning-
arhreyfinga nútímans sem hafa
trúna sem algjöra forsendu réttrar
siðferðilegrar breytni. Þessi til-
hneiging biskups útskýrir að mínu
mati hvernig stendur á því að
þjóðkirkjan og kristihátíðarnefnd
stóðu að útgáfu umrædds bækl-
ingsins og þá, kannski einnig af
hverju forseti Islands lætur bendla
sig rið svona „sértrúar“áróður.
Eg harma þátttöku kirkjunnar í
útgáfu þessa bæklings þar sem í
honum koma fram lífs- og trúar-
skoðanir sem ég tel ósamrýmanleg-
ar lúterskri kirkju. Eg vil benda á,
samkvæmt þeim upplýsingum sem
ég hef fengið, að erlendir útgefend-
ur og höfundur þessa bæklings eru
hvítasunnumenn og þeir aðilar sem
höfðu frumkvæði að útgáfu hans
hér á landi eru meira og minna
tengdir náðarvakningarhreyfing-
um eins og þeim er Krossinn og
fleiri fríkirkjur hérlendis eru full-
trúar fyrir.
Ég tel að þjóðkirkjan hafi látið
plata sig til þátttöku, hún hafí verið
misnotuð til þess að koma bækling-
num í hvert hús á landinu. Reyndar
er þetta ekki í fyrsta sinn sem opin-
berir aðilar láta snúa á sig og má
nefna sem dæmi það þegar hvert
grunnskólabarn í landinu fékk, fyr-
ir u.þ.b. tveimur árum, sendan
bækling sem var á svipuðum nótum
og sá sem er til umræðu hér. I um-
ræðu um það mál kom í ljós að
sumir grunnskólanna virtust hafa
verið blekktir til að taka þátt í því
„_sér“trúboði sem þar var að finna.
Ég vil ítreka mikilvægi þess að
þjóðkirkjan taki ekki þátt í slíku
samstarfi, sem greinir frá hér að
ofan, nema á þeim forsendum sem
eru í samræmi við þá trúar- og lífs-
skoðun sem hún og meðlimir henn-
ar hafa, þ.e. á hennai- eigin forsend-
um, en ekki einhverjum
„sér“trúarforsendum. Ef yfirstjórn
þjóðkirkjunnar vill aftur á móti
breyta um áherslur í starfi sínu tel
ég sjálfsagt og eðlilegt að starfs-
menn hennar og meðlimir allir
verði spurðir álits á þeirri stefnu-
breytingu og fái þannig tækifæri til
lýðræðislegrar umræðu um svo
mikilvæg mál.
I einlægri ósk um að fleiri slíkir
bæklingar berist ekki í pósti til mín
í nafni þjóðkirkjunnar, kristnihá-
tíðamefndar, biskups - eða forseta
Islands.
Höfundur er sóknarprestur í
þjóðkirkjunni.
Slysaskilti R-listans
R-LISTINN hefur
veitt danska fyrirtæk-
inu AFA JCDecaux
einkarétt til að setja
fjölda auglýsinga-
skilta upp á almanna-
færi í Reykjavík.
Danska fyrirtækið
hefur nú þegar tryggt
sér rétt á að setja upp
42 slík skilti og er nú
unnið að því að finna
þeim staði víðs vegar
um borgina. Verði far-
ið eftir óskum danska
fyrirtækisins um stað-
setningu skiltanna er
ljóst að mörg þeirra
munu valda sjón-
mengun og jafnvel slysahættu.
Með nýlegri setningu reglugerð-
ar um skilti í lögsögu Reykjavíkur
voru uppsetningu nýrra auglýs-
ingaskilta settar þröngar skorður.
Sum ákvæði reglugerðarinnar eru
fullströng og takmarka sjálfsagðan
og eðlilegan rétt fyrirtækja til að
kynna borgarbúum þjónustu sína.
Uppsetningu auglýsingaskilta á
byggingum eða eigin lóðum fyrir-
tækja hefur þannig oft verið hafn-
að á grundvelli umræddrar reglu-
gerðar.
Skýr reglugerð þverbrotin
Það er þó jákvætt að í reglu-
gerðinni eru skorður reistar við
uppsetningu varanlegra auglýs-
ingaskilta við stofnbrautir og
tengibrautir þar sem ökumenn
þurfa á óskertri athygli að halda.
AUir sjá að auglýsingaskilti á slík-
um stöðum geta haft slysahættu í
för með sér. I samþykktinni segir
að skilti, önnur en umferðamierki
og vegvísar, séu ekki leyfð á helg-
SLIM-LINE
dömubuxur frá
gardeur
OÓuntu
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 561 1680
unarsvæði stofn- eða
tengibrauta. Þá segir:
„Ekki era leyfð
auglýsingaskilti á
stöndum er snúa að
stofn- eða tengibraut-
um og eru nær veg-
brún gatnamóta en
100 m en nær vegbrún
götu en 20 m.“
Nýstárleg lögfræði
Ákvæði samþykkt-
arinnar era skýr að
þessu leyti. Það vekur
því furðu að til stend-
Kjartan ur að setja flest
Magnússon auglýsingaskiltin upp
við fjölfarnar ak-
brautir eða á þröngum gangstétt-
um í miðbænum. Það á t.d. að setja
upp skilti við umferðargötur eins
og Hverfisgötu, Skothúsveg og
fimm skilti við Hringbraut. Upp-
setningin er miðuð við að auglýs-
ingamar gíni við bflstjóram, sem
leið eiga um þessar götur. Flest
skiltanna eiga að vera við eða ná-
lægt gatnamótum þar sem skárra
þykir að ökumenn haldi óskertri
athygli. Einnig er í bígerð að setja
skilti upp á þröngum gangstéttum
Austurstrætis, Pósthússtrætis,
Hafnarstrætis, Laugavegar og
Skólavörðustígs en þar er mikil
umferð gangandi vegfarenda.
Það er með ólíkindum að R-list-
inn skuli fyrst beita sér fyrir setn-
ingu svo strangrar skiltareglu-
gerðar en kjósi nú að þverbrjóta
þessa sömu reglugerð í því skyni
að veita dönsku fyrirtæki einkarétt
á uppsetningu fjölda auglýsinga-
skilta í borgarlandinu og á al-
mannafæri í Reykjavík.
Slysahætta!
Fyrir aðeins þremur árum þótti
nauðsynlegt að hafa reglugerðina
stranga vegna umferðaröryggis-
sjónarmiða. Aberandi auglýsinga-
skilti geta truflað ökumenn og
valdið slysahættu. Þá geta skilti á
gangstéttum valdið slysahættu
fyrir gangandi og hjólandi vegfar-
endur, ekki síst á þröngum gang-
stéttum miðbæjarins.
Nú hefur Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri vent sínu
kvæði í kross og telur „sérstakar
ástæður" mæla með því að setja
fjölda auglýsingaskilta upp við
stofnbrautir og tengibrautir í
borginni þar sem boðskapur þeirra
gín við bflstjórum.
Auglýsingaskilti
R-listinn þverbrýtur
skiltareglugerð, segir
Kjartan Magnússon,
og kemur á einokun
á uppsetningu auglýs-
ingaskilta. Skiltin geta
valdið slysahættu og
fyrirtækjum er gróflega
mismunað.
Fyrirtækjum gróflega
mismunað
Mörgum auglýsingaskilta AFA
JCDecaux er ætlaður staður á
borgarlandi en íslenskum fyrir-
tækjum hefur hingað til ekki verið
heimilt að setja upp skilti á slíkum
stöðum. A sama tíma og mörg
dæmi era um að reykvískum fyrir-
tækjum sé bannað að auglýsa
þjónustu sína með uppsetningu
nýrra skilta á húsum sínum eða
lóðum fær danskt fyrirtæki sér-
meðferð og nýtur forréttinda hjá
R-listanum.
Hætta fyrir blinda
Blindrafélagið og Sjónstöð ís-
lands hafa gert alvarlegar athuga-
semdir við fyrirhugaða staðsetn-
ingu auglýsingaskilta á
gönguleiðum. í bréfi þessara aðila
til borgarskipulags frá 12. þ.m.
segir að afar óheppilegt sé fyrir
blinda og sjónskerta að gönguleið-
ir séu tepptar með þessum hætti
og skilti af þeirri gerð, sem fyrir-
huguð sé, hafi í for með sér sér-
staka hættu fyrir þessa hópa.
Það er ótrúlegt en eigi að síður
satt að R-listinn skuli greiða götu
erlends fyrirtækis, sem vill koma
fyrir fjölmörgum auglýsingaskilt-
um í borginni, þrátt fyrir að þau
brjóti í bága við gildandi skiltar-
eglugerð, hafi slysahættu í för með
sér og feli í sér mismunun gagn-
vart íslenskum fyrirtækjum. Enn
ótrúlegra er þó að R-listinn hefur
veitt umræddu fyrirtæki einokun-
arrétt á þessari auglýsingaaðferð í
borginni um langa framtíð.
Höfundur er borgarfulltrúi.